Tíminn - 14.07.1994, Page 11
Fimmtudagur 14. júlí 1994
Wt w
11
Hallgrímur Helgason
Droplaugarstööum
Fæddur 29. ágúst 1909
Dáinn 30. desember 1993
Hallgrínwr Helgason var fœddur
á höfuðdaginn, á Refsmýri í Fell-
um, N.-Múlas., 29. ágúst 1909.
Foreldrar hans voru Agnes Páls-
dóttir, cettuð úr Vestur-Skafta-
fellssýslu, og Helgi Hallgrímsson
frá Birnufelli í Fellum. Þau hjón
bjuggu á Refsmýri í Fellum þar
til að Helgi lést árið 1912, þá að-
eins um þrítugt, en eftir það bjó
Agnes ein í áratug. Hún flutti
síðan að Ási og giftist Brynjólfi
bónda þar. Ólst því Hallgrímur
upp á þessum tveimur bœjum.
Arin 1929-1931 var hann í hér-
aðsskólanum á Laugarvatni, og
1934 giftist hann Laufeyju Ól-
afsdóttur frá Holti í Fellum og
hófu þau búskap sinn þar. Lauf-
ey ber greinilega með sér að hún
er hógvœr kona og mun hafa
milda skapgerð. Hjónaband
þeirra hefi ég heyrt að hafi verið
einstaklega farsœlt, enda munu
bueði hafa verið góðum gáfiim
gœdd. Hún býr nú á Egilsstöð-
um, flutti þangað s.l. vetur í
þjónustumiðstöð fyrir aldraða.
Árið 1936 fluttu þau hjón að
Arnheiðarstöðum í Fljótsdals-
hreppi og bjuggu þar um sinn.
Árið 1942 byggðu þau nýbýlið
Droplaugarstaði á hluta af Ám-
heiðarstaðalandi, og þar bjuggu
þau síðan allan sinn búskap, 50
ár. Varð því lífsstarf þeirra þar.
Heimili sínu og fjölskyldu helg-
uðu þau krafta sína alla. —
Eldri bróðir Hallgríms, sem hét
Páll, lést á bamsaldri og Guðrún
Margrét, systir hans, dó úr berkl-
um um tvítugt.
Þótt ég reyni nú að gera þessa
samantekt sem best úr garöi
meö góöri hjálp annarra, vil
ég geta þess aö eitt sinn kynnt-
ist ég heimili þeirra hjóna,
Laufeyjar og Hallgríms sáluga,
er viö Anna kona mín dvöld-
um smátíma hjá dótturdóttur
okkar, sem þá bjó í Fellabae,
vestan viö Fljótiö. Fórum viö
þá til þeirra í heimsókn aö
Droplaugarstöðum í yndislegu
veðri. Þann dag sýndi Hall-
grímur sálugi _ mér margt
skemmtilegt og var hinn
ræðnasti, svo það varð mér
ógleymanlegur dagur.
Börn Hallgríms og Laufeyjar
eru þessi: Helgi náttúrufræð-
ingur, nú á Egilsstöðum; Ólaf-
ur prestur á Mælifelli; Agnar
cand. mag. í ísl. fræöum, bú-
settur á Egilsstöðum; Guö-
steinn bóndi á Teigabóli í Fell-
um; Guðrún Margrét, búsett á
Akureyri; og Bergljót húsfrú í
Haga í Aðaldal.
Af kunnugum er talið að
Hallgrímur sál. hafi ekki tekið
mikinn þátt í félagsmálum;
var hann þó nokkur ár í
hreppsnefnd og fleiri nefnd-
um. Hann stofnaði Heilsu-
verndarfélag Fljótsdæla um
1960. Það starfaði vel um 10
ára skeið, útvegaði félögum
sínum náttúrulækningavörur
og þess háttar.
