Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.03.2009, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 03.03.2009, Qupperneq 2
2 3. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR Sigursveinn, þýðir þetta að þú sért orðinn hetjutenór? „Já, ég er brjálaður hetjutenór.“ Fyrrum Luxor-söngvarinn Sigursveinn Þór Árnason stökk inn í aðalhlutverkið í rokk- óperunni !Hero, sem frumsýnd verður í Loftkastalanum á föstudagskvöld, með litlum fyrirvara. STERKA KONU Í FORYSTU! www.olofnordal.is Kjósum Ólöfu Nordal í 2.-3. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna 13.-14. mars 2009 Verið velkomin á kosningaskrifstofu mína að Laugavegi 178, 4. hæð. Sími 840 6464 - Opið frá 14-21. ATVINNUMÁL Um fjórtán þúsund manns fá greiddar atvinnuleysisbætur um þessi mánaðamót. Heildar- upphæðin nemur um tveimur milljörðum króna, sem er hæsta upphæð sem atvinnuleysistrygg- ingasjóður hefur greitt út í einu lagi frá upphafi. Alls eru 16.411 skráðir atvinnulausir hjá Vinnu- málastofnun, þar af eru karlar 10.444 og konur 5.967. Frekari sundurliðun liggur ekki fyrir en von er á skýrslu síðar í mánuðinum. Um síðustu mánaðamót voru 13.280 á atvinnuleysisskrá. Atvinnulausum hefur því fjölgað um ríflega þrjú þúsund á einum mánuði. Vegna þess hversu umfang greiðslnanna er mikið tók það starfsfólk Vinnumálastofnunar tölu- verðan tíma að ganga frá þeim. Var fólk beðið um að sýna þolinmæði þótt greiðslurnar bærust í seinna lagi. Að sögn Líneyjar Árnadóttur, forstöðumanns Vinnumálastofnunar á Norðurlandi vestra, sem sér um greiðslukerfið, námu greiðslurnar í gær tæpum tveimur milljörðum. Hún segir hins vegar að búast megi við að gengið verði frá ein- hverjum greiðslum næstu daga, svo líklegt sé að heildartalan skríði yfir tvo milljarða. Um síðustu mánaðamót greiddi Vinnumálastofn- un 9.500 einstaklingum út bætur. - sh Tveir milljarðar greiddir úr atvinnuleysistryggingasjóði um mánaðamótin: Aldrei meira greitt í bætur MIKIÐ ATVINNULEYSI Alls eru nú á sautjánda þúsund skráðir atvinnulausir hérlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KAUPMANNAHÖFN Ekkert lát er á átökum ungra innflytjenda í Danmörku við Vítisengla. Nú um helgina voru tveir menn myrt- ir í þremur skotárásum og fjórar manneskjur særðust, þar af einn Færeyingur alvarlega. „Eftir að þetta fór að stigmagn- ast þorir maður varla á vettvang lengur,“ segir Teitur Jónasson, fréttaljósmyndari í Kaupmanna- höfn, sem er farinn að nota skot- helt vesti í vinnunni, rétt eins og aðrir ljósmyndarar og blaðamenn sem fjalla um þessi átök. Seint á sunnudagskvöld réðust tveir grímuklæddir ungir innflytj- endur inn á kaffihús á Amagereyju og hófu skothríð. Fyrir skotunum varð þrítugur maður, sem lét lífið. Einnig særðust tveir ungir menn, 19 og 20 ára gamlir, og 32 ára gömul kona. Kaffihúsið er við hlið- ina á bækistöð Vítisengla í götunni, og ekki virðist fara á milli mála að árásinni hafi verið beint að þeim. Á föstudaginn var íraskur maður myrtur á Norðurbrú og á laugardag var skotið á 32 ára gamlan Færey- ing, sem enn liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Allt þetta fólk virðist hafa haft lítil sem engin tengsl við klíkurnar, sem standa í þessum átökum. Gagn- kvæm tortryggni og hefndarhugur