Tíminn - 07.12.1994, Blaðsíða 8
8
Miðvikudagur 7. desember 1994
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND
Davíö Oddsson í Búdapest:
Fá litlu áorkab ef póli-
tískan vilja vantar
í ávarpi sem Davíð Oddsson for-
sætisráðherra flutti á Ráðstefn-
unni um öryggi og friö í Evrópu
(RÖSE) í Búdapest í fyrrdag lýsti
hann ánægju með þær niður-
stööur fundarins er miða að því
að efla innviði RÖSE, eins og
segir í frétt frá forsætisráðuneyt-
inu.
Ráðherrann benti á að hversu
vel sem alþjóðastofnanir væru
skipulagðar, fengju þær litlu
áorkað ef pólitískur vilji aðildar-
ríkja þeirra væri ekki fyrir
hendi, en sameiginlegt gildis-
mat væri forsenda slíks vilja. í
máli hans kom einnig fram að
aðildarríki RÖSE hefðu skuld-
bundið sig til að fara eftir
grundvallarreglum um lýðræði
og mannréttindi, en þó væru
þessar reglur þverbrotnar í sum- völlur þeirra væri sá lærdómur
um ríkjum álfunnar. Annars
staðar skorti enn á aö slíkar regl-
ur væru fastar í sessi.
Forsætisráðherra benti á að
styrkur RÖSE væri ekki síst fólg-
inn í tengslunum við Norður-
Ameríku. Nú sem fyrr skiptu
þessi tengsl miklu, en grund-
sem dreginn yrði af sögu Evr-
ópu á þessari öld. Þannig gæti
RÖSE lagt mikið af mörkum til
að koma í veg fyrir átök, að því
tilskildu að grundvallarreglum
Iýðræðis og mannréttinda yrði
framfylgt um alla Evrópu. ■
Davíb á fundi hjá RÖSE ígœr.
Reuter
Bítlarnir aftur á toppinn
Lundúnum - Reuter
Ekki bregða Bítlarnir vana sín-
um. Aðeins fjórum dögum eft-
ir að „Live at the BBC", fyrsta
plötuútgáfa þeirra í nærfellt 25
ár, kom í verslanir voru Bítl-
RÖSE-fundurinn end-
abi meb leibindum
Leiðtogafundurinn í Búdapest
um öryggi og samvinnu í Evr-
ópu endaöi með írafári, þar sem
brigslin um ófremdarástandið í
Bosníu gengu á víxl og Rússar
beittu neitunarvaldi til þess að
hindra að sameiginleg yfirlýs-
ing ráöstefnunnar um þessi al-
varlegustu hernaðarátök í Evr-
ópu frá lokum síðari heimsstyrj-
aldarinnar næði fram að ganga.
Þó tókst Helmut Kohl að bera
klæði á vopnin og leiða fundar-
mönnum fyrir sjónir aö þeim
bæri a.m.k. aö samþykkja ein-
hvers konar áskorun um vopna-
hlé í Bosníu. Fóru þjóöarleið-
togarnir að þessum tilmælum,
allir nema fulltrúi Bosníu sem
sagði að slík yfirlýsing væri ekki
annað en hálfkák.
Árangurinn af þessari sam-
komu Ráðstefnunnar um öryggi
og frið í Evrópu (RÖSE) verður
því að teljast harla rýr, að ööru
leyti en því að þegar upp er stað-
ið hefur kastljósið þó sýnt að
ágreiningur um alvarleg mál-
efni er djúpstæður og ráðamenn
þurfa helst á því að halda að
sýna sig og sjá aðra, segja sjálf-
sögð orð um sjálfsagða hluti, án
þess að Iáta það á sig fá um of aö
harðvítug styrjöld geisar í ein-
ungis 300 kílómetra fjarlægð frá
ráðstefnuhöllinni. ■
arnir orðnir söluhæstir, eins
og þeir voru reyndar lengst af
á sínum sokkabandsárum.
