Tíminn - 30.09.1994, Blaðsíða 16

Tíminn - 30.09.1994, Blaðsíða 16
Veðriö í dag (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær) • Su&vesturmiö: Lægir heldur. Ví&a léttskýjab. • Su&urland til Brei&afjar&ar, Faxaflóamib og Brei&afjar&armiö: Hæg breytileg átt. Víöa léttskýjaö. • Vestfir&ir til Austfjaröa, Vestfjar&amiö til Austfjar&ami&a: Hæg breytileg átt. Skýja& me& köflum e&a léttskýjaö. • Su&austurland og Su&austurmiö: Austan kaldi og skýjaö á mi&- unum en austan gola og léttskýjaö til landsins. Skýjahöllin frumsýnd: „Rosalega gób mynd" „Rosalega var þetta skemmtileg mynd," sagði 9 eða 10 ára drengur við mömmu sína þegar frumsýn- ingu myndarinnar „Skýjahallar- innar" lauk í gær. Greinilegt var að þessi litli drengur talaði fyrir munn margra ef marka má fagnaðarlætin í lok myndarinnar. Þorsteinn Jónsson sem leikstýrir myndinni sagði í ávarpi fyrir myndina að lengst af hefði vinnsl- an á myndinni gengið framar von- um þótt ákveðnir erfiöleikar hefðu gert vart við sig í eftirvinnslu. MeV al gesta á frumsýningunni var for- seti Islands og heilsaði hún upp á leikstjórann og aðalleikarann, hinn 11 ára gamla Kára Gunnars- son sem leikur aöalpersónuna Emil og verður trúlega hetja þessarar myndar að öðrum leikurum ólö- stuðum. ■ Frú Vigdís Finnbogadóttir heiisar hér upp á Kára Gunnarsson, 11 ára, sem leikur Emil og leikstjór- ann Þorstein jónsson fyrir frum- sýningu ígœr. Tímamynd GS Framboösfrestur vegna prófkjörs sjálfstœöismanna í Reykjavík rennur út í dag: Óvíst með Eykon og Inga Björn Framboösfrestur vegna próf- kjörs sjálfstæbismanna í Reykjavík, sem fram fer dag- ana 28.-29. október rennur út í dag kl 17.00. Samkvæmt prófkjörsreglum þurfa þeir sem hafa hug á að gefa kost á sér að athuga eftirfar- andi: Framboð skal vera bundið við flokksbundinn einstakling, Utanríkisráöherrar ríkja Atl- antshafsbandalagsins gengu í gær frá rábningu Willy Claes, utanríkisráðherra Belgíu, í stöðu aðalframkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Claes gegnir embættinu frá 15. októ- enda liggi fyrir skriflegt sam- þykki hans um að hann gefi kost á sér til prófkjörs. Fram- bjóðendur skulu vera kjörgengir við næstu alþingiskosningar. Tuttugu flokksbundnir sjálf- stæðismenn, búsettir í Reykja- vík, skulu standa að hverju frambobi og getur enginn flokksmabur staðið aö fleiri framboðum en tíu. ber næstkomandi. Hann er ráö- inn til næstu fjögurra ára, en að þeim tíma liðnum kemur til greina að framlengja ráðningar- tímann um eitt ár, að því er seg- ir í fréttatilkynningu frá utan- ríkisráðuneytinu. ■ Eyjólfur Ingi Björn Seinnipartinn í gær var enginn búinn aö senda inn formlega tilkynningu um þátttöku og reiknaði Ágúst Ragnarsson, starfsmaður Sjálfstæðisflokks- ins, með að tilkynningarnar kæmu til með að berast í gær og ídag. Vitað er að þingmenn Sjálf- stæðisflokksins, að undanskyld- um þeim Inga Birni Albertssyni og Eyjólfi Konráð Jónssyni, ætla allir að gefa kost á sér áfram. Þeir