virðist magna upp taugaspennu þannig að skotið er á fólk bara ef það virðist hugsanlega vera tengt andstæðingunum. „Þessi Færeyingur var bara að fara á tónleika ásamt vini sínum. Þeir voru að skima í kringum sig í hverfinu og virtust eitt- hvað grunsamlegir, þannig að þeir voru stöðvaðir. Svo gefur bílstjór- inn í og þá er skotið á bílinn. Fær- eyingurinn sem sat í farþegasætinu varð fyrir skoti,“ segir Teitur. Átökin hófust í ágúst þegar ungur innflytjandi var myrtur í Ting- bjerg, úthverfi norðan til í Kaup- mannahöfn, þar sem innflytjendur eru í miklum meirihluta. Sá sem er grunaður um þann verknað er meðlimur í vél- hjólasamtökunum AK81, sem eru stuðningssamtök Vítisengla. „Síðan hefur þetta gengið á víxl fram og til baka. Nú eru skotárásirnar komnar upp í 29,“ segir Teitur. Fyrir hálfum mánuði versnaði ástandið um allan helming og síðan þá hefur verið nánast stríðsástand á Norðurbrú, þar sem fjölmargir Íslendingar búa. Stjórnvöld virðast nánast ráða- laus gagnvart þessu ástandi. Fjölgað hefur verið í lögreglulið- inu á götum Kaupmannahafnar og aðgerðir lögreglunnar hertar mjög. „Það lítur út fyrir að þeir skjóti bara hvar sem þeim sýnist núna,“ sagði Ritt Bjerregaard, borgar- stjóri Kaupmannahafnar, í viðtali við Jótlandspóstinn. gudsteinn@frettabladid.is Óttinn breiðist út í Kaupmannahöfn Tveir myrtir og fjögur særð eftir þrjár skotárásir í Kaupmannahöfn um helgina. Átök milli Vítisengla og ungra innflytjenda verða æ harðari. Íslenskur frétta- ljósmyndari í Kaupmannahöfn þarf að nota skothelt vesti í vinnunni. HERTAR LÖGREGLUAÐGERÐIR Ástandið í Kaupmannahöfn er orðið þannig að lög- reglan stöðvar bifreiðar fyrirvaralaust og leitar í þeim. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR SLYS Karlmaður úr Reykjavík, fæddur árið 1963, beið bana þegar bíll hans fór út af veginum milli Akraness og Hvalfjarðar- ganga á sunnudagskvöld. Ökumaðurinn var einn í bíln- um, sem fór nokkrar veltur þegar hann fór út af veginum. Maður- inn kastaðist út úr bílnum og er talinn hafa látist samstundis. Lögreglan á Akranesi og rann- sóknarnefnd umferðarslysa unnu að rannsókn slyssins í gær. Óskað er eftir vitnum að slysinu. Ekki er unnt að birta nafn mannsins að svo stöddu. - kg Slys skammt frá Akranesi: Maður lést í umferðarslysi STJÓRNMÁL Geir H. Haarde, for- maður Sjálfstæðisflokksins, vill að endurreisnarnefnd flokksins horfi til framtíðar en ekki fortíð- ar. Hörð gagnrýni er sett fram á flokkinn í áliti undirnefndar. Geir sagði í fréttum Rúv í gær- kvöldi að málfrelsi ríkti og menn gætu gagnrýnt að vild. Hann mundi þó ekki tjá sig um skýrslu- drögin. Ásta Möller, þingmaður flokks- ins, baðst í sama fréttatíma afsökunar á því að hafa ekki stað- ið sig betur sem kjörinn fulltrúi. Hún hefði átt að bregðast við þegar bankakerfið stækkaði til muna og hrundi að lokum. - kóp Ásta Möller biðst afsökunar: Geir vill horfa til framtíðar NEFNDIN KYNNT Geir segir hlutverk endurreisnarnefndar flokksins að horfa til framtíðar en ekki fortíðar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR EGYPTALAND, AP Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, segir að Bandaríkjastjórn Baracks Obama ætli að vinna hörðum höndum að því að finna leiðir til þess að Ísraelar og Pal- estínumenn geti átt friðsamleg samskipti í tveimur ríkjum. „Við höfum ekki efni á fleiri bakslögum eða töfum, né eftirsjá eftir því sem hefði getað orðið, ef aðrar ákvarðanir hefðu verið teknar,“ sagði hún á alþjóðlegri ráðstefnu í Egyptalandi í gær, þar sem fulltrúar ríkja og alþjóða- stofnana ræddu um fjárveitingar til uppbyggingar á Gasasvæðinu. Á ráðstefnunni sagði Hillary að Bandaríkin ætluðu að verja 900 milljónum dala til uppbyggingar á Gasasvæðinu, en hluti fjárins á að fara til Palestínustjórnar. - gb Hillary í Egyptalandi: Nóg komið af töfum og hiki Á FUNDINUM Í SHARM-EL-SHEIKH Hillary Clinton sagði Bandaríkin ætla að verja 900 milljónum dala til uppbygg- ingar á Gasasvæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VIÐSKIPTI Landsbankinn og Íslands- banki, áður Glitnir, þurfa að afskrifa samtals um 2,9 milljarða króna vegna sölu á Árvakri, útgáfu- félagi Morgunblaðsins. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær. Samkvæmt heimildum frétta- stofu Stöðvar 2 og Vísis var kaup- verð Árvakurs tveir milljarðar króna. Af þeirri upphæð fá bank- arnir 1,7 milljarða upp í skuldir, og 300 milljónir verða nýtt hlutafé Árvakurs. Þórsmörk, félag í eigu Óskars Magnússonar og fleiri, átti hæsta boðið í fyrirtækið. Skuldir Árvakurs voru um 4,6 milljarðar króna. Félagið skuld- aði Íslandsbanka um 3,7 milljarða, og Landsbankanum um 860 millj- ónir króna. Þegar Þórsmörk hefur greitt 1,7 milljarða upp í skuldirnar standa eftir um 2,9 milljarðar sem bankarnir tveir þurfa að afskrifa. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, spurði fjármálaráðherra á Alþingi í gær hvort salan á Árvakri yrði fordæmi fyrir önnur félög. Taldi hann farið inn á vafasama braut með miklum afskriftum. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra sagði þetta ekki endilega fordæmi fyrir önnur fyr- irtæki, meta yrði hvert mál fyrir sig. Málið sé á forræði bankanna. - bj Þórsmörk keypti útgáfufélag Morgunblaðsins af Íslandsbanka á tvo milljarða: Afskriftir um 2,9 milljarðar EKKI FORDÆMI Sala Íslandsbanka á Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, gefur ekki endilega fordæmi, segir Stein- grímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Á slysadeild eftir skíðaslys Lögregla og sjúkrabíll voru kölluð í Bláfjöll um klukkan 20 í gærkvöldi. Starfsmaður kom að unglingsstúlku meðvitundarlausri í brekkunni. Stúlkan var komin til meðvitundar þegar sjúkrabíll kom á staðinn. Hún var flutt á slysadeild til aðhlynningar. Ekki fengust upplýsingar um tildrög slyssins í gær. SLYS TEITUR JÓNASSON BANDARÍKIN Bandaríska leyniþjón- ustan CIA hefur viðurkennt að upptökum af yfirheyrslum yfir 92 meintum hryðjuverkamönnum hefur verið eytt. Áður hafði CIA aðeins viðurkennt að tveimur upptökum hafði verið eytt, að því er fram kemur á vef BBC. Bandarísk mannréttindasam- tök hafa stefnt leyniþjónustunni til að freista þess að fá upplýs- ingar um aðferðir sem beitt er við yfirheyrslur. Telja samtök- in að starfsmenn CIA hafi meðal annars notað vatnspyntingar. CIA segist nú leita annarra upp- lýsinga um það sem fram fór við yfirheyrslurnar. - bj Yfirheyrslur leyniþjónustu: CIA eyddi 92 upptökum SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.