Tíminn - 30.09.1994, Page 7
Föstudagur BO. september 1994
7
Kristinn C. Jóhannsson og sonur hans Gunnar:
Fagna fjörutíu
ára sýningaraf-
mæli fööurins
Fe&garnir Gunnar Kristinsson
og Kristinn G. Jóhannsson
opna sýningu á nýjum verk-
um sínum í Listhúsinu Þingi,
Akureyri, á morgun, laugar-
daginn 1. okt., kl. 16.00.
Kristinn G. Jóhannsson sýndi
fyrst málverk á Hótel Varðborg,
Akureyri, í október 1954, fyrir
réttum fjörutíu árum. Sýningin
nú er m.a. sett upp af því tilefni.
Gunnar stundar nám viö
Hochschule fúr Grafik und
Buchkunst í Leipzig hjá prófess-
or Tina Bara og sýnir nú í fyrsta
sinn. Á sýningunni verða þrjár
Ijósmyndaraöir eftir hann og
heita „Draumapariö", „Tog-
streita" og „Smásögur án titils".
Kristinn sýnir olíumálverk og
kallar sinn hluta sýningarinnar
„Málverk um feimna holtsins
fegurö". Má líta á myndirnar
sem framhald þeirra hugleiö-
inga, sem fram komu á sýningu
hans á síðasta ári sem hét „Mál-
verk um langholt og lyngmó".
Sýning þeirra feöga verður op-
in daglega kl. 16.00-19.00, en
kl. 14.00-19.00 laugardaga og
sunnudaga og lýkur sunnudag-
inn 16. október. ■
■ 1 " 'i
: I
1
11111
■§Wá
Kristirw C. Jóhannsson og sonur hans Cunnar Kristinsson, viö nokkur máiverka Kristins.
Sagnfrceöilegt nýmœli í Callerí Creip:
Salon-sýning
Laugardaginn 1. október klukk-
an fjögur (16.00) opnar mynd-
listarsýningin Salon 1994 í Gall-
erí Greip vib Vitastíg.
Á nítjándu öld var París háborg
heimslistarinnar. Þá var sá siöur
helstur við upphengingu á mál-
verkum að þau voru hengd þétt
saman á veggi sýningarsalarins og
mynduöu þannig samofna heild
eftir mismunandi listamenn, sem
einungis var rofin af skrautlegum
römmunum sem afgirtu hvert
verk. Sá tími þekkti hvorki ljós-
myndir né kvikmyndir og voru
hinar árlegu Salon-sýningar stór-
viöburöur í lífi Parísarbúa, sem
flykktust ávallt eftirvæntingarfull-
ir inn í fagurmálaða veröld salar-
kynnanna. Á veggjunum gátu sýn-
Urslit hjolreiöa-
keppni grunn-
skóla 1994
Síbastlibinn laugardag, 24.
september, fór fram úrslita-
keppni í hjólreibakeppni 12 ára
barna grunnskóla. Keppnin,
sem fram fór vib Perluna í
Reykjavík, var haldin á vegum
Umferbarrábs, Bindindisfélags
ökumanna, lögreglunnar og
menntamálarábuneytisins.
Keppnin hófst í fyrravetur með
spurningakeppni í öllum grunn-
skólum landsins. Tveir efstu
keppendur frá hverjum skóla
héldu áfram í undankeppni, sem
haldin var á nokkrum stöbum um
landið. Sú keppni var hjólreiða-
keppni, þar sem reyndi á þekk-
ingu barnanna á umferðarmerkj-
um, umferðarreglum og hæfni
þeirra til að hjóla.
Sigurvegarar í hverjum lands-
fjórðungi mættu síðan í Perluna á
laugardag. Fulltrúar frá 8 skólum,
alls 16 keppendur, reyndu meb
sér í spennandi og erfibri keppni.
Úrslit urðu eftirfarandi:
1. sæti: Engidalsskóli í Hafnar-
firði, hlaut 229 refsistig.
2. sæti: Selásskóli í Reykjavík,
hlaut 243 refsistig.
3. sæti: Holtaskóli í Keflavík,
hlaut 300 refsistig.
í hverju liði voru tveir keppend-
ur og fengu þeir allir skrautritað
viðurkenningarskjal fyrir þátttök-
una. Sigurvegaramir í keppninni
Þátttakendur í úrslitakeppninni
ásamt nokkrum starfsmönnum.
fengu verðlaunapeninga og
vönduð bókaverðlaun. Skólarnir,
sem þeir voru fulltrúar fyrir,
fengu einnig verðlaun. í ár var í
fyrsta sinn keppt um farandbikar
og mun hann verða afhentur í
skóla sigurvegaranna við fyrsta
tækifæri. ■
ingargestir speglaö sig í tíðaranda
myndlistarinnar og fengið sjón-
ræna ertingu án milligöngu sjón-
varps, fréttaljósmynda eða auglýs-
inga, sem eru helstu myndbrunn-
ar okkar tíma.
Markmiö sýningarinnar Salon
1994 er að skapa raunverulegt
andrúmsloft á einfaldan hátt úr
línum og litum, en prúðbúnir sýn-
ingargestir munu síðan bæta sínu
við og bera það út í haustiö. Lista-
mennimir og -konurnar em Birgir
Andrésson, Húbert Nói Jóhannes-
son, Kristinn E. Hrafnsson, Krist-
ján Steingrímur Jónsson, Bjarni H.
Þórarinsson, Jónas Sen, Georg
Guðni Hauksson, Haraldur Jóns-
son, Daníel Þ. Magnússon, Hall-
grímur Helgason, Helgi Þorgils
Friðjónsson, Daði Guöbjörnsson,
Jón Óskar Hafsteinsson, Hulda Há-
kon, Sigurður Árni Sigurðsson,
Tumi Magnússon, Steingrímur Ey-
fjörð Kristmundsson, Rúrí, Svava
Björnsdóttir, Loftur Atli Eiríksson,
Halldór Ásgeirsson, Kristján Guð-
mundsson, Hannes Lárusson og
Arna Valsdóttir.
Sýningin stendur frá 1. til 19.
október og er opin daglega frá
14.00 til 18.00. ■
Hljómsveitin 2001 þykir meb þeim áhugaverbari í yngri kantinum, en
meblimir sveitarinnar eru á aldrinum 19-21 árs.
Hljómsveitin 2001:
„Sadista" frygöar rokk
Útgáfufyrirtækib Lax hf. hef-
ur gefib út sína fyrstu afurb,
sem er geisladiskurinn Frygb
meb hljómsveitinni 2001 og
inniheldur diskurinn fjögur
ný lög.
Sölvi H. Blöndal, trommuleik-
ari 2001, segir að sveitin spili
svokallað „sadistarokk" eba hart
rokk. Auk hans eru í bandinu
þeir Reynir Harðarson á hljóm-
borð, Guðmundur Kristjánsson
söngur, Ólafur Jónsson, sem
spilar á gítar og syngur, og
Gaukur Úlfarsson á bassa.
Hljómsveitin 2001, sem stofn-
uð var í ársbyrjun, kemur fram á
tónleikum í MH í dag, föstudag,
ásamt Strigaskóm númer 42,
Dróm og Mule Skinner. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 21 og
lýkur kl. 01. ■