Tíminn - 13.01.1995, Qupperneq 16
Vebrib í dag (Byggt á spá Ve&urstofu kl. 16.30 í gær)
Föstudagur 13. janúar 1995
• Suburland til Nor&vesturmi&a: Allhvöss e&a hvöss vestan og su&-
vestan átt. Slydduél en síöan él.
• Norburland eystra til Austfjar&a: Léttir til meö su&vestan kalda.
• Su&austurland og Su&austurmib: SV- kaldi e&a stinningkaldi og
él.
Jóhanna Engilbertsdóttir, efsti maöur á lista Framsóknar í Hafnarfiröi í síöustu kosningum:
Tími til kominn ab
hleypa nýjum öflum að
„Mér finnst þetta ástand mjög
alvarlegt fyrir bæjarfélagið í
heild og ímynd þess," segir Jó-
hanna Engilbertsdóttir um
ástand mála í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar, en hún skipaði
efsta sæti á lista Framsóknar-
flokksins í síöustu bæjar-
stjórnarkosningum, en náöi
ekki kjöri.
Jóhanna segir að nú ríki
stjórnarkreppa og afleiðing þess
sé að ekki sé tekið á brýnum
málum, sem bíði úrlausnar í
bæjarkerfinu. Hún segist enn-
fremur ekki sjá hvernig leyst
verði úr þeirri kreppu sem nú
ríkir. „Deilan er orðin of per-
sónuleg á milli manna og snýst
oröið um stirt samband á milli
þeirra manna sem eiga aö
stjórna og virkilega þurfa að
vinna saman. Þetta sýnir okkur
að þaö er greinilega tímabært
að skipta þarna um fólk og fela
nýjum öflum stjórnina. Mér
finnst að kjörnir fulltrúar eigi
að bera ábyrgb og beri ab vinna
á þann hátt að það komi sem
best út fyrir bæjarfélagið."
Jóhanna segir að þessi enda-
lausa umræða hafi haft það í för
með sér að sú ímynd hafi skap-
ast um Hafnarfjörð að bærinn
sé spillingarbæli, ímynd slæmr-
ar fjármálastjórnar og fjármála-
vandræða, sem sé afskaplega
óheppilegt. „Ég held að fólk hér
í bænum sé almennt mjög sleg-
ið yfir því sem er að gerast í yf-
irstjórn bæjarins. Nú finnst mér
mál að linni og mér finnst
hvorki bæjarbúar, né bæjarfé-
lagið eiga þetta skilið. Hafnfirð-
ingar eru ekki spilltari en annaö
fólk, en með þessari endalausu
umræðu gætu menn farið aö
álykta slíkt." Aftur á móti segir
lóhanna Engilbertsdóttir
Jóhanna að vissulega hafi þurft
að taka á fjármálum bæjarins
og binda enda á þá fjármála-
óreiðu sem ríkti undir stjórn Al-
þýöuflokksins, en þessi um-
ræða sé orðin bæjarfélaginu
skaðleg.
Jóhanna segist þess fullviss
ab menn hafi ekki hugsaö þessa
uppákomu til enda og alls ekki
gert sér grein fyrir afleiðingun-
um. Menn sem gefi kost á sér í
þessi embætti, verði að gera sér
grein fyrir því að það sé ekki
nóg að tala fallega í kosninga-
baráttu, heldur fylgi þessu mik-
il ábyrgö, sem menn verði að
axla. Um framhaldið segir Jó-
hanna að erfitt sé ab segja til
um, en í ljósi þess sem á undan
er gengiö sé það ekki heppileg-
ur kostur fyrir bæjarfélagið að
Jóhann G. Bergþórsson og Al-
þýðuflokkurinn myndi meiri-
hiuta í bæjarstjórn Hafnarfjarð-
ar. ■
Endurmat á fitu helsta nýj-
ungin í nýjum manneldis-
markmiöum fyrir íslendinga:
Smjörlíki komiö í
„óvinaflokkinn"
Helstu nýungarnar í endurskoð-
u&um „Manneldismarkami&um
fyrir íslendinga" eru þær a& horf-
i& er frá umræ&um og skilgrein-
ingu á æskilegu hlutfalli fjöl-
ómetta&ra og mettaöra fitusýra í
fæ&i, enda trans- ómetta&ar fitu-
sýrur (í smjörlíki fyrst og fremst)
nú ekki sí&ur taldar hafa óæski-
leg áhrif á kólesteról í bló&i en
metta&ar. Þess í sta& hefur nú ver-
i& innleitt nýtt hugtak, „hör&
fita", þ.e. fita sem er í föstu formi
vi& stofuhita, svo sem smjör,
smjörlíki og pálmafeiti.
Allar þessar feitmetistegundir eru
nú komnar í sama „óvinaflokk-
inn". Tímaritib Heilbrigöismál segir
frá þessu endurmati á fitu í nýjum
manneldismarkmiðum. Með hug-
takinu „hörð fita" er átt við bæði
mettaðar fitusýrur og trans-ómett-
abar fitusýrur.
