Tíminn - 14.07.1994, Side 3
Fimmtudagur 14. júlí 1994
3
Verkakvennafélagib Framsókn búiö ab fella margar skólarœstingakonur út afskrá í sumar:
Nær 200 skólaræstingakon-
ur enn á atvinnuleysiskrám
„Við erum búnar ab fella
fjölda ræstingakvenna út af
atvinnuleysisskrá vegna þess
aö þær hafa neitaö vinnu
sem þeim var boöin. Þá fara
þær á átta vikna biö, þ.e. fá
þá engar atvinnuleysisbætur
í átta vikur. Þar á ofan eiga
skólaræstingakonur aö taka
mánaðar sumarfrí, þannig
aö þær sem hafa hafnaö
vinnu eru þar meö dottnar út
þab sem eftir er sumars,"
sagöi Ingunn Þorsteinsdóttir
hjá Verkakvennafélaginu
Framsókn. Tíminn bar undir
hana þá niðurstöðu Borgaí-
endurskoöunar aö ræstinga-
fólk í skólum fengist ekki í
sumarþrif vegna þess aö þab
væri á atvinnuleysisskrá.
Ingunn kannast við kvartanir
um slíkt í bréfi frá Securitas,
sem sér um þrif í sumum skól-
um borgarinnar. En þótt marg-
ar konur hafi verið felldar af
skrá eftir að hafa hafnað sum-
arvinnu kemur í ljós að hátt í
200 skólaræstingakonur eru
samt ennþá á atvinnuleysis-
skrá hjá Framsókn.
„Við vitum að það er fullt af
konum sem eru ráðnar í níu
mánuði og vilja bara ekkert
vinna yfir sumarib. Margar
konur fara einmitt í ræstingar í
skólum til þess að geta verið í
fríi yfir sumarið — sem vita-
skuld er sjálfsagt mál. En þá er
hins vegar ekki gert ráð fyrir ab
þær stimpli sig atvinnulausar,
nema að þær ætli og vilji fá sér
Mosfellsbœr:
Jóhann Sigurjónsson
rábinn bæjarstjóri
Jóhann Sigurjónsson viö-
skiptafræbingur hefur verib
rábinn bæjarstjóri í Mosfells-
bæ þetta kjörtímabil.
Jóhann hefur átt heima í Mos-
fellsbæ um tuttugu ára skeib.
Undanfarin ár hefur hann gegnt
stöbu fjármálastjóra hjá Phar-
maco en var ábur aðstobarfram-
kvæmdastjóri hjá Glitni. Hann
er kvæntur Ástu Hilmarsdóttur
og eiga þau þrjú börn. ■
vinnu. Enda atvinnuleysisbæt-
ur eingöngu ætlaðar atvinnu-
lausu fólki í atvinnuleit," segir
Ingunn.
Að Framsókn skuli samt hafa
þurft að að fella fjölda kvenna
af skrá, vegna þess að þær
höfnuðu vinnu í sinni eigin
starfsgrein virðist samt benda
til að margar þeirra hafi ætlað
ab freista þess að ná sér í bæt-
ur, í von um þab ab enginn
færi að bjóða þeim vinnu. Því
ef svo „illa" fer að þeim er boð-
ib starf, gerist heldur ekkert
nema ab
þær detta bara út af skrá.
Áhættan er því engin.
Aö mati Ingunnar þyrfti að
gera eins í sambandi við ræst-
ingafólk skólanna og gert var
varöandi gangaverðina, að það
fengi tólf mánaba ráðningu.
Spurb um fjölda atvinnu-
lausra hjá Framsókn um þessar
mundir sagði Ingunn þab hafa
verið kringum 360 á skrá sem
fengu bætur þegar síðast var
borgab út fyrir viku. Fjöldi at-
vinnulausra félagsmanna
hefði verið kominn niður fyrir
180 í vor. En síban hefði fjölg-
að aftur um í kringum helm-
ing þegar ræstingafólkið kom
inn eftir lokun skólanna. Ing-
unn tekur fram að ræstinga-
fólkið fái bara 44 daga borgaba
og verði síðan að fara í mánað-
ar sumarfrí. Þar með fái það
ekki meira borgaö yfir sumar-
ið, því skólinn byrjar svo aftur
1. september.
Þess má geta, ab samkvæmt
atvinnuleysisskrám hjá Vinnu-
málaskrifstofunni hefur fjölg-
un atvinnulausra frá júní í
fyrra öll orðið meðal kvenna,
og þá sérstaklega kvenna á
höfuðborgarsvæðinu. Og þar
hefur atvinnulausum konum
farið fjölgandi síðustu mánuði,
öfugt við þab sem er víðast
annars staðar. Skráb atvinnu-
leysi í júní svaraði til 2.150
höfuðborgarkvenna án vinnu
allan mánubinn borið saman
við 1.700 á sama tíma í fyrra.
Atvinnulausar konur á höfuð-
borgarsvæðinu eru nærri 40%
allra atvinnulausra í landinu.
