Tíminn - 02.11.1993, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 2. nóvember 1993
Tíminn 3
Lokun hrygningarsvæða og stjórn fiskveiða. LÍÚ:
Erfitt orðið að
skilja ráöamenn
Aö mati aðalfundar LÍÚ er erfitt að sjá hvaða merkingu á að leggja
í orð þeirra sem stjóma sjávarútvegsráðuneytinu á hverjum tíma,
ef áður gert samkomulag er að engu haft og hlutur krókaleyfisbáta
verði Ld. ijórfaldaður á kostnað annarra skipa.
Samþykkt var að útvegsmenn
beittu sér fyrir því að allar veiðar
yrðu stöðvaðar í 12-15 daga á þeim
svæðum sem talið er að hrygning
fari fram og rannsóknir á hrygningu
þorsks verði auknar. Þá var enn-
fremur samþykkt að meira skyldi
gert af því en áður að loka uppeldis-
stöðvum þorsks fyrir öllum veiðar-
færum um lengri tíma. Lögð er
áhersla á gildi þess að hafa sem víð-
tækast samráð við sjómenn og út-
vegsmenn um tímasetningu friðun-
ar á einstökum svæðum til að ná
sem bestum árangri.
Þetta kemur m.a. fram í ályktun
aðalfundar LÍÚ um stjórn fiskveiða
þar sem því er mótmælt að hlutur
krókaleysisbáta yerði aukinn og
m.a. vitnað til samráðsfunda með
Tvíhöfðanefnd þar sem var „staðfest
að samkomulag hefði verið gert um
þá tilhögun sem síðar var lögfest og
gildir því nú.“
Þá er það útvegsmönnum hulin
ráðgáta hvers vegna aflaheimildir
krókaleyfisbáta eru settar fram í
frumvarpi til laga um stjómun fisk-
veiða sem 5,5% hlutdeild í þorski,
ýsu og ufsa þegar í raun er vrið að
veita þeim rétt til veiða á 8,2% af
þorski.
Að öðru leyti mæla útvegsmenn
með þeirri breytingu í frumvarpi til
laga um stjóm fiskveiða að skip
þurfi ekki að falla af skipaskrá þótt
það hafi verið endumýjað og að tvö
skip megi koma í stað eins ef af-
kastagetan eykst ekki.
Aftur á móti eru útvegsmenn and-
vígir því að haldið verði eftir átján
þúsund tonnum af fiski til hugsan-
legra jöfnunaraðgerða og telja að
kvótinn sé það rýr að það beri að út-
hluta þessum heimildum um leið og
öðmm.
Sömuleiðis leggjast þeir gegn því
að heimild til geymslu aflaheimilda
verði skert og varað er við hug-
myndum um að skrá kvóta á fisk-
vinnslustöðvar. Þá þykir þeim frá-
leitt að beita gjaldtöku við flutning
veiðiheimilda og mælt er gegn tak-
mörkun á tímabundnu framsali.
Þá ítreka útvegsmenn stuðning
sinn við að tvöföldun línuafla verði
afnumin. Þess í stað verði úthlutað
sambærilegri heimild til þeirra sem
þessar veiðar hafa stundað síðastlið-
in þrjú ár.
Hinsvegar leggjast þeir gegn því að
útbúið verði nýtt sóknarmark á línu-
veiðum, eins og gert er ráð fyrir í
frumvarpi til kvótalaga. Þeir telja að
það muni hafa í för með sér tilheyr-
andi kostnað og fjárfestingu í beitn-
ingarvélum sem ekki þykir æskilegt
við núverandi aðstæður. -GRH
Róbert Arnfinnsson og Krlstbjörg Kjeld f hlutverkum sfnum f Allir synlr
mfnir f Þjóöleikhúslnu.
Þjóðleikhúsið:
Allir synir mínir
Þjóðleikhúsið frumsýnir á fimmtu-
daginn leikritið ,Allir synir mínir
„eftir Arthur Miller. Leikritið er nú
sýnt í Þjóðleikhúsinu í fyrsta skipti,
en Þjóðleikhúsið hefur áður sýnt flest
önnur verk eftir Miller.
