Tíminn - 30.09.1994, Qupperneq 4

Tíminn - 30.09.1994, Qupperneq 4
4 Sfinitm Föstudagur 30. september 1994 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Utgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: |ón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík Inngangur frá Brautarholti. Sími: 631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Prentun: Prentsmibja Frjálsrar fjölmi&lunar hf. Mána&aráskrift 1400 kr. m/vsk. Verö í lausasölu 125 kr. m/vsk. Eytt um efni fram Reikningur lýðveldishátíöarinnar, sem haldin var í sumar, hljóbar upp á nær 200 milljónir króna. Á fjárlög- um var veitt 70 milljónum til að halda upp á 50 ára af- mæli lýðveldisins. Þeir, sem sáu um framkvæmdina og skrifa upp á reikningana, treysta því ab ríkissjóður greiði þá upphæð sem er umfram allar heimildir. Greinilegt er að hátíðarhaldið hefur allt farið úr bönd- um og ábyrgðarlausir aðilar hafa tekið sér fjárveitinga- vald í trausti þess að landssjóöurinn hlaupi undir bagga og greiði þab möglunarlaust, sem umfram er allar áætl- anir og framlag. Svona misferli með opinbert fé er því miður ekkert einsdæmi, síður en svo. Snarruglabar framkvæmda- og fjárhagsáætlanir eru nánast lenska og þeir, sem hvorki kunna að reikna út kostnað né miða framkvæmdir við það fjármagn sem til þeirra er ætlað, þurfa aldrei að svara til saka né bera skaða af eigin mistökum. Sagt er að eftir höfðinu dansi limirnir og er þar líkast til komin skýringin á því ábyrgðarleysi í meðferð opin- berra fjármuna, sem endurspeglast svo víða og heimild- arlaust bruðlið í afmælishátíbina er aðeins eitt dæmi um. Fjárlög eru afgreidd meb halla ár eftir ár og þar við bætist að að ríkisreksturinn fer milljarða framúr þeim heimildum sem Alþingi veitir. Mismunurinn er brúaður með lánsfé og stjórnarherrarnir hælast um að hann sé ekki enn meiri en raun ber vitni hverju sinni. Sveitarfélög eyða mörg hver langt framyfir fjárhags- áætlanir og sýnast forráðamenn þeirra treysta á betri tíb, hvernig sem hana á að bera ab, eða ab einhver hlaupi einhvern tíma undir bagga og geri upp. Svona skuldasöfnun þarf ekki endilega að vera vegna óráðsíu, því að í mörgum tilvikum hafa sveitarfélög ekki fjár- hagslegt bolmagn til að standa undir lögbundnum skyldum. Ljóst er að opinberir lífeyrissjóðir geta ekki staðið und- ir þeim skuldbindingum, sem sjóðfélagar hafa áunnið sér, nema með gífurlegum framlögum úr almannasjóð- um. Það skortir nær 100 milljarða króna upp á að eign- ir sjóðanna mæti réttindum sjóbafélaga. Ekki verður vart við að einn eða neinn hafi áhyggjur af því hvernig á að láta enda ná saman. Gengið er út frá því sem vísu að ríkið borgi það sem misreiknað er, þegar kemur að skuldadögum. Það mun aftur á móti ekki verða raunin þegar aðrir vanmáttugir lífeyrissjóðir eiga í hlut. Dæmi eru um að sjóðafélögum sé gert að greiða full iðgjöld, þótt það sé borin von að þeir muni nokkru sinni fá fullar lífeyris- greiðslur. Fyrirtæki eru rekin fyrir lánsfé, sem vitað er að aldrei verður greitt, og forráðamenn þeirra treysta á styrki og alls kyns opinbera fyrirgreiðslu til að halda óarðbærri starfsemi gangandi. Það fer litlum sögum af því að þeir, sem stjórna svona gustukafyrirtækjum, beri nokkru sinni perónulegan skaba af áætlunum sem aldrei stand- ast. Á tímum efnahagslegs stöðugleika og rjómalogns á vinnumarkaði er það ekki nema vankunnátta og aula- skapur að geta ekki gert fjárhags- og framkvæmdaáætl- anir sem standast í stórum dráttum. Þegar uppi eru miklar kröfur um sparnab og