Tíminn - 05.05.1994, Blaðsíða 4

Tíminn - 05.05.1994, Blaðsíða 4
4 WuKAMrirAlLMr wnmmi Fimmtudagur 5. maí 1994 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: Jón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4,105 Reykjavík Inngangur frá Brautarholti. Sfmi: 631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Prentun: Prentsmibja Frjálsrar fjölmiblunar hf. Mánaöaráskrift 1400 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 125 kr. m/vsk. Jákvæðar fréttir, þrátt fyrir allt Fréttir frá umheiminum eru ekki upplífgandi, og oft heyrast þær raddir að fjölmiðlar séu uppteknir við að segja frá ótíðindum, jafnvel um of, og láti þess ekki getið sem betur fer í veröldinni. Það má til sanns vegar færa að stöðugar fréttir um stríð, morð, hryðjuverk og hörmungar eru ekki upplífg- andi, en fjölmiðlum er þó vorkunn. Sem betur fer er almenningsálitið ekki svo sljótt að blóðbað, hvar sem það er í veröldinni, þykja tíðindi, og það er skylda fjölmiðla að greina frá því. Almenningur á ekki að geta stungið höfðinu í sandinn og sagt, ég veit ekki eða vil ekkert af hörmungum vita. Fréttir af blóðbaðinu í Rúanda eru skelfilegri en orð fá lýst, og umheimurinn virðist eins og svo oft áður standa ráðþrota og jafnvel þeir sem vilja hjálpa eru í bráðri lífshættu. Villimennskan virðist vera algjör og engu er eirt. Með þessum ótíðindum koma þó fréttir sem vekja von um að þróunin sé þrátt fyrir allt í átt til friðar og betri sambúðar meðal manna. Athyglis- verðar fréttir berast nú frá tveimur svæðum sem um árabil hafa verið hættuleg átakasvæði, en það eru Suður-Afríka og ísrael. Kosningar í Suður-Afr- íku eru nú um garð gengnar og næsti þáttur hefst innan tíðar, sem er aðlögunartími á leið til sam- búðar kynþáttanna undir merkjum frjálsra kosn- inga. Ljóst er að Nelson Mandela verður næsti for- seti Suður-Afríku. Það eru stórtíðindi að blökku- maður skuli vera væntanlegur forseti landsins og það eru aðeins fá ár síðan að þau tíðindi hefðu þótt lyginni líkust. Atburðir síðustu vikna í Suður- Afríku eru dram- atískir og það er afar áhugavert, svo ekki sé meira sagt, að fylgjast með þeirri þróun sem þar verður. Vonandi verður hún til þess að kynþættirnir læra að lifa saman, en marga örðuga hjalla á eftir að yf- irstíga á þessari leið. Þjóðfélagið er flókið og átök- in snúast ekki eingöngu um litarhátt. Það er óend- anlega löng leið að breyta hatri í sáttarhug, sú þró- un tekur mannsaldra, en pólitísk forusta og al- menningsálitið í veröldinni geta þó skipt sköpum. Önnur góð tíðindi eru þau að Yasser Arafat, leið- togi Palestínumanna, og Yitzhak Rabin, forsætis- ráðherra ísraels, hafi skrifað undir samning um sjálfsstjórn PLO á hernumdu svæðunum. Hér er líkt háttað og í Suður-Afríku, það tekur óendanleg- an tíma að breyta hugarfari haturs og átaka í frib- samlega þróun, en vonandi eru þessir samningar áfangi á þeirri leib. Friðsamleg þróun á þessum tveimur svæðum er þungt lób á vogarskálina í þágu friðar, og má sérstaklega benda á það að heimsfriðnum stafar hætta af ástandinu við botn Miðjarðarhafs, vegna þess ab ábyrgð og íhlutun annarra ríkja um það ástand, sem þar hefur verið, hefur veriö mikil. Þrátt fyrir skelfilega atburði víða, og ólýsanlegan hrylling í Rúanda, sem umheimurinn stendur ráð- þrota frammi fyrir, eru atburöirnir í ísrael og Suð- ur-Afríku teikn um jákvæða þróun á ýmsum svið- um, þrátt fyrir allt. „Zelig-syndróm" í S j álfstæbisflokki Sjálfstæðisflokkurinn hefur gef- ið fylgismönnum sínum fyrir- mæli um það undanfarnar vikur að enda allar greinamar, sem þeir skrifa í blöðin, á slagorðinu „Kjósum D-listann, hinn sanna Reykjavikurlista". Garri hefur áöur minnst á þaö nýtilkomna einkenni sjálfstæðismanna, sem stundum hefur verið kallað „Zelig-syndrómiö" eða „ég er ekki ég, ég er annar"-tilhneig- ingin. Þessi síðasta sveifla er I rauninni enn eitt skrefið í þeirri þróun, en fyrri vegvörður á þeirri leið vom t.d. það að skipta um borgarstjóraefni og fá mann, sem félli í svipaðan flokk og borgarstjóraefni R-listans, og síðan að skipta um stefnu og taka upp stefnu sem félli betur að steftiu R- listans. Og nú vilja sjálfstæðismenn semsagt líka heita Reykjavíkurlisti. 104 blabagreinar Þess vegna er í rauninni eðlilegt að sjálfstæðismenn, sem em búnir að skrifa 104 blaðagreinar sem allar enda á ábendingu um að Sjálfstæöisflokkurinn sé í rauninnl Reykjavíkurlistinn, geri athugasemdir við það að Reykjavíkurlistinn heiti Reykja- víkurlistinn, þó vissulega hafi Reykjavíkurlistinn heitið Reyja- víkurlistinn frá upphafi. En sjálfstæðismönnum hefur sem- sé tekist á gmndvelli tæknilegra atriöa í orðalagi að fá kjörstjóm til að mála yfir vömmerki Reykjavíkurlistans á kjörseðlin- um og þannig afstýra því að dyggir sjálfstæðismenn merki við R-listann í ógáti, sannfærðir um að Sjálfstæðisflokkurinn sé nú Reykjavíkurlistinn, eins og stuðningsmenn og frambjóð- endur hafa verið að skrifa í blöðin. GARRI En Garri hefur verið að velta því fyrir sér hvort með þessu sé nóg að gert hjá Sjálfstæöis- flokknum. Miðað við að flokks- fomstan telur að væntanlegir kjósendur komi til meö að eiga í erfiöleikum með að þekkja í sundur framboðin — ef Reykja- víkurlistinn fær að koma fram undir nafni í kjörklefanum — hljóta að vakna spurningar um hvort ekki þurfi að gera ein- hverjar frekari ráðstafanir til að gamlir flokksmenn þekki nú flokkinn sinn á kjördag. Gáfumanna- markhópur? Gríðarlegar breytingar á áhersl- um og yfirbragði flokksins að undanfömu, þar sem D-listinn hefur nánast afmáð sín fyrri sér- kenni, hafa greinilega gert gam- algrónum kjósendum flokksins erfitt fyrir. Sú krafa gæti því komið upp að Sjálfstæðisflokkurinn þyrfti að fá leiðbeinendur inn í kjörklef- ana til að útskýra og hnykkja á því enn frekar hvað sé hvaö á kjörseðlinum. Slíkt væri í raun eðlilegt framhald af því að banna Reykjavíkurlistanum að segja til nafns á kjördag, til að mgla ekki hugsanlega kjósendur Sjálfstæbisflokksins í ríminu. Garri getur svosem unnað Sjálf- stæðisflokknum að bjóða upp á þessa þjónustu, en það er óneit- anlega athyglisvert að velta fyrir sér hvaða markhóp flokkurinn telur móttækilegan fyrir mál- flutningi sínum. í þeim mark- hópi virðast menn ekki hafa mjög skýrar hugmyndir um umhverfi sitt eöa yfirleitt nokkra þekkingu á því sem er að gerast í stjómmálabaráttu í borginni. Garri hefur talið sig í hópi upplýstra og vel gefinna Reykvíkinga og myndi því taka því illa aö vera bendlaður við þennan markhóp. Sú afstaða hefur hins vegar ekkert með pólitík að gera. Garri Farkennsla í hermangi dum er Ú1 viðræðni við Islen 4 ^ ^ ^ga til ðræðunefnd ulag þyrlubjörgunar- Það er tafsamt vandaverk að kaupa þyrlu. Stjórnvöldin em búin að kaupslaga um svoleiðis loftfar í á þriðja ár, samkvæmt fyrirmælum Alþingis og marg- gefnum eigin loforðum. En svo er vandað til verksins að enn er verið að gera og yfirfara skýrslur og álitsgerbir um þyrlukaupin og tímasetja eins og önnur lof- orð