Fréttablaðið - 03.03.2009, Qupperneq 27
ÞRIÐJUDAGUR 3. mars 2009 23
HANDBOLTI Sjö félög eignuðust bik-
armeistara í handboltanum um
helgina. Valur og Stjarnan urðu
bikarmeistarar meistaraflokk-
anna á laugardaginn og daginn
eftir var keppt í bikarúrslitum
hjá yngri flokkunum þar sem
fimm önnur félög tryggðu sér
bikarinn.
Bikarúrslit yngri flokkanna í
handboltanum voru haldin eins
og undanfarin ár við nákvæm-
lega sömu aðstæður og hjá meist-
araflokkunum daginn áður.
HK varð bikarmeistari í 2.
flokki karla, ÍR varð bikarmeist-
ari í 3. flokki karla og Grótta
varð bikarmeistari í 4. flokki
karla. Akureyrarliðin tvö þurftu
að sætta sig við nauma ósigra,
Akureyri tapaði meðal annars
í tvíframlengdum leik þar sem
norðanmaðurinn Sveinbjörn
Pétursson varði um 30 bolta í liði
HK.
Hjá stelpunum varð Fram
bikar meistari í 3. flokki eftir
æsispennandi leik við Stjörnuna.
Fylkir vann síðan bikarinn í 4.
flokki kvenna eftir úrslitaleik á
móti Gróttu. - óój
Bikarúrslitahelgi handboltans:
Sjö félög urðu
bikarmeistarar
MAÐUR LEIKSINS Karen Knútsdóttir
skoraði 12 mörk í bikarúrslitaleik 3.
flokks kvenna. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
KÖRFUBOLTI Keflavík nýtti sér
vel heimavöllinn í bikarúrslitum
yngri flokkanna í körfunni og
vann alla fjóra úrslitaleiki sína
um helgina. Keflavík sá um að
halda bikarúrslitin að þessu sinni
og fóru allir úrslitaleikirnir fram
í Toyota-höllinni á laugardag og
sunnudag.
Keflavík varð bikarmeistari í
9. og 10. flokki kvenna, stúlkna-
flokki og unglingaflokki. KR
vann bikarinn í unglingaflokki
kvenna og 9. flokki karla, Fjölnir
vann 11. flokk karla og drengja-
flokk og Njarðvík varð bikar-
meistari í 10. flokki karla.
Keflvíkingurinn Eva Rós Guð-
mundsdóttir náði því að vera
kosin maður leiksins í báðum
leikjunum sem hún spilaði en hún
var með 23 stig, 18 fráköst og 5
stoðsendingar í sigri 9. flokks og
tröllatvennu (23 stig og 20 frák-
öst) í sigri stúlknaflokks þar sem
hún var að spila tvö ár upp fyrir
sig. - óój
Bikarúrslit yngri flokkanna:
Keflavík vann
fjóra bikara
Í STUÐI Eva Rós Guðmundsdóttir skoraði
46 stig og tók 38 fráköst í tveimur bikar-
úrslitaleikjum sínum.
KÖRFUBOLTI Snæfellingar minntu
heldur betur á sig í Iceland
Express-deildinni í körfubolta
þegar þeir unnu 89-88 sigur á
Grindavík í Stykkishólmi á sunnu-
dagskvöldið. Þetta var fyrsta
deildartap Grindavíkur síðan liðið
fékk til sín Nick Bradford. Hann
fékk að kynnast sterkum varnar-
mönnum Snæfells og sást varla í
leiknum.
Dramatíkin hefur verið mikil í
síðustu tveimur sigrum Snæfells.
Í 68-67 sigri á FSu á fimmtu-
dagskvöldið var það annar þjálf-
ari Snæfells, Sigurður Þorvalds-
son, sem tryggði liðinu sigur um
leið og lokaflautan gall en í leikn-
um á móti Grindavík skoraði Jón
Ólafur Jónsson sigurkörf-
una þegar aðeins níu sek-
úndur voru eftir.
Bandaríski bakvörður-
inn Lucious Wagner Wag-
ner var þá með boltann.
„Hann var aðþrengdur og
það var ekkert í gangi hjá
okkur. Það var búið að vera
svolítið hnoð í síðustu sókn-
inni og þeir voru að dekka
okkur hátt upp á vellinum.
Ég sá færi að hlaupa bak-
dyramegin inn að körfu og
fékk boltann,“ sagði hetja
Snæfellinga, Jón Ólafur Jóns-
son. Í leiknum gegn FSu var
lokakerfið sett upp fyrir
hann en hann var stífdekk-
aður og á endanum fékk
Sigurður Þorvaldsson bolt-
ann með rétt svo nægan
tíma til að skora sig-
urkörfuna. Nú var
hins vegar komið
að Jóni Ólafi að
vera hetjan.
Snæfellsliðið
er mjög hávaxið
lið og það fengu
Grindvíking-
a r n i r Nick
Bradford og
Páll Axel Vil-
bergsson að kynnast í Hólminum á
sunnudagskvöldið en þeir skoruðu
bara 14 stig saman. „Okkur hefur
alltaf gengið vel með menn eins
og Bradford,“ segir Jón Ólafur.
„Við getum allir hreyft okkur og
það eru engir durgar hjá okkur,“
sagði Jón Ólafur sem átti mikinn
þátt í því að halda Páli Axeli í 10
stigum.
Jón Ólafur er búinn að spila mjög
vel í vetur og hann er líka ánægð-
ur með sitt framlag. „Ég er mjög
sáttur. Þetta er búið að vera mjög
gaman í vetur. Ég er kominn með
mikið sjálfstraust og nú er bara að
halda sér heilum þegar fjörið fer
að byrja,” segir Jón Ólafur og á þá
við úrslitakeppnina. - óój
Snæfellingar hafa unnið 10 af síðustu 11 leikjum sínum í Iceland Express-deild karla í körfubolta:
Tveir dramatískir sigrar á þremur dögum
HETJAN Jón Ólafur Jónsson,
skoraði sigurkörfu Snæfells
gegn Grindavík. FRÉTTABLÐAIÐ/STEFÁN