Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.03.2009, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 03.03.2009, Qupperneq 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI ÞRIÐJUDAGUR 3. mars 2009 — 54. tölublað — 9. árgangur AÐALHEIÐUR INGADÓTTIR Búin að ganga allar götur Akureyrar • heilsa Í MIÐJU BLAÐSINS Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 KYNSJÚKDÓMAR – Smitleiðir, einkenni, meðferð, for- varnir er heiti bæklings sem kominn er út á vegum sóttvarna- læknis. Bæklingurinn er fyrst og fremst saminn með þarfir ungs fólks í huga og gefinn út bæði á prenti og í rafrænu formi. Ýmislegt er hægt að gera til að huga betur að heilsunni og ekki þarf það að kosta eyri, eins og Aðalheiður Ingadóttir sannreyndi fyrr í vetur þegar hún setti sér að markmiði að ganga allar götur Akureyrar. „Ég ákvað að fara allar göturnar. Þannig gerði ég þetta áhuga-verðara í staðinn fyrir að fá mérbara einhve hugmyndin svo sniðug að hún sló til. „Ég fæ mér oft göngutúra og þegar ég heyrði af þessari ráða-gerð fannst mér hún svo frábær að ég kýldi á þetta.“Að sögn Aðalheiðar gekk hún yfirleitt í einn til tvo tíma í senn en fór ekki nema vera upplögðEkki hefur hún töl á stundum í kaffi til fólks sem ég þekkti í gamla daga.“En skyldi hún einhvern tímann ætla að endurtaka leikinn nú þegar markmiðinu hefur verið náð? „Já, ég væri alveg til í það eftir svona tvö ár,“ svarar hún og se iekki Margs vísari um bæinnÞeir eru sjálfsagt ekki margir sem þekkja bæinn sinn jafn vel og Aðalheiður Ingadóttir, sem tók upp á því að ganga hverja einustu götu á Akureyri í vetur og segist hafa fræðst töluvert um heimahagana. Aðalheiður segist ganga mikið og syndir allt upp í 700 metra á hverjum degi. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS VÉLFRÆÐINGURM/ full réttindi og reynslu óskar eftir vinnu á höfðuborgarsvæðinu. Ýmislegt kemur til greina. Hef reynslu af sölumennsku og markaðssetningu bæði innanlands og utan. Góð tungumálakunnátta fyrir hendi. GSM: 893-1055 telpurS onuK r Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 Patti húsgögn TILBOÐ VIKUNNAR landsins mesta úrval af sófasettum verð áður 359.900 Sófasett 3+1+1 kr.239.900,- Mikið úrval af upphengdum salernum Baldursnesi 6 Akureyri Sími 414 1050 Smiðjuvegi 76 Kópavogi Sími 414 1000 Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá10 -15 Fleiri láta gera við Réttingaverkstæði Jóa á Dalvegi var stækkað á dögun- um og bætt við mannskap. TÍMAMÓT 16 VIGDÍS HREFNA PÁLSDÓTTIR Leikur síamstvíbura í Þjóðleikhúsinu Mótleikarinn gamall bekkjarfélagi FÓLK 26 EVA MARÍA ÞÓRARINSDÓTTIR DJ Glimmer á árshátíð Kvenna með konum Karlmenn bannaðir á besta balli ársins FÓLK 26 Gullfalleg Plata Lay Low fær góða umsögn í Sunday Times. FÓLK 20 STORMUR Í dag verður norðaust- an stormur á Vestfjörðum, annars mun hægari. Bætir þó heldur í vind víðast hvar í dag. Snjókoma norðvestan til og stöku él suðaust- anlands. Frost um mestallt land. VEÐUR 4 -2 -1 -4 -2 0 SAMGÖNGUR Íslenskir ráðamenn flugu alls tólf sinnum milli landa með flugvélum sem ekki voru í almennu farþegaflugi á árun- um 2005 til 2008. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flaug alls níu sinnum með einkaþotum eða leiguvélum á vegum íslenskra fyrirtækja á tímabilinu. Flugferðir forseta Íslands voru með vélum í eigu eða leigu Glitn- is, Novators, FL Group, KB-banka (síðar Kaupþings banka), Actavis og Eimskipafélags Íslands. Þetta kemur fram í svari embættisins við fyrirspurn Fréttablaðsins. Þannig flaug Ólafur Ragnar frá London til Sófíu í Búlgaríu með vél Novators í september 2005. Hann sótti landsleik Íslands og Búlgar- íu, ræddi við ráðamenn um sókn íslenskra fyrirtækja í landinu og kynnti sér forvarnir gegn fíkni- efnum. Í september 2007 fór Ólafur Ragnar í ríflega sólarhringsferð til Leeds á Englandi með leiguvél á vegum Eimskipafélags Íslands. Forsetinn flutti ávarp við opnun skrifstofubyggingar Eimskipa- félagsins, heimsótti Háskólann í Leeds og sæmdi tvo menn fálka- orðunni fyrir framlag til kynning- ar á íslenskri menningu. Ráðuneytin hafa ekki notað einkaþotur eða leigðar þotur í sama mæli. Í svörum allra ráðu- neyta við fyrirspurn Fréttablaðs- ins kemur fram að samtals var um þrjár ferðir að ræða á tímabilinu. Forsætisráðuneytið leigði tvisv- ar þotur, til að koma ráðherrum á fundi í Rúmeníu og Norður-Sví- þjóð. Sjávarútvegs- og landbúnað- arráðuneytið leigði einu sinni vél til að koma starfsmönnum ráðu- neytisins á fund á vesturströnd Grænlands. - bj / sjá síðu 6 Forsetinn flaug níu sinnum í einkavélum Ólafur Ragnar Grímsson fór níu flugferðir með þotum í eigu eða leigu íslenskra fyrirtækja á árunum 2005 til 2008. Forsetinn flaug til dæmis með vélum Novat- ors, Glitnis og FL Group. Ráðuneytin leigðu þrisvar flugvélar á sama tímabili. Ábyrgð kjósenda „Það erum við sem röðum á framboðslistana og berum ábyrgð á þeim,“ segir Jónína Michaels- dóttir. Því þurfi að vanda valið. Í DAG 14 TÆKNI Facebook-netsíðukerfið hefur orðið fyrir fimm alvarleg- um árásum tölvuþrjóta á einni viku. Þeir koma fyrir ormum í skilaboðum og nýjungum sem notendur geta bætt við síður sínar. Ormarnir sækja síðan per- sónulegar upplýsingar og koma þeim áfram til aðila sem reyna að hagnast á þeim. Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, segir Facebook áfram verða það opna samfélag sem það er. Þeir sem lenda í vandræðum með vírusa geta leitað sér leið- beininga á síðunni. Einn ormur- inn, svo dæmi sé tekið, er falinn í fölsku Youtube-viðhengi sem gjarnan er myndskreyting af síðu notandans. - kóp Tölvuþrjótar á ferð: Hakkarar herja nú á Facebook ALÞINGI Jóhanna Sigurðardóttir segist efast um að þing nái að afgreiða öll mál sem þarf fyrir 12. mars. Þá má í fyrsta lagi rjúfa þing, verði kosið 25. apríl. Jóhanna sagði í gær að þingið starfaði jafnvel fram til 4. apríl. Geir H. Haar- de, formaður Sjálfstæðis- flokksins, spurði Jóhönnu út í þingrof. Hann sagðist ekki trúa því að löggjafarþing- ið sæti nánast fram að kosningum við þessar aðstæður og alls ekki ef afgreiða þyrfti stjórnarskrárbreytingu. Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, varaformaður Sjálfstæðis- flokksins, bauð aðstoð Sjálf- stæðisflokks við að koma góðum málum í gegnum þingið. „Við leggjum þá öllum öðrum málum til hliðar og ræðum eingöngu efnahags- og atvinnumál á þeim fáu dögum sem eftir eru af þinginu.“ - kóp Forsætisráðherra um þingrof: Þingið þarf að fá lengri tíma JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Njarðvík vann Keflavík Njarðvíkingar hafa unnið nágranna sína úr Keflavík í báð- um leikjum liðanna í vetur. ÍÞRÓTTIR 22 VEÐRIÐ Í DAG VEÐUR Rýma þurfti fjögur hús í Bolungarvík í gærkvöldi vegna snjóflóðahættu og þurftu fjór- tán manns að yfirgefa heimili sín undir Traðarhyrnu. Viðbúnað- ur var einnig á Ísafirði, en ekki hættustig. Yfirvöld meta stöðuna aftur nú fyrir hádegi eftir veðri og snjóalögum. „Jú, þetta er vissulega óþægi- legt, en við höfum svo sem ekki miklar áhyggjur. Það er samt alveg óhætt að hafa vaðið fyrir neðan sig, því það er talsvert mikið af snjó hér núna. Meira en ég hef lengi séð,“ segir Sigurð- ur Kjartan Hálfdánarson. Hann þurfti að rýma hús sitt við Ljósa- land ásamt Málfríði Þorvaldsdótt- ur konu sinni og þremur börnum: Bernódusi fimm ára, Guðrúnu Freyju þriggja ára og Ólafi Haf- steini eins og hálfs árs gömlum. Sigurður, sem er alinn upp á Bolungarvík, segir þetta í fyrsta skipti sem fjölskyldan þurfi að yfirgefa hús sitt. „Við höfum hingað til horft á aðra fara en lendum nú í þessu. Annars tel ég mig fullfæran til að meta hvort það þurfi að fara úr húsinu eða ekki.“ Fjölskyldan fékk inni hjá móður Sigurðar í bænum. Hann segir krakkana taka þessu vel; úr þessu verði ævintýri hjá ömmu. Þrjár fjölskyldur fengu inni hjá ættingjum og vinum, en sveitar- félagið útvegaði einni fjölskyldu húsnæði. Töluverð snjókoma hefur verið í Bolungarvík. Í gærkvöldi hafði úrkoman mælst rúmir 20 mm á sólarhring. Í gærkvöldi var spáð nokkuð hvassri norðvestan átt en í þeirri vindátt skapast aukin hætta á snjóflóði í Traðarhyrnu. Í febrúar árið 2007 voru aðstæður svipaðar en þá féll snjóflóð á hús við Dísar- land. Í gær voru hús við Ljósaland og Traðarland rýmd. - kóp Fjórtán þurftu að yfirgefa hús sín í Bolungarvík vegna snjóflóðahættu: Þetta er vissulega óþægilegt YFIRGEFA HEIMILIÐ Fjölskyldan að Ljósalandi á Bolungarvík yfirgaf heimili sitt í gærkvöldi vegna snjóflóðahættu. Þau höfðu tíma til að taka það allra nauðsynlegasta með. Þetta er í fyrsta sinn sem heimili þeirra er rýmt. MYND/HAFÞÓR GUNNARSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.