Fréttablaðið - 03.03.2009, Síða 16
3. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR2
GÖNGUFERÐ í hádeginu getur verið góð hreyfing og til-
valin fyrir þá sem sitja við vinnu sína allan daginn. Gott er líka
að standa aðeins á fætur að minnsta kosti á klukkutíma fresti,
teygja úr sér og jafnvel ná sér í vatn.
Margrét er í daglegu tali kölluð
Maggý. Hún er ekki aðeins jóga-
kennari að mennt heldur sérhæfði
hún sig í meðgöngujóga í Seattle
Hollistic Center. Hún segir margt
á meðgöngunni sem þurfi að leggja
áherslu á en annað beri að varast.
Ekki sé um uppbyggingu vöðva að
ræða en þó verði konan að styrkja
sig. „Hún þarf að blanda tvennu
saman, styrknum og mýktinni.
Aðalatriðið er þó að kyrra hug-
ann því þá fer hún örugg í gegnum
þetta ferli.“
Öndunin er eitt stærsta atriðið
í undirbúningi fæðingar að sögn
Maggýar. „Svokölluð haföndun
hjálpar konunni að slaka á og leita
inn á við. Hún virkar líka vel í
útvíkkuninni á fyrsta stigi fæð-
ingarinnar. Þá notar konan þessa
mjúku öndun inn í hríðina. Það er
svo mikill ótti við sársaukann sem
fylgir fæðingunni en þær konur
sem kunna haföndun þurfa síður
deyfingu.“
Þegar haft er orð á að konan
verði þá að muna eftir önduninni
sjálf segir hún. „Gott að þú spurðir.
Ég er nefnilega með parakvöld þar
sem feðurnir koma líka eina kvöld-
stund og þá förum við yfir þennan
þátt. Í fæðingarsögunum sem mér
berast taka konurnar oft fram að
maðurinn hafi hjálpað þeim að
muna eftir önduninni þegar þær
voru að missa taktinn. Þeir hafi
andað mjúklega í eyra þeirra til að
koma þeim aftur á sporið.“
Sundlaugin í Mecca Spa er 34
gráðu heit og Maggý segir hitann
vinna vel með æfingunum sem
þar eru gerðar. Auk þess sé gott
að nota mótstöðuna í vatninu til
styrkingar. „Margar konur finna
fyrir óþægindum í grindinni á
meðgöngu eins og eðlilegt er. En
vatnið býður upp á mýkt, létt-
leika og stuðning,“ segir hún og
lýsir áhrifunum nánar. „Líkam-
inn verður svo opinn og slökunar-
hormónið flæðir og mýkir upp
liðbönd og vöðva svo barnið geti
stækkað.“
Spurð um aðsókn í meðgöngujóga
segir Maggý hana góða. Brögð séu
þó að því að konur byrji í seinna
lagi, einkum nú eftir að kreppan
skall á. „Í kringum 30 vikna með-
göngu eru konur oft orðnar þreytt-
ar og aumar í grindinni en hinar
sem koma þegar þær eru komnar
um 20 vikur á leið og gera jóga að
hluta af meðgöngunni eru betur
á vegi staddar. Það er erfitt fyrir
barnshafandi konur að sitja lengi í
einu eða standa en eftir jógatíma í
hádeginu koma þær endurnærðar
í vinnuna.“ gun@frettabladid.is
Jóga hluti af meðgöngunni
Á meðgöngu þurfa konur að hugsa vel um líkamann sem breytist ört. Í Mecca Spa í Kópavogi er boðið
upp á sérstakt meðgöngujóga og æfingar í volgri laug undir öruggri leiðsögn Margrétar Skúladóttur.
Hér er gengið rösklega og mótstaða vatnsins notuð til styrkingar. Maggý er í farar-
broddi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ð
Næstu fyrirlestrar og námskeið
4. mars Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða?
Ebba Guðný Guðmundsdóttir kennari
7. mars Hláturfundur Hláturkætiklúbbsins
Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari
10. mars Fitur og olíur í mataræði
Haraldur Magnússon osteópati
12. mars Hvað er heilun?
Kristján Viðar Haraldsson ráðgjafi
24. mars Ég fi tna sama hvað ég geri. Hvernig næ
ég jafnvægi?
Esther Helga Guðmundsdóttir ráðgjafi
31. mars Líkamsstaða, skrifstofuumhverfi ð og æfi ngar
Haraldur Magnússon osteópatiwww.madurlifandi.is
Vefdeild 365 miðla leitar að kraftmiklum .net forritara
Helstu verkefni eru:
Viðhald og þróun margvíslegra .net kerfa, ss. Vísir.is, blogcentral.is, veftv-kerfis o.fl., skjölun
kerfa, samskipti við innlenda og erlenda undirverktaka/birgja vegna verkefna
Þekking/reynsla/menntun:
- háskólamenntun æskileg, verkfræði, tölvunarfræði eða samsvarandi menntun
- mikil reynsla af visual studio 2005 og 2008
- reynsla á MS SQL Server 2005 og T-SQL
- þekking á HTML/DHTML, Java Script, XML, XSLT
Viðkomandi þarf að:
Geta unnið sjálfstætt og skilað verkefnum á réttum tíma, hafa góða samskiptahæfileika og
þjónustulund, hafa gott vald á íslensku og ensku, geta unnið vel undir álagi og hafa a.m.k. þriggja
ára reynslu af .net forritun
Sótt er um á vef 365 miðla - www.365midlar.is.
Frekari upplýsingar veitir Ágúst Valgeirsson framkvæmdastjóri tæknisviðs 365
í síma 5125540 eða agustv@365.is
Vilt þú vinna hjá skemmtilegu og líflegu fyrirtæki?
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki