Fréttablaðið - 03.03.2009, Page 6

Fréttablaðið - 03.03.2009, Page 6
6 3. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR ERUM BÚIN AÐ OPNA AFTUR EFTIR VATNSTJÓN KÆRLEIKSKVEÐJA 1. Ísland - Peking 15.-22. maí 2005. 2. London - Sófía 6.-8. september 2005. Novator 3. Ísland - Pétursborg - Ísland 13.-14. desember 2005. Actavis 4. Helsinki - London 24.-25. maí 2006. KB banki 5. Helsinki - London 4.-6. október 2006. Novator 6. Ísland - Kaupmannahöfn 3.-4. maí 2007. FL Group 7. Ísland - New York 4.-7. september 2007. Glitnir 8. Ísland - Leeds 10.-11. september 2007. Eimskipafélag Íslands 9. Ísland - Sjanghæ 1. október 2007. Glitnir 10. Ísland - Búkarest 2.-4. apríl 2008. 11. Ísland - Kiruna (Svíþjóð) 7.-9. apríl 2008. 12. Ísland - Sisimiut (Grænlandi). 1.-4. september 2008. 2 3 4-5 6 8 9 1 7 Forseti Íslands Forsætisráðuneytið Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið 10 12 11 Kína Flugferðir með einkaþotum og leiguvélum SAMGÖNGUR Forseti Íslands hefur í níu tilvikum á síðustu fjórum árum flogið milli landa með þotum utan reglulegs áætlunarflugs. Fyrrver- andi forsætisráðherra fór tvær slíkar ferðir og fyrrverandi utan- ríkisráðherra og viðskiptaráðherra fóru eina ferð hvor. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flaug tvisvar með flugvél- um á vegum Glitnis og Novators á árunum 2005 til 2008, og einu sinni með vélum FL-Group, KB-banka (síðar Kaupþings banka) Actavis og Eimskipafélags Íslands. Þetta kemur fram í ýtarlegu svari embætti forseta Íslands við fyrirspurn Fréttablaðsins. Upplýs- ingar um ferðir forseta og ráðherra má sjá á meðfylgjandi korti. Í svari forsetaembættisins er tvívegis tekið fram að hefði verið flogið með áætlunarflugi hefði for- seti ekki náð að sitja mikilvæga fundi, þar á meðal með Hu Jintao, forseta Kína. Forsætisráðuneytið hefur í það minnsta tvisvar tekið þotu á leigu til millilandaflugs. Ekki náðist að staðfesta upplýsingar vegna ársins 2006 í gær. Rétt er að geta þess að starfsmenn Fréttablaðsins voru með í för í báðum ferðum. Sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðuneytið hefur einu sinni leigt flugvél til að koma starfsmönnum á fund á Grænlandi. Ráðherra var ekki með í för. Óskað var eftir upplýsingum frá öllum ráðuneytum um millilanda- flug utan hefðbundins áætlunar- flugs þar sem ráðherrar, starfs- menn ráðuneyta eða starfsmenn undirstofnana ráðuneyta voru farþegar. Öll ráðuneyti utan við forsætisráðuneytið og sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðuneytið staðfestu að ekki hafi verið notast við einkaþotur, hvorki hjá ráðu- neytum né undirstofnunum. brjann@frettabladid.is Forsetinn í níu ferðir utan áætlunarflugs Ráðuneytin hafa þrisvar leigt flugvélar fyrir ráðherra eða starfsmenn á síðustu fjórum árum, á kostnað ráðuneytanna. Forseti Íslands hefur á sama tíma flogið níu sinnum utan áætlunarflugs, til dæmis með þotum Glitnis og Novators. SPÁNN, AP Í nærri þrjá áratugi hafa baskneskir þjóð- ernissinnar unnið hvern kosningasigurinn á fætur öðrum í baskahéruðum Spánar, þar sem háværar kröfur hafa verið uppi um aðskilnað frá Spáni og stofnun sjálfstæðs ríkis. Um helgina gerðist það hins vegar í sveitarstjórn- arkosningum að Sósíalistaflokkurinn fékk fleiri atkvæði en aðskilnaðarsinnar. Enginn flokkur náði þó meirihluta á 75 sæta héraðsþinginu. Þingsætum sósíalista fjölgaði úr 18 í 24, en