Tíminn - 16.08.1994, Blaðsíða 4
4
Þriðjudagur 16. ágúst 1994
STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7
Utgáfufélag: Tímamót hf.
Ritstjóri: |ón Kristjánsson
Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík
Inngangurfrá Brautarholti.
Sími: 631600
Símbréf: 16270
Pósthólf 5210, 125 Reykjavík
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans
Prentun: Prentsmibja
Frjálsrar fjölmiölunar hf.
Mánaðaráskrift 1400 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 125 kr. m/vsk.
Jákvæð samskipti
dreifbýlis
og þéttbýlis
Á íslandi var bændaþjóðfélag í gegn um
aldirnar, en það fór að breytast með
breyttri verkmenningu þegar kom fram á
þessa öld. Þær breytingar hafa orðið hrað-
fara og nú er svo komið að þorri þjóðar-
innar býr í þéttbýli og höfuðborgarsvæöi
hefur myndast sem telur um helming íbú-
anna. Þótt Reykjavík og nágrenni sé ekki
stórborg á alþjóðlegan mælikvarða má þó
færa rök að því að þar sé borgarsamfélag
meö kostum sínum og göllum.
Eitt af því sem þeir sem búa í þéttbýli þrá
er að komast í samband við náttúruna og
landið. Landareignir eru að stórum hluta í
eigu bænda og ríkisvaldsins.
Tengsl sveitafólks og borgarbúa voru
lengst af mikil og ræktuð á þann hátt að
unglingar fóru í sveit ýmist hjá vanda-
lausu fólki eða hjá vinum og vandamönn-
um. Þannig fengu þeir sýn á líf sveitafólks
og skilning á lífsháttum sveitamanna. Nú
er þetta einnig að breytast.
Um síðustu helgi var tekin upp sú ný-
lunda að bjóða þéttbýlisfólki að sækja
sveitabæi heim til þess að kynnast lífinu
þar. Þeta er jákvæð nýbreytni sem þarf að
halda áfram og hún er ekki síður gagnleg
kynningarstarfsemi en ýmsar auglýsinga-
herferðir sem skipulagðar eru í nútíma
þjóðfélagi. Það er mjög jákvætt að fá
bændur til þess að taka þátt í þessu starfi.
Skógrækt Ríkisins á skógivaxin lönd og
rekur starfsemi víða um land. Fyrr í sumar
var ákveðið að hafa dag þar sem fólki var
boðið að skoða skógana, og höfð uppi
leiðsögn og nokkur tilbreytni af þeim sök-
um. Þetta framtak er lofsvert og einnig lóð
á þá vogarskál að byggja brú milli dreifbýl-
is og þéttbýlis. Þéttbýlisbúar verða að hafa
það á tilfinningunni að landið sé á ein-
hvern hátt þeirra og þeim komi það við.
Það er sjálfsagt þar sem ríkisvaldið ræður
yfir löndum að greitt sé fyrir umferð fólks
um þau svæði og það finni sig velkomið
þar. Átak bænda að „bjóða heim" og skóg-
ræktardagarnir eru þörf nýlunda í sam-
skiptum dreifbýlis og þéttbýlis og full
ástæða er til að þróa þá starfsemi enn frek-
ar í ljósi þeirrar reynslu sem fengist hefur í
sumar.
Pólitískur bjúgverpill
Frumbyggjar Ástralíu þróuðu ein-
hvern tíma í fyrndinni vopn sem
kallað er bjúgverpill eða „búmm-
erang". Þetta vopn er áhrifaríkt í
höndum þeirra sem kunna ab
beita því, vegna þess að sé bjúg-
verplinum kastað með réttum
hætti kemur hann aftur til kastar-
ans sem þannig getur kastað
vopninu aftur og aftur án þess að
hlaupa á eftir því út um allar triss-
ur.
Eftir að íslendingar lærðu um
þetta merka vopn hafa þeir tekið
það inn í málið með séríslenkum
hætti og notað það til að auðga
hjá sér myndmál og líkingar.
Þannig hefur t.d. stundum verið
talað um pólitískan bjúgverpil
þegar menn eru að lýsa stjórn-
málabaráttunni og svo heppilega
vill til að í fyrri viku kom einmitt
upp einn slíkur pólitískur bjúg-
verpill sem er svo hreinræktaður
að hægt er aö nota hann sem
skólabókardæmi til skilgreiningar
á pólitískum bjúgverplum.
Skobanakönnun
Skoðanakönnun Skáís um fylgi
við sameiginlegt framboð Alla-
balla, Jóhönnu Sig. og Kvenna-
listakvenna, sem kalla mætti
„FM- framboðið" eða „Félagslega
Meðvitaða - framboðið", fékk
svo mikið fylgi að Ólafsarmur-
inn í Alþýðubandalaginu byrjabi
samdægurs aö leggja niður alla
stjórnmálaflokkana sem að
hugsanlegu sameiginlegu fram-
boði stóðu auk Framsóknar-
flokksins og Alþýðuflokksins,
sem Ólafur Ragnar var farinn að
vísa til sem pólitískra peða í ís-
lenskri pólitík. Eftir stóðu hjá
Ólafi og hans mönnum FM-
frambobib annars vegar og svo
Sjálfstæðisflokkurinn hins vegar.
Hinn pólitíski bjúgverpill er ein-
mitt þessi skoðanakönnun sem
nokkrir ungir Ólafsmenn í Al-
þýðubandalaginu létu gera og
kynntu síðan með vafasömum
GARRI
hætti til að halda á floti umræð-
unni um sameiginlegt framboð
FM aflanna. Hugmyndin var sú
ab koma af stab öflugri hreyf-
ingu í þessa veru í tíð Ólafs
Ragnar á formannsstóli hjá AB
og nýta yfirlýstan áhuga Ólafs á
samfylkingu jafnaðarmanna til
að koma þessu á koppinn. Eftir
að þessi bjúgverpill hafði flogið
um háloft íslenskra stjórnmála í
u.þ.b. einn og hálfan sólarhring
og mikill meðbyr virtist vera
með þessum hugmyndum fór
bjúgverpillinn að snúa sér og
stefnir nú á ofsahraba beint á
kastara sinn og gæti raunar
reynst honum stórhættulegur.
Hættulegur á baka-
leiðinni
Ólafsmenn gátu ekki séð það fyr-
ir þegar þeir köstuðu vopninu
upp ab þab myndi snúa til baka
stórhættulegt. Það hefur hins
vegar gerst því nú útvarpa þeir
Árni Þór Sigurðsson og Svavar
Gestsson í stereó að FM bylgjan
meðal kjósenda kalli á skjót við-
brögð af hálfu Alþýbubandalags-
ins, enda þurfi landsfundur
flokksins að hafa fjallað um það
fyrst ef menn ætla að fara út í við-
ræbur um að leggja flokkinn nið-
ur um leið og flokkakerfinu verð-
ur endanlega umbylt.
Rök þeirra félaga Svavars og Árna
eru öll á lýðræðislegu nótunum
og málflutningurinn ber þess
merki að þeir bera ríkulega fyrir
brjósti að hinn almenni flokks-
maður fái að segja sína skoðun á
landsfundi. Eflaust er það tilvilj-
un og aukaatriði af þeirra hálfu að
með því aö flýta landsfundi er
jafnframt verið að stytta for-
mannstímabil Ólafs Ragnars sem
má aðeins samkvæmt reglum
flokksins sitja fram að næsta
landsfundi.
Útspil Ólafsmanna er m.ö.o. í
þann veginn að hitta þá fyrir
sjálfa og skoðanakönnun Skáís
sem annars hefði ekki oröib fræg
nema af endemum, er í þann veg-
inn að vinna sér sess sem gagn-
legt skólabókardæmi um pólitísk-
an bjúgverpil.
Nú hljóta allir áhugamenn um
stjórnmál að bíða spenntir eftir
viöbrögðum Ólafs Ragnars. Gríp-
ur hann bjúgverpilinn á lofti eins
og vel æfður búskmaöur eba hæf-
ir verpillinn Ólaf þannig að hann
liggur óvígur eftir?
Straumhvörf í flokkaskipan
Rómuð skoðanakönnun sem
birt var í vikunni leið sýndi að
hægt væri ab fella Sjálfstæði-
flokkinn og auka hlut Alþýöu-
bandalagsins og Jóhönnu upp
úr öllu valdi ef rétt er að farið.
Framsókn hvarf af sjónarsviðinu
og kratar samsöfnuðust í höf-
undi húsbréfanna sem er ab
koma þribjungi landsmanna á
vonarvöl. Stöð 2 þótti, sem öðr-
um, þetta mikil tíöindi og gerði
málinu verðug skil.
Nú hefur Víðivangur fengiö Ská
& skjön til að kanna hug kjósenda
til flokka í þessari viku og hvernig
úrslit yrðu ef kosið væri nú.