Með aðalhlutverk fara þau Róbert
Amfinnsson, Kristbörg Kjeld, Hjálm-
ar Hjálmarsson og Erla Rut Harðar-
dóttir. Með önnur hlutverk fara þau
Sigurður Skúlason, Lilja Guðrún Þor-
valdsdóttir, Randver Þorláksson, Ólaf-
ía Hrönn Jónsdóttir og Magnús Ragn-
arsson en þetta er í fyrsta skipti sem
Magnús leikur á sviði fyrir Þjóðleik-
húsið. Leikstjórinn Þór H. Tulinius
þreytir frumraun sína sem leikstjóri
fyrir Þjóðleikhúsið.
Höfundur verksins, Arthur Miller,
hefur skrifað fjöldann allan af verkum
og er ,AHir mínir synir" meðal hans
þekktustu verka. Leikritið gerist á
heimili Keller fjölskyldunar á árunum
eftir síðari heimsstyrjöldina og fjallar
um það þegar maður í ábyrgðastöðu
tekur eigin hagsmuni fram yfir hags-
muni almennings.
—G.TH. starfskynning
Þrír sóttu um stöðu lækn-
ingaforstjóra:
Forstjórinn
ráóinn í dag?
Þrír sóttu um nýja stöðu lækn-
ingaforstjóra Borgarspítala en
ráðið verður í stöðuna innan
skamms, hugsanlega á stjóm-
arfundi í dag. Umsækjendur
em þeir Jóhannes M. Gunnars-
son, formaður læknaráðs Borg-
arspítalans, Ólafur Öm Amar-
son, yfirlæknir á Landakots-
spítala, og Eggert Jónsson,
bæklunarlæknir á skyndimót-
tökunni Þorfinnsgötu.
„Það er gífurlega mikill ávinn-
ingur í þessu fyrir stofnunina
og sjúklinga," segir Sigríður
Snæbjömsdóttir, hjúkrunarfor-
stjóri spítalans, en lækninga-
forstjóri hefur rekstrarlega
ábyrgð á lækningaþættinum á
sama hátt og hjúkrunarfor-
stjóri hefúr axlað ábyrgð á
hjúkrunarsviði.
—HÞ
Þorskveiðar í Smugunni:
Sjö þúsund tonn á
tveimur mánuðum
Á tveimur mánuðum hafa íslensk skip aflað um sjö þúsunda tonna
af vænum þorski í Smugunni og nemur áætlað afiaverðmæti um
einum milljarði króna.
f ljósi mikilvægis þessara veiða í
Smugunni, rækjuveiða á Flæmska
hattinum við Nýfundaland og veiða á
öðmm alþjóðlegum hafsvæðum, sam-
fara sífellt minnkandi veiðiheimildum
á heimamiðum, telur aðalfundur LÍÚ
einsýnt að áfram verði leitað fanga á
fjarlægum miðum svo framarlega sem
alþjóðalög og samningar mæli ekki
gegn því. Af þeim sökum telur fúndur-
inn brýnt að útgerðir skipa sem
stunda þessar tilraunaveiðar fái
óskiptan stuðning stjómvalda, en á
þvf hefur verið misbrestur.
Sá stuðningur þarf m.a. að koma
fram í því að stjómvöld afli allra
mögulegra upplýsinga um veiðimögu-
leika og réttarstöðu til veiða á fjarlæg-
um miðum og annarra nauðsynlegra
úpplýsinga sem að gagni geta komið.
I samþykkt fundarins um veiðar utan
lögsögu er því mótmælt að Norðmenn
og Rússar eigi einhliða rétt til veiða í
Smugunni og áréttað að veiðamar séu
stundaðar á alþjóðlegu hafsvæði og
brjóta því hvorki í bága við alþjóðalög
né samninga.
Ef hinsvegar verður ekki framhald á
veiðum á fjarlægum miðum telja út-
vegsmenn nær fullvíst að mjög marg-
ar útgerðir geti ekki lifað af sífellt
skertari veiðiheimildir á íslandsmið-
um. Aftur á móti er óvíst um fram-
hald þorskveiða íslenskra skipa í
Smugunni á þessum árstíma. Mikil
hætta er á ísingu sökum mikils sjávar-
kulda og langt að fara.