56 lög, sem tekin voru upp
fyrir útvarp á árunum 1962-
65, eru á
diskunum en það er George
Martin, upptökustjóri Bítl-
anna, sem sá um að undirbúa
stafrænu útgáfuna nú. Ekki er
búist við því að viðtökurnar
vestan hafs verði lakari en í
Lundúnum en þar hefst sala
ekki fyrr en í næstu viku.
Á sölulistanum eru 100 titl-
ar. Athygli vekur að þar er Jó-
hannes Páll páfi í 53. sæti, en
geisladiskur hans, Talnaband-
ið, hefur að geyma latneskar
bænir sem páfinn þylur. ■
Spœnsk stjórnvöld verja SS milljónum króna í aug-
lýsingaherferb:
Markmibib ab fá
karlana í uppvaskib
Spænsk stjórnvöld hafa sam-
þykkt 100 milljóna peseta (55
m.kr.) fjárveitingu sem verja á
til auglýsingaherferðar í sjón-
varpi í því skyni að fá heimilis-
feður til að taka þátt í húsverk-
unum. Auglýsingarnar, sem
beint er að spænskum eigin-
mönnum á laugardögum,
sýna konu umkringda börn-
um, ryksugu og fjöllum af
óstraujuðum fötum, konu sem
er aö kikna undan innkaupa-
pokum við hliðina á manni
með nokkur skjöl — sem sí og
æ er að bjóöast til að hjálpa til,
en gerir jáað samt aldrei.
Astæða þessarar auglýsinga-
herferðar er sú, að þótt
spænskar konur hafi hópast út
á vinnumarkaðinn á síðustu
árum og áratugum, þ.e. eftir
daga Frankós, þá hafa rann-
sóknir sýnt að þær sitja þar að
auki uppi með a.m.k. þrjá
fjórðu hluta allra heimilis-
starfanna eftir sem áður.
Spænsk stjórnvöld telja að
þessu þurfi að breyta.
Intemet-notendum mun líklega
fjölga um helming á næsta ári
Lundúnum - Reuter
Horfur eru á að á næsta ári teng-
ist 30 milljónir manna Internet,
tölvusamskiptakerfinu sem
teygir anga sína um allan heim
og hefur á skömmum tíma rutt
sér til rúms sem eitthvert öflug-
asta tæki sem um getur á við-
skipta- og verslunarsviði. Árið
1988 voru notendur um ein
milljón, en nú er talið að þeir
séu á bilinu 20-30 milljónir,
þannig að á næsta ári mun þeim
teiGAVERD, EFMSMIKIL OG
SKIMMTILEG BÓK Á LÁGMARKS VERDI
Sendiherra á sagnabekk
eftir dr. Hannes Jónsson
fv. sendiherra.
Segir frá innlendum og
erlendum mönnum og mál-
efnum úr reynsluheimi
höfundar á löngum ferli
diplómatsins. Full af fróð-
legum og skemmtilegum
frásögnum. Hulunni flett af
utanríkisþjónustunni og
ævintýmm landans, sem
leitar til sendiráðanna vegna
ótrúlegustu vandamála
og klandurs.
B0KASAFN FELAGSMALASTOFNUNARINNAR
Akraseli 22 - 109 Reykjavík - Sími 75352
að líkindum fjölga um helming.
Fyrirtæki og einstaklingar sem
abgang hafa ab Internet geta á
svipstundu komið skilaboðum á
framfæri til þeirra sem kaupa
eða selja vörur og þjónustu.
Þannig flýtir Internet fyrir allri
upplýsingamiölun, um leið og
hægt er að spara mikinn pappír
og síðast en ekki síst millilibi
sem bæði seljendur og kaupend-
ur vilja helst vera lausir við.
Svo gífurlegt magn upplýs-
inga, auglýsinga og „ruslpósts"
er á sveimi á Internet ab sér-
fræðingar telja hætt við því ab
notendur kaffærist í því flóbi,
eða ráði a.m.k. illa við að hag-
nýta sér kerfib. Einnig er talib
hætt við því að glæpahyski sjái
sér leik á borði og misnoti sér þá
möguleika sem Internat býður
upp á. Tiltölulega auðvelt er ab
stela þar mikilvægum upplýs-
ingum eba koma fyrir „tölvu-
veirum" sem geta truflað verð-
mætan hugbúnað eða lagt hann
í rúst. Meö öbrum oröum —
eins og allt annaö í veröldinni
— er Internet tvíeggjað og hægt
að beita því jafnt til ills sem
góðs, en þrátt fyrir annmarkana
fjölgar notendum jafnt og þétt.
