Tíminn - 02.11.1993, Síða 1

Tíminn - 02.11.1993, Síða 1
 Þriðjudagur 2. nóvember 1993 207. tbl. 77. árg. VERÐí LAUSASÖLU KR. 125.- Erlendir aðilar horfa vonaraugum á íslenskan búvörumarkað Njósnað um markaðsvernd Erlendir aðilar hafa verið hér á landi undanfarið til þess að fylgjast með hvemig íslendingar standa við milli- rikjasamninga um verslun með land- búnaðarvörur. Þá er vitað að fylgst er með gúrkumálinu eriendis, án þess að nokkur formleg kvðrtun hafi bor- ist. „Þó að það hafi ekki verið í gegnum okkar skrifstofu, þá veit ég að það hef- ur verið fylgst með þessu máli erlend- is af aðilum, sem eiga viðskipti við ís- land og hafá haft tök á því að koma kvörtunum á framfæri við þarlend yf- irvöld," segir Stefán Guðjónsson, framkvaemdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna. Stefán staðfestir jafnframt að menn frá Hollandi og Belgíu hafi verið hér á ferð um nokk- um tíma, m.a. til að fylgjast með hvemig fslendingar standa við ýmsar skuldbindingar sínar í sambandi við landbúnaðarmál og afúrðir framleidd- ar úr landbúnaðarvömm. Stefán segist ekki vita til að formleg- ar kvartanir hafi borist vegna banns við grænmetisinnflutningnum. „Eg vona að við höfúm blessun til þess að leysa þetta mál áður en til þess kernur," segir hann. „Það em svo miklir viðskiptahagsmunir í húfi fyrir okkar útflytjendur. Það er stór hópur útflytjenda í Félagi stórkaupmanna og það er ekki síst vegna hagsmuna þeirra sem við höfum áhyggjur af mál- inu.“ -ÁG 52 dagar til jóla Þrátt fyrir aö enn séu 52 dagar til jóla eru jólasveinar komnir í glugga verslunar íslensks heimilisiðnaðar í Hafnarstræti. Sú þróun virðist hafa verið á undanförnum árum að eigendur verslana hefji undirbúning jólanna fyrr með hverju árinu, en sú hefur einmitt orðið raunin er- lendis. Á myndinni, sem tekin var í gær, má sjá hvar starfsmaður islensks heimilisiðnaðar er að setja upp jólasveina í útstillingarglugganum. Tímamynd Ámi Bjama Félag íslenskra stórkaupmanna Ihuga að kæra innflutningsbann Félag íslenskra stórkaupmanna thugar að kæra bann landbúnaöar- ráðherra við innflutningi á grænmeti. Að sögn formanns féiagsins er verið að kanna lögfræðilega hlið málsins áður en ákvörðun verður tekin. „Það er alveg hugsanlegt aö við látum á þetta reyna fyrir dómstólum,“ segir Birgir Rafn Jónsson, formaður Félags ís- lenskra stórkaupmanna. Fyrir liggur að landbúnaðarráð- herra ætlar ekki að heimila inn- flutning og sölu á 800 kössum af gúrku, sem þegar bíða tollaf- greiðslu í Sundahöfri, né heldur öðru grænmeti sem er á leið til landsins. Birgir segir að gúrkumál- ið sé annars eðlis en skinkumálið, sem Hagkaup tapaði í undirrétti fyrir skömmu. Hann vitnar til tví- Á myndinnl má sjá hvemig einn bílanna tuttugu hefur verið ríspaður. Á þessari bifreiö hefur skammstöfun Rannsóknariögreglu Ríklsins, RLR, veriö rispuð á skottlokið. Skemmdarverkafaraldur á höfuðborgarsvæðinu „RLR“ verið rispað í lakk um 20 bíla Sérkennilegur skemmdarverki- faraldur hefur geisað um tíma á höfuðborgarsvæðinu, þar sem skammstöfun Rannsóknarlög- reglu Ríkisins, RLR, hefur verið rispuð í lakk um 20 bifreiða. Rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík rannsakar málið en stendur ráðþrota gagnvart því og hefur enn engar vísbendingar um hver gæti verið þama að verki. Eins og áður sagði er rispað RLR í lakk bifreiðanna, en að auki er í nokkmm tilvika bætt við skila- boðum fyrir aftan og leiða menn að því líkum að þama séu á ferð menn sem hafi átt í útistöðum við Rannsóknarlögregluna. Flestir bflanna sem rispaðir vom hafa samkvæmt heimildum Tímans verið staðsettir í Hlíðahverfi. -PS hliða samnings milli íslands og EB, sem undirritaður var í tengslum við EES-samningana. „f honum segir að á ákveðnum tíma — frá 1. nóvember til 15. mars — sé frjálst að flytja inn ákveðnar tegundir af grænmeti," segir Birgir. „Tollur af því hefur verið felldur niður og það þýðir fyr- ir okkur að þetta heyrir ekki undir lögsögu eins né neins. Þetta er frjálst." Sigurgeir Þorgeirsson, aðstoðar- maður landbúnaðarráðherra, er á öndverðum meiði. Hann bendir á að tvíhliðasamningurinn hafi ekki verið samþykktur af Alþingi. Bú- vömlögin séu honum æðri. „53. grein búvömlaganna er skýr og afdráttarlaus. Þar segir að land- búnaðarráðherra sé heimilt að ákveða að innflutningur tiltekinna grænmetistegunda sé tfmabundið óháður leyfisveitingu, ef ráðgefandi nefnd mælir með því. Hann skal þó aðeins heimilaður að innlend fram- leiðsla fullnægi ekki eftirspurn. Og það er nefndin sem ákveður það.“ Ekki fengust í gær nákvæmar upplýsingar um hversu mikið af grænmeti væri á leið til landsins. „Ég geri ráð fyrir því að menn fari varlega, þó að þeir séu ekki sáttir við þetta, á meðan þetta er að skýr- ast eitthvað frekar," sagði Birgir Rafn Jónsson. Þingsályktunartillaga Alþýðubandalags Landhelgin færð út í 250 mílur? Þingmenn Alþýðubandalagsins hafa lagt fram þingsályktunartil- lögu um að Alþingi kjósi nefnd sem kanni möguleika á frekari útfærslu efnahagslögsögunnar. Jóhann Ársælsson, þingmaður flokksins, segir ekki óeðlilegt að menn athugi sérstaklega út- færslu í 250 sjómflur eða að landhelgin fylgi landgrunns- mörkum. Steingrímur J. Sigfússon, fyrsti flutningsmaður tillögunnar, seg- ir að á næstu árum muni draga til tíðinda varðandi framtíðarstöðu alþjóðlegra hafsvæða. Erfitt sé að spá í hver niðurstaðan verði. Hún gæti orðið sú að landhelgismörk strandríkja yrðu stækkuð. Hún gæti einnig orðið sú að settir yrðu kvótar á alþjóðleg hafsvæði og þá mundi veiðireynslan ráða miklu um hvernig kvótunum yrði skipt. Steingrímur segist því ekki vera í vafa um að það sé í samræmi við hagsmuni íslands að veiða á alþjóðlegum hafsvæð- um eins og í Smugunni. Verði lagður á kvóti á afla í Smugunni hljóti íslend- ingar að geta gert kröfu um veið- ar í henni. Sama eigi við Flæmska hattinn, en íslensk skip hafa sótt þangað í djúprækju. Steingrímur sagði að nú væri rætt um að setja kvóta á afla í Flæmska hattinum eftir tvö ár. Alþýðubandalagið vill að sjö manna nefnd verði skipuð til að kanna möguleika á útfærslu ís- lensku efnahagslögsögunnar. Gert er ráð fyrir að nefndin geri einnig tillögu um hvemig afla skuli ýtrustu réttinda íslending- um til handa á hafsvæðum sem liggja að íslensku efnahagslög- sögunni og úthafinu og hvemig þeirra verði best gætt. Ætlast er til að nefndin skili niðurstöðu af störfum sínum til Alþingis fyrir 1. mars á næsta ári. -EÓ Nauðgunarmálið í Kópavogi Nauðgarinn ófundinn Leit stendur enn yfir að manni um tvítugt sem réðst að 16 ára stúlku með hnífi og nauðgaði henni bak við gám við hús Land- véla í Kópavogi aðfaranótt laugar- dags. Rannsóknariögreglan hefur nokkuð greinagóða lýsingu á manninum og vinnur nú að rann- sókn málsins eftir ábendingum sem henni hafa borist. Maðurinn er um 175 sm á hæð og var klæddur í svartar snjáðar galla- buxur, svartan taujakka og með fjólubláa derhúfu sem á var ritað Viking með gulum stöfum. Stúlkan var gangandi á Ieið frá vinkonu sinni í Breiðholti og heim til sín í Kópavogi. Lá leið hennar undir undirgöng á Reykjanesbraut við Mjóddina, þar sem árásarmað- urinn virtist hafa beðið hennar. Brá maðurinn hnífi að hálsi stúlk- unnar og dró hana að gámnum bak við hús Landvéla, þar sem hann kom fram vilja sínum. Bar maðurinn poka á höfði sínu sem fannst í nágrenninu. Stúlkan komst heim til sín og eft- ir að hafa tilkynnt nauðgunina til lögreglunnar var hún flutt á neyð- armóttöku fyrir fórnarlömb kyn- ferðisafbrota á Borgarspítalanum. -PS

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.