Fréttablaðið - 03.03.2009, Page 26

Fréttablaðið - 03.03.2009, Page 26
22 3. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is Það tók Gylfa Þór Sigurðsson ekki nema 35 mínútur að skora sitt fyrsta mark fyrir Crewe þar sem hann er nú í láni frá enska B-deildarliðinu Reading. Þar með eru tveir Íslendingar hjá Crewe, en eins og kunnugt er þá er Guðjón Þórðarson knattspyrnustjóri liðsins. Undir stjórn Guðjóns hefur liðið tekið miklum stakkaskiptum og unnið fjóra leiki í röð, þann síðasta 4-0 gegn Brighton á úti- velli í miklum fallslag. Crewe er ekki lengur í fallsæti í C-deildinni og segir Gylfi að það sé greinilegt að menn eru ánægðir með störf Guðjóns. „Guðjón er góður þjálfari og hefur náð að gera góða hluti á stuttum tíma hér. Fyrir fáeinum mánuðum voru allir búnir að afskrifa þetta lið,“ sagði Gylfi sem kom til liðsins seint í síðustu viku. Þetta er í annað skiptið sem hann er lánaður annað en hann lék í einn mánuð hjá Shrewsbury í D-deildinni. „Ég er mjög sáttur hér og líst vel á félagið. Þetta er stærri klúbbur en Shrewsbury sem er þó með nýjan leikvang. Æfingasvæðið hér er miklu stærra og betra.“ Hann hóf vistina hjá Shrewsbury með því að skora í sínum fyrsta leik, rétt eins og hjá Crewe. „Já, ég veit ekki af hverju það er. Vonandi vísir að einhverju meira,“ sagði hann sposkur. Í janúar var mörgum leikjum frestað hjá Crewe sem þarf því að leika tvo leiki í viku út allan marsmánuð. Það hentar Gylfa vel. „Ég kom hingað til að spila sem flesta leiki og frábært að fá tvo í viku. Vonandi næ ég að nýta þá vel.“ Gylfi á átján mánuði eftir af núverandi samningi sínum við Reading og stefnir enn á að komast í aðalliðið þar. „Vonandi fæ ég að sýna Coppell hvað í mér býr hér og svo mun ég skoða hvernig staðan verður í upphafi næsta tímabils. Þá mun ég taka ákvörð- un um framhaldið.“ Crewe mætir Carlisle í öðrum fallbaráttuslag í deildinni í kvöld og verður Gylfi þá í byrjun- arliðinu. GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON: SKORAÐI Í SÍNUM FYRSTA LEIK HJÁ CREWE Í ENSKU C-DEILDINNI Kom hingað til að spila sem flesta leiki Iceland Express kvenna 1. UMFERÐ ÚRSLITAKEPPNINNAR Hamar-Valur 72-63 (43-38) Stig Hamars: Julia Demirer 23 (19 frák., 5 stoðs.), Lakiste Barkus 21 (11 stoðs.), Fanney Lind Guðmundsdóttir 15 (8 frák.), Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir 6, Hafrún Hálfdánardóttir 5, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 2. Stig Vals: Melissa Mitidiero 22, Signý Hermanns- dóttir 18 (21 frák., 7 varin), Þórunn Bjarnadóttir 12, Lovísa Guðmundsdóttir 8, Kristín Óladóttir 2, Guðrún Baldursdóttir 1. Hamar er 1-0 yfir en vinna þarf tvo leiki til að komast í undanúrslit. Iceland Express karla Keflavík-Njarðvík 73-83 (32-33) Stig Keflavíkur: Sigurður Gunnar Þorsteinsson 24 (9 frák.), Hörður Axel Vilhjálmsson 20, Gunnar Einarsson 9, Jón Norðdal Hafsteinsson 8, Sverrir Þór Sverrisson 8 (10 stoðs.), Elvar Þór Sigurjóns- son 4. Stig Njarðvíkur: Heath Sitton 19 (7 frák., 6 stoðs.), Fuad Memcic 16 (10 frák.), Magnús Þór Gunnarsson 16, Friðrik Stefánsson 11, Hjörtur Hrafn Einarsson 8, Sævar Sævarsson 8, Elías Kristjánsson 3, Grétar Garðarsson 2. KR-Tindastóll 96-80 (61-41) Stigahæstir: Jón Arnór Stefánsson 18, Helgi Már Magnússon 18, Hjalti Kristinsson 13, Jason Dourisseau 12, Jakob Sigurðarson 9, - Svavar Birgisson 18 (10 frák.), Alphonso Pugh 14, Helgi Rafn Viggósson 13, Helgi Freyr Margeirsson 12. Breiðablik-Stjarnan 83-78 (44-41) Stigahæstir: Nemanja Sovic 28 (15 frák.), Rúnar Ingi Erlingsson 15, Daníel Guðmundsson 11, Þorsteinn Gunnlaugsson 10, Kristján Sigurðsson 10 - Justin Shouse 28, Jovan Zdravevski 