Tíminn - 03.01.1995, Blaðsíða 10
10 WítöPt&WU Þriöjudagur 3. janúar 1994
ÍÞI RÓT TIR • KRISTJÁN GRÍMSSON •
Magnus bcnevmg þoifimimaöur úr Ármanni, var kjörínn íþróttamabur ársins 1994 af Samtökum íþróttafréttamanna,
en kjörinuvar lýst fyrir helgi og er hann sannanega vel ab titlinum kominn. Magnús varb langfyrstur, hlaut 395 stig, en Arnór Cubjohnsen hlaut 280
stig í annab sœtib. Martha Ernstdóttir hlaut þribja sœtib meb 7 26 stig. Þess má geta ab Magnús var einnig valinn íþróttamabur ársins af lesendum DV
og þar hlaut hann þrisvar sinnum fleiri atkvœbi en Sigurbur Sveinsson, sem hafnabi íþribja sceti.
Sydney 2000 — nýtt átak hjá FRÍ:
Unglingar sem geta sýnt
árangur á heimsmælikvarða
„Það er búiö aö ákveöa aö fara
út í verkefni, sem viö köllum
Sydney 2000, og þar veröa
valdir 10 efnilegustu ungling-
arnir í frjálsum til aö taka þátt í
undirbúningi fyrir ólympíuleik-
ana í Sydney í Ástralíu árið
2000," segir Helgi Haraldsson,
formaöur FRÍ, um það átak sem
Frjálsíþróttasambandið ætlar að
hleypa af stokkunum og í veröa
10 unglingar samtals. „Þaö er
alveg ljóst aö innan þessa hóps
eru unglingar, sem geta sýnt ár-
angur á heimsmælikvarða inn-
an fárra ára og nægir þar að
nefna t.d. Svein Margeirsson,
langhlaupara úr UMSS, sem er
bestur í sínum aldursflokki á
Norðurlöndunum. Síöan má
nefna Völu Flosadóttir, sem æf-
ir og keppir í Svíþjóö, en hún er
meðal fremstu í sínum flokki í
mörgum greinum, eins og há-
stökki og stangarstökki, en þaö
er ný grein sem veröur tekin
inn hjá konunum á þessu ári í
heiminum." Helgi sagbi að
frammistaða Völu heföi vakið
athygli og merki um þaö væri
aö Svíarnir væru mikið að
reyna aö fá hana til aö taka upp
sænskt ríkisfang, en þaö kæmi
ekki til greina af hennar hálfu.
Þess má geta aö Vala kemur
heim í sumar til keppni á
Meistaramótunum í fyrsta
skipti, þar sem hún kemur m.a.
til meö aö sýna stangarstökk
kvenna. ■
* NBA-
W úrslit
Cleveland-Atlanta ...87-85
Indiana-New Jersey ..96-79
Orlando-LA Clippers 116-105
Wash.-San Antonio .101-115
Detroit-Boston.....107-124
Minnesota-New York ..81-90
Chicago-Miami.......133-88
Dallas-Golden State ...110-94
Milwaukee-Charlotte .94-101
Denver-Portland....118-114
Phoenix-LA Lakers ...112-127
Utah-Houston ......103-111
Sacram.-Philadelphia ...85-82
Staban
Austurdeild
Atlantshafsribill
(sigrar, töp, hlutfall)
Orlando .23 6 79.3
New York .... .15 12 55.6
Boston .11 17 39.3
Newjersey .. .12 19 38.7
Philadelphia 10 18 35.7
Miami ...9 18 33.3
Washington ..7 19 26.9
Mibriöill
Cleveland ... .20 8 71.4
Indiana .17 9 65.4
Charlotte .... .16 12 57.1
Chicago .15 13 53.6
Atlanta .12 17 41.4
Detroit ...9 17 34.6
Milwaukee .. ...9 18 33.3
Vesturdeild
Miövesturribill
Utahjazz .... ..19 9 67.9
Houston ..18 9 66.7
San Antonio .15 10 60.0
Dallas ..13 12 52.0
Denver ..14 13 51.9
Minnesota .. ....6 20 23.1
Kyrrahafsriöill
Phoenix ..21 7 75.0
Seattle ..18 9 66.7
