Fréttablaðið - 03.03.2009, Side 30
26 3. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR
„Hörður Ingi hafði öðrum hnöppum að
hneppa. Við komumst að þeirri sameigin-
legu niðurstöðu að rétt væri að hann ein-
beitti sér að því frekar en að pína sig á þessu.
Þetta er persónulegt mál og ákveðinn léttir
fyrir hann að þurfa ekki að leggja á sig þetta
mikla erfiði sem keppninni fylgir. Og var
þessi niðurstaða fengin í fullkominni sátt,“
segir Víðir Smári Petersen, spurningaljón
og þjálfari Gettu betur-liðs Menntaskólans
í Kópavogi, ásamt félaga sínum, Hafsteini
Viðari Hafsteinssyni.
Sá einstæði viðburður varð nú nýverið
að Gettu betur-lið skipti út manni í miðri
keppni. Hörður Ingi Gunnarsson er farinn
úr liðinu en í hans stað kemur Unnur Hólm-
fríður Brjánsdóttir. Fyrir eru þeir Ingvi
Þór Sæmundsson og Bjarni Þór Sigurbjörns-
son. Á laugardag er hörkuleikur en þá takast
Kópavogsbúar á við hina hræðilegu Borgar-
holtsskólagrýlu. „Þetta er sama lið hjá þeim
og vann okkur í fyrra. Þetta er í fjórða skipti
sem við lendum á móti Borgarholtsskóla í
sjónvarpinu og höfum alltaf tapað. Í Morfís
líka,“ segir Víðir Smári. Og helst á honum að
heyra að nú verði hefnt því hann metur það
svo að þrjú til fjögur lið séu líklegust og lið
Kópavogsbúa ætti að vera þar á meðal. Sjálf-
ur var hann í Gettu betur-liði Menntaskólans
í Kópavogi á sínum tíma. „Í þrjú ár. Ég náði
ekki mjög langt eða í átta liða úrslit tvö ár í
röð.“ En Víðir hefur heldur betur náð að bæta
það upp í Útsvari, spurningakeppni sveitar-
félaganna, en lið Kópavogs hefur vakið mikla
athygli fyrir einarða framgöngu og mikið
keppnisskap. Liðið er komið í úrslit en það
vann keppnina í fyrra. Víðir Smári segist
ekki heyra annað en að fólk kunni að meta
það að færst hafi aukin harka í keppnina.
- jbg
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. hvetja, 6. ryk, 8. segi upp, 9. bjarg-
brún, 11. guð, 12. erfiði, 14. hindrun,
16. tvíhljóði, 17. hestaskítur, 18. berja,
20. í röð, 21. slæma.
LÓÐRÉTT
1. samskonar, 3. tveir eins, 4. verð-
gildi, 5. keyra, 7. skikkja, 10. af, 13.
hnoðað, 15. innyfli, 16. írafár, 19.
málmur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. örva, 6. im, 8. rek, 9. nöf,
11. ra, 12. streð, 14. tálmi, 16. au, 17.
tað, 18. slá, 20. tu, 21. illa.
LÓÐRÉTT: 1. eins, 3. rr, 4. verðmat,
5. aka, 7. möttull, 10. frá, 13. elt, 15.
iður, 16. asi, 19. ál.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 4,3 á Richter.
2 Tvær.
3 Sambíu.
„Það fer eftir því hvernig skapi
ég er í. Á föstudögum hlusta ég
á þungarokk eða danstónlist, til
dæmis Rammstein eða Marilyn
Manson. Á mánudögum hlusta
ég á útvarpið og stilli á morgun-
útvarpið á Bylgjunni og Rás 2
eftir hádegi.“
Þuríður Stefánsdóttir, snyrti- og förðun-
arfræðingur.
