Tíminn - 21.02.1995, Side 2

Tíminn - 21.02.1995, Side 2
2 Þribjudagur 21. febrúar 1995 Tíminn spyr... Hefur Alþýbubandalaginu tek- ist ab marka sér trúverbuga sérstöbu í kosningunum meb vinstri stefnu í 10 libum? Páll Pétursson alþingismabur: „Nei það tel ég ekki vera. Ólaf- ur Ragnar er að reyna að marka sér þá sérstöðu aö hann vilji ekki starfa með fram- sóknarmönnum að loknum kosningum og það er ekki trú- verðug vinstri stefna. Orba- leppar hans benda allir til þess að hann vilji ekki starfa með okkur og að hann sé að undir- búa samstjórn meb íhaldinu." ÁrniJohnsen alþingismaður: „Nei. Vinstri stefna er ekki trúveröug." Hannes Hólmsteinn Gissurarson lektor: „Alþýðubandalagið segist ætla að fara að fordæmi Aust- ur-Asíuþjóðanna. Það hljóm- ar ekki sennilega, því að Kór- eumenn, Tævanbúar og borg- arar í Singapore hafa náb ör- um hagvexti meb því að hlúa að stórfyrirtækjum, halda nibri verkalýðsfélögum og raska hlutfalli sparnaðar og fjárfestingar, sparnaði í vil, umfram það sem yrði á frjáls- um markaði. Þessi þjóðfélög em ekki jafn geðfelld og hin, þar sem hagvöxtur er sjálf- sprottinn og hlýst af viðleitni einstaklinga til þess að bæta kjör sín í frjálsum viðskipum, eins og gerðist í Bretlandi á 19. öld og í Bandaríkjunum, Vestur-Þýskalandi og Hong Kong á 20. öld." Ingimundur Sigfússon, nýtekinn viö starfi sendiherra íslands í Bonn, i viötali viö Tímann í gœr: Einstakur velvilji í garð íslendinga Það vakti mikla athygli þegar Tíminn birti þá frétt í nóvem- ber sl., ab Ingimundur Sigfús- son, þá nýhættur sem forstjóri hjá Heklu hf., væri volgur í embætti sendiherra í Þýska- landi. Þetta gekk eftir. Jón Baldvin Hannibalsson, skipabi Ingimund í embætti. Og nú hefur Ingimundur tekib til starfa í Bonn, og bíður nú eftir eiginkonu sinni, Valgerbi Vals- dóttur (Gíslasonar, leikara), sem undanfarið hefur gengib frá búslóð þeirra hjóna í gáma til flutnings í ný heimkynni. Sérstaka athygli vakti ab skip- an Ingimundar sem sendiherra er sú fyrsta sem fellur í skaut manni úr viöskiptalífinu. Tím- inn hringdi í Ingimund í gær- dag: „Þetta leggst mjög vel í mig og ég hef engar áhyggjur af því sem framundan er í starfi mínu hér, öðm nær. En auðvitab er það mikið átak ab fást við nýja hluti á nýjum vettvangi, og það mjög spennandi hluti," sagði Ingi- mundur Sigfússon, sendiherra Is- lands í Bonn í Þýskalandi í gær. „Það sem ég finn fyrst fyrir er mikil velvild í garð íslands og ís- lendingá sem er ómetanlegt. Ég þekki Þjóbverja vel frá viðskipt- um um árabil svo þetta kom mér kannski ekki svo mjög á óvart. En hér hef ég verið að kynnast nýju fólki í hinu opinbera kerfi sem hefur tekib mér afskaplega vel," sagði Ingimundur í gær. Ingimundur Sigfússon afhenti á dögunum forseta Þýskalands, Roman Herzog, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra íslands í Þýska- landi. Herzog hitti forseta ís- lands, Vigdísi Finnbogadóttur, í Þýskalandi í desember síðastliðn- um og í spjalli þeirra Ingimundar vitnabi forsetinn í fund þeirra, hans og Vigdísar. „Mér fannst þetta mikil stund í mínu lífi að afhenda trúnaðar- bréf, og það mjög góð stund sem ég átti með forseta landsins," sagöi Ingimundur. Reynsla í viðskiptalífi í sendiherraembætti Ingimundur Sigfússon var um langan tíma forstjóri stærsta fyr- irtækis landsins í bílgreininni, Heklu hf. Við spurðum Ingi- mund hvort ekki mætti vænta þess að þekking hans á við- skiptalífinu nýttist honum í nýju starfi sendiherra? „Auðvitað vona ég að reynsla mín í viðskiptalífinu nýtist sem best í þessu nýja starfi. Það hlýt- ur náttúrlega að vera áhugamál mitt að gera það sem ég get til að auka viðskipti og viðskipta- tengsl. En auðvitað er best að hafa sem fæst orð um þetta á þessu stigi málsins. En við erum aubvitað með mjög einhæfan útflutning, en þab er þó ýmislegt að gerast. Ég nefni til dæmis að staöreynd er að Útgerðarfélag Akureyringa á hér meirihluta í stóru útgerðar- félagi, Mecklenburg Hochseefi- scherei. Hér eru líka að koma sér fyrir verktakafyrirtæki, Aðal- verktakar og Ármannsfell, sem mér finnst mjög áhugavert. Svo er hér ríkjandi mikill áhugi fyrir hestunum okkar," sagði Ingi- mundur Sigfússon. Þýskar fjárfestingar á íslandi? Tíminn spurði sendiherrann hvort líkur væru á að Þjóðverjar vildu efna til fjárfestinga á ís- landi í sambandi vib iðnað eða annab. „Auðvitað er þab áhugavert að fá að vita hvort Þjóöverjar vilja fjárfesta hjá okkur. Ég get ekkert um það fullyrt, en þetta er auðvitað nokkuð sem ég hef mikinn áhuga á og ætla ab leggja áherslu á. En í þessu efni sem öðrum vil ég ekki segja meira en hollt er eða kveikja einhverjar gyllivonir," sagði Ingimundur Sigfússon, sendi- herra í Bonn. Hugað að flutningi til Berlínar Hjá íslenska sendiráðinu í Ingimundur Sigfússon, sendiherra. Bonn starfa fjórir starfsmenn. Einhvern tíma í framtíðinni er ætlunin að íslenska sendiráöið flytji til Berlínar þar sem það verður nánast undir sama þaki og önnur norræn sendiráö á Ti- ergartensvæðinu í miðborg Berlínar. Ingimundur sagði að þessi flutningur yrði væntan- lega ekki á næstunni en aö hon- um væri þó hugað. Um lóöa- málið væri nú fjallað af borgar- yfirvöldum í Berlín og í utanrík- isráðuneyti Þýskalands, en ekki er búið að teikna sendiráðs- byggingarnar enn sem komið er. „Mér hefur verið sérlega vel tekið hérna í Bonn eins og alls staðar, og það sama var uppi á teningnum í utanríkisráðuneyt- inu heima. Fyrir þab er ég mjög þakklátur," sagði Ingimundur Sigfússon sendiherra að lokum. Gallupkönnun í Noröurlandskjördœmi eystra: Framsóknarflokkurinn með þrjá þingmenn Frá Þór&i Ingimarssyni, fréttaritara Tímans á Akureyri: Framsóknarflokkurinn hlyti 39,3% atkvæða og þrjá menn kjörna á þing samkvæmt skoð- anakönnun sem Gallup hefur gert á fylgi stjórnmálaflokkanna í Norðurlandskjördæmi eystra nú í febrúar. Framsóknarflokkurinn á nú þrjá kjördæmakjörna þing- menn í kjördæminu af sex, en vegna breytinga á vægi atkvæða á milli kjördæma í komandi kosn- ingum verða aðeins fimm kjör- dæmakjörnir þingmenn í kjör- dæminu að þeim loknum, en sjötti þingmaður þess nú er þriðji þingmaður Framsóknarflokksins. Samkvæmt könnuninni hlyti Framsóknarflokkurinn 6,288 at- kvæði eða 39,3% fylgis ef miöað er við 16 þúsund kjósendur, sem er nálægt þeim fjölda sem verður á kjörskrá í komandi kosningum. Sjálfstæöisflokkurinn hlyti á sama hátt 4,080 atkvæði sem þýðir 25,5% og einn kjördæmakjörinn þingmann og Alþýðubandalagiö hlyti 2,480 atkvæði og einnig einn kjördæmakjörinn þing- mann. Aðrir flokkar hlytu ekki kjördæmakjörinn þingmann, en næstur Alþýðubandalaginu kom Þjóðvaki Jóhönnu Sigurðardóttur með 1,520 atkvæði eða 9,5%. Al- þýðuflokkurinn hlyti aöeins 768 atkvæði eða 4,8%, Kvennalistinn 672 atkvæði eða 4,2% og aðrir 192 atkvæði eða 1,2%. Við úthlut- un þingsæta samkvæmt kosn- ingalögum ná Alþýðuflokkur og Kvennalisti ekki því atkvæða- magni samkvæmt þessari könnun sem þarf og koma því ekki til greina með þingmenn, en Fram- sóknarflokkurinn hlyti fyrsta, annan og fimmta þingmann kjör- dæmisins, Sjálfstæbisflokkurinn hlyti þribja þingmanninn og Al- þýðubandalagið þann fjórða. ■ Mýrdalsjökull: Beib bana í faður á fertugsaldri beio bana þegar hann féll á vélsleða, niður um 15 metra djúpa sprungu á Mýrdalsjökli, efst í Sólheimaskrið- jöklinum um mibjan dag á sunnudag. Ferðafélagar mannsins náðu ab kalla til þyrlu ásamt björgunarsveitarmönnum til að- stoðar við ab ná manninum upp úr sprungunni. Tiltölulega greib- lega gekk að ná manninum upp úr sprungunni og var hann flutt- ur meö þyrlunni á sjúkrahús í Reykjavík, en þá var maburinn látinn. ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.