hagræð- ingu, er ófyrirgefanlegt að hægt sé að komast upp með fáránlegt brubl á opinberu fé og að það sé ekkert mál að eyða umfram heimildir og fjárhagslega getu. Siðvæðing í opinberu lífi þarf að ná til fleiri þátta en einkavinavæbingar og kunningjagreiða einvörðungu. Siðbótin hin nýja Þaö var nýr Guðmundur Árni sem birtist þjóðinni í ellefufrétt- um sjónvarps í fyrrakvöld á fundi með hafnfirskum krötum í Hafnarfirði. Þar fór ekki stjórn- málamaðurinn Guðmundur Árni, sem var með allt niður um sig vegna slóða spillingarásak- ana og örlátrar fjölskyldurækni ýmist á kostnað skattborgara al- mennt eða útsvarsgreiðenda í Hafnarfirði. Ónei, þar fór nýr Guömundur Árni, Guðmundur hinn siðavandi, prédikarinn úr Hafnarfirði, sjálfur Guðmundur góði, sem boðar ásamt for- manni sínum Jóni Baldvini Hannibalssyni nýjar siðbótartil- lögur í íslenskum stjórnmálum. Guðmundur þessi hinn nýi seg- ist hafa berháttað sig fyrir fram- an alþjóð, skriftað og játað syndir sínar, en viðurkennir þó enga mikilvæga yfirsjón í emb- ættisfærslu sinni almennt. Tvær minniháttar yfirsjónir og fyrir þær iðrist hann. Guðmundur góði neitar þess vegna að taka við nafnbótinni spilltasti stjórn- málamaður íslands og hafnar jafnframt öllum ásökunum um að vera spilltasti maðurinn í spilltasta flokki á íslandi, Al- þýöuflokknum. „Alþýðuflokk- urinn er ekki spilltur frekar en ég," segir Guðmundur góði á baráttufundum í Hafnarfiröi. Helgistund í rábuneytinu Eflaust má rekja hin miklu um- skipti á Guðmundi Árna til písl- argöngu hans í utanríkisráðu- neytið í fyrradag, þar sem þeir grétu saman berfættir yfir synd- um sínum, formaður og vara- formaður Alþýðuflokks, og end- uðu á því að veita hvor öðrum syndaaflausn og guðsblessun. Eftir þann hreinsunareld þurftu þeir ekki að hafa áhyggjur af syndaregistri sínu og gátu snúið sér að trúboði og siðvæðingu annarra, sem er að sjálfsögðu mikið trúarlegt jafnt sem félags- legt kraftaverk. Formannadúettinn telur sig nú hafa fengið aflausn eftir að hafa lagt „öll sín spil á borðið frá A til O", eins og Guðmundur góði orðaði það, og hyggjast þeir hefja gagnsókn í siðvæðingar- umræðunni. Gagnsóknin mun veröa ótrúlega einföld í raun- inni, því hún mun byggjast á aö heimta skýrslur af hinum ráb- herrunum líka. Aðrir stjórn- málaflokkar munu verða beðnir GARRI um að leggja sín spil á borðið varðandi hluti eins og manna- ráðningar. Þessu lýsti Guð- mundur góði einmitt yfir í Hafnarfirði í fyrrakvöld. Það fer víst ekki framhjá nein- um að hverjum kratarnir ætla að beina spjótum sínum í þess- ari gagnsókn. Ekki er það stjórn- arandstaðan, því jafnvel þó menn væru gjörspilltir á þeim bæ, hafa þeir ekki verið í að- stöbu til ab framkvæma spill- ingu síðustu árin. Gagnsókn gegn íhaldinu Gagnsóknin beinist því fyrst og síðast að Sjálfstæðisflokknum og árangri hans í siðvæbingar- málum á þessu kjörtímabili. Sjálfstæðismenn hafa verið manna iðnastir við að hrella kratana út af Guðmundarmál- um og nú er ljóst að á meðan á helgistund þeirra Jóns og Guð- mundar stób í utanríkisrábu- neytinu í fyrradag, hefur þeim vitrast Hrafnsmálið og sú staða sem Davíð Oddsson var í, þegar allir vondu fjölmiðlarnir voru með galdraofsóknir á hendur honum og æskuvini hans og tyggjóbróður Hrafni Gunn- laugssyni. Guðmundur góbi vill nú eftir sinn opinbera siðferðis- holskurð fá að sjá sambærilega holskurði gerða á öðrum flokk- um, og þó einkum þeim flokki sem lengst hefur hamast á hon- um, Sjálfstæbisflokknum. Ekki kæmi Garra á óvart þó að hug- myndin um