„Félagið KMK – Konur með
konum – heldur hina árlegu Góu-
gleði á Silfri um næstu helgi þar
sem ég og kærastan mín munum
spila fyrir dansi. Kvöldið er eins
konar árshátíð félagsins og verð-
ur Ólafía Hrönn Jónsdóttir veislu-
stjóri og heiðursgestur kvöldsins
verður Margrét Pála Ólafsdóttir,“
segir Eva María Þórarinsdótt-
ir, annar helmingur dúettsins DJ
Glimmer. Birna Hrönn er hinn
helmingurinn.
Það stendur mikið til hjá Konum
með konum sem er eins konar
undirfélag sem tengist Sam-
tökunum ´78. „Þetta félag gerir
allt milli himins og jarðar; grill-
veislur, farið í keilu og alls konar
uppákomur eru á dagskrá og svo
er það Góugleðin. Árshátíð,“ segir
Eva María. Vart þarf að taka það
fram að engir karlar fá aðgang
að viðburðum sem eru á vegum
Kvenna með konum en þar er
dúndurlið, að sögn Evu Maríu sem
heldur hópinn. „Þetta er eina ball
ársins þar sem eru bara stelpur. Á
„Samtakaböllum“ er þetta bland-
að. En þetta segir sig sjálft. Bara
konur. Það sem er sérstaklega
gaman við þetta er að þarna sam-
einast aldurshópar og eru þeir sem
mæta frá tvítugu alveg upp í sex-
tugt þess vegna. „Ef maður fer út
að skemmta sér er meðalaldurinn
ekki hár. Sjálf er ég þrítug og mér
líður oft sem aldursforseta. En
þarna eru samkynhneigðar konur
að skemmta sér saman. Boðið verð-
ur upp á nokkur skemmtiatriði en
félagið á rætur að rekja allt aftur
til ársins 1985.“
Dúettinn DJ Glimmer leikur
einkum diskótónlist og partíslag-
ara. Eva María segir það svo að
tónlist sem samkynhneigðir hafa
gaman af sé oft „hýr“. „Það fer
ekkert á milli mála að þetta er tón-
list sem á að dansa við.“
Eva María þakkar sínum sæla
fyrir að búa á Íslandi þar sem
fordómar gagnvart hommum og
lesbíum eru hverfandi. „Samkyn-
hneigðir eru 5 til 7 prósent mann-
kyns. Það má hafa í huga. Sem er
ágætis fjöldi. Okkar samfélag er
mjög „líberal“ og það eru forrétt-
indi. Það er miserfitt fyrir ein-
staklinga að koma út úr skápn-
um en þá er kannski ekki síst við
að eiga innri togstreitu. Ég ólst
upp á Ítalíu þar sem þetta er allt
öðru vísi. Kaþólsk trú ríkjandi
og gamaldags hugsunarháttur.
Hér hefur þetta snúist við. Þú ert
hallærislegur verðir þú uppvís að
fordómum.“
jakob@frettabladid.is
EVA MARÍA: DJ GLIMMER LEIKUR DISKÓ OG PARTÍSLAGARA
ENGA KARLA Á ÁRSHÁTÍÐ
KVENNA MEÐ KONUM
DJ GLIMMER Í GÓÐUM GÍR Að sögn Evu Maríu er tónlistin sem samkynhneigðir
hlusta á „hýr“ og dansvæn. DJ Glimmer spilar því diskó og partíslagara.
Útsvarsvíkingur með Gettu betur-lið MK
GETTU BETUR-LIÐ KÓPAVOGS Hólmfríður er komin í
liðið í stað Harðar Inga. Á laugardag verður tekist á við
Borgarholtsskólagrýluna ógurlegu. Frá vinstri: Bjarni,
Unnur, Hafsteinn Viðar, Ingvi og Víðir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Jú, við erum svona að gera til-
raunir með þetta. Erum að æfa
okkur í að annað drekki og hitt
ropi og tala samtímis,“ segir
Ívar Örn Sverrisson leikari. Ívar
leikur síamstvíbura ásamt Vig-
dísi Hrefnu Pálsdóttur í verkinu
Sædýrasafnið í Kassanum í Þjóð-
leikhúsinu sem sýnt verður í lok
mars. Mikil spenna er fyrir verk-
inu í Frakklandi og mun sjón-
varpsstöðin ARTE koma og fylgj-
ast með lokaæfingum á verkinu.
