Tíminn - 27.01.1995, Page 3

Tíminn - 27.01.1995, Page 3
Föstudagur 27. janúar 1995 3 Yfirskoöunarmönnum ríkisreiknings gert erfitt fyrir: Fjárlögin sniðgengin af framkvæmdavaldinu? „Þrátt fyrir lagaákvæ&i eru fjárlög gerö upp á svokölluö- um grei&slugrunni me&an rík- isreikningur er ger&ur upp á venjulegum rekstrargrunni. Þegar af þessari ástæ&u kemur fram mismunur sem telja veröur álitamál hvort standist þá lagagrein sem vitnaö er til....", segir m.a. í skýrslu yfir- sko&unarmanna ríkisreikn- ings fyrir 1993. Þar gagnrýna þeir enn og aft- ur aö fjárlög, fjáraukalög og rík- isreikningur séu ekki saman- buröarhæf gögn. „Skemmst er af því aö segja aö síst hafa oröiö breytingar til bóta í þessa átt í ríkisreikningum fyrir árin 1992 og 1993." Á síöustu árum segjast yfir- skoöunarmenn jafnframt hafa lýst þeim vandkvæöum sem á því eru aö bera saman einstaka liöi ríkisreiknings viö heimildir Alþingis samkvæmt fjárlögum og fjáraukalögum. Því auk þess sem fjárlögin eru á allt öörum grunni en ríkisreikningur þá fjölgi sífellt þeim tilfærslum sem framkvæmdavaldiö geri milli einstakra fjárlagaliöa. í ríkisreikningi fyrir 1993 kveöi svo rammt aö þessum færslum aö „fjárlög ársins 1993 eru ekki lengur skráö sem grunngagn í flestum saman- buröaryfirlitum reikningsins heldur svokallaöar „fjárheimild- ir". Þær fjárheimildir séu safn eftirtalinna atriöa: 1. Fjárlög 2. Yfirfærsla heimilda og umframgjalda 1992 3. Úthlutun óskiptra liöa rík- isstjórnar 4. Úthlutun óskiptra liöa ráöuneyta 5. Úthlutun ráöstöfunarfjár ráöherra 6. Úthlutun svokallaös „hag- ræöingarfjár" 7. Fjáraukalög Þrátt fyrir þessar margbrotnu fjárheimildir segja yfirskoöun- armenn víöa ærinn mun á milli þeirra og einstakra útgjaldaliöa stofnana þótt sömu stofnanir haldi sig innan fjárheimilda í heild. Þetta sýni aö verulegar til- færslur séu milli einstakra fjár- lagaliöa umfram þaö sem „fjár- heimildir" geri ráö fyrir. „í sundurliöun gjalda í ríkisreikn- ingi er tilflutningur fjárheim- ilda og uppskipting safnliöa stundum sýndur þannig aö eöli- legur samanburöur milli fjár- heimilda og rauntalna er nánast óframkvæmanlegur." Yfirskoöunarmenn benda á aö þaö hljóti aö vera umhugs- unarefni fyrir Alþingi hversu viöamiklir óskiptir liöir ýmiss konar eigi aö vera í fjárlögum og hvort ekki sé nauösynlegt aö setja ramma um úthlutun Norrœnir mannréttindamenn beönir aö koma til Moskvu til viörœöna um styrjöldina í Tsétsenju. Agúst Þór Arnason hjá Mannréttindaskrifsto fu Islands: Vi&ræður um framtíðTsétsenju Ætlunin er ab framkvæmda- stjórar mannréttindaskrif- stofa allra Norburlandanna fimm, fljúgi til Moskvu um helgina. I þeim hópi ver&ur þá Ágúst Þór Árnason, fram- kvæmdastjóri Mannréttinda- skrifstofu Islands, en hún var formlega stofnub 12. mars og 17. júní á sí&asta ári. A& skrif- stofunni standa níu samtök. Ágúst Þór tjáði Tímanum í gær aö borist heföi ósk rúss- neskra mannréttindamanna og þingmanna í Dúmunni, rúss- neska þinginu, um aö fulltrúar norrænna mannréttindahreyf- inga kæmu til Moskvu til viö- þeirra. „Til viöbótar vilja yfir- skoðunarmenn enn ítreka þá skoöun sína að nauðsynlegt sé að vanda betur fjárlagageröina. Mjög oft eru fjárlagaliðir, t.d. laun, önnur gjöld og sértekjur, í ósamræmi viö niðurstöður í rík- isreikningi og gerist þaö ekki síöur þótt hlutaðeigandi stofn- anir haldi sig innan heildar- heimilda. Þaö ætti aö vera keppikeíli allra aö ríkisreikningur sé skýr X)g sundurliðun greinileg," segja yfirskoöunarmenn. Císli Ögmundsson, 43 ára rafvirki, nútíma bæklunarlœkningar björgubu honum frá örorku, en ríkiö gat ekki keypt 130 þúsund króna tœki til aö bjarga heilsu hans. Heilbrigöiskerfiö gat ekki séö af 130 þúsund krónum til kaupa á lœkningatœki til aö koma í veg fyrir örorku: Braust frá örorku í fulla atvinnu ræöna um ástandiö í Tsétsenju. Ætlunin væri aö fara til Moskvu um helgina, en ekki væri með fullu víst aö af því gæti orð- iö. „Þetta veröur aðeins ferð til aö eiga viðræður viö aðilana, en ekki vettvangsferö á ófriðarslóö- ir," sagöi Ágúst Þór Árnason í gærdag. Hann sagöi einnig aö mannréttindi á Norðurlöndum væru mikils metin víða um heim, og ekki síst í löndunum sem mynduöu gömlu Sovétrík- in í dag. Þessi ósk um heim- sóknina sýndi aö til okkar væri litiö í þessum efnum og von- andi yröi hún til góös. ■ „Maður hefur jafnab sig nokk- uö en ver&ur aldrei eins og á&- ur. Eg er í fullri vinnu í mínu fagi, en ýmis óþægindi lei&a þó af þessu," sag&i Gísli Ög- mundsson, 43 ára rafvirki. Hann hafði átt vib langvar- andi veikindi a& stríba vegna brjóskloss. A&gerb á honum haf&i ekki borib árángur og læknar nánast búnir aö gefast upp. Vi& honum blöstu ör- orkubætur. Heilbrig&iskerfi landsmanna réb ekki vi& a& kaupa 130 þúsund króna tæki sem til þurfti a& skila Gísla aft- ur í vinnu. Gísli frétti af bæklunarlækni sem kom heim frá Svíþjóö fyrir um tveirn árum, Halldóri Jóns- syni, sem starfar viö Landspítal- ann. Halldór er talinn afar fær bæklunarlæknir og í fremstu röö á Norðurlöndum. Vinur en ekki vél „Ég fór í skoðun hjá Halldóri og varö mjög hissa, hann varö strax vinur minn, ekki svona vél eins og aðrir læknar höföu gjarn- an veriö," segir Gísli. „Halldór sá strax hvaö var að, hryggjarlið- irnir lágu saman, brjóskiö milli liðanna var klesst saman og ónýtt miíji tveggja liöa. Halldór sagði mér aö hann heföi komið heim með járn til að glenna í sundur hryggjarliði, fjarlægja brjóskiö og setja bein í staðinn. Hann þyrfti aö nota þaö á mig, Hér liggur Císli meö víravirkiö út úr bakinu. en þaö væri árs bið eftir að kom- ast í járnin. Hans járn voru þá í notkun á annarri manneskju. Það var ekki á fjárhagsáætlun aö kaupa önnur," segir Gísli. Bo&nir og búnir til hjálpar Gísli segir aö sér hafi liöið þaö illa aö hann hafi viljaö komast strax í aögeröina. Járnin kostuöu 130 þúsund krónur. Kona hans fékk styrk til kaupanna úr sjúkra- sjóöi bankamanna, 50 þúsund, og þá leitaði Gísli til síns stéttar- félags, Rafiðnaðarsambands ís- lands. Hann fór á skrifstofuna kl. 11 að morgni og talaði viö Sig- urð Hallvarðsson gjaldkera. Sig- urður var búinn aö afgreiða mál- Lyfjaverslun Islands hf. - alvöru almenningshlutafélag - eigendur fyrirtcekisins meira en 1.500: Öll hlutabréfin seldust á klukkutíma Hlutabréf ríkisins í Lyfja- verslun íslands, 150 milljón- ir a& nafnverbi, seldust á genginu 1,34 fyrir 201 millj- ón króna á rúmum klukku- tíma hjá Kaupþingi hf. í gær- morgun. Fengu reyndar færri en vildu. Þegar starfs- menn Kaupþings lif. mættu til vinnu um níuleytiö blasti vib þeim um 100 manna hópur fólks meb afgreiöslu- númer sem aflient voru í anddyri hússins. Sölu lauk ab mestu um 10-leyti&, en þeir sem komu eftir þab fenjgu fæstir hlutabréf. I þessum áhugasama hópi mátti greina aö þar var hinn sauösvarti almúgi mættur, en líka einhverjir vanir spekúl- antar. Ekki var hægt aö greina þar fulltrúa lyfjafyrirtækja, keppinautanna, nema þeir hafi veriö vandlega dulbúnir. Talið er víst aö þeir muni gjarnan eiga hlut í keppinaut- inum. „Almenningur hefur greini- legan áhuga á fyrirtækinu og fólk trúir því og það ekki aö ástæðulausu aö lyfjagreinin sé vænleg grein til fjárfestingar og að þar sé vöxtur," sagöi Stefán Halldórsson hjá Kaup- þingi í gær. Stefán sagöi að eignaraðild væri mjög dreifð og erfitt aö sjá hver valdahlutföll veröa í hinu nýja almenningshlutafé- lagi. Einna stærsta blokkin, ef um slíkt er hægt aö ræða, er hlutur starfsmanna, sem fengu að kaupa tvöfalt stærri skammt en aörir, og eiga þeir nú um 6% í fyrirtæki sínu. Giskað er á aö eigendur Lyfjaverslunar íslands séu nú um 1.500 talsins, trúlega rúm- lega það. Stór hluti kaupend- anna í gær nýtti sér ágæta af: borgunarleið sem boðiö var upp á, fimmtung mátti borga út, en afganginn í fimm jöfn- um greiðslum á næstu tveim árum. ■ iö tveim tímum síðar og spurði: „Hvenær vantar þig pening- inn?" Erfibir afturbata- mánubir Járnin sem heilbrigðiskerfiö gat ekki keypt komu til landsins og Halldór Jónsson gat hafiö aö- gerðina. Járnunum er komið fyr- ir á baki sjúklingsins til að glenna í sundur hryggjarliðina. Næsta aögerö á spítalanum nokkrum vikum síöar var ab taka bein úr mjöðminni, brjósk- ið milli hryggjarliöanna fjarlægt og bein grætt í staðinn, þannig að þrír hryggjarliðir eru græddir saman. Við tók þriggja mánaöa bið meðan beiniö var að gróa sam- an. Gísli fékk sérdýnu með gati fyrir teinana, þannig að hann gæti sofið á bakinu. Gísli segir að teinarnir sem voru boltaðir við hryggbeinin hafi átt þaö til aö gróa fastir. Þaö hafi verið þján- ingarfullt þegar skera þurfti þá lausa, en teinana þurfti að þrífa daglega. Síöan voru járnin num- in á brott og viö tóku þrír mán- uðir sem Gísli varö aö fara var- lega og mátti ekkert gera. Þakklátur hversu vel tókst til Alls var Gísli frá vinnu í hálft þriðja ár frá fyrstu brjósklosað- gerðinni. En hann er kominn aftur út í atvinnulífið í staö þess að veröa örorkuþegi hjá Trygg- ingastofnun. Halldór segist þakklátur mörgum fyrir hversu vel tókst til. Halldóri lækni, Margréti Gunnarsdóttur í Heimahjúkmn, sem hafi verið ákveðin og örugg og heföi frískað sig upp, félögum sínum í Rafiðnaöarsambandinu sem studdu hann allan tímann, borguðu öll lyf og sjúkraflutn- inga auk þess aö grei&a sjúkra- dagpeninga á meöan á þessu stóð, bæturnar sem fengust frá Tryggingastofnun hafi verið afar lágar og hefðu engan veginn dugað til framfærslu. Og þá sagöi Gísli ab síbast en ekki síst hefbi konan hans reynst honum 150%, án hennar heföi hann aldrei komist gegnum þetta. ■

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.