21, Ólafur Jónas Sigurðsson 15. STAÐAN Í DEILDINNI: KR 20 19 1 1953-1510 38 ------------------------------------------------------ Grindavík 20 17 3 1961-1603 34 Snæfell 20 14 6 1652-1468 28 Keflavík 20 12 8 1715-1552 24 Njarðvík 20 11 9 1650-1715 22 ÍR 20 9 11 1640-1647 18 Breiðablik 20 8 12 1547-1763 16 Stjarnan 20 8 12 1701-1742 16 ------------------------------------------------------ Tindastóll 20 7 13 1652-1740 14 FSu 20 7 13 1625-1649 14 ------------------------------------------------------ Þór Ak. 20 6 14 1693-1780 12 Skallagrímur 20 2 18 1265-1885 4 Tvær umferðir eru eftir KR vantar einn sigur til þess að tryggja sér deildarmeistaratititlinn. ÚRSLITIN Í GÆR Verður haldinn fimmtudaginn 5. mars n.k. kl. 17.00 í félagsheimili FBM Hverfisgötu 21 Félagsfundur Dagskrá: • Atvinnumál - aðstoð við félagsmenn í atvinnuleit • Horfur í efnahagsmálum 2009-2011, - hagspá ASÍ • Kjarasamningar • Staða og horfur hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum - Kristján Örn Sigurðsson framkvæmdastjóri sjóðsins • Framboð til stjórnar FBM - kynning frambjóðenda • Önnur mál Félag bókagerðarmanna HVERFISGÖTU 21 SÍMI 552 8755 www.fbm.is fbm@fbm.is Félagsmenn eru hvattir til að mæta Hádegisfundir ÍSÍ 2009 Föstudagur 6. mars. kl. 12.00-13.00 í E-sal Íþr.- miðstöðvarinnar í Laugardal. Kynning á nýju fyrirkomulagi fræðslunámskeiða ÍSÍ. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. Upplýsingar gefur sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460- 1467 og á vidar@isi.is. Sjá nánar á www.isi.is > Kesha aftur með Keflavík Kesha Watson mun spila með kvennaliði Kefla- víkur í úrslitakeppni Iceland Express-deildar kvenna í körfubolta en þetta kom fram á karfan.is í gær. Kesha ætlaði að spila með Keflavík í vetur en var send heim þegar bankahrunið dundi á þjóðinni. Hún náði þó að vinna Powerade-bikarinn með liðinu áður. Þetta er gríðarlegur liðsstyrkur fyrir kvennalið Keflavíkur sem varð í 2. sæti bæði í deildinni og bikarnum. Kesha varð valin besti leikmaður lokaúrslitanna í fyrra þegar hún var með 26,3 stig, 7,7 fráköst og 7,0 stoðsendingar að meðaltali í leik auk þess að nýta 92 prósent víta sinna. KÖRFUBOLTI „Mér fannst ég vera kaldur allan leikinn en náði að setja niður tvær í röð þarna á mikilvæg- um kafla,“ sagði stórskyttan Magn- ús Gunnarsson eftir að hans menn Njarðvíkingar unnu góðan 83-73 útisigur á Keflavík á gamla heima- vellinum hans í Iceland Express- deild karla. Njarðvíkingar unnu verðskuldaðan sigur og hleyptu heimamönnum aldrei á skrið eins og lokatölurnar gefa til kynna. Njarðvíkingar eiga enn mögu- leika á 4. sætinu því nú munar aðeins tveimur stigum á liðunum þegar fjögur stig eru eftir í pott- inum. Njarðvík er með betri inn- byrðisstöðu eftir að hafa unnið báða deildarleiki liðanna í vetur. Njarðvíkingar skoruðu fyrstu stig leiksins og voru skrefinu á undan lengst af í fyrsta leikhluta, en Keflvíkingar komust yfir 22-21 í lok leikhlutans. Sitton var frábær hjá Njarðvík, stýrði leik liðsins af festu og skoraði 10 stig í leik- hlutanum, en Sigurður Þorsteins- son var þungamiðjan í sóknarleik Keflavíkur sem fyrr. Fyrsta karfan í öðrum leikhluta kom ekki fyrr en eftir um þrjár mínútur og sérstaklega var gaman að fylgjast með baráttu þeirra Friðriks Stefánssonar og Sigurðar Þorsteinssonar undir körfu Njarð- víkinga. Staðan í hálfleik var 33- 32 fyrir gestina úr Njarðvík. Njarðvík var áfram með und- irtökin en um miðbik þriðja leik- hluta tóku Keflvíkingar góða rispu þar sem Sigurður Þorsteinsson fór mikinn og varði skot Njarðvík- inga tvær sóknir í röð og kveikti í áhorfendum. Sigurður skoraði líka tvær körfur á þessum