LA Lakers .... ..17 9 65.4
Sacramento . ..15 12 55.6
Portland ..13 13 50.0
Golden State .10 17 37.0
LA Clippers.. ....4 25 13.8
Toddy vill hærri laun
Knattspyrnutímaritiö enska
SHOOT greindi frá því nýlega
ab Þorvaldur Örlygsson, eöa
Toddy eins og þeir kalla hann
ytra, hjá Stoke í ensku 1. deild-
inni sé á leið frá félaginu nema
hann fái hærri laun, en samn-
ingur Þorvaldar rennur út í lok
keppnistímabilsins. Þá greinir
tímaritiö frá því aö Crystal Pal-
ace hafi sýnt kappanum mikinn
áhuga. ■
Romario bestur
Romario, brasilíska knatt-
spyrnugoöiö hjá Barcelona, var
útnefndur íþróttamaöur ársins
af hálfu franska dagblaösins
L'Equipe, og kemur það fáum á
óvart, miðað viö frammistöbu
hans á HM. Romario fékk 235
stig, Tony Rominger, hjólreiöa-
maöur frá Sviss, varö annar
meö 144 stig og Alexander Po-
pov, rússneskur sundmaður,
þribji meb 137 stig. ■
Englendingar gengu af velli í 3. landsleiknum vib
Island:
Óvíst með við-
brögð hjá KKÍ
„Dómarar leiksins þurfa ab skila
skýrslu um leikinn og þá fyrst er
hægt að fjalla um málið. Ég held
nú að menn séu ekki alveg vissir
um hvemig á að taka á svona mál-
um, því sem betur fer er þetta mjög
óalgengt í körfuboltanum. En það
er mjög hæpiö að þetta berist ekki
út fyrir landsteinana, nema 12-15
Englendingar loki munninum al-
veg. Þannig að það er aidrei að vita
hvað gerist," sagbi Axel Nikulásson
hjá KKÍ, en þriöja landsleik íslands
og Englands í körfubolta, sem fór
fram í Hveragerði í síðustu viku,
lauk með því að Englendingar
gengu af velli þegar 24 sekúndur
voru eftir, vegna óánægju með
dómgæsluna. Staðan var þá 105-
101 fyrir ísland, en samkvæmt
körfuboltareglunum vinnur ísland
leikinn 20-0. ■
NBA-körfuboltinn:
Þorvaldur Örlygsson íbúningi Stoke.
Keegan gefst upp
Event stunginn
fjórum sinnum
Titilvon Kevins Keegan, hjá
Newcastle, í ensku knattspyrn-
unni er nánast úr sögunni eftir
tap á gamlársdag fyrir Norwich.
Newcastle hefur gengiö afleitlega
í síðustu leikjum, aðeins unnið
einn af síðustu níu leikjum, og
Keegan segist hafa gefiö titil upp
á bátinn. „Bilib milli okkar og
toppliöanna er orðiö alltof mikið
og ég get ekki séð Blackburn eba
Man. Utd hleypa okkur á ný í
baráttuna," sagöi Keegan. Og
fleiri slæmar fréttir fyrir aödáend-
ur Newcastle, því Belginn
Philippe Albert meiddist á hné á
æfingu fyrir helgi og er talið að
tímabilið sé búið fyrir hann. ■
Anthony Event, miðherji Orlando
Magic í NBA-körfuboltanum, lenti
í miklum ryskingum á laugardag,
sem endubu með því ab hann var
stunginn fjórum sinnum í vinstri
handlegginn. Að sögn lögreglu var
Event að koma af skemmtistað,
þegar þrír menn sátu fyrir honum
og veittu honum áverkana. Stung-
usárin eru þó ekki svo alvarleg að
Event missi af einhverjum leikjum
og er líklegt að hann spili annað
kvöld gegn New Jersey Nets. Event
er varamaður Shaquille O'Neill,
hann hefur gert 4.9 stig aö meðal-
tali í ieik og tekib 5.1 fráköst. ■