Fréttablaðið - 03.03.2009, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 03.03.2009, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 3. mars 2009 21 Rokkararnir í Oasis hafa aflýst fyrirhugaðri tónleikaferð til Kína í apríl sem hefði orðið sú fyrsta á ferli hljómsveitarinnar. Engar útskýringar hafa verið gefnar á þessari ákvörðun. Vestrænir listamenn hafa sótt til Kína í auknum mæli á undan- förnum árum, þar á meðal The Rolling Stones og Elton John. Engu síður fylgjast þarlend stjórnvöld grannt með því hvaða hljómsveitum er hleypt inn í landið, sérstaklega eftir að Björk olli miklu fjaðrafoki á tónleikum í Sjanghæ á síðasta ári þegar hún sönglaði „Tíbet“. Oasis aflýsir Kínaferð OASIS Bresku rokkararnir í Oasis ætla að bíða með að fara til Kína í fyrsta sinn. Gamanmyndin Madea Goes to Jail hélt sæti sínu á toppi aðsókn- arlistans vestanhafs þar sem hún hefur setið í tvær vikur. Tyler Perry leikur aðalhlutverkið í myndinni auk þess sem hann er leikstjóri og handritshöfundur. Fjallar hún um kvenkyns persónu hans, Madea, sem er dæmd í fangelsi þar sem hún kemst í kynni við margt undarlegt fólk. Í öðru sæti var ný þrívíddar- tónleikamynd, The Jonas Broth- ers, og í því þriðja var Slumdog Millionaire, sem fékk aukna aðsókn eftir Óskarsverðlaunin í síðustu viku. Í fjórða sætinu var Taken og fimmta sætið skipaði Confessions of a Shopaholic. Madea hélt efsta sætinu Rapparinn Snoop Dogg hefur gengið til liðs við trúarhreyfing- una Þjóð íslams. Dogg kom fram á árlegri hátíð samtakanna í Chi- cago fyrir skömmu og lýsti því síðan yfir að hann væri orðinn meðlimur. Rapparinn, sem spilaði í Egils- höll árið 2005, segist ætla að miðla af reynslu sinni innan sam- takanna til annarra tónlistar- manna. „Við erum að gera ýmislegt rangt sem þarf að leið- rétta,“ sagði hann. „Ég vil berj- ast fyrir friði. Ég hef verið í friðarhreyfing unni síðan ég byrj- aði að semja tónlist.“ Á meðal annarra rappara sem hafa geng- ið til liðs við Þjóð íslams er Ice Cube, sem er þekktari núna fyrir leiklist sína en tónlistariðkun. Meðlimur Þjóðar íslams SNOOP DOGG Rapparinn hefur gengið til liðs við trúarhreyfinguna Þjóð íslams. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR „Þetta hefur gengið rosalega vel,“ segir Pétur Orri Gíslason sem hefur undanfarið staðið fyrir bíl- skúrssölu á glæsilegu DVD-safni sínu. Í gær höfðu um 400 diskar af þeim 500 sem voru í boði selst á aðeins þremur dögum. Það þýðir um hundrað þúsund krónur í vas- ann fyrir Pétur Orra sem ætlar að nota peninginn í flugmiða til Danmerkur og gjaldeyri. „Ég missti vinnuna um áramót- in og mér hefur gengið illa að finna vinnu,“ segir Pétur Orri, sem starf- aði hjá Eimskip. „Ég er á leiðinni til Danmerkur og ætla að freista gæfunnar þar. Kærastan mín er í námi þar og hún er með íbúð þannig að maður gengur beint í húsnæði.“ Níu ár eru liðin síðan Pétur keypti sér fyrsta DVD-diskinn en hann byrjaði þó ekki að safna af alvöru fyrr en fyrir þremur árum. „Árið 2007, þegar dollarinn var í 59 krónum, keypti ég um 200 mynd- ir á Amazon,“ segir hann og er ekkert fúll að sjá að baki safninu. „Maður er ungur enn þá og getur alltaf byrjað aftur seinna meir. Þetta er enginn tilfinningalegur skaði,“ segir hann en játar þó að hafa tekið tvær bíómyndir til hlið- ar fyrir sjálfan sig: Big Lebowski og Gladiator. Þeir sem vilja kynna sér úrval- ið hjá Pétri geta kíkt í bílskúrinn hans að Stekkjarflöt 9 í Garðabæ í dag frá kl. 16 til 22. Flestar mynd- irnar eru á 2-300 krónur en sjón- varpsþáttaseríurnar eru flestar á bilinu 1.000 til 3.000 krónur. „Þeim mun meira sem fólk kaupir þeim mun meiri afslátt fær það.“ - fb Selur DVD-safnið til að komast til Danmerkur PÉTUR ORRI GÍSLASON Pétur Orri í bílskúrnum heima hjá sér þar sem hann hefur selt hundruð DVD-diska. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Komin í Skífuna! Laugavegi · Kringlunni · Leifsstöð www.skifan.is U2 No Line on the Horizon Besta plata U2 í mörg ár Rolling Stone Q Magazine Morgunblaðið Spin

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.