Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.03.2009, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 03.03.2009, Qupperneq 4
4 3. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR ALÞINGI Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, segir að skoða verði hvort bjargráðasjóði verði ekki beitt til að aðstoða bænd- ur vegna hás áburðarverðs. Þá verða heim- ildir í lögum nýttar til að bjóða bændum að gera auka- uppgjör á virð- isaukaskatti með vorinu. Þetta kom fram í utandagskrár- umræðum í gær sem Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Fram- sóknarflokksins, átti frumkvæði að. Hann kallaði meðal annars eftir afstöðu Steingríms til inn- flutnings á hráu kjöti frá ESB. Steingrímur sagði fyrrum fram- sóknarráðherra hafa samið við ESB og úr þeirri skuldbindingu þyrfti að vinna. - kóp Rangt var haft eftir Friðriki Smára Björgvinssyni í frétt um sölu á þýfi á vefsíðum sem birtist á laugardaginn. Ekki hefur verið reynt að selja þýfi á haninn.is. LEIÐRÉTTING MYNDLIST á Stokkseyri Kennari Sjøfn Har sem er Cand phil í myndlist Myndlist I 10.mars - 5.maí kl.19.30-22.30 Myndlist II 9.mars - 27.apríl kl.19.30-22.30 Myndlist III 11.mars - 5.maí kl.19.30-22.30 Viðurkenningarskjal. Ath. styrk frá fagfélagi Uppl. um námskeiðin á www.sjofnhar.com eða í síma 894 0367 og skráning á sjofnhar@sjofnhar.com Staður: LISTASKÁLINN á torginu STOKKSEYRI ALÞINGI Þær umsagnir sem bor- ist hafa efnahags- og skattanefnd vegna afnáms laga um eftirlaun forseta, ráðherra, þingmanna og hæstaréttardómara eru öll jákvæð. Björgvin G. Sigurðsson, formaður nefndarinnar, segir að frumvarpið hafi verið afgreitt í gærmorgun út úr nefnd í aðra umræðu á þingi. ASÍ, Prestafélag Íslands og BSRB fagna öll frumvarpinu og mæla með að þau verði samþykkt. ASÍ og BSRB minna á að í gild- andi lögum um eftirlaun þessara stétta felist forréttindi, sem sam- tökin hafi mótmælt frá upphafi. Í sama streng tekur Prestafélagið, sem segir ekki ástæður til að hafa sérlög um eftirlaun þessara stétta, um þær eigi að gilda sömu lög og um aðrar embættisstéttir. Þá leggur Viðskiptaráð það einnig til að frum- varpið nái fram að ganga. Þó segir Viðskiptaráð í umsögn sinni að það þurfi að tryggja að starf alþingis- manna sé eftirsóknarvert. Slíkt sé gert með bættu starfsumhverfi eða bættum starfskjörum. „Það er nauðsynlegt að störf alþingismanna verði gerð eftirsóknarverð,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. „Hættan er sú að við sitjum uppi með störf sem gott fólk sækist ekki eftir.“ Ekki sé hægt í núverandi umhverfi að horfa til hækkunar launa alþingismanna. Því verði að horfa til starfsumhverfisins til að efla áhuga fólks á þingstörfum. - ss Frumvarp um afnám eftirlaunalaganna fer í aðra umræðu á þingi: Eindregið mælt með afnámi STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Fjármála- ráðherra leggur til að almennar reglur um lífeyriskjör opinberra starfsmanna nái yfir þingmenn, ráðherra, forseta og hæstaréttardómara. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 15° 8° 7° 9° 5° 8° 10° 7° 4° 4° 17° 9° -2° 17° 1° 11° 14° 2° Á MORGUN Víðast 8-15 m/s, hvassast austan og suðaustan til. FIMMTUDAGUR 5-10 m/s -2 -1 -1 -2 -4 -2 -2 1 0 0 -6 23 12 5 5 4 4 4 3 49 5 -2 -3 -4 -1 2 -2 1 -3 0 0 VONSKUVEÐUR Á VESTFJÖRÐUM Núna með morgn- inum má búast við norðaustan stormi á Vestfjörðum samfara töluverðri snjókomu og skafrenningi og stórhríð á heiðum. Áberandi hvassast verður vestast og nyrst en einnig á eftir að hvessa á suðurfjörðunum og á Ströndum. Það er því vart ferðaveður á þessum svæðum í dag. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur STJÓRNMÁL Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Fram- sóknarflokksins, er harðorður í garð stjórnarflokkanna tveggja á heimasíðu sinni. Hann sakar þá um úrræðaleysi og að stjórn- in hafi ekki uppfyllt þau skilyrði sem Framsóknarflokkurinn setti þegar hann lofaði að verja stjórn- ina hlutleysi. „Það hafa hrúgast inn alls konar frumvörp frá stjórninni og margt af því eru ágætis mál, en þau mega alveg bíða næstu ríkisstjórnar,“ segir Sigmundur. Spurður hvaða mál það eru segir hann: „Það á við um flest mál stjórnarinnar.“ Sig- mundur segir stjórnina hafa átt að einbeita sér að efnahagsmálum og endurskoðun stjórnarskrár. Hann segir þó ekki að Fram- sóknarflokkurinn muni hætta stuðningi við stjórnina. Kannski hefði verið réttara að fá efnahags- áætlun stjórnarinnar fyrirfram áður en stuðningi var lofað. „Við kynntum okkar tillögur og þeim ber engin skylda til að taka undir þær. En ef þau ætla sér að slá þær út af borðinu hefðum við viljað að þau legðu eitthvað annað fram í stað þess að segja bara: Ekki þetta.“ Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstri grænna, segist ekki hafa séð gagnrýni Sigmund- ar. Hann hafi fundað nokkuð með honum undanfarið en ekki orðið var við þessa óánægju. „Þessi mál hafa verið í nokkuð góðum gír hjá okkur; fyrstu mál eru að koma úr nefnd nú í vikunni, fyrir utan lög um Seðlabankann sem er lokið.“ Steingrímur segir að beðið sé eftir úttekt Seðlabankans á stöðu heimilanna og í framhaldi af því yrði ákveðið hvernig tekið yrði á vandanum. Um mikilsverða upp- lýsingaöflun sé að ræða um stöðu heimilanna, sem ætti að skýrast í þessari viku. „Þetta er mikilvægur grunnur til að byggja alla skoðun á í framhaldinu. Þá má nefna að mál eru að koma úr nefnd eins og um greiðsluaðlögun.“ Steingrímur segist ekki óttast að Framsóknarflokkur falli frá stuðn- ingi sínum. „Nei, samstarfið hefur verið gott og ég hef engar áhyggj- ur af því að þeir hlaupi frá loforði sínu. En ég bíð eftir að heyra í honum og heyra hvað hann á við.“ Sigmundur Davíð sat fund með fulltrúum Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins í gær, þar sem meðal annars var rætt um tillögur Framsóknar. Hann segist bundinn trúnaði, en fundurinn hafi gengið vel. kolbeinn@frettabladid.is Framsókn segir ríkis- stjórn úrræðalausa Formaður Framsóknarflokksins segir ríkisstjórnina úrræðalausa. Flest mál sem hún hafi lagt fram mættu bíða næstu ríkisstjórnar. Framsókn kallar eftir tillög- um í efnahagsmálum. Fjármálaráðherra hefur ekki heyrt af óánægjunni. FORYSTA FRAMSÓKNARFLOKKSINS Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir úrræðaleysi á heimasíðu sinni. Stjórnin hafi ekki hugað nóg að efnahagsmálum og lagt fram fjölda frumvarpa sem bíða mættu næstu stjórnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HÖSKULDUR ÞÓRHALLSSON VIÐSKIPTI Lokafrestur til að skila inn bindandi tilboðum í Senu rennur út klukkan 16 í dag og mun þá liggja ljóst fyrir hver þeirra fjögurra tilboðsgjafa hafi skilað inn hæsta boði í afþreying- arfyrirtækið. Straumur hefur séð um sölu- ferlið fyrir hönd Íslenskrar afþreyingar. Í framhaldinu verða kaupsamningar gerðir. Undir Senu eru fjögur kvik- myndahús, þar af þrjú á höfuð- borgarsvæðinu, verslanir Skíf- unnar og netveitur, svo sem tónlist.is og einkamál.is auk við- burðafyrirtækisins Bravó. - jab Tilboðsfrestur að renna út: Örlög Senu ráðast í dag STJÓRNSÝSLA Þingflokkur sjálf- stæðismanna ræddi á fundi í gær hugsanlegt stjórnarskrárbrot við setningu norsks seðlabanka- stjóra, en mun ekki aðhafast frekar í málinu. „Við óskum nýjum seðla- bankastjóra bara góðs gengis, en teljum almennt að það sé mjög mikilvægt að greiða úr þessari óvissu,“ segir Arnbjörg Sveins- dóttir þingflokksformaður. Sigurður Líndal prófessor hefur lýst efasemdum sínum um málið og Arnbjörg segir að for- sætisráðherra, sem fer með mál- efni Seðlabanka, hljóti sjálf að vilja fá úr þessu skorið. „Nú eða umboðsmaður Alþing- is, hann hefur tekið upp mál af minna tilefni,“ segir hún. - kóþ Þingflokkur sjálfstæðismanna: Umboðsmaður skoði setningu Alþingi ræðir landbúnaðinn: Áburðarverð að sliga bændur KOSNINGAR Tuttugu manna hópur Íslendinga í Sjanghaí, sem fékk að kjósa utan kjörfundar nú um helgina, þarf að kjósa aftur, samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu. Nú liggur fyrir að kosning fór fram of snemma og líklega verð- ur hún endurtekin. Að höfðu sam- ráði við dómsmálaráðuneytið var ákveðið að nýta för íslensks diplómats til Sjanghaí, til að spara Íslendingum þar langa ferð til Beijing. Forseti getur hins vegar ekki boðað formlega til kosninga fyrr en 12. mars, eigi kosningar að fara fram 25. apríl, og geta kosningar utan kjörfundar því ekki hafist fyrr en eftir níu daga. - ss Utankjörfundur í Sjanghaí: Kosning verður endurtekin ALÞINGI Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra upplýsti á Alþingi í gær að fyrirhugað loft- rýmiseftirlit Dana yrði mun ódýrara en það eftirlit sem þegar hefur farið fram. Hann nefndi að það mundi kosta um tíu milljónir króna. Á fjárlögum var gert ráð fyrir um 100 milljónum í loftrým- iseftirlit Frakka og Breta, en það fyrrnefnda fór fram á síðasta ári. Í svari við óundirbúinni fyrir- spurn Jóns Gunnarssonar, þing- manns Sjálfstæðisflokksins, sagð- ist Steingrímur helst vilja afnema eftirlitið. „Ég veit ekki um neitt sem ógnar okkur sem Danir geta aðstoðað okkur við.“ - kóp Fjármálaráðherra á Alþingi: Mun ódýrara loftrýmiseftirlit GENGIÐ 02.03.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 177,9548 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 114,46 115 162,47 163,25 144,09 144,89 19,337 19,451 16,009 16,103 12,472 12,546 1,1771 1,1839 167,68 168,68 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.