Tíminn - 30.09.1994, Qupperneq 10
10
Föstudagur 30. september 1994
Ég sendi öllum þeim innilegar
þakkir sem sendu mér hlýjar kveðjur á
áttrœéisafmæli mínu 19. september,
um leið og ég óska ykkur öllum far-
sœldar.
Þórarinn Þórarinsson
tækniskóli íslands
Menntun - Atvinnulíf
Opinn fundur um tæknimenntun og atvinnulíf á 30 ára
afmæli Tækniskóla íslands í dag, föstudaginn 30. sept-
ember, klukkan 13.30 til 16.30. Fundurinn verbur hald-
inn í húsnæöi skólans ab Höföabakka 9, Reykjavík. Allir
áhugasamir eru velkomnir á meban húsrými leyfir.
Dagskrá:
Ólafur G. Einarsson menntamálarábherra:
Ávarp
Margrét Björnsdóttir, abstobarmabur iönabar-, vib-
skipta- og heilbrigbisrábherra:
Ávarp
Sveinbjörn Björnsson, rektor Háskóla íslands:
Tækniskóli íslands í samfélagi skólanna, gamlar og nýj-
ar hugmyndir
Gubrún Pétursdóttir, lífeblisfræbingur og stjórnar-
maöur í Aflvaka:
Nýsköpun og formleg menntun
Kaffihlé
Davíb Lúbvíksson, verkfræbingur hjá Samtökum ibn-
abarins:
Tæknimenntun fyrir íslenskan ibnab
Alda Möller, matvælafræbingur og þróunarstjóri hjá
Sölumiöstöö hrabfrystihúsanna:
Tæknimenntun hjá sjávarútvegsþjóö
Steinar Steinsson, fyrrverandi skólastjóri lönskólans í
Hafnarfirbi:
Framhaldsnám fyrir ibn- og verkmenntab fólk í Tækni-
skóla íslands
Gubbrandur Steinþórsson, rektorTækniskóla íslands.
Jakob G. Ágústsson
frá Cröf
Fæddur 6. ágúst 1921
Dáinn 20. september 1994
Kvebja frá gömlum
skólafélaga
Jakob Gísli Ágústsson var
fæddur í Kirkjuhvammi í
Kirkjuhvammshreppi 6. ágúst
1921. Foreldrar hans voru
hjónin Ágúst Frímann Jakobs-
son og Helga Jónsdóttir. Áriö
1924 fluttist Jakob meb for-
eldrum sínum ab Ánastaöa-
seli. Eftir sjö ára dvöl þar var
flust aö Gröf í sömu sveit. Þar
ólst Jakob upp til fulloröins-
ára. Hann vann ýmis störf sem
fyrir komu. Var lengi stjórn-
andi stórvirkra vinnuvéla, og
þótti vel liðtækur þar.
Haustið 1943 tók Héraösskól-
inn að Reykjum í Hrútafiröi á
ný til starfa, eftir þriggja ára
hlé sökum hersetu. Var það
öllum fagnaðarefni, og þó
einkum námfúsu ungu fólki
úr Húnavatns- og Stranda-
sýslu, svo og víðar að.
Þetta haust söfnuðust um sex
tugir ungs fólks að Reykjum til
að setjast á skólabekk. Flest var
Absendar greinar,
afmælis- og
minningargreinar
sem birtast eiga í blaðinu
þurfa ab hafa borist ritstjórn
blaösins, Stakkholti 4, gengið
inn frá Brautarholti, tveimur
dögum fyrir birtingardag, á
disklingum vistaðar í hinum
ýmsu ritvinnsluforritum sem
texti, eba vélritaðar.
SÍMI (91) 631600
t MINNING
fólk þetta á aldrinum frá
fimmtán ára til tvítugs. Sumir
voru raunar komnir yfir þann
aldur, eins og vinur minn sem
ég minnist nú við sviplegt
andlát hans, sem varð aðfarar-
nótt 20. september síðastlið-
inn.