rannsóknarnefnd um siðbótina í stjórnarflokkun- um, sem ýmsir stjórnarand- stæðingar hafa viðrað, yrbi lögð fram sem siðbótartillaga for- mannadúettsins á þingflokks- fundi krata á morgun og þar yrði sérstaklega tekið fram í til- lögu að Hrafnsmálin, Arthúrs- málin og Útvarpsmálin öll yrðu skoðuð sérstaklega gaumgæfi- lega. Það er semsé að færast fjör í leikinn, því vissulega var ríkis- stjórnin óstarfhæf vegna ósam- komulags stjórnarflokkanna. Nú stefnir beinlínis í handalög- mál, þegar Guömundur Árni og Jón Baldvin fara að heimta skýrslur af Davíð Oddssyni um Hrafnsmálið. Garri Oskalistar sveitarstjórnarmanna Þessa vikuna hefur greinarhöf- undur ásamt öðrum fjárlaga- nefndarmönnum setið í viðtöl- um við sveitarstjórnarmenn víða að af landinu. Þetta er haustverk nefndarmanna. Sveitarstjórnarmennirnir leggja fram sín erindi, í þeirri von að fá úrlausn mála þegar fjárlög em afgreidd. Oskirnar eru margvíslegar, en þó hefur margt breyst á síðustu árum í samskiptum ríkis og sveitarfélaga. Sameiginlegum verkefnum hefur fækkað. Þau eru nú fyrst og fremst á svibi heilbrigðismála og hafnamála, auk sameiginlegra framkvæmda við byggingu framhaldsskóla. Hafnirnar Áætlanir um framkvæmdir í hafnamálum ganga eins og raubur þráður í gegnum fjár- lagaerindi sveitarstjórnar- manna. Það er ab vonum. Hafn- ir eru lífæð byggðarlagsins og höfn er miklu meira en -grjót- garður til þess að skýla fyrir út- hafsöldunni. Höfn er vinnu- staður og abal athafnasvæði út- gerðarstaða. Það þarf viðlegu- kanta, flotbryggjur, þekjur, rafmagn, vatn, hafnarvog, lóðs- báta, lýsingu og nauðsynlegan öryggisbúnað, svo helstu atriöin séu nefnd. Þar að auki er ein höfn ekki óforgengilegt mann- virki. Brimið molar niður grjót- garða, ber sand í innsiglingar- rennur og viðlegupláss, þannig að verulegum fjármunum verð- ur að verja til dýpkunar og við- halds. Mjög miklum fjármunum hef- ur verið varið til hafnargerðar A víbavangi um land allt síðustu áratugina og hrein bylting hefur oröið í þessum efnum. Enn eru þó verkefnin ótæmandi og ástæb- an er meðal annars vaxandi kröfur um fullkomna abstöðu þar sem hinni viðkvæmu vöru fiskinum, sem úr sjónum er dreginn, er landað. Gott ástand hafnarmannvirkja og myndar- leg umgengni á hafnarsvæðum geta haft bein áhrif á ímynd okkar sem matvælaframleið- enda. Ég hef engar tölur í því efni, aðeins tilfinningu fyrir að fjöldi ferbamanna leggi leið sína um höfnina þar sem þeir eru á ferð. Sú sjón, sem við blasir, er ef til vill ekki alltaf til þess að ýta undir ímyndina um hrein- læti og umhverfisvernd, þótt mikil breyting sé orðin í þessum efnum og stöðugt sé sótt fram á veg. Umhverfismál Mörg sveitarfélög eiga við mik- inn vanda að etja í fráveitu- og sorpmálum og er þessi mála- flokkur afar dýr. Það ber mikla nauðsyn til þess ab taka þessi mál föstum tökum og það er mín skoðun ab aðstoð ríkisins verði aö koma til. Eins og nú er, skattleggur ríkið framkvæmdir í þessum málaflokkum í formi virbisaukaskatts. Þessi mál snerta með sama hætti ímynd landsins, þar sem yfir þrír fjórbu af útflutningnum er útflutning- ur á matvælum. Á síðasta áratug hefur orðið hljóðlát umhverfisbylting um allt land hvað varðar gatnakerfi sveitarfélaga. Engin ein fram- kvæmd hefur breytt ásýnd þess- ara byggbarlaga viðlíka mikið. Álíka bylting þarf að verða í sorp- og fráveitumálum og þaö er í þágu allrar þjóðarinnar að hún veröi. Þab er einnig í þágu matvælaframleibslunnar sem við lifum á. Jón Kr.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.