Tíminn - 28.04.1994, Blaðsíða 9

Tíminn - 28.04.1994, Blaðsíða 9
Fknmtudaguf 28. april 1994 9 Ekki talin þörfá loftárásum á Bosníu-Serba ab svo komnu máli: NATO lofar að halda vöku sinni Brussel, Reuter í aöalstöövum Atlantshafsbanda- lagsins var greint frá því í gær aö bandalagiö væri enn reiöubúiö til aö gera sprengjuárásir á þunga- vopn Bosníu-Serba á svæöinu um- hverfis Gorazde ef þau væru innan 20 kílómetra markanna sem sett voru í síðustu viku. Formælandi NATO bætti því viö aö það sama gilti um önnur friö- lýst svæöi Sameinuöu þjóðanna í Bosníu. Yfirmenn Sameinuðu þjóöanna og Atlantshafsbandalagsins höföu áöur orðiö sammála um aö ekki væri þörf á loftárásum á svæðiö umhverfis Gorazde þar sem Bosníu-Serbar heföu fariö aö kröf- unni um aö þeir færðu öll sín þungavopn í 20 kílómetra fjar- lægö frá borginni fyrir klukkan eitt aðfaranótt miðvikudags. Eftir fund fastafulltrúa aöildar- ríkja Atlantshafsbandalagsins í Brussel sagöi formælandi banda- lagsins aö almenn bjartsýni væri ríkjandi um aö sú þróun sem væri komin af staö gæti orðið upphafið að því að friöur kæmist á í Bosníu. Eigi að síður leggur bandaiagiö áherslu á ab úrslitakostimir eru áfram í gildi og haldiö verður áfram aö fýlgjast með framvindu mála. ■ Nauðsyn að bregðast við Fastanefnd íslands hefur lýst af- stöðu sinni til viðbragða viö árás- um Bosníu-Serba á Gorazde í um- ræðum í ráði Atlantshafsbanda- lagsins (NATO) um viðbrögö þess viö árásunum. Samkvæmt frétt frá utanríkisráöuneytinu leggur fasta- nefndin áherslu á eftirfarandi at- riði: — Nauösyn þess að bregðast við árásum Bosníu-Serba á Gorazde og að tryggja öryggi annarra griöa- svæða í Bosníu og Hersegóvínu. — Aögerðir NATO veröi hluti af samræmdri alþjóðlegri viðleitni til aö koma á friöi í Bosníu og Herse- góvínu. Samningsbundin lausn á deilumálum sé markmib slíkra aö- gerða. — Atlantshafsbandalagið hafi áfram náið samráð við SÞ um slík- ar aögeröir. — Tekið verði fullt tillit til þess aö tryggja þurfi öryggi hersveita og starfsmanna SÞ í Bosníu og Her- segóvínu. — Yfirlýsing leibtogafundar NATO frá 11. janúar, að NATO sé reiðubúið að grípa til loftárása til verndar Sarajevo og öbrumgriða- svæðum Bosníu og Hersegóvínu, sé grundvöllur fyrir ákvaröana- töku bandalagsins nú. -HEI Reuter Subur-Afríkubúinn Mowaza Paint- in varb fyrst blökkumanna í land- inu til ab greiba atkvœbi í kosning- um til þjóbþings landsins. Tíma- mismunurinn milli Nýja-Sjáiands, þar sem þessi frœnka Nelsons Mandela var stödd vib upphaf kosninganna, og Subur-Afríku átti sinn þátt íab atkvœbi hennar kemst á spjöld sögunnar. ÚTLÖND Austur-Evrópa forgangsverkefni Evrópusambandsins: Hurd utanríkisráðherra Breta segir Austur-Evrópu framtíðarverkefni Lundúnir, Reuter Stækkun Evrópusambandsins í austur verður forgangsverkefni sambandsins um ókomin ár eftir því sem utanríkisráðherr- ar Bretlands og Þýskalands sögðu að fundi sínum loknum í gær. Douglas Hurd, utanríkisráð- herra Breta, sagði eftir fund sinn með Klaus Kinkel, utan- ríkisráðherra Þýskalands, að ríkin tvö myndu vinna að því með skipulögðum „hætti liö fyrir lið, hvern málaflokk fyrir sig", að stækka Evrópusam- bandið í austur. „Við höfum einbeitt okkur að því, sem ég tel vera mikilvæg- asta mál Evrópu á næstu árum — hvemig hægt sé að yfirfæra þann stöðugleika og þá hag- sæld sem náðst hefur í vestur- hlutanum til austurs," sagði Hurd. Kinkel kom til Lundúna í fylgd Helmuts Kohls, kanslara Þýskalands, sem átti fund með John Major, forsætisráðherra Breta. Hurd sagöi að þeir Kinkel hefðu einnig rætt um stöðu mála í Rússlandi og Bosníu en þeir hefðu sleppt því að ræða lausn á einu viðkvæmasta máli Evrópusambandsins, hver yrði eftirmaður Jacques Delors í sæti forseta framkvæmda- stjórnar sambandsins. Bretar vilja að þeirra maöur í framkvæmdastjórn ESB erfi sæti Delors, en bresku blöðin greindu frá því í gær að Helmut Kohl hefði heitið Jean- Luc Dehaene, forsætisráöherra Belgíu, stuðningi sínum til starfans. Samskipti ríkisstjórna Bret- lands og Þýskalands hafa verið með stirðara móti að undan- förnu eftir að Bretar lögðust gegn því að vægi atkvæða héldist óbreytt I framkvæmda- stjóm ESB eftir að EFTA-ríkin Austurríki, Finnland, Svíþjóð og Noregur væm orðin aðilar að sambandinu. Kinkel viöurkenndi að afstaða Breta hefði skapað verulegan vanda en samkomulag sem aö- ildarríkin teldu sig hafa náð væri viöunandi. ■ Norömenn einir í baráttunni Svíar, Danir og Finnar em held- ur ab færast nær sjónarmiðum Norðmanna í hvalveiðimálum. Samkvæmt frétt sem birtist í norska blabinu Aftenposten á þriðjudag em þessar þrjár Norð- urlandaþjóðir samt ekki reibu- búnar til aö styðja kröfu Norð- manna um að hefja eigi hval- veibar í ábataskyni að nýju. Málið var rætt á fundi Norður- landaþjóöanna, í Illissat á vest- urströnd Grænlands, í byrjun vikunnar. Karsten Klepsvik, yf- immsjónarmaður hvalveiöa í Noregi, sagöi eftir fundinn að ljóst væri aö nefndar þrjár Norð- urlandaþjóðir væm í gmndvall- aratriðum sammála Norömönn- um um aö ákvörðun um hval- veiðar ætti að byggjast á vís- indalegum rannsóknum en ekki tilfinningum. Þú sem ert félagshy ggj umaður U m þessar mundir stendur yfir mikið átak í eflingu útbreiðsluTímans. • • 011 erum við sammála um að þörf sé ásterkum málsvara þeirra skoðana sem við sameiginlega berjumst fyrir. Þ ví hvetjum við ykkur eindregið til að ganga í hóp félagshyggjumanna og gerastáskrifendur að nýjum og sterkum miðli. G erist áskrifendur aðTímanum. illii -félagshyggjublaðið Áskriftarsími: 631600

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.