Tíminn - 19.03.1994, Blaðsíða 2
Laugardagur 19. mars 1994
ItMllll
Sigrún Magnúsdóttir segir tímasetningu borgarstjóraskiptanna dœmi um misnotkun á almannafé:
Embættiö er
auglýsa upp
notaö
nýjan
til aö
oddvita
í dag ætlar Reykjavíkurlistinn at> hefja
kosningabaráttu sína meb formlegum
hætti á sérstökum baráttufundi kl.
14.00 í Súlnasal Hótels Sögu. Þar verb-
ur málefnasamningur þessa framboös
kynntur sem og endanleg útgáfa af
listanum. Ljóst er ab Reykjavíkurfram-
bobib mun leggja þunga áherslu á lýb-
ræbislegri vinnubrögb í stjóm Reykja-
víkurborgar og í vibtali vib Tímann í
dag kemur þab fram hjá Sigrúnu
Magnúsdóttur ab í þessum efnum er
víba pottur brotinn.
Á borgarstjómarfundi í vikimni kom
Sigrún einmitt inn á þetta mál og því
var hún fyrst spurb um þann mál-
flutning.
- Þú gagttrýndir sjálfstœðismenn á borgar-
stjómarfundi í vikunni fyrir að hafa ekki
kynnt borgarráði þá ákvörðun Markúsar
Amar að hann hygðist segja afsér embœtti.
Ertu ekki með því að festast í formsatrið-
um?
„Borgarstjórinn í Reykjavík er æbsti
embættismaöur borgarinnar og á aö vera
framkvæmdastjóri allra borgarbúa. Þaö
er borgarstjómin öll, sem velur sér þenn-
an framkvæmdastjóra og sjálfstæöis-
menn geta ekki ráösfafað slíkum hlutum
algerlega upp á sitt eindæmi. Þaö hefði
því veriö eölilegra aö hann sem embætt-
ismaöur heföi tilkynnt borgarráöi þessa
ákvöröun sína og síöan tekiö máliö upp
á vettvangi borgarstjórnar. Ég minni á ab
Markús var ekki einu sinni kosinn sem
pólitískur fulltrúi borgarbúa og var því
borgarstjóri og embættismaöur, án þess-
aö vera jafnframt borgarfulltrúi."
Ókeypis auglýsing
„Vitaskuld vitum viö aö Sjálfstæöis-
flokkurinn hefur meirihlutavaldiö hjá
sér hérna í Reykjavík og getur stjómaö
því hver veröur næsti borgarstjóri, en ef
þessi mál hefðu gerst í einhverju fyrir-
tæki, þá væri það eflaust talið mjög
óeölilegt aö framkvæmdastjórinn færi aö
biðjast lausnar þegar aðeins tveir mán-
uðir væru eftir af ráðningarsamningn-
um. Auk þess er engin ástæöa tilgreind
og auövitað liggur ljóst fyrir aö Sjálfstæö-
isflokkurinn í Reykjavík er með þessu aö
ná sér í ókeypis auglýsingu á nýjum odd-
vita meö því aö dubba hann upp í emb-
ætti borgarstjóra strax."
- Þú meinar að Sjálfstceðisflokkurinn hafi
viljað hraða borgarstjóraskiptunum gagn-
gert tii þess að Ámi Sigfussson gceti nýtt sér
sviðsljós embættisins til kynningar á sjálf-
um sér sem oddvita flokksins. Að það sé
þess vegna sem Markús sat ekki út kjörtíma-
bilið?
„Þaö er ekki vaíi í mínum huga. Þaö hef-
ur ekkert annab gerst en þaö, aö borgar-
búar em látnir borga fyrir auglýsingu á
oddvita Sjálfstæðisflokksins. Enn og aft-
ur verða borgarbúar vitni aö því - og
þetta gerist nánast daglega - ab sjálf-
stæöismenn í Reykjavík skilja ekki á milli
ákvaröana sem flokkurinn tekur og á aö
taka í Valhöll og svo ákvarbana sem
borgarráö og borgarstjóm taka niöri í
Ráðhúsinu. Þessu er sífellt veriö aö mgla
saman og þaö, aö menn geta ekki greint
á milli hlutverka sinna, sýnir í raun hvaö
kerfiö er orðið rotiö. Viö gemm auðvitað
enga athugasemd viö þaö hvaöa oddvita
Sjálfstæbisflokkurinn velur sér til aö
leiða listann á næsta kjörtímabili. En þaö
kemur okkur viö hver er valinn fram-
kvæmdastjóri borgarinnar - hver er val-
inn borgarstjóri."
- Nú kemur þú inn á þema sem viröist
vera gegnumgangandi í hinu nýja fram-
boöi því þiö talið alltaf um að framboðið
sé framboö fjögurra flokka og áhuga-
manna um breytta stjómarhætti í borg-
inni. Er þessi áhersla á stjómarhætti og
stjómkerfið í borginni ekki oröin úrelt
eftir að breytt var um fomstu í Sjálfstæö-
isflokknum. Stjómlyndiö var jafnan
kennt viö Davíö og í minna mæli vib
Markús, en nú er komin ungur maöur til
Tíminn spyr...