-GRH
Umhverfisráðherra á Náttúruverndarþingi:
Aðskilja Hki og
Náttúruverndarráð
Össur Skarphéðinsson um-
hverfisráðherra vill skilja ríkis-
Aðalfundur LIÚ:
Gegn Þróunarsjóði með
öihn tiltækum ráðum
i efnahagsályktun nýafstaðins aðalfundar LÍÚ er harðlega mót-
mælt áformum stjómvalda um stofnun Þróunarsjóðs og jafnframt
er stjóm samtakanna hvött til að berjast gegn sjóðnum með öllum
tiltækum ráðum.
Lýst er yfir áhyggjum vegna
slæmrar afkomu útgerðar og
versnandi horfum á næsta ári.
„Fyrirsjáanlegt er að víða blasir við
hrun útgerðar við óbreyttar
rekstrarhorfúr," en útgerðin er
rekin með 3% tapi og stefnir í 6%
halla á næsta ári.
Útvegsmenn telja það ósættan-
legt með öllu að lagður verði auð-
lindaskattur á atvinnugreinina og
sjávarútveginum í heild verði gert
skylt að greiða lán sem fyrri ríkis-
stjóm veitti takmörkuðum fjölda
aðila, sem vitað var að margir
myndu ekki geta staðið í skilum
með. Þá telur fundurinn fráleitt að
afnema ríkisábyrgð á lánum með
skattlagningu á sjávarútveginn
„þannig að bankar og aðrar lána-
stofnanir hafi sitt á þurru.“
Lögð er áhersla á að stjórnvöld
komi til móts við útveginn í þeim
efnahagserfiðleikum sem við er að
etja. Leita þarf allra leiða til að
vextir verði sambærilegir við það
sem gengur og gerist í helstu við-
skiptalöndum, lækka verður afla-
og hafnargjöld og gæta þess sér-
staklega að Ioðnuskipum sé ekki
íþyngt umfram aðra.
Þá vilja útvegsmenn fella niður
flutningsjöfnunargjald á olíu og að
tryggingargjald á laun verði af-
numið á næsta ári. Stjórnvöld eru
hvött til ítrasta aðhalds og ráð-
deildar í útgjöldum ríkissjóðs og
reynt verði að sporna við vaxandi
umsvifum einstakra stofnana ss.
Fiskistofu og annarra eftirlits-
stofnana.
Sömuleiðis er mótmælt áformum
um að vinna gegn hagræðingu í
greininni með því að leggja sér-
stakt gjald á tilfærslur aflaheim-
ilda milli fiskiskipa. -GRH
rekstur frá annarrí starfsemi
Náttúruverndarráðs, sem miðar
að því að tryggja sjálfstæði þess
gagnvart stjórnarráðinu. Arnþór
Garðarsson, formaður Náttúru-
vemdarráðs, er sammála þessarí
tillögu og segir hana auka sjálf-
stæði ráðsins.
Þetta kom fram á Náttúru-
vemdarþingi í gær. Arnþór segir
að með þessu verði Náttúru-
vemdarráð mun sjálfstæðara en
stefnt hefur verið að undanfarin
sex ár.
„Það hafa öðm hverju komið
fram hugmyndir um að leggja
Náttúmverndarráð niður. Þessar
tillögur sem nú koma fram fela í
sér að allur daglegur rekstur
svæða og uppbygging á þeim
fellur undir umhverfisráðuneyti
en stefnumörkun, kvartanir al-
mennings og eftirlit með mann-
virkjagerð, alþjóðlegt samráð o.fl
falla undir þetta sjálfstæða Nátt-
úruverndarráð," segir Arnþór.
Hann tekur dæmi um hvað
þessar breytingar myndu hafa í
för með sér. „Sé eitthvert friðlýst
svæði í ólestri nú er það okkur að
kenna þó að það strandi á fjár-
veitingavaldinu. Eftir breyting-
una getum við spurt af hverju
allt sé í ólagi á þessu svæði,“ seg-
ir Arnþór.
-HÞ