Gefnar voru þær forsendur ab
Sjálfstæðisflokkurinn byði ekki
fram, enda Dávíö orðinn afhuga
kosningum eins og þráfaldlega
kemur fram. Þar sem Framsóknar-
flokkurinn er bændaflokkur voru
ekki aðrir en sveitamenn spurðir
um fylgi við hann og var þeim
sem spurðir voru skipt jafnt milli
sveita og þéttbýlistaða. Úrtak
voru 170 manns. Þar af svöruðu
65, hinir voru ekki heima eða
sögðust ekki skilja skoðanakönn-
un.
Spurt er
Spurt var hvort fólk myndi held-
ur kjósa Alþýðuflokkinn með Jó-
hönnu eba ef Jóhanna væri í
framboði fyrir Alþýöubandalagiö.
Svo var spurt hvort fólk vildi held-
ur kjósa Jóhönnu í Kvennalista og
Alþýðubandalagi eða sérframboði
eða hvort þeir sem eru í Alþýðu-
bandalagi og Kvennalista og Al-
þýðuflokki myndu kjósa Jóhönnu
ef hún væri í öllum þessum flokk-
um. Svo var spurt hvort mjólk
væri ekki góð og færbust jákvæb
svör á B-lista.
Á vibavangi
Niðurstöður voru óvæntar og
sýndu að flokkakerfið er að
brenglast og að hugur kjósenda
stendur til breytinga og ab búast
má við miklum tíbindum í ís-
lenskum stjórnmálum.
Af þeim 65 sem svöruðu neituðu
9 ab svara.
15 voru óákveönir.
Annars skiptust atkvæðin þannig
ab 47.5% sögðust kjósa Alþýbu-
flokkinn ef búið væri að reka Jó-
hönnu úr honum. 11.8% sögðust
munu kjósa Alþýðuflokkinn ef Jó-
hanna væri þar á lista.
17,3% myndu kjósa Alþýðu-
bandalagið og Kvennalista ef Jó-
hanna býöur fram sér en ef Jó-
hanna er sett inn í staðinn fyrir
Ólaf Ragnar fær svoleiðis listi
37.75% atkvæða, en 63,8% ef
Svavar verður líka látinn fjúka.
Ekki er gert ráb fyrir að Jóhanna
bjóði sig fram í Framsóknarflokki
og er hann því sér á báti í könn-
unninni, en 29.5% telja að mjólk
sé gób, en 78% ef rjómaísinn er
talinn með.
Örugg vísbending
í ljós kom að 50.1% þeirra sem
kusu Sjálfstæðisflokkinn síðast en
geta ekki kosið hann nú af aug-
ljósri ástæðu munu kjósa Alþýðu-
bandalagib ef Jóhanna býður fram
sér en fylgi hinna færist á Kvenna-
lista ef um verbur ab ræða sameig-
inlegt framboð Alþýðubandalags,
Kvennalista ogjóhönnu.
Úrtak þessarrar könnunar er með
minna móti og skekkjumörk eins
mikil og Ská & skjön treysta sér til
að hafa þau. En að öllu er samt
farið ab vísindalegum hætti, og
gefur hún örugga vísbendingu um
í hvern farveg íslensk stjórnmála-
þróun er að renna. Áb lokum
nokkur ummæli fólks sem þátt
tók í könnuninni.
Kona í Þvergirðingsholti sagbi að
hún væri búin að fá nóg af karla-
veldinu og ætti Jóhanna að draga
sig út úr pólitík. Karl sem talaði af
bökkum Skeiðarár fyrir Stöð 2
sagðist feginn að Sjálfstæðisflokk-
urinn er úr leik því nú gæti hann
kosið íhaldið með góðri samvisku.
Kona í Vesturbænum sagði ab
krakkinn væri búinn að míga á
teppið og vellingurinn að brenna
við og hún mætti ekki vera að
þessu kjaftæði. Karl fyrir austan
sagðist alltaf hafa kosib Framsókn
til ab klekkja á íhaldinu og saknar
nú vinar í stað. Ég er búin að kjósa
tvisvar í ár og á eftir aö kjósa fimm
sinnum, sagði kona í Stykkis-
hólmi, og sveimér ef ég á líka eftir
að kjósa Jóhönnum í tveim flokk-
um samtímis og í sérframboöi.
Karl á skrifstofu Alþýðuflokksins
stundi, loksins komum við vel út.
Skilji einhver ekki þessar niður-
stöður veröa þær auðskiljanlegar
þegar sjónvörpin sýna þær í
súlnaritum sínum. OÓ
I F
I I