Tíminn - 22.09.1994, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 22. september 1994
— » _X.» _ .
9
UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . .
Japan:
Keisara-
ynjan búin
aö fá máliö
Persónudýrkun færist í aukana
Tókíó - Reuter
Akihito Japanskeisari segir að
Misjiko keisaraynja eigi enn
bágt með að tjá sig í mæltu
máli, þótt henni hafi tekist að
sigrast á mestu erfiðleikunum.
Keisaraynjan fékk slag á 59 ára
afmæli sínu í október sl. og
var mállaus er hún komst til
meðvitundar.
Akahito hitti fréttamenn í
gær og var þá spurður hvernig
þess yrði minnst á næsta ári
að hálf öld er þá liðin frá því
að Japanir biðu ósigur í seinni
heimsstyrjöldinni. Keisarinn
hafði ekki mörg orð um það
en svaraði því þó til að hann
myndi aldrei gleyma fórnar-
lömbum styrjaldarinnar, en
hins vegar væri mikilvægt að
horfa aftur til fortíðar í auð-
mýkt en halda síðan fram á
veg með heimsfrið að mark-
miði.
Keisarahjónin fara til Frakk-
lands og Spánar í október, en
þetta er í fyrsta sinn sem Jap-
anskeisari heimsækir þessi
Evrópulönd. ■
Beijing - Reuter
Kínverjar leita nú sífellt fleiri
leiða til að gera Deng Xiaop-
ing ódauðlegan, en umfangs-
mikil útgáfustarfsemi í kring-
um persónu hans er tiltölulega
ný af nálinni og hefur vakið
sérstaka athygli fyrir þær sakir
að hinn níræði leiðtogi var
lengst af frábitinn persónu-
dýrkun.
Nú hefur fyrirtæki í Shenzh-
en sent frá sér 238 mínútna
leysidisk með völdum köflum
úr ræðum Dengs á árabilinu
1978-85.
Ekki fylgir sögunni hvernig
hagnaði af þessari arðvænlegu
útgáfu verður varið, en upp-
tökurnar eru úr aðalskjalasafni
kínverska kommúnistaflokks-
ins.
En andlegt fóður, tengt
Deng, er ekki nóg. Andspænis
einu helsta glæsihótelinu í
Beijing er búið að opna vegleg-
an matstað sem heitir Xiaopin
sojabauna-staburinn, en í frétt
af opnuninni segir að þar sé
hægt að fá sojabaunir, mat-
reiddar ab hætti Sichuan-búa,
og besta leiðin sem hinn ní-
ræði Deng geti farið til að
halda heilsunni væri að snæða
þar.
Cambridge - Reuter
Börnum er ekki síður hætt við því
að þróa með sér fíkn í tölvuleiki
en fullorðnum að verða spila- eða
lyfjafíklar, að því er rannsóknir
Reuter
Óbreyttir borg-
arar / Sarajevó
sœkja sér vatn í ána Miljacka viku
eftir oð Bosníu-Serbar iokubu fyrir
vatn og rafmagn til borgarinnar.
Samningafundur hinna stríbandi
fylkinga meb fulltrúum Sameinubu
þjóbanna í gærmorgun bar ekki
árangur.
við háskólann í Plymouth hafa
leitt í ljós.
Niðurstöðurnar voru kynntar á
sálfræðingaráðstefnu í Cam-
bridge í gær, en í rannsóknunum
tóku þátt 147 börn, öll ellefu ára.
48% þeirra voru í tölvuleikjum
flesta daga vikunnar, en um þriðj-
ungur var svo háður þessum leikj-
um að jaðrar við fíkn.
í ljós kom að litlu tölvufíklarnir
komast í eins konar vímu sem tal-
in er stafa af þeirri stöðugu
spennu sem fylgir tölvuleikjum,
en þegar víman er að renna af
þeim koma í ljós fráhvarfsein-
kenni, áþekk þeim sem reykinga-
og ofdrykkjumenn finna fyrir
þegar þeir fá ekki fíkniefnið sitt.
■
Brugðist til varnar
Stjána bláa og Barbí
Kuveit - Reuter
Strangtrúaðir múslimar hafa illan
bifur á því sem þeir kalla „tákn-
myndir vestrænnar úrkynjunar",
en þar eru í brennidepli fyrirbæri
eins og Barbí og Stjáni blái. Hefur
þess verið krafist, m.a. í Kúveit, aö
Stjáni hverfi af sjónvarpsskjánum
og Barbí úr búðargluggum, ásamt
Ken og öllu því liði.
