Tíminn - 02.11.1993, Síða 7
Þriðjudagur 2. nóvember 1993
Tíminn 11
Vegamála-
stj óri
hj álpi mér!
44. þing Landssambands hestamannafélaga var haldið að Varmahlíð í
Skagafirði um síðustu helgi, dagana 29. og 30. október. Rómuðu þingfull-
trúar allan aðbúnað og framkvæmd þingsins, sem var hið málefnalegasta.
Helsta mál þingsins voru reiðveg-
Guömundur Jónsson, formaður L.H., býr að Reykjum í Mosfellsbæ, þar sem hann ræktar hin glæsilegu hross sfn.
imir, sem brenna nú mjög á hesta-
mannafélögunum um allt land,
vegna gífurlegrar fjölgunar hesta-
manna og hins mikla áhuga er-
lendra ferðamanna á að komast til
landsins þar sem hesturinn þeirra er
upprunninn og ríða þar út Mátti oft
heyra andvörp eins og „vegamála-
stjóri hjálpi mér“, og verður það
ábyggilega helst til bjargar að hefja
viðræður við dugnaðarforka Vega-
gerðarinnar um reiðleiðimar, með
vegamálastjóra í broddi fylkingar.
Álit ferða- og umhveríisnefndar
voru viðamikil í þingstörfum og
hafði Hallgrímur Jónasson fram-
sögu fyrir nefndinni. Á þingskjali nr.
31 stóð m.a. að þingið harmi að
Vegagerðin skuli hafa spillt og fóm-
að gömlum reiðleiðum sem njóta
lagavemdar, og hvetur til að bætt
verði fyrir þau brot.
Þá beindi þingið þeirri tillögu sinni
til sveitarstjóma að við gerð aðal- og
svæðaskipulags verði reiðvegimir
liður í almennum vegaframkvæmd-
um.
Þingið samþykkti einnig að sent
verði erindi til viðeigandi nefnda Al-
þingis, þar sem gerð verði tillaga að
breytingu við frumvarp til vegalaga,
sem lagt var fram á 116. löggjafar-
þingi, er tryggi að reiðvegir verði
lagðir með þjóðvegum og kostaðir af
Vegagerð ríkisins, þar sem von er
umferðar ríðandi manna.
3. málsl. 1. málsgr. 29. greinar
frumvarpsins verði: „Þar sem von er
umferðar ríðandi manna, skal við
gerð skipulags og val á legu þjóð-
vega, svo og við klæðingu þeirra,
Ieggja reiðveg innan vegsvæðis eða í
nágrenni hans í samráði við Vega-
gerðina og samtök hestamanna.“
Þá var samþykkt frá allsherjamefnd
þingsins, að gert yrði skipurit af
sameinuðum heildarsamtökum
hestamanna ásamt tillögum að lög-
um og reglum fyrir hin sameinuðu
samtök.
HESTAR
Umsjón:
Guðlaugur
Tryggvi
Karlsson
Nuer
tvöfaldnr
vinnmgui’
Síðastvar
haim
80J325.000kr
Spilaðu með fyrir kl. 4
á miðvikudaginn!