Fréttablaðið - 03.03.2009, Síða 23

Fréttablaðið - 03.03.2009, Síða 23
ÞRIÐJUDAGUR 3. mars 2009 19 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Þriðjudagur 3. mars 2009 ➜ Leiklist 20.00 Leikverkið 4:48 geðtruflun eftir Söruh Kane verður leiklesið í Borgarleik- húsinu, Listabraut 3. Leikstjóri er Heiðar Sumarliðason. ➜ Fyrirlestrar 12.00 Bandalag þýðenda og túlka í samvinnu við Þýðingasetur HÍ, verður með hádegisspjall í stofu 303 í Árna- garði við Sturlugötu. Elinóra Inga Sig- urðardóttir, Sigrún Þorgeirsdóttir og Þröstur Olav Sigurjónsson flytja erindi. 12.00 Halldór Gíslason arkitekt held- ur fyrirlestur í Opna listaháskólanum, Skipholti 1. Allir velkomnir. 12.05 Jón Ólafsson heimspekingur flytur erindið „Þversögn and- ófsins“ í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Aðgangur ókeypis og öllum opinn. ➜ Sýningar Karl Kristján Davíðsson hefur opnað tvær sýningar. Í Mohawks í Kringlunni sem er opin opnunartíma verslana og á Cafe Rót, Hafnarstræti. Opið virka daga 12-23:30, lau. 13-00 og sun. 13-22. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Bandaríski stórgítarleikarinn Larry Coryell verður gestur Björns Thoroddsen í Salnum, Kópavogi, föstudaginn 6. mars kl. 21.00. Larry Coryell hefur oft verið kallaður guðfaðir fusion- gítarleiksins. Ferill Larry hófst 1965 þegar hann flutti til New York en þar hóf hann að leika með mönnum eins og Gary Burt- on og Killer Joe Piro. Larry varð heimsþekktur 1967 þegar hann lék með Gary Burton Quartet. Eftir það var brautin bein og Larry byrjaður að leika með öllum fremstu djasstónlistar- mönnum Bandaríkjanna svo sem Charles Mingus og Chick Corea. Larry Coryell var á kafi í rokktónlist á sjöunda áratugn- um og lék meðal annars með Jack Bruce. Hann var einnig í hljómsveit Charles Mingus, Chick Corea og Billy Cobham. Larry hefur gefið út fjölmarga diska sem eru fáanlegir úti um allan heim. Larry er eftirsóttur fyrirlesari og hefur gefið út fjölda kennslubóka sem og ritað fjölmargar greinar í virt tónlistartímarit. Larry leikur í Salnum, Kópavogi með Birni Thoroddsen gítarleikara og Jóni Rafnssyni bassaleikara 6. mars næstkomandi og hefjast tónleik- arnir kl. 21. Miðasala á www.sal- urinn.is. - pbb Coryell í Salnum TÓNLIST Larry Coryell. Landnámssetrið í Borgarnesi hefur haldið uppi sýningum undanfarin misseri þar sem Benedikt Erlingsson og Bryn- hildur Guðjónsdóttir sækja í sjóði Egilssögu í sýningum sínum, Mr. Skallagrímsson og Brák. Nú ætlar Einar Kárason að mæta á leikhúsloftið í Land- námssetrinu og segja sögur rétt eins og hann gerði í fyrra með KK, en í þetta sinnið fer hann með sögur úr Sturl- ungu. Einar hefur sent frá sér tvær skáldsögur sem byggja á afmörkuðum köflum úr Sturlungu og hlotið mikið lof fyrir. Hann flytur Sturlungu – segir söguna eins og honum einum er lagið og byrjar flutninginn á föstudagskvöld. Sigríður Margrét Guðmunds- dóttir hjá Landnámssetrinu segir það einsdæmi að höfund- ur flytji á þennan hátt, blaða- laust, efni bóka sem hann hefur skrifað: „Þó er ég sannfærð um að þetta sé sá flutningsmáti sem höfundar eins og Snorri Sturluson og Sturla Þórðarson viðhöfðu við að koma sínum verkum til skila hjá sínum sam- tímamönnum. Að minnsta kosti hafa skinnhandritin ekki verið lesefni sem allur almenningur tók með sér í rúmið. Ég er sannfærð um að Einar sé hér listrænt að feta í fótspor Sturlu og Snorra og þeirra samtímamanna.“ Sögustund úr Sturlungu tekur um tvo tíma. Hægt er að panta miða á Landnámssetrinu. - pbb Einar segir sögur BÓKMENNTIR Einar Kárason segir sögur úr Sturl- ungu í Landnámssetri. Hádegisfyrirlestraröð Sagnfræð- ingafélags Íslands heldur áfram með fyrirlestri Jóns Ólafssonar heimspekings kl. 12.05 í dag í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Erindið ber yfirskriftina Hvað er andóf? „Frjálslynd lýð- ræðishyggja samtímans gerir ráð fyrir að tjáningarfrelsi séu grund- vallarréttindi. Það þýðir að réttur- inn til að tjá hvers kyns óánægju, andúð eða andstöðu er sjálfsagður hluti stjórnmálaþátttöku og marg- ir taka þátt í stjórnmálum með því að mótmæla eða í þeim tilgangi að láta í ljós andstöðu við ákvarð- anir eða fyrirætlanir hins opin- bera. Viðbrögð við andófi bera hins vegar allt öðru sjónarmiði vitni. Þegar rætt er um leiðir og aðferðir til að koma andúð á fram- færi kemur í ljós að miklar efa- semdir ríkja um flestar aðferðir við andóf og mótmæli. … Þannig er staða andófsins í frjálslyndum samfélögum þversagnakennd.“ - pbb Andóf þversögn STJÓRMÁLAHEIMSPEKI Jón Ólafsson reifar andófið. IÐ N ÞI N G 2009 Á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins á Grand Hótel Reykjavík, fimmtudaginn 5. mars, verður efnt til umræðu um efnahagsmálin. Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi Orkumikill iðnaður Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands Menntun á tímum endurreisnar Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris Frá heimamarkaði til alþjóðavæðingar Helgi Magnússon Ávarp formanns Samtaka iðnaðarins Össur Skarphéðinsson Ávarp iðnaðarráðherra Ólafur Ísleifsson, lektor í Háskólanum í Reykjavík Úr hruni til hagsældar Þingið er opið og aðgangur ókeypis. Samtök iðnaðarins - www.si.is MÓTUM EIGIN FRAMTÍÐ VÖXTUR OG VERÐMÆTI Dagskrá hefst kl. 13.00 og lýkur kl. 16.00. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 9 -0 1 6 9 Fundarstjórn er í höndum Svanhildar Hólm Valsdóttur og Sölva Tryggvasonar.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.