upp í ermi ráðherranna. Nokkrar þyrlukaupanefndir em ráðgefandi og komast að fleiri niburstöðum en fjölda þeirra nemur. Margir þingmenn em sérfræbingar í þyrlum, eins og iðulega kemur fram í máli þeirra þegar þyrlukaup ber á góma á þeirra vinnustaS, sem er æriö oft. Utan þings em enn fleiri sérfræöingar og áhuga- menn um þyrlukaup og em óð- fúsir að útbreiða yfirburðaþekk- ingu sína um skrúfuvængjur og notagildi þeirra viö „íslenskar aðstæður". Árangurinn af þessu svakalega þyrlutrúbobi er m.a. sá, að mað- ur hefur ekki lengur glóm um hver er munurinn á sikorsky og puma fremur en á bíl og bifreið. Kuvendingar Þyrlukaupamálið hefur tekið miklar vendingar í tímans rás. Ein hin merkasta er sú, að hætta við að kaupa þyrlu, sem gagn er ab, til landsins, en senda heldur íslenska menn í ameríska her- inn að stjórna þeirra þyrlum. Þó ekki nema þeim sem bækistöðv- ar hafa á íslandi. Utanríkisráðherra færir þjóð- inni annað slagið nýjar og óvæntar fréttir af þyrlumálum og dómsmálaráðherra skýrir jafnoft frá því ab nú höfum við verið ab missa af stórkostlegu tilbobi í aðrar þyrlur en þær sem Jón Baldvin þykist hafa á sínum takteinum. Hvert það kostaboð, sem Þor- steinn missir úr greipum sér, bætir Jón Baldvin upp meb enn flottari tilbobum frá Ameríku. Samkvæmt sumum þeirra eiga íslendingar að taka að sér allt þyrluflug fyrir herinn og nota hergögnin í sína þágu samtímis. Önnur tilbob hljóða upp á heilu þyrluflotana, sem við eigum að fá fyrir lítið, og kennslu í meö- ferð og varahluti í þrjátíu ára gamla gripi fyrir svo sem ekki neitt. Á víbavangi Öll eru þessi tilboð óskiljanleg almúgafólki, eins og talið um allar viðræöurnar sem alltaf eru í undirbúningi. Sölutæknilegar aöferöir Loks kom að því að málin fara aö skýrast. Moggi skýrir frá því í gær, ab stjómvöldum sé stór- lega misboöib af hálfu Banda- ríkjastjómar, sem sendi undir- kontórista í flughersdeild varn- armálaráðuneytisins til að ræöa þyrlumálið vi6 ráðamenn hér. Búist var við sendinefnd með umboð. Enda var það sjálfur vamarmálaráðherrann, sem lof- aði að leysa þrúgandi þyrlu- vandamál á íslandi og um fram- tíö þyrlubjörgunarsveitarinnar á Suðumesjabæjarflugvelli. En erindi undirkontóristans er ekki að semja, ab eigin sögn, heldur ab kenna íslendingum sölutæknilegar aðferðir Banda- ríkjahers (Stjórnunarskólamál?). Maðurinn er aðeins aö kenna íslendingum að semja við Bandaríkjaher um kaup á her- góssi, ef til þess kemur að farið verði aö semja um þyrlukaup við herinn. Þetta er sem sagt einhvers kon- ar farkennsla í hermangi sem bandaríska vamarmálaráðu- neytib lætur íslenskum stjórn- völdum í té, tæplega að ástæbu- lausu. Samkvæmt þessu hafa aldrei farið fram neinar samningavið- ræöur við Bandaríkjamenn um þyrlukaup eða neitt þeim við- komandi. Við eram eldd komn- ir á byrjunarreit ennþá og kunn- um ekki mannganginn í við- skiptageiminu við herinn. Fransmenn selja hverja gömlu þyrluna af annarri við nefiö á Þorsteini dómsmála, og hann heldvu því fram í hvert sinn ab nú séu þær uppseldar. En þá kemur alltaf eitt kostaboöið til viöbótar og allt raglast upp á nýjan leik. Mogginn segir að stjómvöld- um sé misboðiö með því að fá sendan undirkontórista til ab kenna þeim hermang. En skyldi ekki þjóbinni vera misboði6 ab þurfa að meðtaka alla þyrlu- þvæluna án þess að hafa hug- mynd um hvab hún merkir, fremur en þeir ráöamenn sem ekki kunna að semja um kaup á loftfari? OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.