Tíminn - 21.02.1995, Page 1
STOFNAÐUR 1917
79. árgangur Þriðjudagur 21. febrúar 1995 36. tölublað 1995
Hettuklœddur rœningi:
Rændi sölu-
turn vopnað-
ur þjöl
Hettuklæddur piltur rændi
söluturn viö Ásgarö á sunnu-
dagskvöld, vopnaöur þjöl.
Starfsstúlka í versluninni var
ab gera upp kassann, þegar
pilturinn ruddist inn og náði
hann aö hafa á brott meö sér
um 70 þúsund krónur. Aö svo
búnu hljópst hann á brott og
tilkynnti starfsstúlkan lög-
reglunni þá um rániö.
Talið er á lýsingum vitna aö
pilturinn sé einn af góökunn-
ingjum lögreglunnar. Máliö var
sent RLR, en þegar Tíminn fór í
prentun haföi drengurinn ekki
fundist. ■
Par um tvítugt úrskurb-
aö í gœsluvaröhald til 1.
mars:
Hrottafengin
líkamsárás
Par um tvítugt hefur verib
úrskuröab í gæsluvaröhald
til 1. mars næstkomandi,
vegna hrottalegrar árásar á
mann á Ingólfstorgi um
klukkan fjögur.
Maöurinn sem fyrir árás-
inni varö, er mjög illa leikinn
á höföi, sérstaklega í andliti,
og missti meövitund eftir
spörk tvímenninganna, sem
voru ölvaöir.
Ástæöa þess aö pariö var úr-
skuröaö í varöhald, er aö árás-
in þykir óvenju heiftarleg, auk
þess sem tíma þurfi til aö ná
almennilega utan um rann-
sókn málsins, þó svo að játn-
ing liggi fyrir.
Samkvæmt heimildum
Tímans var árásin fram-
kvæmd að „tilefnislausu", en
talsverður fjöldi fólks var á
torginu þegar verknaðurinn
var framinn. Atburöarásin er
nokkuð óljós. ■
Okkar hjörtu slá í takt, S(
Tímamynd CS
ff w»*»*%*» imvi jim f íui 'w.f sagöi Sigrún Ágústsdóttir, formabur verkfallsnefndar kennara, um abgerb-
ir framhaldsskólanema í fjármálarábuneytinu í gær. En í gœrmorgun mœttu framhaldsskólanemar í rábuneytib meb kröfuspjöld til ab
leggja áherslu á stubning sinn vib kröfur kennarafélaganna. Nemendurnir sátu í tröppum og á göngum rábuneytisins fram eftir degi og
notubu sumir tímann til lestrar.
Kennarar heröa verkfallsvörsluna. Ahrifa verkfallsins gœtir víöa:
• •
Ongþveiti og mikil
röskun á einkahögum
„Þaö skapast öngþveitisástand í
samfélaginu þegar kennarar fara í
verkfall. Þab veldur alveg geysi-
lega mikilli röskun á einkahög-
um fjölmargra fjölskyldna," segir
Sigrún Ágústsdóttir, formaöur
Tveimur loönumœlingum Hafrannsóknastofnunar lokiö:
Ekki ástæða til að
endurskoða kvótann
Þótt enn vanti rúm 100 þúsund
af ioönu til þess ab mæld stofn-
stærb svari til þess aflamarks
sem sett var í upphafi vertíbar,
telur Hafrannsóknastofnun
ekki ástæöu til aö endurskoöa
upphaflega ákvörbun um 950
þúsund tonna heildarlobnu-
veibi á vertíbinni.
Þessi ákvöröun Hafró helgast
m.a. af óvissu um nákvæmni
mælinga á loönugöngum austan
lands í janúar og í þessum mán-
uöi, auk frétta af loðnugöngum
úti fyrir sunnanveröum Vestfjörð-
um. Eri nýverið lauk tveimur
mælingum á hrygningargöngum
loönunnar út af Austur- og Suð-
austurlandi. í báöum tilvikum
voru aöstæöur afar erfiðar og þá
einkum vegna veðurs en einnig
vegna þess hve loðnan var dreifö.
Alls mældust um 875 þúsund
tonn af hrygningarloðnu Austan-
og Suðaustanlands miðað við
miðjan þennan mánuð. Að mati
Hafró svarar það til 475 þúsund
tonna afla frá því mælingu lauk,
miöað viö að 400 þúsund tonn
veröi eftir og hrygni í vor. Þá
haföi verið landað um 40 þúsund
tonnum á vetrarvertíðinni og yrði
þá aflamark á allri vertíðinni um
515 þúsund tonn.
Á sumar- og haustvertíð veidd-
ust alls 320 þúsund tonn af lóðnu
og er þá afli útlendinga meðtal-
inn. Þar af nam afli Islendinga
tæplega 211 þúsund tonnum. Eft-
ir að loðnan gaf sig í þessum mán-
uöi hafa veiðst um 60 þúsund
tonn og um helgina vom skipin
að fylla sig hvert af öðru á miðun-
um vestan við Ingólfshöfða. Af
636.500 tonna loðnukvóta ís-
lendinga voru þá eftir um 360
þúsund tonn.
Loðnugangan var þá á hraðri
Ieið vestur með suðurströndinni
en á ’ sama tíma varö vart við
loðnugöngur fyrir austan út af
Hvalbak. Víðast hvar er loðnu-
frysting hafin á fullum krafti og
m.a. um borð í frystitogurum. ■
verkfallsnefndar kennarafélag-
anna. Því til staðfestingar vísar
Sigrún m.a. til þeirra fjölmörgu
fyrirspurna og undanþágubeiðna
sem borist hafa til verkfallsnefnd-
ar kennara frá því verkfallið kom
til framkvæmda sl. föstudag. í
gær hafði hinsvegar aðeins ein
undanþágubeiðni verið sam-
þykkt vegna sjúkraþjálfunar fatl-
aðs einstaklings sem er hluti af
starfi íþróttakennara. öðrum
hafði verið hafnab eða bibu af-
greibslu. En obbinn af þeim und-
anþágubeiðnum sem hafa borist
verkfallsnefndinni snerta mál- *
efni fatlaðra og hreyfihamlaðra.
Sigrún segir að framkvæmd verk-
fallsins heföi gengið alveg ágætlega
það sem af er. Verkfallsnefndin sá
þó ástæöu til aö senda verkfalls-
verði í íþróttahúsin á höfuðborgar-
svæðinu til að kanna hvaba starf-
semi færi þar fram. Auk þess var ver-
ið að athuga starfsemi sem frést
hafði af í félagsmiðstöðvum á Vest-
fjörðum. En í Kópavogi haföi veriö
hætt við áður skipulagða dagskrá
fyrir grunnskólanemendur í
íþróttahúsi að beiðni bæjarstjórnar.
Þá haföi verkfallsnefndin ekki tekið
afstöðu til framkominna hug-
mynda frá Keflavík, þar sem kenn-
urum er boðið upp á samkomulag
þess efnis að íþróttahús sveitarfé-
lagsins verði lokað til klukkan 13
virka daga en eftir þann tíma veröi
látið óátalið það sem þar fer fram.
Verkfallsnefndin haföi í gær ekki
haft neinar spurnir af meintri af-
hendingu kennslugagna til nem-
enda en í upphafi verkfalls lék
grunur á aö svo væri. Sigrún segir
að öllum skólastjórum hefði verið
skrif bréf vegna þessa þar sem árétt-
að var sú skoðun að afhending
kennslugagna væri verkfallsbrot þar
sem það væri í verkahring'kennara.
í gærmorgun hófst verkfallsvarsla
hjá kennurum á Akureyri og er bú-
ist við að skipulögð varsla hefjist á
fleiri stöðum fyrir norðan.
Á Akranesi hófst verkfallsvarsla
strax sl. föstudag og viðbúið að
kennarar á Austurlandi og Suður-
landi gæti þess að framkvæmd verk-
fallsins gangi snurðulaust fyrir sig.
Þá geta þeir kennarar sem hafa að-
gang að íslenska menntanetinu
fengið allar nýjustu upplýsingar um
gang samningaviðræðna og stöðu
mála á heimilstölvuna. En eftir því
sem best er vitað sinnir sérstakur
starfsmaður upplýsingagjöf til
kennara á íslenska menntanetinu.