Tíminn - 29.09.1994, Blaðsíða 10

Tíminn - 29.09.1994, Blaðsíða 10
l'd Sigurpáll Vilhjálmsson Fæddur 15. júní 1933 Dáinn 21. september 1994 Sigurpáll Vilhjálmsson viö- skiptafræðingur fæddist 15. júní 1933 í Sandfellshaga í Öx- arfjarðarhreppi, N-Þing. Hann lést á Fjóröungssjúkra- húsinu á Akureyri 21. septem- ber síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 29. september. Foreldrar hans voru Vilhjálm- ur Benediktsson, bóndi í Sand- fellshaga, f. 10. maí 1879, d. 26. mars 1938, og húsfreyja hans, Guðrún Jónsdóttir, f. 29. júlí 1897, d. 25. ágúst 1968. Eftir lát Vilhjálms fór Guðrún með dóttur sinni Marenu til dvalar hjá frændum sínum í Klifshaga, en Sigurpáll til frændfólks á Syðri- Bakka í Kelduhverfi. Síðar voru þau öll um skeið í Nýhöfn og Leirhöfn á Sléttu. Eftir þab gerbist Guð- rún ráðskona í Núpasveitar- skóla og voru börnin þar með henni. Síðar voru þau öll um langt skeið á heimili foreldra þess er þetta ritar í Sandhólum á Kópaskeri. Síðustu árin áður en hún fluttist til Akureyrar bjuggu þau í húsi frænda síns, Þorsteins Björnssonar að Víbir- hóli á Kópaskeri. Árið 1967 fluttist hún með syni sínum tii Akureyrar, en dóttirin var þá gift og farin ab heiman. Sigurpáll lauk stúdentsprófi frá M.A. 1954, kandídatsprófi í viðskiptafræbi frá H.í. árið 1960 og framhaldsnámi í Nor- egi 1961. Á námsárunum var hann í byggingarvinnu og við ýmis önnur störf hjá K.N.Þ. á Kópa- skeri. Að námi loknu var hann þar árin 1960-1967 við skrif- stofustörf, en eftir að hann fluttist til Akureyrar var hann í 3 ár fulltrúi skattstjóra Norður- landsumdæmis eystra og starf- aði síöan hjá iðnaðardeild SÍS á Akureyri til 1993. Síðasta árið fékkst hann við ýmis sérverk- efni. Árin 1981-1984 var hann fulltrúi starfsmanna á Akureyri í stjórn SÍS. 1. júlí 1972 kvæntist hann Erlu Hrönn Ásmundsdóttur, f. 30. sept. 1941, og gekk þrem t MINNING börnum hennar í föburstað, en Erla var ekkja. Þetta var mikið gæfuspor, sem gaf byr hinu besta í fari hans. Saman eign- uöust þau einn son, Rúnar, f. 15. des. 1972, sem er lands- kunnur skákmabur og spurn- ingakeppandi í sjónvarpi, eins og fabir hans var. Sigurpáll og Erla gerðu sér glæsilegt heimili að Kringlu- mýri 10 á Akureyri. Þau voru samhent, dugleg og ráðdeildar- söm. Gott var að sækja þau heim og njóta hlýju umhverfis °g gestgjafa. Það má um Sigurpál segja, að hann var sannkallaður gleði- gjafi. Glettin glabværb hans, blönduð aivöru, góðvild og ein- stakri tryggð, olli því að alltaf fóru menn glaðari og bjart- sýnni af fundi hans en þeir komu. Söm voru áhrif af sím- tölum, sem undirritaður átti tíðum við hann. Við systkinin og börn Hall- dóru og Sigurbar í Núpasveitar- skóla litum alltaf á þau Sigurpál og Marenu eins og þau væm af okkar fjölskyldum og hygg ég að þetta hafi verið gagnkvæmt. Sérstaklega kemur mér í hug órofa tryggð þeirra systkinanna viö Friðrik heitinn bróbur minn, og móbur mína til loka hennar langa stríðs vib þann illa sjúkdóm, sem einnig lagbi Sigurpál að velli á ótrúlega skömmum tíma. Sigurpáll var mebalmaður á hæð, grannvaxinn og bar sig vel. Hann var ljós yfirlitum, svipurinn hreinn og ákveðinn. í heild baub hann af sér góban þokka, sem laöaði bæbi unga og aldna. Hann var ekki heljar- menni að burðum, en þó nógu sterkur og bjó yfir því sem meiru varðar, seiglunni, sem hann sýndi til hinstu stundar. Uppgjöf fyrir erfiðleikum var ekki í gebi hans. Ég man að hann nefndi oft orð, sem sonur minn Karl, þá 5 ára gamall, sagði við hann, en Sigurpáll leyfði honum ab hjálpa sér við timburstöflun og þeir héldu hvor undir sinn plankaendann: „Kallar eru nú seigir." Sigurpáll var afburða náms- mabur, og hefbu honum flestir vegir verib færir. Þar fór saman eðlisgreind, dugnabur og sam- viskusemi. Flest lék í höndum hans og hug. Ef nota má svo stórt orð, tel ég að hann hafi verið vitur. Víðlesinn var hann, margfróöur og stálminnugur. Hann átti sér jafnan áhugamál utan starfs. Þar bar hæst ýmsan þjóðlegan fróðleik. Ég veit að í fórum hans er mikið af skemmtilegum kveðskap og gamansögum, sem fæst hefur á prent komib. Og nú hinn seinni ár hefur hann mikið grúskað í ættfræöi. Margar sendingar úr þessu safni hefi ég þegiö og raunar margir fleiri. Þegar ég var 14 ára gamall viö störf í sláturhúsi K.N.Þ., frískur og orðhvatur, tók mig tali Höskuldur Stefánsson frá Syðri- Bakka, en hann og Sigurpáll voru systrasynir. Hann sagbi vib mig af sinni eðlislægu hóg- værð: „Kanntu þetta, Björn minn?" Síðan hélt hann áfram og hafði fyrir mér heilræöavísu séra Hallgríms: Utillátur, Ijúfur, kátur, kik þér ei úr máta. Varast spjátur, hceöni, hlátuf, heimskir menn sig státa. Þessu atviki gleymi ég ekki. Ef einhver, þá hefur Sigurpáll lifaö í samræmi við þessa forskrift. Þegar hann kemur ab Himna- ríkishliði, þarf hann áreiðan- lega engu að kvíða. Reikningur hans er eíalaust með vænni innistæðu. Þennan einstaka ágætismann, bróður og vin kveö ég með trega. Ég bið Almættið hugga og styrkja Erlu, börnin og abra ástvini hans. Undir framangreint vilja taka allir í fjölskyldu minni, systkini mín og foreldrar, svo og afkom- endur Halldóru og Siguröar í Núpasveitarskóla. Bjöm Þórhallsson Fundum okkar Sigurpáls bar fyrst saman á stjórnarfundi hjá SÍS, að mig minnir haustib 1981. Hann var þá fulltrúi sam- vinnustarfsmanna á Akureyri. Með okkur tókst góður kunn- ingsskapur og varb brátt nánari og meiri eftir því sem kynni jukust. Árið 1982 var aldarafmæli samvinnuhreyfingarinnar á ís- landi. Af því tilefni var stjórn- armönnum og mökum þeirra boðið til Bandaríkjanna í or- lofs- og skemmtiferð ab skoða m.a. dótturfyrirtækið Iceland Seafood, er þá var í örum vexti og stendur enn meb blóma, að ég held. Auk þess voru og ýmsir merkir staðir sóttir heim, sem of langt mál yrði upp að telja. Þetta var um það bil viku ferð. í henni tókust nánari kynni meðal þessa hóps en annars hefbu orðið. Þeirra kynna gætir enn í dag á ýmsan hátt. Þau hjónin Sigurpáll og Erla annarsvegar og vib Elladís hins- vegar bundumst þá þeim vin- áttuböndum er ei síban hafa rofnað. Seint verða fullþakkaðar þær ánægju- og gleðistundir er við höfum saman átt síðan. Oftast vorum við þiggjendur, en þau veitendur í samskiptum okkar, en þau voru slíkir höfðingjar að manni fannst stundum við gera þeim stóran greiða er við nídd- umst hvað mest á greiðasemi NORDJUNEX- 7 994: Skemmtilegri frímerkjasýningu lokib Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, heimsótti sýninguna. Hér er hún ásamt Þorsteini Pálssyni framan viö kassana sem geymdu mynt- og minnispeningasafn hans. Tíminn/Þorsteinn Páisson Fyrsta norræna unglingasýn- ing á íslandi er nú yfirstaðin og þótti með afbrigðum skemmtileg að efni til og uppákomum. Helsta uppákoman var efa- laust keppni unglinga frá öll- um Norðurlöndunum um „Elginn", það er að segja verð- launagrip Nordjunex-sýning- anna, en hann er farandgrip- ur. íslendingar unnu hann í fyrsta sinn í Danmörku á síð- asta ári og urðu þar með Norðurlandameistarar í frí- merkjafræöum unglinga. Nú kom að þeim að verja tit- ilinn og tókst þab mjög vel. Liðstjóri íslenska hópsins var Kjartan Þór Þórbarson, en keppendur voru þeir Steinar örn Friðþórsson, Olafur Kjart- ansson og Björgvin Ingi Ólafs- son, en hann var sá eini sem var í liöinu bæbi árin. Hægt var að ná 30 stigum í keppn- inni og hlutu íslendingar 26 stig. Svíar hlutu svo 22 stig, Danir 20, Finnar 18 og loks Norðmenn 10. Ef við síðan snúum okkur að frímerkjasöfnunum, sem voru þarna til sýnis, þá hiaut Staff- an Ferdén frá Svíþjóð hæstu verðlaun sýningarinnar, stórt gyllt silfur. Norðmenn og Sví- ar hlutu 2 gyllt silfur hvorir, en loks í stóru silfri komust ís- lendingar ab. Þar hlaut Guðni Fr. Árnason verðlaun fyrir safn sitt, „Kristófer Kólumbus og fundur Ameríku". Var hann vel að silfurverðlaunun- um kominn, en hlaut auk þess heiðursverðlaun ís- lenskra mótífsafnara. Gísli Geir Harbarson með „Tón- skáid" og Kári Sigurðsson meb „Merkir íslendingar" fengu silfrab brons og duttu þannig FRÍMERKI SIGURÐUR H. ÞORSTEINSSON nibur vegna breyttra dóm- reglna. Þrír abrir Islendingar, er sýndu, fengu viðurkenn- ingarskjöl. Sérstaka athygli gesta vöktu heiðursdeildin með 8 úrvals- söfnum og sýning Þorsteins Pálssonar á mynt og minnis- peningum, en þar átti hann marga sjaldgæfa eins og það er kallað. Allir erlendu gestirnir luku upp einum munni um ágæti sýningarinnar og þótti það al- ger hápunktur heimsóknar- innar til Islands, þegar forset- inn kom í heimsókn, gekk um á meðai þeirra og talaði við þá, tók í hendi þeirra og gaf eiginhandaráritun. Þeir skildu vel að svona vingjarnlegur forseti þyrfti ekki vopnaða gæslu. ■ Fimmtudagur 29. septerriber 1 $94 þeirra og gestrisni. Mig langar í stuttu máli að rifja upp þær samverustundir, sem efstar eru í huga. Nokkurra daga dvöl hjá þeim í bústaðn- um þeirra, „Lækjarlundi" í Ax- arfirði, fyrir nær 11 árum. Þar var Sigurpáll á heimavelli og kunni á öllu skil, bæði landi, fólki og sögu. Ekið var á Viðarfjall, en þaðan er útsýni mikið og fagurt. Kom- ið var við á Raufarhöfn í glaða- sólskini. Gjörður var á stuttur stans, er farib var yfir heim- skautsbauginn. Síban ekin slétt- an sem leið lá og komið að Leirhöfn og þegnar veitingar. Þar var Sigurpáll gagnkunnug- ur og fór þar oft í göngur og réttir mörg haust. Um kvöldið, þegar heim var komið í bústað, var glebskapur mikill og góður. Þar var sungið út í hausthúmið af veröndinni. Ab morgni var haldið til Akur- eyrar og hinn næsta dag heim að Melum. Öðru sinni óku þau með okk- ur vítt og breitt um Eyjafjörð- inn að Villingadal og um Leyn- ishóla. Út á Grenivík, Sval- barbseyri, til Dalvíkur og eitt sinn til Siglufjaröar á Síldaræv- intýrið. Hér er aðeins stiklab á stóru, en á þessu má sjá að margan næturgreiðann höfum við af þeim þegið, ab annarri fyrir- höfn ótaldri. Sem betur fór gátum vib stundum greitt fyrir þeim og fengið þau í heimsókn. Ég minnist þess t.d. að okkur tókst að leiða saman hesta þeirra Sigurpáls og Kristmundar á Giljalandi í Haukadal vestra. Kristmundur háfði þá með höndum vísnaþátt fyrir Tím- ann. Eftir það mun Kristmund- ur oft hafa íeitað efnisfanga hjá Sigurpáli. Eg minnist þess og að við ók- um með þau hjón eitt sinn síð- sumars og sýndum þeim þrjú fjallabýli í Hrútafirði, er farið höfðu í eyði á fyrri helmingi þessarar aldar. Um haustið hringdi hann í mig eitt sinn sem oftar og tjáði mér að þessi för og dagur væri eftirminnilegastur af frídögum sumarsins. Þetta þótti okkur hjónum ákaflega gaman að heyra. Hér hafa nú í sem fæstum orð- um veriö raktar minningar frá liðnum samverustundum. En hvað var það í raun er oili því að samvistir við Sigurpál voru svo heillandi er raun bar vitni? Því er erfitt ab svara í stuttu máli og veröur kannski aldrei gert svo viðunandi sé. Þó er víst að hin hæga ljúfmennska, leiftrandi gáfur, frábært minni og alveg framúrskarandi frá- sagnarlist, krydduð léttri kímni, áttu þar drjúgan hlut. Þekking hans á landi og þjób, lífi og starfi kynslóbanna, var og þung á metum. Hann var sannkallaöur fræbasjór og fjöl- hæfni hans á því sviði átti sér lítil eða engin takmörk. Kannski var það þetta eða eitt- hvað þessu skylt. Éf til vill ekki. Má vera ab allt þab, er að fram- an er skráö, sé aðeins hismið um kjarnann, þann eina og sanna, innan umbúðanna. Það var bara hann sjálfur, andi hans, hib innra „sjálf", sem var segullinn er að sér dró. Þetta mun vera það sem kallast per- sónutöfrar, en þá átti hann í ríkum mæli. Eins og áður sagði var Sigur- páll mikill fræbasjór. Hann var enda sjálfkjörinn í keppnislið þeirra Akureyringa á hinu and- lega sviði. Hann var einstakur vísnavin- ur, en vildi aldrei vib kannast sköpun sína á því sviði. Þá full-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.