21. Landsmót
ungmennafélaganna
Iþrótta- og
fjölskylduhátíð
sumarsins
Dagskrá
Á 21. landsmóti UMFl að Laugarvatni
verður boðið upp á fjölbreytta skemmtun
og hátíðahöld fyrir alla fjölskylduna.
Þar verður keppt í fjölda íþróttagreina,
allt frá pönnukökubakstri og dráttarvéla-
akstri upp í körfubolta, handbolta, frjálsar
íþróttir og sund.
Magnús Scheving
mætir eldhress með morgunleikfimi og
heldur uppi fjölskyldufjöri.
Sex úrvalsdeildarlið og
margar íþróttastjörnur
Margar afskærustu íþróttastjörnum
landsins reyna við Islandsmetin og auk
þess verður sannkölluð körfuboltaveisla
með sex úrvalsdeildarliðum.
Fyrir fjölskylduna
Fjölskyldan getur tekið þátt í æskuhlaupi,
Lýðveldishlaupi, Bláskógaskokki, stafsetn-
ingarkeppni, þrautakóngi, landgræðslu,
skógrækt, náttúru- og söguferðum o.fl.
Tjaldböll að Laugarvatni:
HUÓMAR frá 65
rifja upp lögin frá 1965 á laugardagskvöld.
Hálft i hvoru sjá um fjörið á föstudagskvöld.
(Miðaverð á Hljómaball kr. 1.000. Miðaverð á tjald-
böll föstudagskvöld og sunnudagskvöld kr. 500.)
Sveitaböll á Borg í Grímsnesi:
PLÁHNETAN
á föstudagskvöld. (Miöaverð kr. 1.800.)
1000ANDLIT
á laugardagskvöld. (Miðaverð kr. 1.800.)
Heimsmeistarakeppnin
Knattspyrnuáhugamenn missa ekki af neinu
því úrslitaleikir heimsmeistarakeppninnar
verða sýndir á risaskjá og fjöldi sjónvarps-
tækja verður á svæðinu.
16:00 Knattspyrna karla
16:00 Knattspyrna kvenna
17:00 Blak
17:00 Lýðveldishlaup
18:00 Skák
Föstudagur 15. júl
8:00 Blak
9:00 Dráttarvélaakstur
9:00 lýðveldishlaup
10:00 Handknattleikur
10:00 Sund
10:00 Bridds
10:00 Skák
11:00 Knattspyrna karla
11:00 Knattspyma kvenna
11:00 Karate
13:00 Línubeiting
13:30 Vígslavallar
14:00 Frjálsar íþróttir
14:00 Körfuknattleikur
15:00 Júdó
16:00 Jurtagreining
17:00 Æskuhlaup
17:00 Boccia fatlaðra
17:00 Lýðveldishlaup
17:00 Landgræðsla
20:00 Setningarathöfn
22:00 Tjaldball
- Hálft í hvoru
23:00 Sveitaball á Borg
- Pláhnetan
Laugardagur 16. júlí | 1 Sunnudagur 17. júlí
8:00 Borðtennis 8:00 Fimleikar
8:30 Körfuknattleikur 9:00 Bridds
9:00 Bridds 9:00 Skák
9:00 Morgunleikfimi 9:00 Morgunleikfimi
9:30 Lýðveldishlaup 9:30 Helgistund
10:00 Frjálsar íþróttir 9:45 Lýðveldishlaup
10:00 Knattspyrna karla 10:00 Frjálsar íþróttir
10:00 Sund 10:00 Lagt á borð
10:00 Skák 10:00 Sund
10:00 Hestadómar 10:00 Söguferð
10:00 Söguferð 10:30 Bláskógaskokk
11:00 Handknattleikur 11:00 Knattspyrna karla
12:00 Knattspyrna kvenna 11:00 Skógrækt
12:00 Landgræðsla 12:00 Hestaíþróttir
12:00 Náttúruskoðun 12:00 Körfuknattleikur
13:00 Glíma 12:00 Náttúruskoðun
13:00 Skógrækt 12:30 '65 - boðsund
14:00 Stafsetningarkeppni 13:00 25 ára afmæli Kjörís
15:00 Pönnukökubakstur - ísveisla
16:00 Blak 13:00 Axlatök
16:00 Fjölskylduskemmtun 14:00 Landgræðsla
17:00 Lýðveldishlaup 14:00 Stafsetningarkeppni
17:30 '65 - boðhlaup 15:00 Fjölskylduskemmtun
20:00 Kvöldvaka 15:00 Starfshlaup
. 22:00 Tjaldball - Hljómar 17:00 Mótsslit
23:00 Sveitaball á Borg - 1000 andlit 21:00 Lokaball
Aðgangseyrir Fullorðnir Börn
Þrir dagar (frá fimmtud. til sunnud.) kr. 3.000 kr. 1.500
Tveir dagar (laugard. og sunnud.) kr. 2.300 kr. 1.100
Einn dagur kr. 1.500 kr. 750
(Börn teljast fædd 1979-1983.)
Börn fædd 1984 og slðar borga fast gjald kr. 200.