SIGRÚNU MAGNÚSDÓTTUR
„Nei því miöur er þessi áhersla hjá okk-
ur ekki úrelt. Þótt kamelljónið skipti um
lit, þá er það áfram sama skepnan. Eins
er Sjálfstæðisflokkurinn sami flokkurinn
þótt skipt hafi veriö um oddvita á listan-
um. Breyttir stjómarhættir em rauöi
þráðurinn í flestu því sem viö viljum
gera. Viö emm ekki eingöngu aö tala um
aö nýtt fólk komi aö hlutunum, heldur
emm við aö tala um að taka á öllu stjóm-
kerfinu og þeirri spillingu sem hefur viö-
gengist. Það er hægt að tína til hundmb
dæma máli okkar til sönnunar."
Stjórnsýslunefndin hunsuð
„Jafnvel þótt við höldum okkur bara viö
þessa viku, sem nú er aö ljúka, þá er hægt
aö finna stór dæmi um misbeitingu á
valdi. í fyrsta lagi em borgarstjóraskipt-
in, sem við emm búin að vera aö ræða. Á
fundinum í borgarstjóm var líka kosinn
nýr borgarlögmaöur og Hjörleifur B.
Kvaran, forstööumaöur lögfræöi- og
stjómsýsludeildar, tók við því embætti.
Hjörleifur veröur þar með borgarlögmað-
ur, en hans fyrra embætti er lagt niður.
Þessar breytingar em geröar í lok kjör-
tímabilsins á sama tíma og sérstök
stjómsýslunefnd situr að störfum, sem á
aö taka út og gera tillögur um breytingar
á stjómsýslunni. Þab er ekki lengra síöan
en nú í haust að þaö komst loks í gegn,
aö sett var á laggimar þessi nefnd til aö
gera athuganir á þessu embættismanna-
kerfi okkar öllu, bæöi varðandi breyting-
ar á nefndum og nefndarstörfum, starfs-
lýsingar embættismanna og heildar-
skipurit. Þegar sjálfstæðismenn ganga
svo fram og gera einhliða breytingar á
æöstu embættum í valdapíramíta
borgarinnar vakna náttúmlega spum-
ingar hvort yrirleitt er nokkuö ab marka
yfirlýst áform þessa flokks um bætta
stjómsýslu. Til hvers var Sjálfstæöis-
flokkurinn aö samþykkja þessa nefndar-
skipan ef síöan er hægt að hunsa hana?
Ef nefndin á aö skila einhverjum árangri
þá hefði verið eölilegra aö doka viö og
kalla eftir áliti hennar, þaö lá ekkert á aö
keyra þessa breytingu í gegn núna.
Auk þessa er rétt að minna á að borgar-
endurskoðun hefur ár eftir ár talað um
nauösyn á ským skipuriti yfir fjármála-
Ekki undantekningin
- Þú nefndir að sjálfstœðismmn œttu erf-
itt með að greina á milli ákvarðana, sem
teknar væm um flokksmál og ákvarðana
sem vörðuðu borgarmál og þeir blönduðu
þessu gjaman saman. Em þessi borgar-
stjóraskipti ekki óvenjulegt mál og því und-
antekning hvað þetta varðar, en ekki reglan
eins og þú virðist vera að segja?
„Þetta er síður en svo undantekning.
Þaö er kannski full ástæöa til aö rifja öll
þessi mál upp þótt ég viti ekki hvort rétt
er lengja þetta spjall mjög mikið með
því. En mér detta þó í hug nýleg dæmi
um þetta eins og t.d. í fyrra þegar veriö
var aö undirbúa „einkavæðingu" borgar-
fyrirtækja eöa aö breyta þeim í hlutafé-
lög. Þá var ráöinn sérstakur jáðgjafi, sem
er nú enginn annar en þriöji maöur á D-
listanum, Inga Jóna Þórðardóttir. Hún
fékk greiddar tæpar þrjár milljónir fyrir
að undirbúa tillöguflutning Sjálfstæöis-
flokksins í SVR-málinu án þess aö til þess
bærar borgarstofnanir fjölluöu um málið
fyrst. Þáverandi borgarstjóri lét raunar
ekki þar viö sitja því að auk Ingu Jónu
vom ráönir lögfræöingar til aö vinna til-
lögu sem Sjálfstæöisflokkurinn var aö
bera fram. Mig minnir að samtals hafi
fariö í þetta um fimm milljónir króna af
almannafé. Ég spurðist fyrir um þaö á
sínum tíma hvort mér, sem fulltrúa
framsóknar í borgarstjóm, væri þá ekki
heimilt aö láta lögfræöi- og verkfræði-
stofur úti í bæ vinna fyrir mig á kostnaö
borgarsjóös tillögur sem ég ætlaöi aö
flytja í nafni Framsóknarflokksins. Auð-
vitaö fékkst þaö ekki í gegn. í þessu er
tvennt sem er mjög alvarlegt. í fyrsta lagi
hefði Markús þurft ab sækja um þessa
fjármuni meö formlegum hætti til borg-
arráös því að upphæðin var há og ekki
inni á fjárhagsáætlun. í ööm lagi getur
Sjálfstæöisflokkurinn ekki látiö borgar-
sjóö borga ráögjöfum sínum fyrir aö
vinna aö pólitískum tillögum fyrir flokk-
inn.
Markús gagnrýndi
leikritamálið
Annaö dæmi um þetta sem ég get nefnt
þér er enn nýrra. Þaö er þegar Júlíus Haf-
stein skipti um rithöfund á lýöveldisleik-
þættinum. Júlíus átti auövitað skilyröis-
laust aö tala viö aðra í lýðveldishátíöar-
nefndinni áöur, enda var hann að stofna
til aukaúgjalda og hefði þurft að fá fyrir
þeim heimild. Það er raunar svo merki-
legt að einmitt fyrir nokkmm dögum
vomm viö að fá uplýsingar um svör
borgarstjóra viö bréfi frá Rithöfundasam-
bandinu þar sem spurt var hvort rétt
hefði veriö á þessum málum haldið.
Borgarstjórinn svaraði að svo heföi ekki
verið, en það svar gaf auðvitað borgar-
stjóri sem var á fömm."
- Þii talar um óvarlega meðferð á opinbem
fé, en trúlega eni Ráðhúsið og Perlan fræg
dæmi um umframeyðslu og afskipti þín af
Perlumálum drógu dilk á eftir sér?
„Þetta er nú eitt alvarlegasta dæmiö um
brotalöm í stjómkerfi borgarinnar í mjög
langan tíma og hefur haft langvarandi
áhrif á borgarkerfið alveg síðan. Fram-
kvæmdimar viö Perluna vom aö heita
mátti eftirlitslausar. Fyrrverandi hita-
veitustjóri haföi verið fenginn til þess að
vera þar verkefnisstjóri, og hann taldi
þaö ekki vera í sínum verkahring að
greina stjóm Veitustofnana frá því
hvemig málin stæöu. Hitaveitustjórinn
sem nú er, sagðist ekkert hafa getab
fylgst með framgangi mála, svo ekki
hafði hann getað veitt þessar upplýsing-
ar."
Enginn bar ábyrgb á
300 milljónum.
„Þannig virtist enginn bera ábyrgö og
allt í einu stóöu menn frammi fyrir því
þama árið 1991 að á þremur mánuðum
haföi Perlan fariö fram úr áætlun um 300
milljónir króna. Þegar síöan Markús Öm
kemst til valda þá gengur hann í máliö
og borgarendurskoðun gerir í framhald-
inu skýrslu sem var mjög haröorð og
gagnrýnin á stjórn hitaveitunnar og
stjómkerfið og hvemig boðleiðimar
ganga innan þess. Þessi skýrsla borgar-
endurskoðanda olli talsveröum deilum
innan kerfisins, en í heildina hafa menn
þó rankab viö sér og viöurkennt aö þaö
er ekki allt meö felldu. Stjóm veitustofn-
ana t.d. tók upp á því aö halda fundi
vikulega í kjölfar þessa máls og þessi um-
ræöa hefur lifnaö nokkuð víöa í stjóm-
kerfinu þar til sl. haust aö sett var á fót
þessi stjómkerfisnefnd sem ég minntist á
áðan. En þótt hún sé komin á koppinn er
samt gengiö fram hjá henni ef það þykir
henta."
- Ertu ekki að segja að þrátt fyrir fögur fýr-
irheit komi það alltaf upp að sjálfstæðis-
mmn í stjóm borgarinnargreini ekki á milli
opinberra mála borgarinnar og hagsmuna
flokksins?
„ Jú, þetta er eins og draugagangur. Þess
vegna er alveg nauðsynlegt að skipta út
þegar stjómmálaflokkur er búninn að
sitja svona lengi á valdastólum - og það
skiptir engu máli hver þaö er sem er í for-
svari fyrir þeim flokki. Dæmin sýna ab
Sjálfstæðisflokkurinn er ekki lengur fær
um aö sklja á milli flokks og borgarkerfis
og þess vegna held ég að borgarbúar séu
orönir þreyttir á þessu og vilji fá nýtt afl
til aö koma að stjóm borgarinnar, til aö
opna gluggana og hreinsa út."
-BG
Sigrún Magnúsdóttir, efsti maður á R-listanum, fyrír framan kosningaskrífstofu frambobsins
ab Laugavegi 3 7, en skrifstofan verbur formiega opnub í dag. Tímamynd gs