„Ástæðan fyrir spenningnum er
sú að höfundur verksins er mjög
þekktur rithöfundur þar í landi,
Marie Darrieussecq, og þetta er
hennar fyrsta leikverk. Það er
fyrst sýnt hér á landi en svo er það
sýnt úti í lok maí en það er uppselt
á allar sýningarnar í Frakklandi,“
segir Ívar. Þjóðleikhússtjóri sá
verk eftir Marie Darrieussecq á
listahátíð og kom sér í samband
við hana og úr varð þetta sam-
starfsverkefni. Sjón þýðir verkið
á íslensku, Barði sér um tónlist-
ina og Erna Ómarsdóttir sér um
sviðshreyfingar. Auk Ívars og
Vigdísar Hrefnu leika svo Stefán
Hallur Stefánsson, Björn Hlynur
Haraldsson, Elva Ósk Ólafsdóttir
og Margrét Vilhjálmsdóttir aðal-
hlutverkin.
Ívar Örn og Vigdís Hrefna eiga
ærið samhæfingarverkefni fyrir
höndum. Aðeins einu sinni áður
hafa síamstvíburar verið leiknir
á íslensku sviði og það var fyrir
meira en tuttugu árum. Ívar og
Vigdís Hrefna þekkjast vel fyrir,
voru bekkjarsystkin í Leiklistar-
skólanum og hafa því smá for-
skot á náin kynni. Ívar segir að
síamstvíburarnir tali, eins og
margir aðrir tvíburar, sitt eigið
tungumál. „Ég hef aðeins kynnt
mér síamstvíbura á netinu og
svo kom það sér vel að þáttur um
síamstvíbura var nýlega sýndur í
Ríkissjónvarpinu. Þetta er spenn-
andi verkefni,“ segir Ívar. - jma
Síamstvíburar í Þjóðleikhúsinu
FÖST SAMAN Ívar Örn Sverrisson og Vigdís Hrefna Pálsdóttir eru að æfa sig í að vera
samstiga og tala sem eitt. Þau eru að gera tilraunir með hvar þau verði föst saman.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ímark-hátíðin var haldin um
helgina á Hilton Nordica og má
heita að Ragnar Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri og auglýsingastofan
Fíton hafi verið ótvíræður sigurveg-
ari kvöldsins með fimm verðlaun.
Ein verðlaunanna vöktu nokkra
athygli, ekki síst þeirra sem fengu,
en þar var um að ræða Glæpafar-
aldur Eymundsson í flokki auglýs-
ingaherferða. Viggó Jónsson á
Jónsson & Le‘macks veitti verðlaun-
um viðtöku og hældi sér af því að
hafa fengið verðlaunin fyrir sömu
auglýsingaherferð
og árið áður. Var
um endur-
vinnslu að
ræða á sömu
herferðinni
og hann sagði
að þetta mætti
heita dæmigert
fyrir tíðarand-
ann: Endur-
vinnsla.
Birna Þórðardóttir hélt upp á
sextugsafmæli sitt með miklum
glæsibrag í Iðnó um helgina. Vinir
hennar og velunnarar komu henni
rækilega á óvart með að fljúga
suður sjálfri Helenu Eyjólfsdóttur
sem söng Hvíta máva með Andreu
Gylfadóttur þannig að gestir Birnu
táruðust. Í hljómsveit
sem tróð upp voru
Stuðmennirnir Jakob
Frímann, Ásgeir
Óskarsson og
Tómas Tómasson
ásamt Magnúsi
Einarssyni. Engin
ellimerki er að sjá á
byltingarkonunni
Birnu sem
gerði sér
lítið fyrir og
fór í splitt
við mikinn
fögnuð
gesta. - jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki