Tíminn - 30.09.1994, Page 2

Tíminn - 30.09.1994, Page 2
2 Wmimi Föstudagur 30. september 1994 Tíminn spyr... Er trúver&ugt eftir þa& sem und- an er gengib ab þeir jón Baldvin og Cubmundur Arni Stefánsson leggi fram tillögur um si&bætur í ísienskum stjórnmálum? Lára V. Júlíusdóttir lögfræ&ingur: Batnandi mönnum er best aö lifa. Það lofar í sjálfu sér góðu að þessir menn ætla að taka sig sam- an um að bæta siðferðiö í pólitík- inni og ég fagna öllum skrefum í þá átt, hversu stór eða smá sem þau kunna að vera. En ég læt trú- verðugleikann liggja á milli hluta. Ólina Þorvar&ardóttir, fyrrv. borgarfulltrúi: Það er auðvitað guðs þakkarvert þegar menn vilja láta gott af sér leiða. Varö ekki Sál hinn syndugi að heilagasta postulanum Páli? Því skyldi tími kraftaverkanna vera liðinn? Steingrímur J. Sigfússon alþingisma&ur: Ef ég fae að svara þessu með tvenn- um hætti þá mundi ég segja í hálf- kæringi að það sé alveg sérlega trú- verðugt að vanir menn með jafn- mikla reynslu í vafasömum emb- ættisathöfnum og þeir, leiöi slíkt starf. En ef ég á að segja alveg eins og er og ef þeir ætla virkilega að reyna að sleppa frá því sem þeir standa fyrir í stjórnmálum á líö- andi stundu með því að benda á að ýmislegt kunni nú að hafa miður farið hjá öðrum á öðrum tímum, þá er það eins og kóróna á þennan farsa. Það má vera satt og rétt en það leysir þá ekki undan þeirri ábyrgð og þeirri skyldu sem á þeirra herðum hvílir nú. Því þab eru þeir sem fara með völdin í dag og það eru þeirra embættisverk sem eru í kastljósinu og svo einföld er nú þjóðin ekki að hún kaupi einhverj- ar slíkar brellur. Ef niburstaban á morgun ver&ur hins vegar sú að þeir biðjist bá&ir lausnar þá horfir málib öðruvísi við. En það er ekki hægt að svara þessu öðruvísi en með þessum fyrirvörum í ljósi þess að niðurstaða morgundagsins ligg- ur ekki fyrir. Undanþágur frá 6-mánabareglunni rœddar á fundi tryggingaráös í dag: Sigurður Rósberg vinnur kerfissigur í barattu sinni Á fundi tryggingará&s í dag ver&a teknar fyrir undanþágur á sex mánaba reglunni sem gildir um íslendinga sem koma til landsins eftir dvöl erlendis. Starfandi heilbrigbisráðherra, Össur Skarphébinsson, sagði í sjónvarpsfréttum í gærkvöldi a& fljótlega yr&i leyst úr málum Sigur&ar Rósberg Traustsonar, sem hefur liðið fyrir sex-mán- aða regluna. Frá því lögin voru sett hafa nokkrir íslendingar me& langvinna sjúkdóma þurft að borga fyrir alla sína læknis- hjálp sjálfir. í almannatryggingalögum segir ab íslendingar sem flytji til lands- Ottar Birting: Landsbank- inn sagði nei Landsbanki Islands synjaði í gær útgerð Ottars Birtings um 12,5 milljóna króna banka- tryggingu vegna töku skips- ins vi& meintar ólöglegar vei&ar á Svalbar&asvæ&inu. Þessi neitun bankans gerir það að verkum að útgerb skipsins verður að leita annarra leiba til ab útvega naubsynlega banka- tryggingu, en verðmæti aflans um borð er metið á um 28 milljónir króna. Hinsvegar voru engin vand- kvæði hjá útgerð Björgúlfs EA að útvega 13 milljóna króna bankaábyrgð og hélt skipib frá Tromsö í fyrrakvöld til veiða í Smugunni. ■ ins eftir dvöl í löndum utan EES njóti ekki sjúkratryggingar fyrr en að sex mánuðum liðnum. í þeim segir jafnframt ab ráðherra geti sett reglur um undanþágur að fenginni tillögu tryggingaráðs. Frá því að lögunum var breytt hefur verið rætt um að setja slíkar reglur en af því hefur ekki orðið. Lagabreytingin hefur bitnað illa á langveiku fólki sem hefur komið heim til að njóta stuðnings fjöl- skyldunnar í veikindum sínum og staðið frammi fyrir því að þurfa að borga fyrir alla læknishjálp sem það þarf á að halda. Sigurður Rósberg Traustason kom til íslands fyrir þremur vik- um eftir að hafa búið í Los Ange- les í átta ár. Sigurbur greindist HlV-jákvæður fyrir fjórum árum og þarf því á reglulegri læknisað- stob að halda. Sigurður Rósberg rak eigið fyrir- tæki í Los Angeles, blómabúð og kaffistofu þar til í jarðskjálftanum sem reib yfir borgina í janúar á þessu ári. í Los Angeles bjó Sig- urbur á efri hæðinni í tveggja hæba húsi en kaffistofan var á neðri hæöinni. í jarðskjálftanum eyðilagðist allt innbú kaffistof- unnar og þar með aleiga Sigurbar. Bandaríska ríkisstjórnin veitti þeim sem misstu eignir sínar bæt- ur eftir skjálftann en skilyrði þess var ab skila inn skattaskýrslu frá rekstrinum þrjú ár aftur í tímann. Þar sem Sigurbur hafði aðeins rek- ið fyrirtækið í eitt ár fékk hann engar bætur og stóð uppi eigna- laus mabur. Eftir þessa viðburði segist Sigurður hafa farið að hug- leiða að koma heim. Fyrir þremur Sighvatur skipar krata og eiginmann lyfsalans sem stjórnarformann Sjúkrahúss Siglufjaröar: Sibgæbi krata í algleymi vor en Sigurður var skipaður á sínum tíma af Guðmundi Bjarnasyni, þáverandi heilbrigb- isrábherra. En alls hafði Sigurb- ur verib í stjórn sjúkrahússins í 20 ár. Þessi skipan Sighvats hefur komið heimamönnum dálítib á óvart því fyrr í sumar hafði Jón Sæmundur Sigurjónsson, fyrr- verandi þingmaður krata í Norðurlandskjördæmi vestra og núverandi deildarstjóri í heil- brigðisráðuneytinu, verið gerð- ur út af örkinni til að forvitnast um það hjá Sigurði hvort hann hefði áhuga að vera áfram stjórnarformaður. Því játti Sig- urður og taldi áhuga ráðherra vera kvittun fyrir vel unnin störf. Skipan í stjórn sjúkrahúss Siglufjarbar er þannig ab bæjar- stjórn tilnefnir þrjá stjómar- menn, starfsmenn einn og sömuleiðis rábherra sem sí&an staðfestir skipan í stjómina. Eft- ir ákvörðun Sighvats em í stjórn sjúkrahússins tveir kratar, einn framsóknarmaður, einn frá Al- þýðubandalagi og óháðum og einn fulltrúi frá starfsfólki. ■ Sighvatur Björgvinsson heil- brig&isrá&herra hefur skipab alþý&uflokksmanninn Hálf- dán Sveinsson í stööu stjórn- arformanns Sjúkrahúss Siglu- fjar&ar. Hálfdán er jafnframt eiginma&ur lyfsalans í bæn- um en sjúkrahúsib er stór vi&- skiptavinur apóteksins. Kjörtímabil fyrrverandi stjórn- arformanns sjúkrahússins, Sig- urbar Fanndals kaupmanns og sjálfstæðismanns, rann út við sveitarstjórnarkosningarnar sl. Ferjuslysiö í Eystrasalti: Flaggab í hálfa stöng Forsætisráðherra hefur ákveðið að í dag skuli flaggað í háfa stöng vib allar opinberar bygg- ingar til að votta samúð vegna hins hörmulega slyss þegar ferj- an Eistland sökk í Eystrasalti. Þess er jafnframt farib á leit við almenning að sem flestir geri hið sama. ■ Siguröur Rósberg Traustason. mánubum veiktist hann og þurfti að leggjast inn á spítala og síðan hefur heilsu hans smám saman hrakað. „Á meban ég var úti fékk ég að- stoð frá samtökum sem heita Aids Project of Los Angeles. Samtökin veita alnæmissjúklingum aðstoð, m.a. með því að borga húsaleigu og lögfræðiaðstoð fyrir þá og gefa þeim mat sem á þurfa að halda. Eg hefði getaö verið úti og fengið áframhaldandi aðstoö frá þessum samtökum en mig langaði til ab koma heim og sjá fjölskylduna." í Los Angeles fór Sigurður reglu- lega til læknis til ab láta fylgjast meb gangi sjúkdómsins en frá því hann kom til íslands hefur hann ekki getab farið til læknis. Hann á núna þau lyf sem hann þarf á að halda en segir ab þau muni ekki endast sér í sex mánuði. Sigurður segir að hann hafi ekki þurft að borga fyrir læknisþjónustu á meb- an hann var í Los Angeles. „Fyrir þremur mánuðum varð ég að leggjast inn í viku. Læknarnir héldu að ég væri kominn meö æxli við heilann og þess vegna þurfti ég að gangast undir miklar rannsóknir. Eg borgaði ekki neitt fyrir dvölina á spítalanum. Hér get ég ekki einu sinni farib til læknis. Mér er sagt að ég verði bara að bíða í sex mánuði sem þýbir að ég verð að íhuga hvort ég fari aftur út eba verði hér áfram. Mér finnst þab samt ansi hart að þurfa að flýja land út af einhverj- um lögum sem ganga ekki upp. Ég er nú einu sinni kominn heim og langar til að vera hér hjá fjöl- skyldunni. Það munar miklu að hafa fjölskylduna til að styðja við bakið á manni. Úti er ég bara eins og dropi í hafinu." Sigurður segist vera sæmilegur til heilsunnar núna en hafa lítið út- hald. Hann segist lifa einn dag í einu en vissulega sé hart að vita til þess að læknisþjónusta standi honum ekki til boða þurfi hann á henni ab halda innan sex mán- aða. ■ Reykjavík semur um pappírskaup Nýlega gerði Reykjavíkurborg, fyrir hönd stofnana og fyrirtækja borgarinnar, samning við Rekstr- arvörur um kaup á ljósritunar- pappír. Samningurinn var gerður í kjölfar opins útboðs í sumar. Á myndinni má sjá þá Marinó Þor- steinsson, skrifstofustjóra hjá Innkaupastofnun Reykjavíkur- borgar, og Kristján Einarsson, for- stjóra Rekstrarvara vib undirritun samningsins. ■

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.