Búskapurinn á Droplaugar-
stöðum byggðist aðallega á
sauðfénu, en jöröin er landlítil
og erfið til ræktunar, svo að
búið varð aldrei stórt. Kýr voru
oftast til heimilisnota, en um
tíma var þó seld mjólk í smá-
um stíl. Auk þess voru fáeinir
hestar, sem framan af voru
notabir til jarðvinnslu og hey-
skapar, ábur en vélarnar leystu
þá af hólmi.
Um 1950 byggði Hallgrímur
rafstöð við Hrafngerðisána,
sem rennur rétt fyrir utan bæ-
inn, og er hún enn í gangi.
Raunar var bæjarstæbið upp-
haflega valiö með tilliti til þess
að virkja ána, enda ekki vel
hentugt aö öðru leyti, svona
yst í landareigninni. Bæinn
kenndi hann vib Droplaugu
fornkonu, sem Austfirðinga-
sögur fjalla um, en hún átti
heima á Arnheiðarstöðum.
Bæjarnafnið var aldrei sam-
þykkt af yfirvöldum, en festist
t MINNING
samt við bæinn, sem aldrei
hefur verið nefndur annað.
Hallgrímur var vel ritfær og
samdi nokkrar minningar-
greinar um nágranna sína,
sem allar birtust í Tímanum,
enda var hann lengst af trygg-
ur framsóknarmaður. Páll
Zophoníasson, þingmaður
Norðmýlinga um langt skeið,
reyndist honum mikil hjálpar-
hella við uppbyggingu býlis-
ins. Stundum skrifaði hann
líka skeleggar blaðagreinar, ef
honum var mikið niðri fyrir,
eins og í sambandi við riðu-
veiki-niburskurðinn 1990,
sem hann barðist mjög á móti.
Hallgrímur var fremur létt-
lyndur og gat verið gaman-
samur í viöræðum. Hann
hafði gaman af að skiptast á
skoðunum við menn og sló þá
gjarnan fram ýmsum fjarstæð-
um til að örva samtalið og
kalla fram viðbrögð. Hann var
greiðugur við nágranna sína
og naut líka hjálpsemi þeirra í
ríkum mæli. Þrátt fyrir tölu-
verða nýbyggingu á nýbýlinu
safnaði hann aldrei skuldum
og lét eftir sig vænan sjóð.
Loks set ég hér nokkur orð
um persónugerð Hallgríms.
Hann var einn þeirra manna
sem ekki létu aðra segja sér
fyrir verkum í hverju máli,
hafði sjálfstæðar skoðanir, fór
sínar eigin leiðir og var því af
sumum álitinn nokkuð sérvit-
ur. Hann var gagnrýninn á
margt í samtímanum og lét
það óspart í ljós. Var t.d. lengi
andvígur notkun tilbúins
áburðar á tún og í garöa. Einn
bónda þekkti ég vel vestur í
Strandasýslu, sem drýgbi allan
sinn áburb með gamalli
veggjamold, en vildi aldrei
nota tilbúinn áburð og munu
rannsóknir hafa stabfest margt
af því síðar. Hallgrímur mun
hafa verið afar traustur maöur
á alla grein og hefi ég heyrt að
loforð hans hafi staðib sem
stafur á bók.
Ég veit og fann líka, það lítið
sem ég kynntist honum, að
hverskonar smámunasemi og
yfirdrepsskapur var eitur í
hans beinum. Þá hefi ég heyrt
að hann hafi veriö trygglynd-
ur og ráðhollur. Gestrisni hef-
ur vafalaust verið mikil á
Droplaugarstöðum, enda var
svo oft áður fyrr, að það voru
heimilisfólkinu miklar
ánægjustundir er gesti bar að
garöi. Þótt ég hafi ekki þekkt
Hallgrím sáluga mikib, var ég
sjálfur alinn upp við nokkuð
gamaldags búskap og þekkti
allt verklag vel, enda aöeins
tveimur árum eldri en hann.
Það má segja um Hallgrím á
Droplaugarstööum eitthvað
svipað og Stephan G. Steph-
ansson yrkir:
Bognar aldrei — brotnar í
bylnum stóra seinast.
