Tíminn - 01.03.1995, Blaðsíða 11
Mi&vikudagur 1. mars 1995
11
Steinþór Ingvarsson
oddviti, Þrándarlundi
Fæddur 23. júlí 1932
Dáinn 16. febrúar 1995
„Hefðartnenn ástunda einingu
en ekki metíng." —Korifúsíus
Steinþór Ingvarsson var um
langt árabil í starfsnefndum
Samtaka sunnlenskra sveitarfé-
laga, nokkur ár varamaður í full-
trúaráði og aðalmaður í stjórn
SASS frá 1991 til hinstu stundar.
Árið 1974 var hann kosinn í
hreppsnefnd Gnúpverjahrepps
og allt frá fyrsta fundi hans á
þeim vettvangi var hann odd-
viti sveitar sinnar.
Við, sem unnum með Stein-
þóri á vettvangi sveitarfélaga,
vorum lánsöm að fá að njóta
verka hans. Steinþór var maður
einingar og samstarfs innan síns
sveitarfélags. Þessi eiginleiki
hans naut sín vel í samstarfi við
önnur sveitarfélög. Steinþór gat
verið metnaðarfullur og gengiö
hiklaust til verka, en jafnframt
laus við allan meting. Hann
fagnaði mjög velgengni annarra
og veitti öðrum stuðning án
þess að taka tillit til eigin hags.
Hann beitti sér ótrauöur fyrir al-
hliöa framförum í sveitarfélagi
sínu.
Framkvæmdastjórn SASS og
allt annað samstarfsfólk hans
þakkar liðinn tíma og staðfestir
samúð til aðstandenda og sveit-
unga Steinþórs.
Að Iokum skal ánýjuð kveðja í
tilefni 60 ára afmælis hans, er
honum var flutt.
Geðspakur, djúphygginn, góður,
glaðlyndur, jákvceður, hlýr.
Orku- og athafhasjóður
í oddvita Gnúpverja býr.
Verklag í farsœld og friði,
hans forsjálni árangur ber.
Fylginn í forystuliði
og fremstur hjá jaftiingjum er.
Hjörtur Þórarinsson
Þegar ég var lítil stelpa var tví-
býli í Ásum. „Vesturí" bjuggu
foreldrar mínir, en „austurí"
bjuggu Sveinn Ágústsson móð-
urbróðir minn og kona hans
Þorbjörg Ásbjarnardóttir. Ég var
afskaplega hænd að þeim og
naut ástríkis þeirra í hvívetna. Á
heimili þeirra dvaldi um tíma
ung kona, Þorbjörg Aradóttir —
Bubba — , ásamt lítilli dóttur
sinni, Helgu. Þær nöfnurnar
voru systkinadætur. Þar sem ég
var alltaf eins og grár köttur í
austurbænum, varð ég vitni að
því að þangaö fór að venja kom-
ur sínar ungur, glæsilegur mað-
ur, og milli hans og Bubbu voru
ofin þau bönd, sem aldrei slitn-
uöu. Þetta vom fyrstu kynni
mín af Steinþóri Ingvarssyni.
Þetta fallega unga fólk gifti sig
og eignaðist glæsilegt heimili og
mannvænleg börn. Þegar ég var
uppkomin kynntist ég þeim
betur, og þá fyrst og fremst
Bubbu, hinni hjartahlýju og
góðu konu, sem öllum vildi vel.
Það var ekki fyrr en ég fór að
starfa í hreppsnefnd Gnúpverja
undir stjórn Steina, sem ég
kynntist honum að verulegu
marki, og vom þau kynni öll á
einn veg. Hann var Ijúfmenni
og drengur góður, hreinskipt-
inn, prúbur og fámáll, en bjó yf-
ir mikilli kímnigáfu sem aldrei
var illkvittin. Hann sagðist ekki
eiga auðvelt með að tjá sig í
margmenni, og hefur þar ef-
laust komið til meðfædd hlé-
drægni hans, jafnvel feimni. En
óhætt var ab taka fullt mark á
orðum hans þegar hann lét í
ljós skoöanir sínar, því hann var
mjög skarpur og mikill mann-
t MINNING
þekkjari, og aflaði sér óskiptrar
viröingar á vettvangi sunn-
lenskra sveitarstjórnarmanna.
Honum leiddist þegar óralöng-
um tíma var eytt í umræöur um
fánýta hluti, og var manna fljót-
astur að greina kjarnann frá
hisminu á fundum. Þaö var gott
að læra af honum og leita hjá
honum ráða. Mannlegi þáttur-
inn í samskiptum fólks var alltaf
í fyrirrúmi hjá honum, hlýja,
skilningur á högum annarra og
löngun til að rétta hjálparhönd.
Heimili þeirra Bubbu og Steina
stóð öllum opið, enda var skrif-
stofa sveitarinnar lengst af þar í
oddvitatíð hans. Verður Bubbu
seint fullþakkaður hennar þátt-
ur í farsælum störfum hans í
þágu sveitar sinnar.
Nokkuð er umliöið síðan
Steini kenndi þess meins er dró
hann til dauða. Síðustu vikur
hafa verið erfiðar. Eiginkona
hans vék ekki frá hlið hans og
barðist með honum uns yfir
lauk. Þótt líkaminn væri langt
leiddur, var sálin alltaf fyrir
austan. Heima.
Á köldum vetrardegi fylgja
vinir hans honum síðasta spöl-
inn, með sorg í hjarta. Fjöl-
skyldu hans og ástvinum öllum
bið ég blessunar. Megi minning
hins mæta manns vera okkur
öllum leiöarljós.
Einn er hver á vegi
þó með öðrum fari,
einn í áfanga
þó með öðrum sé,
einn um lífsreynslu,
einrí um minningar,
enginn veit annars hug.
Samt er í samfylgd
sumra manna
andblær friðar
án yfrlœtis, —
áhrif góðvildar,
inntak hamingju
þeitn er njóta ncer.
Því skal þér, bróðir,
þessi kveðja
allshugar send
þó orðfá sé,
því skulu þér
þökkuð, bróðir,
öll hin liðnu ár.
(Gubmundur Böbvarsson)
Halla Guðmundsdóttir
Góður maður er genginn. Mág-
ur minn Steinþór Ingvarsson,
Þrándarlundi í Gnúpverja-
hreppi, er kvaddur hinstu
kveðju. Það er sárt að sjá á bak
góðum vini, en á kvebjustund
er það huggun harmi gegn aö
geta leitað í sjóð minninganna.
Allir sem þekktu Steina eiga
ríkulegan sjób góbra minninga
sem lifa áfram.
Þab er erfitt að lýsa og koma í
orð þeim straumum og áhrifum
sem líkt og geisla frá sumu fólki.
Áhrifum sem valda því að vin-
skapur og traust myndast vib
fyrstu kynni. Þannig áhrif hafði
Steini á mig og ég hygg alla þá
sem kynntust honum.
Steina voru gefnir margir góð-
ir eiginleikar. Hann var dagfars-
prúður maður, rólegur og yfir-
vegabur, en undir hógværu yfir-
bragðinu leyndist glabværð og
dálítil góðlátleg stríðni á góðum
stundum. Hann var söngmáöur
mikill og góður og lét ekki sitt
eftir liggja á ófáum þörrablótum
viö söng og leik.
Það er til' marks um það
traust, sem sveitungar Steina
báru til hans, aö hann var odd-
viti og sveitarstjóri Gnúpverja í
rúm tuttugu ár. í fyrstu var um
að ræba eins konar aukastörf,
sem unnin voru af ósérhlífni
með annasömum búskap. Á
seinni árum minnkuðu umsvif
búskaparins, en sveitarstjórnar-
störfin urbu aðalstarf Steina.
Hann tók sveitarstjórnarstörfin
alvarlega og sinnti þeim af þeirri
alúð og samviskusemi sem hon-
um var eiginleg. Hann vann
sveitinni sinni og sveitungum
af heilum hug og lagöi sig fram
um að efla hag byggðarlagsins.
Sumarið 1958 kom Þorbjörg
Aradóttir í heimsókn til frænku
sinnar í Gnúpverjahreppi og
kynntist þá Steina, ungum og
myndarlegum bónda. Þau
felldu hugi saman og giftust.
Stutt heimsókn varð að ævi-
langri dvöl. Saman byggðu þau
nýbýlið Þrándarlund rétt fyrir
neðan Þrándarholt, æskuheim-
ili Steina. Þegar horft er heim að
Þrándarlundi vekur strax at-
hygli gróskumikill garður um-
hverfis húsib. Trén, blómin,
Verkfræðingafélag íslands hélt
árshátíð sína laugardaginn 4.
febrúar sl. á Hótel Sögu. Meðal
góbra gesta voru forseti íslands,
frú Vigdís Finnbogadóttir, og
dr. Jóhannes og Dóra Nordal.
Formaður félagsins, Jóhann
Már Maríusson, sæmdi þrjá fé-
lagsmenn gullmerki VFÍ og af-
henti þeim heibursskjöl sem á var
letrað:
Þóroddur Th. Sigurðsson,
vélaverkfrceðingur
Þóroddur Th. Sigurösson er
vélaverkfræbingur frá DTH í
Kaupmannahöfn og var vatn-
sveitustjóri í Reykjavík frá 1958
til 1993.
Þóroddur er frumkvöbull að
nýjungum við vatnsöflun sem
tryggir heilnæmt og öruggt vatn
fyrir höfuðborgarsvæðið. Hann
hefur víötæka þekkingu á vatns-
búskap og neyslu vatns í heimin-
um og hefur verið í fararbroddi
gróðurreitirnir bera þess glöggt
vitni ab natnar hendur og um-
hyggja hafa ráðið ferbinni. Þeim
hjónum var báöum lagið að
veita viðkvæmum gróðri skjól
og aðhlynningu. Á sama hátt
veittu þau börnum sínum ástúb
og umhyggju í uppvextinum og
bjuggu þau út meb gott vega-
nesti út í lífið. Þegar þau Þor-
björg og Steini giftust, gekk
hann Helgu, dóttur Þorbjargar
af fyrra hjónabandi, í fööurstað.
Aldrei varð annars vart hjá
Steina en hún væri hans eigin
dóttir.
Oft var mannmargt í Þrándar-
lundi, einkum á sumrin þegar
við að þróa útflutning á íslensku
vatni á erlendan neytendamark-
ab.
Auk embættisstarfs hefur Þór-
oddur unnið ab rannsóknum og
framkvæmdum við nýtingu hita-
orku og aflað mikilvægra upplýs-
inga um ibnaðartækifæri í orku-
frekum ibnaði.
Vífll Oddsson,
byggingarverkfœðingur
Vífill Oddsson er byggingar-
verkfræðingur frá DTH í Kaup-
mannahöfn. Hann hefur starfað
sem ráðgjafarverkfræðingur og
skipab sér í flokk fremstu verk-
fræðinga landsins á svibi burðar-
þols. Hann er í hópi þeirra sem
leitt hafa þróun steinsteypu og
steinsteypuviðgerba á Islandi.
Vífill hefur verib í forystusveit í
félagsmálum íslenskra verkfræb-
inga um árabil.
Hann hefur verib formabur
Verkfræbingafélags íslands, Fé-
börn og unglingar víba ab
dvöldu þar í sumarvinnu. Steini
var ekki harður húsbóndi. Hann
þurfti heldur ekki ab beita sér til
að honum væri hlýtt. Meb ró-
legri ákveðni sagði hann ung-
lingum til og ól þá upp í vinnu-
semi og dugnaði, sem vafalaust
hefur komiö þeim til góða síðar.
Fyrir nokkrum árum veiktist
Steini af þeim illvíga sjúkdómi
sem sigraði að lokum. Um skeið
tókst ab halda sjúkdómnum
niðri, en á síðasta ári tók að
halla undan fæti. Baráttuna vib
sjúkdóminn háði Steini af kjarki
og einstöku æbmleysi, dyggi-
lega studdur af ástvinum sínum.
Þessa baráttu háði Þorbjörg með
honum og síðustu mánubina
má heita að hún hafi varla vikiö
frá sjúkrabeðnum. Það þarf líka
kjark og úthald til að standa
þétt að baki ástvinum sínum á
slíkum stundum.
Þegar fólk, sem maður með
sanni getur talið til vina sinna,
hverfur á braut, verba minning-
arnar skýrari og maður gerir sér
betur grein fyrir hversu dýr-
mætar og gefandi þær eru. Hafi
Steinþór Ingvarsson þökk fyrir
allt það góða sem hann gaf af
sjálfum sér. Fjölskyldu hans,
aldraðri móður og tengdamóð-
ur, systkinum og öörum vanda-
mönnum bið ég styrks á kveðju-
stund. Hrólfur Kjartansson
lags ráðgjafarVerkfræðinga, hús-
stjórnar Verkfræbingahúss og set-
ib í stjórn Stéttarfélags verkfræð-
inga.
Auk þessa hefur hann gegnt
fjölda annarra trúnabarstarfa fyrir
félagið.
Dr. GeirA. Gunnlaugsson,
vélaverkfœðingur
Geir A. Gunnlaugsson er véla-
vérkfræöingur frá DTH í Kaup-
mannahöfn og lauk doktorsnámi
í Bandaríkjunum.
Hann gerðist kennari og síðar
prófessor vib Háskóla íslands, en
varð forstjóri fyrir Marel hf. árið
1987. Þaö fyrirtæki hefur undir
hans stjórn náð miklum árangri í
að samtvinna þekkingu í sjávarút-
vegi og hugvit á tölvusviði til ab
þróa og markaössetja nýtísku
búnað í matvælaibnaði.
Geir er í hópi þeirra er mest
hafa unnib ab þróun orkufreks
iðnaöar á íslandi. ■
Meöfylgjandi mynd er frá afhendingu gullmerkjanna. Talib frá vinstri eru: Framkvæmdastjóri VFÍ, Arnbjörg Edda
Gubbjörnsdóttir, formabur VFÍ, jóhann Már Maríusson, Vífill Oddsson byggingarverkfrœbingur, Þóroddur Th.
Sigurbsson vélaverkfrœbingur og fyrrum vatnsveitustjóri og dr. Geir A. Gunnlaugsson vélaverkfrœbingur.
Gullmerkisberar Verk-
fræðingafélags íslands