Tíminn - 25.06.1994, Page 3
Laugardagur 25. júní 1994
3
Finnur Ingólfsson, þingmaöur Framsóknarflokksins:
Kratar hafa ekki mannskap
til að manna ríkisstjómina
„Þegar svo er komib aö annar
stjórnarflokkurinn býr orbib
svo illa ab mannskap á þingi
ab hann getur ekki lengur
mannab ríkisstjórnina, þá er
aubvitab kominn tími til ab
þetta lib fari frá," segir Finnur
Ingólfsson, þingmabur Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík.
Hann segir ab þab sé engin
spurning um ab rábherrabreyt-
ingar Alþýbuflokksins veiki
ríkisstjórnina.
Finnur bendir á aö þegar þeir
Viöeyjarbræbur Jón Baldvin og
Davíö Oddsson fóru af staö meö
ríkisstjórnina, þá hafi veriö geng-
iö út frá því aö flokkarnir yröu
jafnáhrifamiklir í stjórninni. Þess
vegna var tekin upp svokölluö
helmingaskiptaregla þannig ab
hvor flokkur fyrir sig fékk fimm
ráöherra, þótt Alþýöuflokkurinn
heföi mun færri þingmenn en
Sjálfstæöisflokkurinn.
„Nú hefur Alþýbuflokkurinn
hvab eftir annaö á þessu kjör-
tímabili, gengiö gegn jafnabar-
stefnunni. Fylgib hefur veriö aö
hrynja af honum, þingliöiö hef-
ur aö stórum hluta verið á flótta í
þinginu til þess aö tryggja sig í
starfi á öðrum vettvangi. Þetta
hefur leitt til þess að núna stend-
ur Alþýöuflokkurinn frammi fyr-
ir því að geta ekki lengur mann-
að ríkisstjórnina."
Finnur segir aö samkvæmt
þessu sé helmingaskiptaregla
stjórnarflokkanna ekki lengur í
gildi. Ekki vegna þess að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi krafist
breytinga á þessari reglu heldur
sé fátæktin orðin svo mikil í Al-
þýöuflokknum ab hann hafi ekki
lengur mannskap til aö standa
undir helmingaskiptareglunni.
Seblabankinn:
Bannar frjáls-
ar verbtrygg-
ingar
Seölabankinn bannar verö-
tryggingu óbundinna innlána
frá næstu áramótum, sem virð-
ist stinga nokkuö í stúf við sí-
aukið frelsi á fjármagnsmark-
aði. Þetta bann er meginbreyt-
ingin í nýjum reglum sem
Seðlabankinn hefur gefið út
um verðtryggingu sparifjár og
lánsfjár. Verðtrygging veröur
áfram heimil á innlánsreikn-
ingum sem bundnir eru a.m.k.
12 mánuði í upphafi og síðan í
minnst 6 mánuöi eftir þaö.
í tilkynningu frá Seðlabank-
anum er bent á aö ríkissjóður
hafi smám saman aukiö útgáfu
óverötryggöra veröbréfa. Telur
bankinn brýnt aö slík útgáfa
veröi aukin og óverötryggð
bréf gefin út til lengri tíma.
s
Olafur Ragnar Grímsson, formaöur Alþýöubandalagsins:
Áfall fyrir Alþýðuflokks-
konur og jafnréttissinna
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maöur Alþýöubandalagsins,
segir aö ráöherrabreyting Al-
þýöuflokksins gefi til kynna
vandræöagang, auk þess sem
þaö hljóti ab vera mikið áfall
fyrir konur í Alþýðuflokkn-
um og jafnréttissinna.
Hann segir aö þetta styrki rík-
isstjórnina á engan hátt og það
sé auðvitað veikleikamerki fyrir
stjórnina aö þrír ráðherrar Al-
þýöuflokksins, sem voru í
stjórninni í upphafi, skuli hafa
farið úr stjórninni á kjörtíma-
bilinu. Þar fyrir utan treystir Al-
þýöuflokkurinn sér ekki til þess
aö manna ríkisstjórnina meö
fimm ráðherrum.
„Sighvatur flúði úr heilbrigðis-
ráðuneytinu á miöju kjörtíma-
bilinu og nú flýr Guömundur
Árni þaðan líka eftir eitt ár. Sig-
hvatur ætlar svo að sjá um iðn-
aðinn í landinu, viöskiptin og
öll heilbrigðismálin. Hann hef-
ur greinilega nógan tíma," seg-
ir Olafur Ragnar.
Ólafur segir aö forysta Alþýðu-
flokksins telji greinilega að eng-
inn þingmaöur flokksins sé
hæfur til að veröa ráðherra.
Hann segir aö þetta sé gífurlegt
vantraust á Rannveigu Guð-
mundsdóttur, þingflokksfor-
mann krata.
„Þetta er í annað sinn sem
gengið er framhjá henni til ráð-
herradóms. Á rúmu ári hafa
tvær konur flúið úr stööu vara-
formanns í Alþýöuflokknum
vegna ofríki Jóns Baldvins.
Fyrst Jóhanna og síðan Rann-
veig."
Hann segir að í þessu sam-
bandi sé vert að minnast þess
aö Jón Baldvin lýsti því yfir fyr-
ir ári aö ef embætti félagsmála-
ráðherra væri laust, væri Rann-
veig sjálfkjörin í þaö.
Jóna Valgeröur Kristjánsdóttir, þingflokksformaöur Kvennalista:
Engan veginn í
takt vib tímann
„Mér finnst þessar ráöherra-
breytingar engan veginn vera í
takt vib tímann. Ríkisstjórnin
þekkir greinilega ekki sinn vitj-
unartíma og tíminn mun leiöa
þaö í ljós ab Alþýbuflokkurinn
mun síst af öllu græba á þessu,"
segir Jóna Valgerbur Kristjáns-
dóttir, formaöur þingflokks
Kvennalista.
Hún segir aö þær tilfæringar,
sem oröiö hafa hjá Alþýöu-
flokknum, veiki ríkisstjórnina
sem hefur örugglega átt meiri
vinsældum aö fagna meö Jó-
hönnu innanborðs, en eintóma
karlmenn. Jóhanna hafi t.d.
haldiö á lofti ákveönum félags-
legum gildum og verið málsvari
fyrir kvenleg sjónarmið og mýkri
viðhorf innan ríkisstjórnar.
Jóna Valgeröur Kristjánsdóttir
segir aö vegna ráöherrabreytinga
Alþýöuflokks sé vert aö minnast
þeirra oröa Jóns Baldvins frá því í
fyrra þess efnis að ef stóll Jó-
hönnu væri laus þá væri engin
spurning um það aö Rannveig
Guömundsdóttir ætti þann stól
vísan.
„í sjálfu sér skil ég Rannveigu
vel, aö hún skuli ekki hafa viljað
taka við embætti félagsmálaráð-
herra, þó svo að hún heföi verið
beöin um það. Því þaö hlýtur að
vera leiðinlegt fyrir hana að vera
sífellt að þurrka upp þaö sem Jó-
hanna skilur eftir sig."
Jóna Valge'rður bendir á að Petr-
ína Baldursdóttir, þingmaöur
krata í Reykjaneskjördæmi, hafi
boðist til aö taka að sér ráöherra-
embætti ef leitað heföi veriö til
hennar. Hún segir að það hefði
vel verið hægt aö fela Petrínu
embætti félagsmálaráðherra, því
hún hafi ekkert minni reynslu en
t.d. Össur Skarphéðinsson þegar
hann var geröur aö umhverfis-
ráöherra. „Þannig aö forysta
flokksins virðist ekki hafa lagt sig
fram um að setja konu í stól fé-
lagsmálaráðherra," segir Jóna. ■
Menningarsjóður
útvarpsstöðva
auglýsir
Samkvæmt útvarpslögum og reglugerð um Menningarsjóð
útvarpsstöðva er hlutverk sjóðsins m.a. að veita styrki til
eflingar innlendri dagskrárgerð fyrir hljóðvarp og sjónvarp,
þeirri er verða má til menningarauka og fræðslu.
Stjórn sjóðsins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki
úr sjóðnum. í umsóknum skulu eftirfarandi upplýsingar
koma fram:
1. Nafn umsækjanda, kennitala og heimilisfang, ásamt
upplýsingum um aðstandendur verkefnis og samstarfs-
aðila og skriflegum staðfestingum allra aðila um þátt-
töku í verkefninu.
2. Heiti verkefnis og megininntak.
3. ítarleg og sundurliðuð kostnaðaráætlun ásamt greinar-
gerð um fjármögnun, þ.m.t. um framlög og styrki frá
öðrum aðilum, sem fengist hafa eða sótt hefur verið
um, eða fyrirhugað er að sækja um.
4. Fjárhæð styrks sem sótt er um.
5. Nákvæm áætlun um framvindu verkefnis og greinar-
gerð um það til hvaða verkþátta sótt er um styrk.
6. Handrit eða nákvæm lýsing verkefnis.
7. Yfirlýsing útvarpsstöðvar um að fyrirhugað sé að taka
dagskrárefni, sem sótt er um styrk til, á dagskrá.
Umsóknum og öllum fylgigögnum ber að skila í þríriti á
skrifstofu ritara stjórnar, Bjarna Þórs Óskarssonar hdl.,
Laugavegi 97, 101 Reykjavík, fyrir 1. ágúst n.k. Úthlutun-
arreglur sjóðsins og umsóknareyðublöð fást afhent á
sama stað.
Ekki verður tekið tillit til umsókna sem ekki uppfylla öll
framangreind skilyrði. Eldri umsóknir ber að endurnýja.
Landbúnaðartæki
Til sölu lítið notað Dux baggafæriband.
Er 8 metra langt, með rafmótor.
Upplýsingar í síma 95-38081.
@) Husqvarna og bfothsc saumavélar
★ Allir nytjasaumar ★ Loksaumur (overlock) ★ Auðveldar ★ Léttar ★ Fallegar
Gefið gjöf sem endist og endist
Verð frá 19.130 stgr. Ath. kennsla og íslenskur leiðarvísir fylgir öllum okkar vélum.
A Völusteinn hf. BKVÍÉf Faxafeni 14, 108 Reykjavik Sími 679505 S Sérverslun með saumavélar,og föndurvörur 1ÖtU,.o«wo ~
»■'' ' ■ luov^vai i ia