Tölvusamskiptakerfið Inter-
net er runnib undan rifjum
bandaríska varnarmálaráðu-
neytisins, en árib 1969 var
ákveðið að tölvutengja fjórar
rannsókna- og tilraunastofur
þannig að vísindamenn gætu
óhindrað skipst á hugmyndum
og upplýsingum. Næstu tvo ára-
tugi fjölgaöi bandarískum há-
skólastofnunum smám saman
sem tengdust þessu kerfi, en al-
menn varð notkun þess ekki
fyrr en verð á einkatölvum var
orðið svo lágt ab á hvers manns
færi var ab eignast slíkt tæki.
Internet hefur verið skilgreint
sem fyrsta skrefiö á svonefndri
„þjóðbraut upplýsinganna" í
veröld þar sem fjölmiblun er
gagnkvæm og notkun á tölvum,
síma og sjónvarpi veröur háð
þessu eina öfluga tæki — einka-
tölvunni. Notandinn horfir á
sjónvarp fyrir tilstilli einka-
tölvu. Hann pantar þab sem
hann ætlar að kaupa í gegnum
einkatölvuna, talar í myndsíma
í gegnum einkatölvu og greiðir
jafnvel atkvæði í almennum
kosningum eöa tekur þátt í við-
horfskönnun með því að ýta á
hnapp á tölvunni sinni.
Internet er að verða athyglis-
verður þáttur í starfsemi marg-
víslegra fyrirtækja, enda býbur
kerfiö upp á leiðir sem áður hafa
ekki verið færar. 'Reader's Di-
gest, sem mun vera víblesnara
en nokkurt annað tímarit í
heiminum, bendir lesendum
sínum á þann möguleika að
koma athugasemdum og við-
bótarupplýsingum vegna greina
í tímaritinu á framfæri um Int-
ernet. Frægt varð á dögunum er
Rolling Stones-tónleikar fóru
fram á Internet og nú hefur
hugbúnaðarrisinn Microsoft til-
kynnt að í Windows 95 sem
kemur á markaö á næsta ári
verði sérstök tenging ætluð Int-
ernet. Annað risafyrirtæki á
tölvumarkaði, IBM, er með eitt-
hvab þessu líkt á prjónunum,
en um þessar mundir hafa þeir
sem framleiöa tölvur og búnað
er þeim tengist þó e.t.v. mestan
áhuga á símatengingum^inn á
samskiptanetið.
Sá sem ætlar t.d. að kaupa sér
bíl getur kallað fram á einka-
tölvu sína sölulista frá ótal bíla-
sölum, þ.e. öllum þeim sem til-
kynnt hafa um varning sinn. Þá
getur hinn væntanlegi kaup-
andi kallab myndir af bílunum
fram á tölvuskjáinn, en síðan er
e.t.v. komið að því að afla upp-
lýsinga um verbið og gera verð-
samanburð. Þab eina sem gæti
raskað ró hins makráða kaup-
anda er að ab tölvan er ekki fær
um ab reynsluaka bílnum sem
hann hefur augastað á, en þegar
því er lokið tekur tölvan málið
aftur upp á sína arma og aðstoð-
ar hann við að fjármagna kaup-
in. ■
Kisi í posa
Lausanne - Reuter
Póstþjónum í Lausanne brá
heldur í brún er þeir hvolfdu úr
einum póstpokanum í gær til að
lesa í sundur póstinn. Út úr
pokanum stökk kettlingur,
heldur úfinn og ódæll, sem von
var eftir vistina.
Hann hafði þó tekið gleði sína
er eigandinn kom að vitja um
hann. Sá var póstmeistari í einu
fjallaþorpinu í grenndinni og
hafði ekíd veitt því eftirtekt er
litla dýrið smaug ofan í pokann
um leib og hann var aö láta í
hann bréfin. ■
• * *» •