kafla og útlit fyrir að heimamenn væru að vakna til lífsins. Tveir stórir þristar í röð frá Magnúsi Gunn- arssyni í lokin tryggðu hins vegar að gestirnir höfðu yfir 58-50 í lok þriðja leikhluta. Njarðvíkingar náðu ellefu stiga forskoti snemma í fjórða leikhluta sem Keflvíkingar náðu aldrei að vinna upp þrátt fyrir stífa varnar- tilburði og baráttu. Njarðvíkingar spiluðu agaðan leik á lokasprettin- um og tryggðu sér verðskuldaðan 83-73 sigur. Heath Sitton átti skínandi leik í liði Njarðvíkur og skor- aði 19 stig, hirti 7 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Friðrik Stefánsson og Fuad Memcic voru fyrirferðarmiklir undir körfunni og Magnús Gunnars- son setti niður skot á góðum tíma þrátt fyrir að hitta fremur illa í leiknum. Hjá Keflavík var miðherjinn Sigurður Þor- steinsson bestur og Hörður Axel átti þokkalegan leik, en Keflvíkingar hafa oft leikið betur á heimavelli sínum. „Ég er nú þekktur fyrir að setja frekar niður skotin þegar á reynir og mér fannst allt liðið standa sig vel í kvöld. Við stjórnuðum hrað- anum í þessum leik. Þeir vilja hlaupa allan leikinn en við héld- um þeim í 73 stigum. Við bara stjórnuðum hraðanum í þessum leik. Það var gaman að koma hing- að í fyrsta skipti og vinna,“ sagði Magnús og glotti. „Við erum búnir að sýna að við erum með hörku- lið enda eigum við Loga enn inni. Ég held að megi enginn vanmeta okkur,“ bætti Magnús við en Logi Gunnarsson missti af öðrum leikn- um í röð vegna meiðsla á ökkla. baldur@365.is Enginn má vanmeta okkur Njarðvíkingar unnu báða deildarleiki sína á nágrönnunum í Keflavík eftir tíu stiga sigur í Keflavík í gær. Magnús Þór Gunnarsson og félagar í Njarðvík léku án landsliðsmannsins Loga Gunnarssonar í leiknum en það kom ekki að sök. FULLT HÚS GEGN GÖMLU FÉLÖGUNUM Magnús Þór Gunnarsson hefur enn ekki tapað leik á móti Keflavík síðan hann skipti yfir í Njarðvík. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KÖRFUBOLTI Hamar er komið í 1- 0 gegn Val í 1. umferð úrslita- keppni Iceland Express-deildar kvenna en liðin eru að keppa um sæti í undanúrslitunum. Hamar vann 72-63 sigur í fyrsta leiknum í Hveragerði í gær en það lið sem fyrr vinnur tvo leiki fer áfram. Hamarsliðið var með frum- kvæðið nær allan leikinn eftir að liðið komst yfir í 1. leikhlutanum. Valskonur voru þó aldrei langt undan. Hamar var 43-38 yfir í hálfleik og 53-50 fyrir lokaleik- hlutann. Þetta var langþráður sigur hjá heimastúlkum. Hamarslið- ið hafði aðeins unnið einn af tíu leikjum sínum á nýju ári og þetta var fyrsti heimasigur liðsins á árinu. Lakiste Barkus var besti maður vallarins með 21 stig og 11 stoð- sendingar og þá var Julia Demir- er með 23 stig og 19 fráköst. Fan- ney Lind Guðmundsdóttir átti flottan dag en hún var að leika sinn fyrsta leik í úrslitakeppni. Fanney var sérstaklega öflug í fyrri hálfleik þegar hún skoraði 11 af 15 stigum sínum. Hjá Val var Signý Hermanns- dóttir mjög öflug með 18 stig, 21 frákast og 7 varin skot. Melissa Mitidiero var með 22 stig en Vals- liðið hafði unnið fyrstu tvo leiki sína með hana innanborðs. Næsti leikur liðanna er í Vod- afone-höllinni að Hlíðarenda á morgun en þá getur Hamar tryggt sér sæti í undanúrslitum en vinni Valur verður oddaleikur í Hvera- gerði á laugardaginn. Hitt einvígið í 1. umferð úrslita- keppninnar hefst í kvöld þegar bikarmeistarar síðustu tveggja ára, KR og Grindavík, mætast í DHL-Höllinni. - óój Hamar er komið í 1-0 gegn Val í úrslitakeppni Iceland Express-deildar kvenna: Fyrsti heimasigur liðsins á árinu FLOTT Í GÆR Hamarsstúlkan Fanney Lind Guðmundsdóttir átti góðan leik gegn Val. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.