Með kærri þökk til þeirra,
sem hjálpuðu mér um upplýs-
ingar.
Siglufirði, 1. júlí 1994,
Guðbrandur Magnússon
DAGBOK
ÍWUUWUIAAAAAJ
Fimmtudaqur
14
195. dagur ársins -170 dagar eftir,
27. vlka
Sólris kl. 337
sólarlag kl. 23.28
Dagurinn styttist
um 6 mínutur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Göngu-Hrólfar fara í Mosfells-
bæ með rútu kl. 10 frá Risinu
n.k. laugardag.
Dagsferð í Þórsmörk 20. júlí.
Upplýsingar á skrifstofunni.
Fyrirlestur í Ásmundarsal
í kvöld, fimmtudaginn 14. júlí,
kl. 20 hefst í Ásmundarsal fyrir-
lestur Guðmundar Jónssonar
arkitekts á vegum ÍSARK, íslenska
arkitektaskólans.
Guðmundur hlaut menntun
sína við arkitektaskólann í Ósló á
árunum 1975-1981 og einnig við
ILAUD-rannsóknarstöðina í
byggingarlist, á Ítalíu árið 1979.
Hann hefur starfað í Noregi frá
upphafi ferils síns og átt mikilli
velgengni að fagna í arkitektúr-
samkeppnum í Noregi, íslandi og
á alþjóðlegum vettvangi. Hann
hefur starfað við kennslu í Ósló
og Þrándheimi s.l. 10 ár og flutt
fyrirlestra víða, m.a. við Alvar
Áalto-stofnunina í Finnlandi.
Á fyrirlestrinum, sem ber heitið
„Issue, origin morphology", mun
Guömundur túlka þau verk sín
sérstaklega í tengslum við lands-
lag og greina frá aðferðafræði
sinni við hönnun mannvirkja.
Verk Guðmundar eiga það sam-
merkt að leita staðbundinna róta
í landslagi og mýtum til að kalla
fram fjölbreyttari formmyndanir
sem stöðugt endurnýja bygging-
arlist hans.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku.
TIL HAMINGJU
Gretar Magnús Cubmundsson
Tarnús.
Þrúður Sigurðardóttir.
70 ára afmæli
70 ára er á morgun, 15. júlí,
Þrúbur Sigurðardóttir, hús-
freyja í Hvammi í Ölfusi. Eigin-
maður Þrúöar er Guðmundur
Bergsson bóndi. Þau taka á
móti gestum að veitingastaðn-
um Básum í Ölfusi á afmælis-
daginn frá kl. 17- 20.
50 ára afmæli
50 ára er í dag, 14. júlí, Gretar
Magnús Gubmundsson Tar-
nús, Lyngbergi 15, Hafnarfirbi.
Kona hans er Katrín S. Jensdótt-
ir. Þau taka á móti vinum og
vandamönnum í Fjörukránni í
Hafnarfirði laugard^ginn 16.
júlí kl. 13.
Týndir hestar
Tveir hestar (reiðhestar) töpuð-
ust úr girðingu á Ingjaldshóli á
Snæfellsnesi 19. júní s.l. Grunur
leikur á að þeir hafi strokið suð-
ur til Borgarfjarðar og farið um
Fróbárheiði eða fjalllendið um-
hverfis Jökulinn. Annar er jarp-
ur og ójárnaður, hinn er rauð-
tvístjörnóttur og járnaður
(skaflaskeifur). Báðir eru eins
markaðir: gagnbitaö bæði. Mjög
grunnt markað. Þeir, sem verða
hestanna varir, vinsamlegast
hringi í síma 93-66920 (Ólafur
Jens eba Ólöf Helga).
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I
Reykjavfk frá 8. tll 14. Júlf er f Laugames apótekl
og Árbæjar apótekl. Pað apótek sem tyrr er netnt
annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 aö kvöldl tll kl. 9.00
aó morgnl vlrka daga en kl. 22.00 á sunnudögum.
Upplýslngar um læknls- og lyfjaþjónustu eru gefnar
f sfma 18888.
Neyöarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátíóum. Símsvari 681041.
Hafnarfjðróur: Hafnarfjarðar apótek og Noróurbæjar apó-
tek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og tu s».r :is
annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl.
10.00-12.00. Upplýsingar í símsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjórnu apótek eru opin
virka daga á opnunartíma búóa. Apótekin skiptast á sina
vikuna hvort aó sinna kvöld-, nælur- og helgidagavörslu. Á
kvöldin er opið f þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl.
19.00. Á helgidögum er opk) frá kl. 11.00-12.00 og 20.00-
21.00. Á öðrum tímum er lyfjafræðingur á bakvakt. Upplýs-
irtgar eru gefnar í síma 22445.
Apótek Keflavfkur: Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og almenna fridaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-
18.00. Lokað i hádeginu milli kl. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til kl. 18.30.
Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00.
Garðabær: Apólekið er opið rúmhelga daga kl. 9.00-
18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
ALMANNATRYGGINGAR
HELSTU BÓTAFLOKKAR:
1. júlí 1994.
Mánaöargrelðslur
Elli/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir)......... 12.329
1/2 hjónalífeyrir.......................... 11.096
Full tekjutrygging eililifeyrisþega..........32.846
Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega........33.767
Heimilisuppbót...............................11.166
Sérstök heimilisuppbót........................7.680
Bamalífeyrir v/1 bams........................10.300
Meðlagv/1 barns..............................10.300
Mæðralaun/feðralaun v/1 bams..................1.000
Mæðralaun/feöralaun v/2ja bama................5.000
Mæðralaun/feðralaun v/3ja barna eða fleiri..10.800
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða .............15.448
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða.............11.583
Fullur ekkjulífeyrir.........................12.329
Dánarbætur í 8 ár (v/slysa)..................15.448
Fæðingarstyrkur..............................25.090
Vasapeningar vistmanna.......................10.170
Vasapeningar v/sjúkratrygginga...............10.170
Daggrelöslur
Fullir fæðingardagpeningar.................1.052.00
Sjukradagpeningar einstaklings...............526.20
Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ...142.80
Slysadagpeningar einstaklings................665.70
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ....142.80
í júlí er greiddur 44.8% tekjutryggingarauki á tekjutrygg-
ingu, heimilisuppbót og sérstaka heimilisuppbót, 28%
vegna láglaunauppbóta og 16.8% vegna viðskipta-
kjarabóta. Tekjutryggingaraukinn er reiknaður inn f
tekjutrygginguna, heimilisuppbótina og sérstöku heimil-
isuppbótina.__________________
GENGISSKRÁNING
13. júlf 1994 kl. 11,02
Opinb. vlðm.geng! Gengi
Kaup Sala skr.fundar
Bandarfkjadollar 67,07 67,25 67,16
Sterlingspund ....105,38 105,66 105,52
Kanadadollar 48,45 48,61 48,53
Dönsk króna ....11,155 11,189 11,172
Norsk króna 9,996 10,026 10,011
Sænsk króna 8,898 8,926 8,912
Finnskt mark ....13,278 13,318 13,298
Franskur (ranki ....12,772 12,810 12,791
Belgfskur franki ....2,1299 2,1367 2,1333
Svissneskur franki. 51,94 52,10 52,02
Hollenskt gyllini 39,11 39,23 39,17
Þýsktmark 43,87 43,99 43,93
itölsk llra ..0,04424 0,04438 0,04431
Austurrfskur sch 6,233 6,253 6,243
Portúg. escudo ....0,4265 0,4281 0,4273
Spánskur peseti ....0,5324 0,5342 0,5333
Japanskt yen ....0,6896 0,6914 0,6905
írsktpund ....104,34 104,68 104,51
Sérst. dráttarr 98,92 99,22 99,07
ECU-Evrópumynt.... 83,70 83,96 83,83
Grfsk drakma ....0,2903 0,2913 0,2908
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELGARPAKKANA
OKKAR
REYKJAVtK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar