Tíminn - 15.03.1995, Blaðsíða 1

Tíminn - 15.03.1995, Blaðsíða 1
SÍMI 631600 79. árgangur Brautarholti 1 51. tölublað 1995 Grunur um málamyndatilfœrslur eigna milli Blaös hf. og Birnings hf: Skiptastjóri vill fara í riftunarmál Skiptastjóri í þrotabúi Blabs hf. leggur til ab farið verði í riftunar- mál vegna a.m.k. einnar eignatil- færslu á milli Blabs hf. og Birn- ings hf., en bæbi þessi fyrirtæki voru í eigu sama ahila og rekin af honum jafnframt. Skiptastjóri er þeirrar skoöunar ab um fleiri málamyndagerninga hafi verib ab ræba á milli fyrirtækjanna tveggja. Fyrsti skiptafundur í þrotabúi Blabs hf. fór fram á mánudag. Lýst- ar kröfur í búið voru um 30 milljón- ir króna. Stærsti einstaki kröfuhaf- inn er Landsbanki íslands með um 20 milljónir króna. Engar eignir fundust í búinu. Friðrik Friðriksson, forsvarsmaður hins gjaldþrota fyrir- tækis í nafni fyrirtækisins, keypti það af Alþýðuflokknum í nóvember 1991. Þrátt fyrir ítrekuð tilmæli skipt- stjóra lagði Friðrik ekki fram neina samninga um sölu eigna frá Blaði hf. til Birnings. Þá kemur fram í skýrslunni að Birningur hafi selt út- gáfurétt Pressunnar til Prentsmiðj- unnar Odda hf. Þessi samningur var ekki lagður fram þrátt fyrir beiðni þar um og ekki heldur samningur um endurkaup þeirra á hlutabréf- um í Miðli hf. sem gefur út Morg- unpóstinn. Þá vantar einnig samn- ing um sölu tækja og áhalda frá Birningi hf. til Miðils, en eins og kunnugt er var Morgunpósturinn stofnaður með því að leggja niður útgáfu vikublaðanna Pressunnar og Eintaks og bæta við hlutafé í nýju útgáfufélagi.Skiptastjóri leggur til að farið verði í riftunarmál vegna sölu á tveimur bifreiðum Blaös hf. til Birnings, sem voru færðar yfir daginn áður en Blað hf. var lýst eignalaust. Um aðrar sölur segir skiptastjóri að hann telji þær mála- myndagerninga. Skiptastjóri segir í lok skýrslu sinnar að til athugunar sé jafnframt að vísa þessu máli í heild sinni til ríkissaksóknara til frekari rann- sókna, en ekki verði þó séð á hvaða forsendu eigi að bera það upp viö hann. ■ Harpa sem er eins árs lceöa úr Þingholtun- um og hér sést meö Crími Helgasyni, komst heldur betur íhann krappann á dögunum og þaöan beint ísviös- Ijósiö. Eins og þeir sem fylgdust meö útsendingum Ríkissjónvarpsins á laugardagskvöld vita var Harpa meö Ragnheiöi Clausen þulu í sjónvarps- útsendingu allt kvöldiö. Harpa týnd- ist fyrir rúmlega viku. Helgi Críms- son, eigandi Hörpu, sagöi aö þeir feögar, hann og Crímur sonur hans, heföu þegar hafiö eftirgrennslan en án árangurs. Þaö var ekki fyrr en seint á laugardagskvöld sem þeir fréttu af Hörpu og þá íbeinni út- sendingu í þularstofu sjónvarpsins. Taliö er aö Harpa hafi gerst víöförul undir vélarhlíf á bifreiö Sjónvarpsins. Frá því aö bifreiöin var á Hverfisgötu jog þar til Harpa fannst fóru mynda- tökumenn í fjórar feröir á bifreiöinni, þ.