þjóð- ernissinnar misstu tvö þingsæti og fengu nú 30. Þjóðernissinnar hafa ekki haft meirihluta á þingi, heldur myndað samsteypustjórn með smærri flokk- um, þar á meðal flokki sem fékk ekki að bjóða fram nú vegna stuðnings hans við aðskilnaðarsamtökin ETA. Patxi Lopez, leiðtogi sósíalista í baskahéruðunum, vonast nú til að mynda ríkisstjórn, sem þó gæti reynst þrautin þyngri og er almennt reiknað með að stjórnarmyndunarviðræðum ljúki ekki næstu vikurnar. Sigur sósíalista í baskahéruðunum þykir hins vegar ótvíræður sigur fyrir ríkisstjórn Spánar, þar sem sósíalistinn Jose Luis Rodriguez Zapatero er í forsæti. Víðar á Spáni urðu breytingar í héraðsstjórnar- kosningum á sunnudag. Þannig misstu sósíalistar nauman þingmeirihluta í Galicíu, þar sem íhalds- menn unnu sigur. - gb Sósíalistar unnu kosningasigur í baskahéruðum Spánar: Þjóðernissinnar urðu undir LEIÐTOGI SÓSÍALISTA Á KJÖRSTAÐ Patxi Lopes, leiðtogi sósíal- ista í baskahéruðunum, ásamt eiginkonu sinni á kjörstað í Bilbao. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP HJÁLPARSTARF „Auðvitað er það ekki skref í rétta átt fyrir neinn að leita aðstoðar hjá okkur, en ég minni þó á að það er engin smán fólg- in í að leita til okkar eða annarra aðila. Þeir sem leita til okkar er venjulegt fólk sem ber að virða,“ segir Jónas Þórir Þórisson, fram- kvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkj- unnar. Jónas tók í gær við 5,8 millj- óna króna styrk úr Samfélagssjóði Alcoa í Bandaríkjunum. Við það tilefni kom fram að í febrúar höfðu fjórfalt fleiri sótt um aðstoð miðað við sama mánuð í fyrra. Að sögn Jónasar hefur þeim fjölgað mjög nýverið sem sækja um aðstoð í fyrsta sinn. Mesta fjölgunin er meðal fólks sem hefur misst vinnuna, og þar af eru mið- aldra karlmenn langfjölmennastir. Fjölgunin er greinileg alls staðar á landinu. Hjálparstarfið veitir öllum sem til þess sækir tækifæri til að ræða endurgjaldslaust um vandræði sín við ráðgjafa. Jónas segir að styrk- ur Alcoa muni renna til frekari styrkingar ráðgjafarstarfsins auk þess að fjölga í matarbúri starfs- ins, en úthlutun matar og helstu nauðsynjavara til fólks sem er illa statt fer fram tvisvar í viku. Jónas segir nauðsynlegt að þjóð- félagið breyti viðhorfi sínu til sam- félagslegrar aðstoðar að núverandi efnahagsaðstæðum. - kg Styrkur Alcoa til Hjálparstarfs kirkjunnar nýttur í ráðgjafarstarf: Fjórfalt fleiri sækja um aðstoð MIKIL ÞÖRF Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, afhenti Jónasi Þóri Þórissyni hjá Hjálparstarfi kirkjunnar styrk upp á 5,8 milljónir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VIÐSKIPTI Breska verslanakeðjan Mosaic Fashions óskaði eftir greiðslustöðvun í gær. Kaupþing og stjórnendur félagsins hafa tekið yfir stærstu hluti hennar. Nýtt eignarhaldsfélag hefur verið stofnað um reksturinn sem heitir Aurora Fashions en Principles og Shoe Studio hafa verið settar í söluferli, að því er fram kemur í tilkynningu frá Kaupþingi. Baugur átti 49 prósenta hlut í Mosaic Fashions. Kaupþing, sem átti fimmtung áður, fer nú með 90 prósent ásamt stjórnendum sem eiga afganginn. - jab Mosaic Fashions stokkað upp: Kaupþing tekur bestu eignirnar Ferð þú á árshátíð? Já 36,4% Nei 63,6% SPURNING DAGSINS Í DAG: Muntu kjósa í prófkjöri ein- hvers stjórnmálaflokkanna? Segðu þína skoðun á visir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.