Jakob Gísli Ágústsson var
maður lágur vexti en þrekinn
og kraftalegur. Hann var ágæt-
ur námsmaður við bóklega
iðju, enda góðum gáfum
gæddur, en lét sér nægja
tveggja vetra nám á Reykjum,
eins og margir. Varð það hon-
um notadrjúgt. Hann var
smiður góður og leikfimimað-
ur ágætur, liðugur og harður
af sér. Já, það var einmitt ósér-
hlífnin og harkan sem mér
fannst einkenna Jakob. Vel að
merkja harkan og áræðið við
viðfangsefnin, sem hann gaf
sig ab, en ekki í samskiptum
við fólk. Hann var ljúfur mað-
ur, þótt hann væri fremur dul-
ur,
Á Reykjaskóla var þá skóla-
stjóri Guðmundur Gíslason,
sem tók við skólanum haustið
1937, er Jón í Ystafelli lét af
skólastjórn. Guðmundur
hafði vekjandi áhrif á nem-
endur. Hann var einlægur lýð-
ræðissinni og foringi „Vöku-
manna", meban sú hreyfing
var við lýði. Þyrfti að skrá sögu
hennar.
Vorið, sem ég yfirgaf skól-
ann, voru hinar frægu lýðvel-
diskosningar. Ég man ab
skólastjóri ræddi þessar kosn-
ingar eitt sinn við okkur nem-
endur í tíma, og bað þá að
rétta upp hönd, sem ættu rétt
til að kjósa, bæði um stofnun
lýöveldis og slit á konungs-
sambandi við Danmörku. Ég
man ekki eftir að annar en Jak-
ob rétti þá upp hönd. Þá var
kosningaréttur bundinn við
21 árs aldur.
Kona Jakobs eftirlifandi er
Aðalbjörg Pétursdóttir frá
Stóruborg í Víðidal. Þau reistu
sér nýbýli úr landi Grafar ab
jöfnu, og nefnist það Lindar-
berg. Er það snoturt býli. Þeim
hjónum varð fjögurra barna
auðið: tveggja dætra og
tveggja sona. „Já, lífið heldur
áfram, Austurstræti", yrkir
Tómas. Lífið heldur áfram í
niðjum okkar. Þeir bera fram á
leið eigindir okkar, og síðan
mann fram af manni.
Meb Jakobi hverfur traustur
maður, sem skilað hefur góðu
dagsverki. Ég kveð gamlan
skólafélaga með þökk fyrir allt
gott. Hvíli hann í friði.
Auðunn Bragi Sveinsson
frá Refsstöðum
Heimsmeistaramótiö í Albuquerque:
Öll íslensku pörin
komust í úrslitin
Ágætlega hefur gengið hjá ís-
lensku spilurunum í Albuequ-
erque í Nýju Mexíkó. Öll pörin
komust í 72-liða úrslit í heims-
meistaramótinu í tvímenningi;
Karl Sigurhjartarson og Þorlák-
ur Jónsson, Björn Eysteinsson
og Aðalsteinn Jörgensen og
Jakob Kristinsson og Matthías
Þorvaldsson. Karl og Þorlákur
lentu í 12. sæti í undanúrslit-
unum, Matthías og Jakob í 11.
sæti og Björn og Aðalsteinn
urðu síbasta parið til að ná inn.
I kvennaflokknum kepptu
Hjördís Eyþórsdóttir og Ljósbrá
Baldursdóttir fyrir íslands
hönd en þær náöu ekki að
komast í úrslitin.
Rosenblumsveitakeppninni
lauk í gær og þar kepptu sveitir
Seymon Deutch frá Bandaríkj-
unum og sveit Erwins Otvosi
frá Póllandi til úrslita. Sveit
Otvosi hafði sigur í leiknum.
Pípulagningamaburinn
Eftirfarandi spil kom fyrir í
opnu móti I Danmörku á dög-
unum og þar skildi á milli
leikra og lærðra í útspilinu.
Hvorum hópnum tilheyrir les-
andinn?
Suður/Allir (svk.)
* T72
¥ 9S
* DC2
* DT9852
N
S
* K86S
¥ ÁKT
* ÁK8
* ÁC6
Sagnir:
Suður Vestur Norður Austur
2* pass 24 pass
2 grönd pass 3 grönd pass
pass pass
Útspil: 44
Austur drepur útspilið með
drottningu. Hvab næst?
Matthías Þorvaldsson stendur í
ströngu í Albuquerque um þessar
mundir en hann og Jakob
Kristinsson nábu 11. sœti í for-
keppni heimsmeistarakeppninn-
ar í tvímenningi.
Svar:
Allt stendur og fellur með lauf-
litnum. það er ekki líklegt að
austur eigi laufkónginn ná-
kvæmlega annan, þannig að
óráölegt er að fara í borð á tígul
og svína laufi, því liturinn stíf-
last. Rétta leiðin er að spila
laufás að heiman og síöan gos-
anum. Þannig leysir sagnhafi
stífluna sem í litnum með því
að bregða sér í hlutverk
pípulagningamanns.
Það þarf varla að taka það
fram að ef sagnhafi dúkkar ekki
fyrsta slaginn fer spilið í vask-
inn. Eina hættan sem getur
steðjab ab sagnhafa er sú ab
spaðinn liggi 5-1 og þannig
var þab í raun. Sjá allt spilið til
hægri:
♦ T72 ¥ 95 ♦ DC2 ♦ DT9852
Á ÁG943 N V A A D
¥ C843 ¥ D762
♦ T5 ♦ 97643
* K4 A K865 ¥ ÁKT ♦ ÁK8 * ÁC6 * 753
Vetrarmitchell BSÍ
Sl. föstudagskvöld mættu 22
pör til leiks í vetrarmitchell
BSÍ. Efst urðu:
NS: 1. María Ásmundsdóttir-
Steindór Ingimundarson 318
2. Pétur Sigurðsson-Sigurjón
Tryggvason 300
3. Sigurður Ámundason-Jón
Þór Karlsson 297
4. Jón Stefánsson-Sveinn Sig-
urgeirsson 282
5. Kristinn Þórisson-Ómar Ol-
geirsson 278
AV: Rúnar Einarsson-Haraldur
Þ. Gunnlaugsson 327
2. Þóröur Sigfússon-Dan Hans-
son 314
3. Páll Þór Bergsson-Sveinn
Þorvaldsson 309
4. Ellert B. Schram-Hallur Sím-
onarson 303
5. Sævin Bjarnason-Magnús
Torfason 291 (Meðalskor 270)
Spilað er öll föstudagskvöld og
hefst spilamennska kl. 19.00.
Sérstaklega verbur auglýst þeg-
ar starfsemin flyst í nýja hús-
næðið í Þönglabakka.
Frá Paraklúbbnum
Sl. þriðjudag mættu 12 pör til
leiks hjá Paraklúbbnum. Efst
urðu:
1. Bryndís Þorsteinsdóttir-Sig-
fús Ö. Árnason 212
2. Arngunnur Jónsdóttir-Guð-
björn Þórðarson 176
3. Aðalheibur Torfadóttir-
Ragnar Ásmundsson 173
4. Guðný Guðjónsdóttir-Jón
Hjaltason 171.
5. Elín Jóhannsdóttir-Sigurður
Sigurjónsson 170
Næsta þriðjudagskvöld hefst
3ja kvölda tvímenningur. Spil-
aö er í Sigtúni 9 og hefst spila-
mennska kl. 19.30.
íslandsmótið í
einmenningi 1994
Minnt skal á ao íslandsmótið í
einmenningi 1994 fer fram um
næstu helgi. Spilarar eru
hvattir til ab skrá sig sem fyrst
til leiks, því mikil aðsókn hefur
verið í þetta vinsæla mót að
undanförnu en þab var endur-
vakið fyrir tveimur árum. Allir
spilarar fá sent kerfið heim til
sín og veröur notast við einfalt
sytandard-kerfi eins og síðustu
ár. Öllum er heimil þátttaka og
er keppnisgjald kr. 2500 á
spilara. Spilað er í húsnæði BSÍ
ab Sigtúni 9, Reykjavík.