eru, Davíð Oddsson, Friðrik Sophusson, Björn Bjarnason, Geir Haarde, Sólveig Pétursdótt- ir, Lára Margrét Ragnarsdóttir og Guðmundur Hallvarösson. Nýir frambjóðendur eru Pétur Blöndal tryggingafræðingur, Ari Edvald aðstoðarmaður dóms- málaráðherra, Katrín Fjeldsted læknir og fyrrv. borgarfulltrúi og Markús Örn Antonsson fyrrv. borgarstjóri. Reiknað er með að fleiri frambjóðendur muni gefa kost á sér. ■ Claes aöalframkvæmda- stjóri frá 15. október Alþýöusamband Vestfjaröa: Atvinna og veru- leg launahækkun Á stjórnarfundi í Alþýbusam- bandi Vestfjarða sl. laugardag var samþykkt ab í næstu kjara- samningum verði haft að ieib- arljósi abgerbir til að treysta at- vinnuöryggi og verulega hækkun á launatöxtum verka- fólks. Þá sé fyrirsjáanlegt að fólk verði að treysta meira og meira á dag- vinnutekjur sér til framfæris í næstu framtíð. í samþykkt sinni beinir ASV því til aðildarfélaga sinna að hefja nú þegar umræbur um kröfugerð fyrir komandi kjarasamninga svo hægt verbi að ganga frá sameiginlegri nibur- stöbu á þingi sambandsins sem haldib verbur á ísafirði í byrjun nóvember n.k. Stjórnin fagnar því að þær fórn- ir sem verkafólk færbi með frum- kvæði sínu vib gerb þjóðarsátta- samninganna í febrúar 1990, virðist vera að skila árangri í bættum þjóðarhag. Hinsvegar hefur efnahagsbatinn kostað al- mennt launafólk rýrnandi kaup- mátt og ótryggt atvinnuástand. ■ Eiríkur rauði nemur land í Tímanum Ný teiknimyndasaga hefur göngu sína í Tímanum í dag. Sagan er byggð á Eiríks sögu rauba og Grænlendingasögu og fjallar um landnám Eiríks rauða á Grænlandi og Leif son hans, sem fékk viður- nefnib hinn heppni, og fund Vínlands. Sagan gerist á 10. öld og í upphafi 11. aldar. Höfundur myndasögunnar er Haraldur Einarsson, fyrrver- andi kennari. Haraldur hefur BA-próf í sagnfræði og ensku og er sagan af Eiríki rauða og sá tími sem hún gerist á hon- um mjög hugleikin. Tímabiliö um þúsund var tími mikilla umbrota í íslandssögunni og jafnvel stórra drauma og vill Haraldur vekja áhuga fólks á þeim tíma með gerð teikni- myndasögunnar. Teikni- myndasagan byggir bæði á Ei- ríks sögu rauða og Grænlend- ingasögu en í þeim er ýmislegt óljóst og segist Haraldur taka sér skáldaleyfi þegar þannig beri undir. Sagan hefst í Nor- egi en þaðan kom Eiríkur til ís- lands og settist að á Ströndum. Frá íslandi liggur leiðin til Grænlands og þaðan vestur um haf til Vínlands. Verk Haraldar hafa birst víða, m.a. teiknaði hann mynda- söguna Víkingarnir sem birtist í lesbók Tímans á árum áður. Hann hefur einnig teiknað myndasögur í Morgunblabið, Vikuna og DV og myndasögu eftir Gunnlaugs sögu Orm- stungu fyrir Sjónvarpið. Teiknimyndasagan er fyrst og fremst hugsuð til skemmtunar og til að vekja áhuga fólks á sögunni, ab sögn Haraldar. Haraldur Einarsson. Hún mun birtast í Tímanum á hverjum föstudegi. ■ BEINN SIMI AFGREIÐSLU TÍMANS ER 631 • 631 ÞREFALDUR 1. VINNINGUR

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.