„Trans-ómettaðar fitusýrur
mundast fyrst og fremst við herð-
ingu jurta- e&a fiskolía og er aö
finna, í mismiklum mæli, í hertri
fitu, og þá ekki síst smjörlíki. Rann-
sóknir síðustu ára benda benda ein-
dregið til þess að transómetta&ar
fitusýrur hafi ekki síður óæskileg
áhrif á kólesteról í blóbi en mettab-
ar fitusýrur", segir í Heilbrigöismál-
um. ■
Jón Baldvin, karlinn sem œtlar aö verjast úr brúnni:
„Hrakspárnar verba
sér til skammar"
Jón Baldvin Hannibalsson
segir að hann sé hvorki á leið-
inni í hið fornfræga fróðskap-
arsetur, Menntaskólann í
Reykjavík, né heldur ab hann
hugi ab sendiherraembætti.
Karlinn í brúnni hjá þeim
krötum ætlar aö berjast til
þrautar. Formaöur Alþýðu-
flokksins hefur ábur séb hann
svartan fyrir kosningar og þá
tekist ab breyta töpuðu tafli í
jafntefli í það minnsta. Staðan
hefur þó aldrei veriö jafntví-
sýn og nú.
Ráöherrarnir Jón Baldvin og
Össur Skarphéðinsson verma
tvö efstu sæti lista Alþýðu-
flokksins í Reykjavík. Kratar
munu ekki ganga til prófkjörs í
höfuðborginni að þessu sinni,
sem er óvenjulegt. Jón Baldvin
var bjartsýnn í viötali við Tím-
ann í gær. Hann segir flokk sinn
líkjast laxinum og syndi einatt
gegn stríöum straumum.
„Það var mikill einhugur og
samstaða á fundi fulltrúaráös
Alþýðuflokksfélaganna á mið-
vikudagskvöldið. Þar ríkti mikill
baráttuhugur og ég er ekki í
nokkrum minnsta vafa um að
þessi framboðslisti mun reynast
samhent og baráttuglöð sveit og
láta að sér kveöa. Hrakspárnar
sem dunið hafa yfir okkur ab
undanförnu eiga eftir ab verða
sér til skammar," sagði Jón og
sagðist ráöleggja öllum sem
horn hafa í síðu Alþýðuflokks-
ins að falla ekki í þá gryfju að
vanmeta andstæðinginn.
-En hvers vegna er Alþýðu-
flokkurinn sífellt milli
tannanna á fólki og fjölmiðlum
vegna skorts á siögæði?
„Alþýðuflokkurinn er ekki
spilltur flokkur. En Alþýðu-
flokkurinn hefur verið umdeild-
ur flokkur vegna þess að hann
er róttækur umbótaflokkur sem
hefur komið við kaun margra
við að beita sér fyrir breytingum
í þjóðfélaginu sem varðar hags-
muni margra. Þaö er ekki bara
einokunarkerfið sem setið hefur
yfir hlut bænda í landbúnaðar-
kerfinu. Sægreifarnir eru í þess-
um hópi. Frægt dæmi um það er
Þorsteinn Már Baldvinsson í
Samherja á Akureyri, sem sagði
á opinberum fundi á Akureyri
að það væri þjóðarnauðsyn að
Alþýðuflokkurinn yrði þurrkaö-
ur út af kortinu. Hann og hans
fyrirtæki á nú reyndar líf sitt Al-
þýðuflokknum upp að unna og
það í margföldum skilningi. I
fyrsta lagi vegna þess að einn af
ráðherrum okkar beitti sér mjög
fyrir því, þegar þetta fyrirtæki
var stofnað, að aflareynsla skip-
stjóra sem færðust yfir til þess
yrði viðurkennd. í annan staö á
hann og hans fyrirtæki mikilla
hagsmuna að gæta í Smugunni.
Það hefðu engar Smuguveiðar
orðið ef tekist hefði aö setja
reglugerð sem bannaði þær eins
og til stóö. Allir þeir sem hafa
einokunarhagsmuni að verja í
þessu þjóðfélagi eða mikla sér-
hagsmuni telja sér skylt að vega
að Alþýðuflokknum. Hann er
greinilega ekki hættulaus, hann
lætur ekki reka með straumn-
um, hann berst ekki áfram bara
á bylgjufalli skoðanakannana,
hann er eins og laxinn sem
syndir á móti straumnum af því
hann hefur markvissa stefnu
sem hann beitir sér fyrir af al-
efli," sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson. ■
Sójstafir, norrœn menningarhátíö
á íslandi:
Sex vikna menn-
ingarhátíö
Þann 11. febrúar næstkom-
andi hefst norræn menning-
arhátíð hér á landi, en hún
hefur hlotib nafnið „Sólstaf-
ir" og stendur í sex vikur. Há-
tíðin verbur haldin á þremur
stöbum, í Reykjavík, á Akur-
eyri og ísafirði og verbur
bobið upp á rúmlega 60 dag-
skráratriði á hátíðinni.
Þetta er þriðja menningar-
hátíðin af þessum toga sem
haldin er, en fyrsta hátíðin fór
fram í tengslum vib þing
Noröurlandaráðs í Stokkhólmi
í mars 1994 og í haust fór hún
fram í Tromsö í Noregi í tengsl-
um vib haustþing ráðsins. Nú
er hún einmitt haldin hér á
landi í tengslum vib þing
Noröurlandaráðs.
í kjölfar kynningarfundar í
febrúar síðastliðnum var Berg-
ljót Jónsdóttir, fyrrverandi
framkvæmdastjóri íslenskrar
tónverkamiðstöðvar, ráðin til
að starfa að þessu verkefni í
menntamálaráðuneytinu. ■
Frá blabamannafundi þar sem
norrœna menningarhátíbin var
kynnt. Tímamynd CS
BEINN SIMI
AFGREIÐSLU
TÍMANS ER
563*1631