Nú hafa hófsamari öfl í Arabaríkj-
unum brugöist hart við þessari
Sígaunar
„illgirnislegu áróðursherferð fá-
einna róttækra öfgasinna sem
reyna aö verja íslamskar dyggðir á
fölskum forsendum," eins og seg-
ir í grein sem birtist á forsíðu Arab
Times. Þar er vitnað í skrif blaös
sem kemur út á vegum strangtrú-
aðra múslima þar sem því er hald-
ið fram að Stjáni blái gefi börnum
slæmt fordæmi með því að stíga í
vænginn við Gunnu stön'g og
þeim erjum sem hann á við von-
biðilinn Brútus. Fyrir skömmu
birtust harkalegar árásir á Barbí í
forystugrein þessa rits þar sem því
var haldið fram að kvenlegt vaxt-
arlag hennar hefði slæm áhrif á
börn. ■
Handtekinn fyrir símaat
Tókíó - Reuter
Susumi Suzuki, 46 ára gamall,
hefur verið handtekinn fyrir
óstöðvandi símaat sem hann hef-
ur gert í fyrrverandi vinnuveit-
anda sínum, sem er gosdrykkja-
framleiðandi í Takazaki. Suzuki er
sakaður um að hafa hringt 6.489
sinnum í fyrirtækið á 35 daga
tímabili í ágúst og september.
Fyrirtækið sagöi honum upp
störfum eftir ab upp komst að
maðurinn hafði fengið skilorös-
bundinn fangelsisdóm fyrir ab
gera 8.500 sinnum símaat í borg-
aryfirvöldum í Tagasaki á árinu
1993.
Suzuki var uppsigað við ráða-
menn borgarinnar eftir að starfs-
umsókn hans var hafnað í ráð-
húsinu í Takazaki fyrir tuttugu ár-
um. ■
Börnum hætt við
fíkn í tölvuleiki
sóknum
Varsjá - Reuter
Evrópuráðið hefur skorað á rík-
isstjórnir aðildarríkja sinna ab
standa vörð um mannréttindi
sígauna, en þeir hafa um aldir
sætt fordómum og beinum of-
sóknum fyrir það eitt að vera af
þjóöarbroti sígauna. „Það þarf
tryggja pólitísk, efnahagsleg og
félagsleg réttindi sígauna,"
sagði Peter Leuprecht, abstoðar-
framkvæmdastjóri Evrópuráðs-
ins, er hann gerði grein fyrir
máli þessu í gær. „Sígaunar eru
berskjaldaður og mjög illa
staddur minnihlutahópur,"
sagði hann og benti á að einna
verst væru sígaunar staddir í
löndum Mið- og Austur-Evr-
ópu. Talib er að sígaunar í Evr-
ópu séu milli sjö og átta millj-
ónir. Á síðustu árum hefur
fjöldi þeirra flúið frá hinum
stríðshrjábu svæðum á Balkan-
skaga, einkum frá Bosníu. Le-
uprecht sagbi á ráðstefnu um
kjör sígauna sem haldin er í
Varsjá, að þessir flóttamenn
ættu mjög erfitt uppdráttar er
þeir leituðu hælis í Vestur-Evr-
ópu. „Engi'nn vill sjá þá," sagði
hann. .............■
mundu!
«a aa
' ISJO
símanúmer
Tilkynning til allra fyrirtækja!
Þann 3. júní 1995 verða öll almenn símanúmer á landinu sjö stafa. Á
höfuðborgarsvæðinu verða nýju sjö stafa sfmanúmerin tekin í notkun
1. desember n.k., en jafnframt verður hægt að nota gömlu símanúmerin
samhliða þeim nýju fram til 3. júní 1995.
Á höfuðborgarsvæðinu er breytingin þannig að talan 55 bætist framan
við fimm stafa númer og 5 framan við sex stafa númer. Ekki þarf lengur að
velja svæðisnúmer og þegar hringt er frá útlöndum á að velja sjö stafa númerið
strax á eftir Iandsnúmerinu 354.
Dœmi utn það hvemig númer á höfuðborgarsvœðinu breytist:
hringt innan svæðis 26000 verður 552 6000
hringt frá öðrum svæðum 91 26000 verður 552 6000
hringt frá útlöndum 354 1 26000 verður 354 552 6000
Fyrirtækjum, sem eru að huga að útgáfu
bréfsefna, bæklinga, fréttabréfa o.þ.h., er
bent á að kynna sér nýútkominn bækling þar
sem gerð er nánari grein fyrir breytingunum.
PÓSTUR OG SÍMI