Tíminn - 22.09.1994, Síða 10

Tíminn - 22.09.1994, Síða 10
10 Fimmtudagur 22. september 1994 Sigurbur Sveinsson Fæddur 11. febrúar 1922 Dáinn 4. september 1994 Afi minn. Þegar ég kvaddi þig í júní á tröppunum á Hjallaveginum, hvarflaöi það ekki að mér að það yröi í síðasta skipti. Þú, sem hefur alltaf verið fastur punktur í tilver- unni hjá mér. Alltaf til staðar og ávallt reiðubúinn að gefa manni góð ráð. Viö Friðgeir vorum með þér í hestamennsku og þau ár komu svo sannarlega upp í huga minn, þegar Ingibjörg systir hringdi austur og sagði mér að þú værir allur. Þú gafst mér svo mikið og mér þótti svo vænt um þig, elsku afi minn. Þó fjarlægðin milli okkar síðasta ára- tuginn hafi verið mikil, þá veit ég að hugir okkar stóðu miklu nær. Þú hafðir alltaf trú á mér, sama hvað á gekk. Fyrir það þakka ég þér. Fyrir 20 árum fór ég með ykkur ömmu, Sigurveigu og Friðgeiri í sumarbústað á Einarsstöðum á Fljótsdalshéraði. Sú vika stendur eftir ljóslifandi í minningunni. í hvert skipti, sem ég ek þar framhjá, minnist ég þessara góðu tíma með söknuði. Ég minnist útreiðartúr- anna sem við fórum í saman. Ég minnist þess sérstaklega hvað við þrír, ég, þú og Friðgeir, vorum mikl- ir vinir, þó svo að 40 ár stæðu á milli. Þessi ár koma ekki aftur, en ég mun alltaf geyma þau í hjarta mínu. Elsku afi minn. Þakka þér fyrir allt. Elsku amma og þið öll, sem syrgið yndislegan eiginmann, fööur, afa og vin. Tíminn er sagður lækna öll sár. Vonandi getum við sætt okkur við þetta með tímanum. En eitt er víst, afi minn, að minningin um þig og þín verk verður vel geymd í hjarta mínu. Hvíl þú í friði. SigurðurÞór Kjartansson Lokið hefur göngu þessa lífs tengdafaðir okkar og vinur, Sigurð- ur Sveinsson rafvirkjameistari, lengi kenndur við Rafver hf., sem var starfsvettvangur hans í áratugi. Með Sigga er genginn einn af þess- um stórbrotnu mönnum, sem settu sterkara svipmót á samtíð sína en margur annar. Hann var Skaftfellingur, hár, beinn, stórskorinn, fasið rólegt og yfirvegað og ekki minnumst við þess að hafa séð hann reiðast sem kallast gæti, hann lagði mál sitt fram umbúðalaust og ákveðið. Ekki stóð hann hlutlaus hjá, þegar börn- in stofnuðu heimili og byggðu sér bú, Siggi var alltaf innan seilingar með liðveislu og leiöbeiningar. Það var gott að eiga slíkan vin að á lífs- leiðinni. Ljúft og blítt hjarta Sigga voru þó þeir kostir sem flestir nutu í fari hans. Þar var nægt rúm fyrir alla sem vildu, þar á meðal fjögur ung fööurlaus böm sem Siggi tók að sér og þegar hann síðar eignaðist dóttur með móður þeirra, eftirlif- andi eiginkonu sinni, Sigríði Magn- úsdóttur, gerði hann bömunum öllum ávallt jafnt undir höfði. Það var því síðar eðlileg ásókn barna- barnanna til afa á Hjalló, sem alltaf hafði þolinmæði og blíöu fyrir ung- ana sína. Þau voru ófá sporin sem farin voru yfir til afa og ömmu í næsta hús, það færði honum ómældar ánægjustundir, eins og aðrar samverustundir meö barna- börnum sínum í gegnum árin. Erfið veikindi Sigga, sérstaklega síðasta áratuginn, voru honum þungur róður, en þar sýndi sig kjarkurinn og seiglan. Hann haföi sig upp úr þeim aftur og aftur, möglunarlaust og án þess að kvarta. En fastur og vís þáttur lífsins, dauðinn, hefur nú bankað á dyrnar. Siggi kvaddi með reisn og æðru- leysi, eins og honum var líkt. Með tár á vanga og harm í hjarta kveðj- um við Sigga með söknuði, ekkja hans, . Sigríður,, börnin fimm, l < á t a i V i < l i I i » I l l l I i ' t MINNING tengdaböm, barnabörn og aðrir ættingjar. Með gleðiblöndnum minningum frá liðinni tíö höldum við nú áfram göngu okkar til þess sem koma skal. Drenglyndi Sigga og æðruleysi er okkur góð fyrirmynd, kjarkur hans og seigla til eftirbreytni. Megi minningarnar um góðan dreng vera okkur, börnunum okkar og öðrum gott veganesti um ókomna framtíð. Við sendum fjölskyldu Sigurðar, öllum ættingjum og vinum innileg- ar samúöarkveðjur. Fyrir hönd tengdabama, Sveinn Geir Sigurjónsson Mánudaginn 12. september sl. var til moldar borinn ástkær föðurbróð- ir minn, Sigurður Sveinsson, eða Siggi frændi eins og við systkinin kölluðum hann. Siggi frændi er annar af sjö systkinum sem kveður þennan heim. Eftir fráfall föður míns reyndust Siggi og hans ágæta kona, Sigríður, fjölskyldu minni ómetanleg stoð. Þegar ég hugsa til æskunnar, þá eru það ófáar gleðistundirnar sem viö systkinin áttum á heimili Sigga og Sigríðar eða í bíltúrum og veiðiferð- um meö þeim. Fyrir níu ára feimna telpuhnátu, sem ekki vildi vera hvar sem er, var heimili þeirra ynd- islegt. Þar var alltaf glatt á hjalla og gestkvæmt að sama skapi. Mig lang- ar fyrir hönd okkar systkinanna á Litlalandi að þakka þér, elsku Siggi, fyrir allar þær fjölmörgu gleði- stundir sem þú gafst okkur systkin- unum á æsku- og unglingsárum okkar. Elsku Sigríður, Sigurveig og aðrir aðstandendur, viö systkinin send- um okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Deyr fé, deyja frcendur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sérgóðan getur. (Hávamál) Fyrir hönd systkinanna á Litla- landi, Halla Jörundardóttir Sigúrður föðurbróðir minn lifði sína bernsku og æskuár að Þykkva- bæjarklaustri í Álftaveri. Þó að Álftaverið væri lítil sveit, var fjöl- menni á flestum bæjum og börn og unglingar áttu víða sína jafnaldra, en þar hefur þó orðið breyting á, sem víða í sveitum landsins. Sveitin var þéttbýl og stutt milli bæja, fé- lagslíf var því mikiö og fjörugt, ásamt því aö náið samstarf og sam- hjálp var meðal sveitunga. Á Þykkvabæjarklaustri var kirkja og þar messað reglulega, og komu þar flestir sveitungar saman, mál rædd og veitingar þegnar. Farskóli var þar einnig fyrir nágrannabæi og oft glatt á hjalla. Amma Hildur, móðir Sigurðar, var ljósmóðir sveitarinn- ar, en oft var hún einnig kölluð til ef fæðing gekk illa, jafnt hjá dýrum sem mönnum. Langt var til læknis og vann hún oft ýmis læknastörf. Við þessar aöstæður ólst Sigurður upp og tamdi sér þessa samhygö og var það hans aðal að vera ætíð boð- inn og búinn til hjálpar mönnum og málleysingjum, hrókur alls fagn- aðar og félagslyndur. Systkinin voru sjö og var Sigurður í miðjunni hvað aldur snerti. Eins og algengt var, þurftu börn að vinna við búskapinn strax og þau uxu úr grasi, og féll það í hlut Sig- urðar að vera áfram við búskapinn eftir að flest systkinin voru flutt að heiman. Árið 1945 flutti fjölskyld- an frá Þykkvabæjarklaustri að Skeggjastöðum í Mosfellssveit. Þar stundaði Sigurður búskap, ásamt foreldrum sínum, í fimm ár, en jafnframt vann hann á jarðýtu við að brjóta land til ræktunar, vega- gerð og byggingu annarra mann- virkja. Á þessum tíma, rétt eftir stríðið, var hann einn af frum- kvöðlunum í stjórnun stórvirkra vinnuvéla og tók þátt í þeirri tækni- byltingu sem gjörbreytti þjóðfélag- inu. Lengi vel man ég eft!r Sigurði sem eina bíleigandanum í fjölskyld- unni, og var það mikil hátíð þegar eitthvað var farið í „Siggabíl", hvort sem það var með honum eða bíll- inn fenginn að láni. Á þeim tíma var annars fariö með rútu upp að Grafarholti aö heimsækja ömmu og afa í Pétursborg, með rútu austur í sveit til Steinu frænku eða strætó um borgina. Sigurður nam rafvirkjun hjá Bræðrunum Ormsson hf. og aflaði sér síðan meistararéttinda í þeirri grein. Árið 1956 stofnaði hann ásamt nokkrum starfsfélögum raf- verktakafyrirtækið Rafver hf. Þar starfaði hann síðan á meðan starfs- þrek entist, og var samstarf þeirra félaga meö miklum ágætum og samskipti öll við viöskiptamenn. Unnið var viö almenn rafverktaka- störf, fyrst og fremst þjónustu og viðhald. Þegar fram leið heltust stofnfélagar úr lestinni, en Sigurð- ur, ásamt þeim bræðrum Einari og Jóni Ágústssonum, héldu samstarf- inu áfram. Þab var ekki aðeins ab þarna væri um samstarfsmenn að ræða, heldur ríkti með þeim mikil og einlæg vinátta. Þegar Sigurbur fann starfsþrek sitt fara þverrandi, seldi hann félögum sínum sinn hlut, en hafði þó áfram hjá þeim starfsaðstöbu og kom til vinnu þeg- ar heilsa leyfði og honum hentaði, þar til fyrir einu ári að hann hætti alveg störfum að eigin ósk. Árib 1959 var mesta gæfuár í lífi Sigurðar, er hann hóf sambúb með eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigríði Magnúsdóttur, og á því sama ári eignuðust þau dótturina Sigur- veigu. Með þessu gekk Sigurður í föburstað fjórum börnum Sigríðar frá fyrra hjónabandi. Þetta varð hans mesti auður og auðna, og varð hann þama sannarlega pabbi þeirra og síðar afi fimmtáa barnabarna og langafi sjö barnabarnabarna. í afa- hlutverkinu naut Sigurður sín vel, enda barngóður og skilningsríkur á þarfir litla fólksins. Heimili Sigurðar og Sigríðar á Hjallavegi var opiö öll- um vinum og vandamönnum, og gestrisni mikil og alltaf góbar veit- ingar fram reiddar. Oft var kátt á hjalla í afmælisveislum, enda mikið söngfólk í ætt þeirra beggja. Minn- ist ég þess fyrir tuttugu árum, þegar ég varð stúdent, sama dag og Sigríð- ur varð fimmtug, að eftir stúdents- veislu á mínu heimili var fariö í af- mæli til Sigríðar og var þar mikib fjör og alveg við hæfi við s túdenta- fögnuð. En vinarþel er ekki bara glaumur og gaman, þau hjónin voru líka samtaka í því að fylgjast með öldr- uðum nágrönnum sínum, jafnt sem ættingjum, og veita þeim lið- sinni og umönnun. Ef eitthvað bjátaði á, voru þau fyrst manna til þess að bjóða fram aðstoð sína og umhyggju, og lét Sigurður ekki stabar numið fyrr en viöunandi lausn fékkst á þeim vanda sem við gat verið ab glíma. Sigurður átti við hjartasjúkdóm að stríða og var oft illa haldinn. í apríl 1985 fór hann í aðgerð til London, sem tókst mjög vel, og átti hann eftir þab mjög góð ár. Upp á síb- kastið voru veikindin þó farin að ágerast aftur, og fyrir lá ab á næst- unni ætti hann að fara í nákvæma rannsókn. Þessi veikindi voru þess eðlis, að hann var ávallt við því bú- ; . :íbi ■ tÁi'UiiiL’b'i 'í'Hkti-Atv'iíiL} ' * inn að lífið gæti slokknað fyrirvara- lítið. Meb þessu var lifaö fyrir augnablikib, og þakkaður hver dag- ur sem hann fékk ab vera með fjöl- skyldu sinni og eiginkonu, og end- urspeglaðist þetta í kærleika þeirra í milli. Þaö er í raun merkilegt hvern- ig þessi hávaxni maður bar með sér ákveðinn frið og fögnuð, sem mað- ur skynjaði. Þetta þakklæti fyrir lífið kom fram í óvenjulegum ræktunar- áhuga hans. Það sást best á þeim áhuga hans á því að koma ungviði til, hvort sem um uppeldi trjá- plantna af fræi var að ræða, ræktun silungaseiba og síðast en ekki síst í umhyggju hans fyrir ungviði fjöl- skyldunnar. Tveim vikum fyrir andlát Sigurðar hittust systkinin uppi í Skorradal í sumarbústað foreldra minna og áttu þar góða helgi. Þeir bræður, eiginkonur og systur, sátu þar fram á nótt og ræddu saman, og veit ég að þessi helgi er og verður mikils virði fyrir pabba, enda hafði hann á orði að nú væri svo komið á aldurs- skeiði þeirra, að spurning væri um hve lengi væri hægt að ná þeim saman. Þó ab þetta yrði að áhríns- orðum, gat engum til hugar komið að svo snöggt yrði um eitthvert þeirra, en enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Meðal systkina Sigurðar er nú skarð fyrir skildi og verður hans sárt saknað, en sorginni verður þó yfirsterkari minning um góðan dreng. Mínar innilegustu samúbar- kveðjur sendi ég og fjölskylda mín Sigríði og fjölskyldu og föðursystk- inum. Óskar Einarsson Þegar ég minnist elskulegs tengda- afa míns, Sigurðar Sveinssonar, er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að vera samferða hon- um síðastliöin 16 ár, því manni eins og Sigga afa kynnist maður ekki nema einu sinni á ævinni. Siggi afi var í mínum huga mikill maður, sem kunni að sýna ástúð og um- hyggju. Ást hans og umhyggja fyrir Siggu ömmu og okkur öllum í fjöl- skyldunni náðu út fyrir allt, velferb okkar gekk fyrir hans eigin heilsu, enda búum við að slíkri umhyggju alla ævi. Ég lærði margt af honum Sigga afa, hans stóri faðmur stób mér alltaf opinn frá upphafi og lífsspeki þeirra Siggu ömmu og Sigga afa var sú að við ættum öll að vera góð hvert við annað. Það er margt sem kemur upp í huga manns þegar mabur kveður góban mann, hann var ávallt sá klettur sem var til staðar og innan handar ef eitthvað bjátaði á, alltaf reiðubúinn að hjálpa. Hún Sigga amma er mér einkar kær, enda nýt ég ávallt hennar ást- úðar. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst fólki eins og Siggu ömmu og Sigga afa, sem voru vel liðin af öll- um sem til þekktu. Ég er þakklát fyr- ir að eiginmaður minn fékk að mót- ast í slíku umhverfi sem ríkti hjá þeim hjónum. En nú er komib að leiðarlokum, öllu er afmörkub stund. Því vil ég þakka Sigga afa allan þann velvilja, umhyggju og elskulegheit við mig alla tíb. Minningin um einstakan tengdaafa, vin og langafa sona minna mun fylgja mér um ókomin ár og verða ljós í lífi okkar allra. Elsku Sigga amma og fjölskyldan fííUl^Árirí’í^i'j? i !,i’i'l ’j* tG. i) *L** öll, Guð veri með okkur og styrki á sorgarstund. Blessuð sé minning Sigurðar Sveinssonar. Bryndís S. Halldórsdóttir Þegar fjölskyldan sameinabist og hver hughreysti annan á þeirri sorgarstund, þegar hann afi minn