Tíminn - 28.04.1994, Qupperneq 11

Tíminn - 28.04.1994, Qupperneq 11
Fi mmttidáígút' KSP&p&f T99$ n qi Adolf Björnsson Adolf Bjömsson anda&ist 20. apríl síðastliöinn, 82 ára að aldri. Viku fyrir andlátið hringdi hann í mig og bauð í af- mæli sitt þann 18. apríl. Það var siður Adolfs að halda upp á merkisafmæli og bjóða þá vin- um og samstarfsfólki. Þetta gerði hann þegar hann varð átt- ræður og ákvaö þá að halda þeim siö árlega uppfrá því. Þennan síðasta afmælisdag var Adolf hress er hann fagnaði gestum sínum og bauð þá vel- komna. Hann undi sér vel und- ir ræðuhöldum og söng kvenna- kórs íslandsbanka. Hann lék sem sagt á als oddi. Tveim dög- um síðar var hann allur. Adolf var fæddur í Hafnar- firði 18. apríl 1912. Foreldrar hans vom Bjöm Helgason skip- stjóri þar og kona hans Ragn- hildur Egilsdóttir. Eftir aö hafa stundað nám í Flensborgarskóla og Menntaskólanum á Akureyri útskrifaðist hann frá Verzlunar- skóla íslands. Hann hóf störf hjá Útvegsbankanum 1934 og þar starfaði hann alla tíð, þar til hann lét af störfum vegna ald- urs. Þótt Adolf starfaði í Útvegs- bankanum, bjó hann lengi í Hafnarfirði, eða til ársins 1962 er hann flutti til Reykjavíkur. Mjög snemma hlóðust á Adolf margvísleg störf fyrir sína heimabyggð. Er þar fyrst að telja aö hann var í niöurjöfnunar- nefnd Hafnarfjarðar frá 1942- 1960. Stjómarformaöur í Lýsi og Mjöli 1945-1956. Formaður útgerðarráðs Bæjarútgerðar Hafnarfjaröar 1959-1961. í stjóm Akurgerðis hf., Hrafna- flóka hf. og Vífils hf. I Reykjavík var hann í við- skiptanefnd og verðlagsráöi 1949-50. Stjómarformaður í Miöstöðinni hf. 1952-1959. Þá var hann í stjóm Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur í 6 ár. Síðast en ekki síst ber að telja störf hans fyrir bankamenn. Hann var lengur en nokkur annar í stjóm Starfsmannafé- lags Útvegsbankans, eöa í 37 ár og þar af sem formaður í 27 ár. Einnig var hann í stjóm Sam- bands ísl. bankamanna í 12 ár og þar af formaður í 6 ár. Adolf var í stjórn Norræna banka- mannasambandsins í 2 ár, í stjóm eftirlaunasjóðs Útvegs- bankans í 30 ár og ritstjóri Bankablaðsins í 10 ár. í þakkar- skyni fyrir þessi fjölbreyttu störf hefur Adolfi Björnssyni veriö sýndur margháttaður sómi. Má í því sambandi nefna að honum hefur verið veitt gullmerki Starfsmannafélags Útvegsbank- ans og Sambands ísl. banka- manna og hann hefur einnig verið sæmdur hinni íslensku Fálkaorðu. Þegar ég kynntist Adolfi fyrst t MINNING 1940, var hann víxlamaður í Út- vegsbankanum. Víxlamenn bankanna vom þeir starfsmenn sem höfðu beint samband við viðskiptamennina, sem skuld- uðu í bankanum. Því kynntist Adolf fjölda fólks í gegnum þetta starf og allir þekktu Adolf. Hann var talinn nákvæmur og þægilegur gagnvart viðskipta- mönnum og var því vel liðinn af þeim, sem og af samstarfs- fólki. Við, sem störfuðum í öðmm bönkum, öfunduðum starfsfólk Útvegsbankans af margháttaöri félagslegri starfsemi, sem var til fyrirmyndar. Þó ýmsir hafi þar lagt hönd að verki, vissum við að sá, sem var drifkrafturinn í félagsstarfinu, var Adoif. í Útvegsbankanum var að sjálfsögðu litið til hans sem þess formanns sem hann var, ákaf- lega ósérhlífinn og vinnusamur. Adolf lét sér annt um sam- starfsmenn sína. Hann flutti þeim ræður á tyllidögum, skrif- aði afmælisgreinar á stórafmæl- um og ritaöi minningargreinar að leiðarlokum. Adolf var einhleypur alla tíð, en þó hann ætti ekki börn sjálf- ur, gleymdi hann ekki bömum samstarfsmanna sinna og róm- aðar vom þær skemmtanir og ferðalög sem hann skipulagði og sá um fyrir börnin. Adolf var áhugasamur um stjórnmál og entist sá áhugi til hinstu stundar. Hag Útvegs- bankans bar hann mjög fyrir brjósti og tók nærri sér þegar hann var sameinaður öðmm bönkum. Það fannst honum ekki viturleg ráðstöfun og hafði oft orð á því. Adolf var samur við sig, hélt tryggð við sína gömlu vinnufé- laga, hélt þeim veislur, gladdist með þeim og sendi dömunum blóm og konfekt á konudaginn. Ég sakna Adolfs, þar gekk góður drengur. Hannes Pálsson DAGBÓK \J\JV^P^JW\J^J\JU\J\J Fimmtudaqur 28 apríl 118. daqur ársins - 247 daqar eftir. 17. vika Sólris kl. 5.11 sólarlag td. 21.42 Dagurinn lengist um 6 mínútur Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Bridskeppni, tvímenningur, kl. 13 í dag í Risinu, Hverfisgötu 105. Skagfirbingafélagið: Veislukaffi og hlutavelta Kvennadeild Skagfirðingafélagsins í Reykjavík verður meb hlutaveltu og veislukaffi í Drangey, Stakkahlíð 17, sunnudaginn 1. maí n.k. kl. 14, til efl- ingar starfsemi sinni. Kvennadeildin, sem hefur starfað í 30 ár, hefur eink- um styrkt líknar- og menningarmál heima í hérabi. Enn sem fyrr er þab einlæg von félagskvenna, ab sem flest- ir sjái sér fært ab koma í veislukaffið í Drangey 1. maí n.k. og styrkja með því gott málefni. Fjölskyldusamvera í Seljakirkju í kvöld Til þess að leggja áherslu á ár fjöl- skyldunnar hafa stofnanir og félags- samtök í Seljahverfi myndað sam- starfshóp. Þar eru Seljakirkja, Selja- skóli, Ölduselsskóli, foreldrafélög beggja skólanna, leikskólar í Selja- hverfinu og félagsmiðstöðin Hólma- sel. Munu þessir abilar vinna saman að ýmiss konar verkefnum á árinu. Þaö fyrsta er nokkurs konar náms- stefna í Seljakirkju í kvöld, fimmtu- daginn 28. apríl, þar sem rætt verður um efnið „Fjölskyldan og fjölmiölarn- ir". Húsið veröur opnað kl. 19. Þá verður horft á sjónvarp sameiginlega. Kl. 20 veröur samveran sett af sr. Valgeiri Ástráðssyni. Ræðumenn verða annars þau sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, Þor- bjöm Broddason lektor, Sigurður G. Tómasson útvarpsmaður og Kristján Erlendsson læknir. Á milli atriða verða tónlistaratriöi. Kór Ölduselsskólans syngur undir stjórn Margrétar Dann- heim. Einnig syngur Barna- og stúlknakór Seljakirkju undir stjórn Frá Fræðsluskrif- stofu Vestfjarðaum- dæmis Lausar stöður Staða sálfræðings, heil staða. Staða kennsluráðgjafa, heil staða, hlutastarf kemur til greina. Framhaldsmenntun áskilin og reynsla af tölvuforritum æskileg. Staða talkennara, 50% starf. Aðsetur skrifstofunnar er á ísafirði, en til greina koma hlutastörf annars staðar í umdæminu. Umsóknarfrestur er til 22. maí. Upplýsingar gefur Pétur Bjarnason, fræðslustjóri, í síma 94-3855. Fræðslustjóri Vestfjarðaumdæmis. Margrétar Gunnarsdóttur. Þá verður mikill almennur söngur til þess að gera samveruna að þægilegri og lær- dómsríkri stund fyrir alla fjölskyld- una. Hjalti Jónasson, skólastjóri Selja- skólans, mun svo flytjá lokaorð, en stefnt er að því að samvemnni ljúki ekki seinna en kl. 10 og þá ekki síst haft í huga að bömin geti verið þátt- takendur. Til samverunnar í Seljakirkju í kvöld em allir velkomnir og að sjálfsögðu er aðgangur ókeypis. Fyrirlestur í Árnagaröi Dr. Sigríður Sigurjónsdóttir heldur opinberan fyrirlestur í boði íslenska málfræöifélagsins í stofu 422 í Árna- garði í dag, fimmtudaginn 28. apríl, kl. 17.15. Fyrirlesturinn, sem nefaist „Afturbeyging í máli íslenskra barna", er byggður á doktorsritgerö Sigríðar, „Binding in Icelandic: Evidence from Language Acquisition". Sigríöur Sigurjónsdóttir lauk kandíd- atsprófi í íslenskri málfræöi frá Há- skóla íslands 1987 og doktorsprófi frá University of California, Los Ángeles, 1992. Hún er nú lektor í íslenskri mál- fræöi við Háskóla íslands. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Sýningu ART-HÚN í List- húsinu að Ijúka Sunnudaginn 1. maí lýkur myndlist- arsýningu ART-HÚN hópsins í List- húsinu. Á sýningunni gefur aö líta leirverk með jámi og gleri, skúlptúra, kol- og krítarteikningar, málverk og pastel- myndir. Sýningin er opin mánudaga til fösm- daga kl. 10-18, en kl. 14-18 um helgar. Þingholtshlaup Skokkhópur Námsflokka Reykjavíkur stendur fyrir Þingholtshlaupi laugar- daginn 30. apríl n.k. Hlaupið hefst kl. 12 við Miðbæjarskólann, Fríkirkjuvegi 1. Keppnisvegalengdin verður 5 km leið um Þingholtin. Keppt verður í þremur flokkum karla og kvenna: 16-39 ára, 40-49 ára og 50 ára og eldri. Þeir, sem hreppa sæti 1-3 í hverjum flokki, fá verölaunapening. Einnig veröur keppt í sveitum og gild- ir sama flokkaskipting þar. Sigursveit- in í hverjum flokki fær áritaðan skjöld og hver sveitarmeðlimur vegleg verð- laun. Allir þátttakendur fá árimð við- urkenningarskjöl send heim til sín. Heppinn þátttakandi gemr unnið út- dráttarverðlaun, því dregið verður um aukaverölaun úr keppnisnúmemm. Búningsaöstaða er á staðnum. Skráning fer fram í Miðbæjarskólan- um 28.-29. apríl, á skrifstofutíma, og 30. apríl frá kl. 10.30-11.30. Æskilegt er að skrá sveitir fyrir 30. apríl til að flýta fyrir úrvinnslu. Þátttökugjald er kr. 500. VINNUSKÓLI REYKJAVÍKUR Engjateigi 11,105 Reykjavik. Simi: 882590. Fax 882597. Skráning að hefjast Vinnuskóli Reykjavíkur tekur til starfa í byrjun júní n.k. og starfar í júní og júlí. í skólann verða teknir unglingar fæddir 1979 og 1980, sem voru nemendur í 8. og 9. bekk grunnskóla Reykjavíkur skóiaárið 1993-1994 og eiga lögheimili í Reykjavík. Skráning fer fram í afgreiðslu Vinnuskóla Reykjavík- ur, Engjateigi 11, jarðhæð, sími 882590, dagana frá 2. maí til 13. maí n.k. Opið: kl. 08,20-16,30 virka daga. Gefa þarf upp kennitölu. Vinnuskóli Reykjavíkur. APOTEK Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka i Reykjavík frá 22. til 28. apríl er i Holts apótekl og Laugavegs apóteki og frá 22. til 28 april i Holts apóteki og Laugavegs apóteki. Þaö apótek sem fyrr er nefnt annast eitt vörsluna frá kl. 22.00 aö kvöldi til ki. 9.00 aö morgni virka daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upplýsingar um læknis- og lyfjaþjón- ustu eru gefnar í síma 18888. Neyöarvakt Tannlæknafélags (slands er starfrækt um helgar og á stórhátíöum. Slmsvari 681041. Hafnarfjörður Hafnarfjaröar apótek og Noröuibæjar apo- tek ern opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag W. 10.00-12.00. Upplýsingar i símsvara nr. 51600. Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek em opin virka daga á opnunartima búöa. Apótekin skiptast á sina vikuna hvort aö sinna kvöld-, nætur- oghelgidagavörslu. Á kvöldin er opið i því apóteki sem sér um þessa vörslu, tl kl. 19.00. Á helgidögum er opiö frá kl. 11.00-12.00 og 20.00- 21.00. Á öömm timum er lyfjafræöingur á bakvakt Upplýs- ingar em gefnar I sima 22445. Apótek Keflavikur: Opiö virka daga frá kl. 9.00-19.00. Laugard., helgidaga og almenna fridaga W. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opiö virka daga frá W. 8.00- 18.00. Lokaö I hádeginu milli W. 12.30-14.00. Selfoss: Selfoss apótek er opið til W. 18.30. Opið er á laug- ardögum og sunnudögum W. 10.00-12.00. Akranes: Apótek bæjaríns er opiö virka daga tl W. 18.30. Á laugard. W. 10.00-13.00 og sunnud. W. 13.00-14.00. Garðabær. Apótekiö er opiö mmhelga daga W. 9.00- 18.30, en laugardaga W. 11.00-14.00. ALMANNATRYGGINGAR HELSTU BÓTAFLOKKAR: 1. apríl 1994. Mánaöargrelöslur Elli/örorkulífeyrir (gmnnlífeyrir).......... 12.329 1/2 hjónallfeyrir.......................... 11.096 Full tekjutrygging ellilífeyrisþega..........22.684 Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega........23.320 Heimilisuppbót.......*...............'.......7.711 Sérstök heimilisuppbót...................... 5.304 Bamalífeyrir v/1 bams........................10.300 Meölag v/1 bams .............................10.300 Mæöralaun/feöralaun v/1 bams..................1.000 Mæöralaun/feöralaun v/2ja bama................5.000 Mæöralaun/feöralaun v/3ja bama eöa fleiri...10.800 Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaöa ............15.448 Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaöa.............11.583 Fullur ekkjulifeyrir.........................12.329 Dánarbætur i 8 ár (v/slysa)..................15.448 Fæöingarstyrkur............................ 25.090 Vasapeningar vistmanna.......................10.170 Vasapeningar v/sjúkratrygginga...............10.170 Daggreiöslur Fullir fæöingardagpeningar.................1.052.00 Sjúkradagpeningar einstaklings...............526.20 Sjúkradagpeningar fyrir hvert bam á framfæri ...142.80 Slysadagpeningar einstaklings................665.70 Slysadagpeningar fyrir hvert bam á framfæri ....142.80 GENGISSKRÁNING 27. apríl 1994 kl. 10.48 Opinb. vlðm.gengi Gengi Kaup Saia skr.fundar Bandaríkjadollar 71,22 71,42 71,32 Sterllngspund ....107,19 107,49 107,34 Kanadadollar 51,80 51,98 51,89 Dönsk króna ....10,799 10,831 10,815 Norsk króna 9,783 9,813 9,798 Sænsk króna 9,100 9,128 9,114 Flnnskt mark ....13,086 13,126 13,106 Franskur frankl ....12,380 12,418 12,399 Belgiskur franki ....2,0652 2,0718 2,0685 Svissneskur franki. 49,82 49,96 49,69 Hollenskt gyllini 37,84 37,96 37,90 Þýsktmark 42,54 42,66 42,60 ..0,04424 0,04438 0,04431 Austurriskur sch ...6,048 6,066 6,057 Portúg. escudo ....0,4136 0,4150 0,4143 Spánskur peseti ....0,5203 0,5221 0,5212 Japanskt yen ....0,6931 0,6951 0,6941 ....103,92 104,26 104,09 Sérst. dráttarr. ....100,65 100,95 100Í80 ECU-Evrópumynt... 82,13 82,39 82,26 Grísk drakma ....0,2893 0,2903 0,2898 KROSSGÁTA 1 2 3 1 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 1 17 18 19 65. Lárétt 1 litverp 4 fugl 7 mæla 8 dveljast 9 féllum 11 athygli 12 síöust 16 máttlaus 17 nudda 18 vitlausa 19 gangur Lóðrétt 1 viljugur 2 blað 3 baðið 4 mag- ann 5 geislabaug 6 óðagot 10 gifta 12 barði 13 svardaga 14 af- undinn 15 hald Lausn á síðustu krossgátu Lárétt 1 þel 4 hæf 7 æfa 8 eða 9 gaukl- ar 11 sæg 12 Baunans 16 ógn 17 sía 18 lag 19 tal Lóbrétt 1 þæg 2 efa 3 lausung 4 helgast 5 æða 6 far 10 kæn 12 ból 13 aga 14 nía 15 sal

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.