á.m. einu sinni til Selfoss. Helgi vildi nota tœkifœriö og senda starfsmönnum Sjónvarpsins kœrar þakkir. Tímamynd Pjetur Halldór Blöndal neitar aö greiöa úr veröjöfnunarsjóöi mjólkuriönaöarins fyrr en eignarhald afuröastööva liggur fyrir: Sló striki yfir samningana upp á hundruð milljóna króna Yfirlýsing landbúnaðarráð- herra um aö bætur verði ekki greiddar út úr veröjöfnunar- sjóöi mjólkuriönaðarins fyrr en fengist hefur staðfest fyrir dómstólum hverjir eiga af- urðastöbvar í mjólkuriðnabi hefur eyöilagt samkomulag Kaupfélags Borgfirðinga og Mjólkursamsölunnar um úr- eldingu samlagsins í Borgar- nesi. Yfirlýsing Halldórs Blöndal kom fram á Búnaöarþingi 1995. Þessar fréttir gera samninga um úreldingu í mjólkuriðnaði upp á hundruð milljóna króna að engu og þeir sem dýpst taka í árinni segja þá stöðva alla hagræðingu í mjólkuriðnaði á meban eignar- haldsmál gætu verið að velkjast fyrir dómstólum misserum sam- an. Upphaf málsins er áætlanir um að leggja niður mjólkursam- lagið í Borgarnesi í hagræöingar- skyni. Samlagið á hlut í Mjólkur- samsölunni í Reykjavík og for- svarsmenn Kaupfélags Borgnes- inga töldu að sú eign ætti aö renna til K.B. þegar samlagiö yrði lagt niður. Talsmenn Mjólkur- samsölunnar héldu því fram á móti að Samsalan væri eign fram- leiðenda, þ.e.a.s. bænda. Báðir að- ilar létu vinna fyrir sig lögfræði- álit til þess að styrkja sitt mál. Deilum lauk 12. desember á síð- asta ári þegar samkomulag náðist um að hluti þeirrar hagræöingar sem á aö nást fram með því að leggja niður vinnslu á mjólk í Borgarnesi yrði greiddur til Kaup- félags Borgnes- inga, sem nokkurs konar arður. Þetta samkomulag var háð því að fé fengist til úr- eldingar úr verðmiðlunar-^ sjóði mjólkur- iðnaðarins. Þar var miðaö við andvirði mjólkursamlagsins í Borgarnesi sem metiö er á 250 milljónir króna. Hagræðingarféð og úreldingarpeningana átti síð- an m.a. að nota til að byggja upp ný störf í Borganesi í stað þeirra sem töpuðust viö þaö að samlagið yrði lagt niður. Þetta samkomulag hefur land- búnaðarráðherra nú gert að engu með yfirlýsingu sinni á Búnaðar- þingi. Kristján Axelsson, bóndi í Bakkakoti og formaður stjórnar Kaupfélags Borgfirðinga, segir að kaupfélagsmenn séu óhressir með það ástand sem komið sé upp. Stjórn kaupfélagsins kemur sam- an um helgina til þess að ræða stöðuna, en þegar var t.d. búið að segja upp öllum mjólkurfræðing- um í samlaginu í Borgarnesi og til stóð að starfsemi þar lyki 1. sept- ember á þessu ári. Nú eru hins vegar allar líkur á að starfsemin verði óbreytt. Aöilum í landbúnaðargeiran- um sem Tíminn ræddi við í gær þótti þessi ákvöröun ráðherra furðuleg, sér í lagi í ljósi þess að ráðuneytið er nýlega búið að gefa út reglugerð um úreldingu og hagræðingu í mjólkuriönaði. Með hagræðingunni átti að ná fram lækkun á framleiðslukostnaði og þær 450 milljónir sem til þess voru ætlaðar í verðmiðlunarsjóði eru peningar sem afurðastöðvar í mjólkuriðnaði hafa sjálfar lagt til hliðar undangengin ár. Þá þykir mörgum undarlegt að landbúnaöarráðherra segist ekki geta greitt út úr sjóðnum fyrr en úr því hefur veriö skorið fyrir dómstólum hver eigi afurða- stöðvarnar, bændur eöa kaupfé- lögin, í ljósi þess að engin slík álitamál eru fyrir dómi. Þetta hef- ur verið túlkaö sem svo að ráö- herra sé að krefjast þess að Lands- amband kúabænda, eða einstaka kúabændur, fari í mál við kaupfé- lögin um eignaraöildina. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.