Tíminn - 08.02.1995, Qupperneq 7

Tíminn - 08.02.1995, Qupperneq 7
Mi&vikudagur 8. febrúar 1995 Sfeniww 7 Gæta þess ab tryppin haldi glebi sinni Viötal viö Ingimar Sveinsson, kennara á Hvanneyri Ingimar fyllir nú áratuginn sem kennari í hrossarækt og tamn- ingum viö Bændaskólann á Hvanneyri. HESTAMÓTUM þótti fróölegt aö heyra álit hans varöandi tamningu unghrossa meö tilliti til þess hvaö mikiö mætti leggja á þau í byrjun. Mikii umræöa var um álag á ungum hrossum eftir landsmót- iö í sumar. Hvað segir þú um þessa hluti, Ingimar? „Mér finnst allt í lagi aö byrja meö hrossin í tamningu fjög- urra vetra. Þaö er ekki aldurinn einn sem skiptir þar mestu máli, heldur þroski tryppisins, en þetta er mjög einstaklingsbund- iö. Þaö þarf aö meta hvert.hross fyrir sig. Ef hrossin eru vel upp- alin, er ágætt aö byrja meö þau á fjóröa vetri, en fara rólega í þau og gefa þeim síöan hvíld eftir svona tvo mánuöi og halda svo áfram meö þau á fimmta vetur og þá reynast þau yfirleitt mjög vel undir þaö búin aö taka tamningu og þjálfun. Hvaö á- lagiö varöar, þá eru vel uppalin hross búin aö ná nánast fullri stærö 4ra vetra, en hryssurnar eiga þó eftir að hækka á herðar. Þetta er misjafnt eftir uppeldi og ætt, því sum hross eru sein- þroskaðri en önnur. En þó stæröinni sé náö, þá á sér stað umbreyting á beinum, því þau eiga eftir aö harðna og þéttast og of mikið álag getur auðvitað reynt of mikiö á fætur, þannig aö hrossin veröi fyrir varanleg- um skaöa. Vöövabygging og stæling á eftir aö vaxa mikið. Þess vegna eru takmörk fyrir því hve mikiö má beita 4ra vetra hrossuip í reið." Nú sást það í sumar að 4ra vetra hross voru tekin til skeiðs til hins ýtrasta, sprett eftir sprett. Er þetta ekki varasamt? „Ég held það og þaö eru aö- eins örfá hross sem þola slíkt. Þaö er hægt að sýna hross svo vel sé án þess aö þvengleggja > þau margsinnis. En þarna kem- ur til kasta knapans og eigand- ans að meta þetta. í þessum efn- um gildir ekki nein ákveöin lína fyrir öll hross." Þú minntist á það fyrr í viðtal- inu að þetta vceri mismunandi eft- ir aettum hrossa. Hefur þú orðið á- þreifanlega var við þetta? „Já, hross eru misjöfn hvaö þetta snertir og einkum finnst mér aö hross af ákveðnum stofnum séu seinni að ná and- legum þroska, þó þau virðist vera oröin vel líkamlega þroskuð. Þau veröa kvíðin og ó- möguleg, ef lagt er hart aö þeim, og- geta alveg brotnað niður. Fái þau hins vegar tíma og maður byggir þau upp, veröa þau ekki eftirbátar annarra hrossa, oft hörkuviljug. Ég tem hrossin yfirleitt á fjóröa vetur og sum þeirra þola mikið álag. Ég get nefnt einn hest, Spræk, sem Guðrún kona mín á. Ég tamdi hann 4ra vetra og lagði talsvert á hann strax í byrjun. Þaö var keppt á honum þaö sumar og farið meö hann í feröalag og hann hefur oft síðan verið í keppnum og í feröum hvert sumar. Hann er nú á 26. vetri og er enn í fullu fjöri og aldrei bólgnað á honum fótur, hvaö þá meira. Þessi hestur var þjálfaður nokkuö mikið áður en hann var taminn. Ég var þá bú- settur á Egilsstöðum og þegar ég fór í beitarhúsin, sem voru í tveggja kílómetra fjarlægö, teymdi ég hann með mér svona tvisvar til þrisvar í viku á jepp- anum, en hann var þá tveggja vetra. Af þessum hlaupum fékk hann mikla stælingu og þol. Eins og ég hef áður sagt, þá er þetta einstaklingsbundið, en þetta leiöir hugann að undir- búningi hrossanna áöur en farið er aö ríöa þeim. Þaö er mikils virði aö fara ró- lega af stað, en gefa þeim færi á góöri hreyfingu. Ég held t.d. að teymingar með öðru hrossi séu mjög góöur undirbúningur fyrir framhald tamningar. Það stælir bæöi vöðva og bein. Þaö er feiknamikið álag á tryppi, ef á að fara að ríöa því strax á fyrsta degi, og þaö verður að gæta þess aö fara ekki yfir þau mörk sem líkamlegur og andlegur styrk- leiki leyfir. Sérstaklega verður aö gæta sín meö ‘stóru tryppin að láta ekki stærðina villa um fyrir sér. Þessi hross eru oft verr undir það búin aö fara í stranga þjálfun, vegna þess aö þau hafa tekið svo fljótt út vöxtinn. Þarna gildir það sama hjá hestinum og manninum, unglingar sem vaxa mjög ört eru á vissum aldri grút- máttlausir." Hvað viltu ráðleggja varðandi tímalengd í einni lotu fyrir frum- tamninguna? „Ég treysti mér nú ekki til að gefa út neina formúlu hvaö þetta varöar. Það er allt í lagi aö vera meö hrossin nokkuð lang- an tíma, ef farið er rólega með þau. En þaö er mjög mikið atriði aö þau þreytist aldrei verulega, en séu byggö upp hægt og ró- lega og séu síglöð. Síðan er gott aö hvíla þau vel um ákveöinn tíma, þegar vissu stigi tamning- ar er náö, en eins og ég tók fram áðan þá er engin allsherjar for- múla fyrir þessu. Þegar byrjað er aö gangsetja hross, þá vilja þau mörg þreytast og er þá gott aö hvíla þau um tíma, því þau eru þá yfirleitt miklu tilbúnari næst. Mér finnst á stundum aö menn hugsi ekki nógu vel út í þaö hve þetta er mikið álag, andlegt sem líkamlegt, fyrir tryppin þegar byrjaö er aö temja þau." Ingimarog Sprettur á fjórðungsmóti á Fornustekkum 1984 HEJTA- MOT KÁRI ARNÓRS- SON En hvað með auðtömdu hross- in? „Þau hross, sem koma fljótt með mikinn vilja og gangrými, er miklu hættara, því þau hlífa sér ekki og knapinn veröur að hafa vit fyrir þeim. Annars er hægt aö ganga alveg fram af þeim og þau geta verið lengi að ná sér. Ég man eftir einum slík- um 4ra vetra hesti, sem var meö alskemmtilegustu tryppum sem hægt var aö finna. Hann kemur svo fram á fjóröungsmóti sem einstaklingur og sem afkvæmi. Það gekk vel hjá honum fram á þriöja dag, þá strækaöi hann al- veg og leið á annaö ár áöur en hann fékkst til aö gera nokkuð aftur. Hann haföi greinilega gengiö fram af sér, því þessi ör- viljugu hross hlífa sér ekki fyrr en þau eru allt í einu búin." Þú hefúr látið það koma skýrt fram hve tamningamaðurinn þarf að leggja sig vel fram við að meta hvem einstakling og hvað á hann sé leggjandi. Er lögð mikil áhersla á þetta í kennslunni? „Já, ég legg mikla áherslu á það í kennslunni aö þjálfa ekki hrossin meira en svo aö þau veröi glöö og þreytist sem minnst. Þetta er tíunda árið sem ég kenni tamningar og ég hef einstaka sinnum orðið var viö, sem var þó meira áöur, að nem- endur sem voru meö auðveldari tryppin ætluöu aö veröa á und- an og fóru því að taka meira til þeirra, en þaö fór oft út í það að tryppin uröu kvíðin og vildu ekki fara frá húsi eöa þau vildu rjúka heim. Það var oft mikið vandaverk að koma þessum tryppum aftur í gang. En nú seinni árin vörum viö okkur á þessu. Þegar veriö er aö þjálfa fyrir mót, þarf aö gæta þess að taka í það langan tíma fyrir þessi ungu hross og tamntngamaðurinn veröur að geta metið hvort hrossið sé nægilega tilbúið. Sum unghross þola þetta, en sum alls ekki. Viö þetta þarf að hafa mjög mikla aögát. Mér finnst aö ekki eigi að banna sýningu á 4ra vetra hrossum, því þaö sé gott aö unghross komi fram. Aftur ætti að takmarka sprettina og setja einhver mörk varðandi hve hrossið geti komið fram í mörgum sýningum. Ég hef ó- ljósan grun um þaö, þó ég hafi ekki sannanir, aö ástæöa þess aö margir af stóðhestunum, sem búiö er aö sýna mikið á unga aldri, fá spatt eöa kölkun í liði sé sú að álagiö hafi verið meira á bein og liði en endursköpunin hefur ráöiö við. Þá koma í þetta særindi og myndast í því kölk- un. Erlendar rannsóknir hafa sýnt aö of mikil þjálfun á unga aldri getur leitt til slíks skaöa." ■ Skyldleikarækt VI kynbótahornið Einn af þeim hestum sem nú eru í notkun, Glaö- ur 1058 frá Sauöárkróki, er talinn mest skyld- leikaræktaöur af þeim hestum sem hafa komiö frá Sauöárkróki. Skyldleikaræktarstuöull hans er 18,95%. Glaöur er slysafang, en Gnótt 6000- móöir hans átti hann þegar hún var þriggja vetra. Hann er sagöur undan Víkingi frá Sauöár- króki. Víkingur er undan Gusti 923, sem er mjög mikiö skyldleikaræktaöur eins og komiö hefur fram áöur í HESTAMÓTUM. Gnótt er hins vegarundan Hrefnu 3792, alsystur Gusts. Gust- ur og Hrefna eru undan Sörla 653 og Flugu 3103, sem var undan Ragnars-Brúnku 2719 og Feng 457, en Sörli var líka undan honum. Þannig eru þessi alsystkin Gustur og Hrefna afi og amma Glaös. Foreldrar Víkings voru einnig náskyld. Drottning 4648 frá Sauöárkróki, móöir hans, var undan Sörla 653, eins og Gustur, og móöir hennar var Fjööur 2827, sem líka var mikiö skyld Ragnars-Brúnku ömmu Gusts. Gnótt er líka talsvert skyldleikaræktuö; hún er undan Hrefnu, sem fyrr segir, og undan Hervari 963 frá Sauöárkróki, en hann er undan Hervöru 4647 sem er dóttir Síöu 2794, dóttur Ragnars- Brúnku. Faðir Hervars var Blossi 800, sonur Sörla og því hálfbróðir Gusts 923. Nú mætti ætla aö svona mikið skyldleikarækt- aöur hestur og Glaöur er sagður vera, bæri mjög sterk einkenni ættarinnar. Víkingur, sagð- ur faðir hans, er meö mjög áberandi höfuö frá fööur sínum, þetta höfuö sem rakiö er til Ragn- ars-Brúnku. Hrefna, amma Gnóttar, haföi líka þessi einkenni mjög sterk. En Glaöur hefur allt aöra höfuögerö og það sem meira er, hann erf- ir frá sér fínlegt höfuð og aö ýmsu leyti öðruvísi frambyggingu en önnur hross sem komin eru út af Gusti. Þetta gerist líka þó Glaöur. fái viö skyldum hryssum. Það, sem vakti sérstaka athygli mína á þessu, var tryppi sem ég skoðaði undan Glað og Gustsdóttur. Þessi sterki Sauöárkrókssvipur er ekki til á því tryppi. Ég fór því að skoöa fleiri hross undan Glaö og þar sýnist mér vera sama sagan. Þetta bendir til þess aö vafi gæti leikið á um faðerni Glaðs. Slíkt er ekki óalgengt þegar um slysafang er aö ræöa. Fróölegt væri aö fá úr þessu skorið, en það er að sjálfsögöu hægt meb blóðrannsókn, þar sem foreldrar Glaðs eru báö- ir á lífi.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.