andaðist, þá streymdu yfir mig allar þær dýrmætu minningar sem ég á um hann. Öll þau forréttindi sem ég fékk sem ungur drengur að alast upp hjá ömmu og afa á Hjalló, hjá manni eins og honum, sem gaf mér allan þann kærleik, ást og um- hyggju sem einn maður getur veitt. Hann var mér ekki bara afi, heldur líka ráðgjafi alla tíð, meistari í iðn minni og mikill félagi, og í raun var hann mér alla tíð sem faðir. Afi var einstaklega jafnlyndur, kærleiksrík- ur og ráðhollur öllum þeim sem hann þekktu, sama hvort það voru vinir eða venslafólk. Þessir góðu eiginleikar hans endurspeglast svo oft þegar ég hitti gamla félaga hans á förnum vegi, allir sem einn bera hlýjan hug til þessa manns. Nú, þegar hann afi minn kveður, vil ég þakka honum allar þær dýr- mætu og ógleymanlegu stundir sem í minningunni munu fylgja mér um ókomna ævi. Söknuðurinn er sár, ég bið Guð að styrkja ömmu mína sem og okkur öll, sem syrgj- um hann. Hvíl í friði, elsku afi. Friðgeir Jónsson Þann 12. september sl. var til mold- ar borinn Sigurður Sveinsson. Þegar fréttin um andlát hans barst, varð sorgin þung í brjóstum okkar. Hann var farinn, hann Siggi frændi. Minningarnar um uppáhalds- frændann okkar streymdu fram og efst í huga okkar er þakklæti fyrir að hafa fengið að njóta samvista við þennan góða mann. Okkur er ógleymanlegt þegar Siggi og Sigga komu með Sigurveigu frænku í sveitina, þegar við vorum litlar telpur. Ástúðin og hlýjan, sem einatt streymdi frá þeim, var alveg einstök. í minningunni er eins og alltaf hafi skinið sól þessa daga, og geislarnir sem hana umlykja teygja sig í gegnum árin sem við höfum átt með Sigga. Seinna, þegar leiðir okkar lágu til Reykjavíkur til náms, bjuggum við skammt frá heimili Sigga og Siggu á Hjallaveginum. Heimili þeirra var okkur alltaf opið og sóttum við þangab oft. í hugum okkar var þab stabur kærleika og hlýju og var ávallt eins og við vær- um að koma heim til okkar þegar þangað kom. Nutum viö þar ekki eingöngu góðvildar og hjálpsemi Sigga, heldur og allrar hans fjöl- skyldu sem lét okkur alltaf finnast eins og við værum einar af þeim. Einn vetur hýsti hann tvo hesta fyr- ir okkur og fórum við oft upp í hest- hús meb honum. Hann hafði ein- stakt lag á dýrunum og líklega kynntumst við Sigga best við gegn- ingar og útreiðar. Það var einstakt að skynja þá gagnkvæmu virðingu sem átti sér stab á milli manns og hesta. Siggi átti lengi við erfiba heilsu að stríða. Margoft hefur stabið tæpt og fjölskyldan horfst í augu við alvöru lífsins. En viljastyrkurinn og trúin á lífiö, styrkur og ástúð ástvina hans og samheldni fjölskyldunnar hefur hjálpaö honum í gegnum hverja raun. Það var ógleymanleg sjón fyr- ir tveimur árum, þegar Siggi mætti meö alla fjölskylduna á ættarmót afkomenda afa síns og ömmu frá Hlíð í Skaftártungu. Það var stór og fríður hópur og barnabörnin komu langa leið til að gleðja afa sinn. Þab var ekki að ástæðulausu sem stoltiö skein af honum frænda okkar þá. Farinn er yndislegur eiginmaður og vinur, faðir, fósturfaðir og afi. Góður Guð styrki Siggu og alla fjöl- skylduna í sorg þeirra. Eftir lifir minningin, sem er okkur öllum svo dýrmæt. Sigurveig Þóra ........ogHildur #&• t'Ag ■ óh-ítídi

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.