Tíminn - 21.02.1995, Page 4

Tíminn - 21.02.1995, Page 4
4 Þribjudagur 21. febrúar 1995 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: Jón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugerð/prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. Mánabaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verð ílausasölu 150 kr. m/vsk. Miöstýrö náttúru- vernd Frumvarp til laga um náttúruvernd er eitt af þeim málum sem deilt er um á Alþingi um þessar mundir. Frumvarpið kveður á um breytt hlutverk Náttúruverndarráðs og að stofnuð sé svokölluð Landvarsla ríkisins sem lýtur stjórn umhverfisráðuneytisins. Það eru skiptar skoðanir um þessa skipan, og deilt hefur verið um þá miðstýringarhugsun sem frumvarpið ber greinilega með sér. Það er eðlilegt að skipan náttúruverndar- mála sé löguð að þeirri staðreynd að umhverf- isráöuneyti er tekið tii starfa. Hins vegar er það vafasamt, svo ekki sé meira sagt, að fela einni ríkisstofnun með stjórn skipaðri af umhverfis- ráðherra, án tilnefningar, yfirumsjón með allri landvörslu. Það samrýmist ekki hug- myndum um valddreifingu sem nú eru ofar- lega á baugi, í orði að minnsta kosti. Umsjón þjóðgarða og friðaðra svæða er meðal meginverkefna Náttúruverndarráðs. Þetta verkefni skal flytjast til Landvörslu ríkis- ins. Eðlilegt er að dreifa því verkefni og fela jafn- vel aðilum í ferðaþjónustu umsjá með slíkum svæðum. Þessir aðilar gætu tekið að sér slík verk samkvæmt verklýsingu sem væri í sam- ræmi við þær reglur sem gilda um varðveislu óspilltrar náttúru. Markmiðið er að saman fari verndun náttúr- unnar og eðlilegur umgangur fólks. Þjóðgarð- arnir draga að sér ferðafólk og það skiptir miklu máli að það njóti þeirra án þess að níð- ast á viðkvæmri náttúru. Það er óhyggilegt að vera að reka veigamikl- ar lagabreytingar varðandi þennan viðkvæma málaflokk í gegnum Alþingi í ósamkomulagi og tímahraki. Um náttúruvernd, hvernig fræðslu og eftirliti er háttað, þarf að nást víð- tæk samstaða. Skóglendi eru í vaxandi mæli að verða úti- vistarstaðir og hlutverk Skógræktar ríkisins er í vaxandi mæli að veita ráðgjöf og hafa eftirlit með skóglendi í landinu. Það ætti að kanna betur þann möguleika að fela Skógræktinni umsjón með landvörslunni í stað nýrrar stofnunar, ef sú verður niðurstaðan að draga úr hlutverki Náttúruverndarráðs. Það er áríðandi að skipan náttúruverndar- mála tryggi fræðslu og frumkvæði, án öfga í þessum mikilvæga málaflokki. Við íslendingar þurfum á því að halda að nýta landið í sem mestri sátt við náttúruna. Öll mannleg athöfn hefur þó eitthvert rask í för með sér. Allir þurfa að finna til ábyrgðar og þess vegna er mið- stýrð náttúruvernd varasöm. Vinstri von meö Davíö Alþýðubandalagib hefur sam- þykkt kosningastefnu sem al- mennt gengur undir nafninu „vinstri vonin". Ólafur Ragnar hefur um helgina gengið fram fyrir skjöldu og kynnt alþjóö helstu stefnuatriðin m.a. í Evr- ópumálum, sem felast í því að endurtaka málatilbúnað Stein- gríms Hermannssonar frá því í EES-málinu og vara við oftrú á Evrópumarkaði og benda á að menn ættu að líta vítt um heim- inn og leggja aukna áherslu á As- íumarkað. Þetta er hin ágætasta stefna, þó ýmsum finnist hún bera keim af því sem orðiö er og er að gerast hvort sem er, en því aö þar sé tekið frumkvæði í út- flutningsmálum. Asíumarkaður er, eins og Alþýðubandalagið bendir réttilega á, mikilvægur, og ekki tilviljun ab stór hluti út- flutningsframleiðslunnar fari þangab. Til dæmis fer trúlega yfir helmingur SH-sölunnar þangab nú þegar. Vinstri stefna En þab, sem vekur þó mesta at- hygli í stefnu Alþýðpbandalags- ins, er áherslan á vinstristefnu og það að Ólafur Ragnar talar um skýran kost til vinstri, sem nú bjóði fram. Ekki er hægt ab skilja Alþýðubandalagið öðmvísi en svo ab illgerlegt sé að vinna meb Framsóknarflokknum, því þar sé tómt miðjumoð. Fomsmmenn Allaballa hafa keppst við að gera tortryggilegar þær hvatir sem liggja að baki yfirlýsingum Hall- dórs Ásgrímssonar um að hann vildi fyrst reyna stjórnarmyndun með núverandi stjórnarand- stöðuflokkum. Vinstri vonin felst því tæplega í samstarfi við Framsókn eftir kosningar. Á Stöð 2 um helgina afneitaði Ólafur Ragnar líka Jóni Baldvini Hannibalssyni og sagðist aldrei munu vinna með honum í ríkis- stjórn þar sem Jón Baldvin yrði utanríkisráðherra. Slíkt er náttúr- lega afar harður dómur yfir flokksformanni, sem verib hefur í forsvari utanríkismála allan þennan tíma. Vinstri vonin felst því tæplega í samstarfi vib Al- þýbuflokkinn eftir kosningar. GARRI Ólafur Ragnar hefur lýst því yf- ir að framboö Jóhönnu Sigurðar- dótmr og þeirra Þjóðvakamanna sé til mikillar óþurftar og spilli og skemmi fyrir félagshyggjuflokk- unum. Jóhanna kemst ekki und- an því að bera ábyrgð á skuldum heimilanna, segir Olafur Ragnar. Vinstri vonin felst því tæplega í samstarfi við Þjóðvakann eftir kosningar. Kvennalistinn ekki heldur Kvennalistinn og Alþýðu- bandalagib hafa lengi eldað grátt silfur og ekki hefur sambandið batnað viö þab að Kvennaþstinn hryggbraut Ólaf í fyrrahaust í samfylkingarmálunum. Síðan hefur alþýðubandalagsinönnum eins og raunar fleimm orðið tíö- rætt um „kreppu Kvennalistans" á sama tíma og Kvennalistinn reynir að skerpa sérstöbu sína sem þriðja aflsins sem hvorki er hægri né vinstri. Vinstri vonin felst því tæplega í samstarfi við Kvennalistann eftir kosningar. En í samstarfi vib hverja ætla þá Alþýöubandalagsmenn ab hrinda af stað vinstra vorinu? Þessu hefur Garri verið að velta fyrir sér um helgina. Tvennt stendur þó upp úr í viðtölunum við Ólaf Ragnar sem afgerandi vísbending um hvernig vinstra vorið er hugsað. í fyrsta lagi úti- lokaði Ólafur Ragnar samstarf við Jón Baldvin í svari við spurn- ingu um hugsanlega Nýsköpun- arstjórn. í svari sínu sneiddi Ól- afur vandlega framhjá Sjálfstæð- isflokknum, en taldi áhrif Al- þýbuflokks í slíkri stjórn ekki koma til greina. í öðru lagi kom sú yfirlýsing fram hjá Ólafi á Rás 2 í gærmorgun ab honum og Davíö „gengi ágætlega að tala saman", og það mætti ekkert úti- loka fyrirfram varðandi stjórnar- samstarf. Niðurstaðan eftir að hafa farið yfirferð um yfirlýsingar Alþýðu- bandalagsforustunnar um helg- ina er því sú að hin boðaða vinstri von Alþýöubandalagsins felist í samstarfi Alþýðubanda- lags og íhalds eftir kosningar. Vinstri vonin hjá Ólafi Ragnari er ab styðja Davíð Oddsson til áframhaldandi setu í stjórnarráð- inu. Garri Aö ögra veöurspánni Vetrarferbir á jeppum upp á hálendið eru sívaxandi sport hér á landi. í tengslum við þetta hafa síöan þróast skíða- göngur á hálendinu að vetrar- lagi og snjósleðaferðir um fjöll og firnindi. í sjálfu sér er jaað ágætt mál og sem betur fer hef- ur skapast sú tíska í þessu sporti að vera vel útbúinn og fara skynsamlega þegar af stað er komið. Oft eru á ferðinni vanir fjallamenn, sem því miður virðist ekki endilega vera trygg- ing fyrir því ab þeir hegði sér með skynsamlegum hætti. Sex menn lentu t.d. í hrakningum á Fimmvörðuhálsi nú um helg- ina og þar af var einn sem komst með harðfylgi alla leið yfir í Þórsmörk, en þangað var ferðinni upphaflega heitið. Ekki verður af þeim manni skafib að hann stóbst miklar mennraunir og brást að því er virðist hárrétt við vandanum eftir að í ógöngurnar var kom- ib. Það breytir ekki því ab kalla þurfti út tugi leitarmanna og þyrlu Landhelgisgæslunnar til ab leita að manninum. Slíkt kostar að sjálfsögðu sitt. í við- tali við einn björgunarsveitar- manninn, sem kallaður hafði verið út vegna þessa, kom fram að ástæða væri tii ab brýna fyr- ir mönnum, sem hygðust fara á fjöll, ab huga að veðri og veb- urspá, því veðrið gæti verib bálvitlaust á fjöllum, þó blíða væri í byggð. Tvísýn spá — meira sport Vitaö var áður en þeir félagar hugðust ganga á Fimmvörðu- háls, að brugðið gat til beggja vona með veðrið. En hjá þess- um hópi manna, eins og raunar virðist vera nokkuð algengt meb hálendisfara, þá er vafinn met- inn ferðinni í hag. Tvísýna meb Á víbavangi veöur ætti undir eðlilegum kringumstæðum hins vegar að verða til þess að menn hættu við í stab þess aö fara af stað og láta skeika að sköpuðu. Án þess ab það eigi endilega við um þennan ákveðna flokk göngu- og jeppamanna, sem lentu í hrakningum á Fimm- vörðuhálsi, þá er engu líkara en hálendisförum þyki það hrein- lega ekki síðra að lenda í hæfi- legum hrakningum í för sinni. Sportið í jeppaferðum á hálend- ið er eðli málsins samkvæmt að takast á við erfitt og áhættusamt verk og sigrast á því. Því meiri er sigurinn sem áhættan og erfið- leikarnir eru meiri. Mennirnir búa sjálfa sig undir ab takast á við erfiðleika uppi á fjöllum og þeir búa farartæki sín undir það að gera slíkt hið sama. Vegna þessa undirbúnings hefur mörg- um gengið vel ab sigrast á há- lendinu í vetrarham, en til- hneigingin er I þá átt að menn ofmetnast af velgengninni og treysta sér við sífellt tvísýnni að- stæður upp á hálendið. Veöur- spáin er kannski höfö til hliö- sjónar, en menn láta hana ekki lengur aftra sér. Óvisst veðurút- lit er oröið hluti af spennunni, áhættunni sem menn eru að taka. Gagnrýniverö sjálf- umgleöi Vitaskuld verða slys og hjá því verður ekki komist, þegar hundruö manna flykkjast upp á hálendið um hverja helgi. Við því er ekkert að segja. Hins veg- ar er full ástæða til að gagnrýna þann ofmetnað og sjálfumgleði, sem virðist vera að festa rætur í hópum hálendisfara og lýsir sér í því að það er að verba hluti af sportinu að bjóða Veðurstof- unni byrginn. Breytist andinn og hugarfarið hvað þetta varðar ekki sjálfkrafa hjá þeim sem þetta sport stunda, eins og þab hefur gert varðandi ýmis önnur öryggisatriði, einkum varðandi útbúnað, þá er spurning hvort ekki beri að grípa til einhverra sérstakra ráðstafana. Slíkar ráö- stafanir hljóta að miða aö því að efla skilning manna á þeirri áhættu sem verið er að taka með því að fara á fjöll þrátt fyrir tví- sýna veöurspá. Það verður auð- vitað best gert meb því að gera menn fjárhagslega ábyrga fyrir því ef áhættan, sem þeir taka, gengur ekki upp. -BG

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.