Tíminn - 15.03.1995, Blaðsíða 11

Tíminn - 15.03.1995, Blaðsíða 11
Mi&vikudagur 15. mars 1995 11 „Islenskir hugvitsmenn" Sunnudaginn 26. febrúar kl. 20,40 var í Sjónvarpi viðtals- þáttur við próf. Þorvald Gylfa- son. Fleiri slíkir eru væntanlegir við „hugvitsmenn 21. aldar", ef marka má orð þess, sem um þáttaröðina sér. Þorvaldur er dæmigerður krati. Þannig fylgdi hann í fót- spor Jóns Sigurðssonar, fv. vara- formanns Alþýðuflokksins, sem gerðist frjálshyggjumaður eftir hrun Ráðstjórnarríkjanna og tók sér stöðu hægra megin við íhaldið. Þessi afstaða kratanna þótti skrýtileg, því aö örlög Ráð- stjórnarríkjanna sönnuðu ein- mitt þeirra eigin kenningu, nefnilega þá að jafnaðar- mennska þrífst ekki undir ein- ræði. Eftir áratuga stjórn lýðræðis- jafnaöarmanna (sósíaldemó- krata) á Norðurlöndum náðu þau því marki að teljast — ásamt með Sviss og Kanada — best stýröu lönd heims, ef frá eru tal- in allra síðustu árin, er Svíþjóð og Finnland neyddust til að flýja inn í ESB. Á Norður- löndum var jafnan áætlun- arbúskapur, enda þótt ekki væri að rúss- neskri fyrirmynd. Miðstýring var og er mikil, bæði á sviði rík- isfjármála og í bankakerfinu. Þess vegna kom spánskt fyrir sjónir, þegar Þorvaldur, ásamt tveim Skandínövum (Isachsen og Hamilton), gaf út kennslu- bók í verslunarfræðum, sem er nær óslitinn lofgerðaróður um óheftan markaðsbúskap. Boð- skapurinn er seinn á ferðinni, því að samkeppnisþjóðfélagið er í sinni verstu kreppu. Skv. ný- legri skýrslu Alþjóðavinnumála- stofnunarinnar er nú um 30% af vinnuafli heims án atvinnu. Hlutfallið fer vaxandi. Félagsleg ólga og ókyrrð gerir vart við sig um víða veröld. Höfundar kennslubókarinnar segja hana ætlaða Rússlandi. Það er út í hött, því ab landiö hefir þegar vaðið út í markaðsbúskapinn vegna loforða um stórfelld fjár- framlög Vesturvelda. Þar ríkir nú neyðarástand, vargöld og óvissa. Viðtalsþátturinn sjálfur í Sjónvarpinu var lítt uppbyggi- legur. Þorvaldur beitti hæpnum samanburði og vitnaði títt til Albaníu, Argentínu og írlands, sem bjuggu við gerólík skilyrði og hæfðu ekki samanburði hans. En hvað vill hann, þessi hugvitsmabur 21. aldarinnar? í Morgunblaðsskrifum sínum varar hann okkur við „hol- lensku veikinni", sem hann kallar svo, en skilgreinir rang- lega. Hann leggur til, að gengi íslensku krónunnar verði lækk- aö um 70%. Við það hækka er- lendar skuldir íslands sjálfkrafa um 100 milljarða króna. Inn- fluttar neysluvörur snarhækka í verði, þar með vísitala neyslu- verbs og allar verðtryggðar skuldir heimilanna. íslenskur ibnabur, sem byggir á erlendu hráefni, þrífst ekki lengur. Það gerir hins vegar landbúnaður- inn, sem kratar vilja knésetja. Rugl prófessorsins í fjölmibl- um er með eindæmum. Honum er það e.t.v. nokkur málsbót að hann átti bróður, Vilmund Gylfason, sem þorði ab segja auðhyggjunni til syndanna og taka afleiðingum þess. Landsbyggbarmabur LESENDUR Lystaukandi gaman- mynd sýnd í Stjömubíói Chao-jung Chen og Yu-Wen Wang í tœvönsku myndinni „Matur drykkur mabur kona". Matur drykkur mabur kona eða Eat Drink Man Woman heitir ný tævönsk gamanmynd sem Stjörnubíó hefur tekið til sýn- inga, en myndin er útnefnd til Óskarsverðlauna í ár sem besta erlenda myndin. Leikstjóri myndarinnar er Ang Lee, sem kominn er í hóp þeirra ungu leikstjóra sem hvað mestar von- ir em bundnar vib og gerði m.a. Brúðkaupsveisluna eða The Wedding Banquet, sem sýnd var í Háskólabíói fyrir nokkrum misserum við góðar undirtektir. Matur drykkur maður kona var frumsýnd á kvikmyndahá- tíðinni í Berlín 1993 og vann þar helstu verðlaun hátíðarinn- ar, Gullbjörninn, og var einnig útnefnd til Golden Globe verð- launanna sem besta erlenda myndin. Myndin segir frá herra Chu, sem er frægasti matreiðslu- meistari Taipei og á þrjár gjaf- vaxta og uppreisnargjarnar dæt- ur. Eiginkona hans er látin fyrir nokkrum ámm, þegar í næsta hús flyst nöldursöm eggja, frú Liang. Dæturnar sjá um leið fyr- ir sér að faðir þeirra muni senn elda sinn fræga sælkeramat fyrir nýja kærustu og líf allra málsað- ila tekur nýja stefnu: Ein per- sónan verbur barnshafandi, önnur er hryggbrotin, enn önn- ur deyr og sú þribja finnur hina einu sönnu ást. Ang Lee leikstjóri og meðhöf- undur hans, framleiðandinn James Schamus, sem m.a. hefur komib hingað til lands og hald- ið námskeið um kvikmynda- gerð, bjóða í Matur drykkur maður kona upp á skemmtilega kvikmyndaveislu, kryddaöa óvæntum uppákomum og til- finningafléttum eftir því sem hefbbundin fjölskyldutengsl leysast sundur og tvinnast sam- an á nýjan leik. Matur drykkur maður kona er lystaukandi gamanmynd sem kitlar jafnt hláturtaugar sem bragölauka. Markaðsverðlaun fyrir árið 1994 ÍMARK — íslenski markaðsklúbb- urinn veitti á dögunum í fjórða skipti Markaösverblaun ÍMARK. Verðlaunin eru veitt aðilum sem hafa verib áberandi í markaðs- málum á líðandi ári, og sannað þykir að sýnilegur árangur hefur náðst. Vib ákvöröun um verð- launahafa er tekið mib af fag- mennsku viö markaðsmálin og ab fjárhagslegt öryggi sé til staðar. Abur hafa hlotib verðlaunin: P. Samúelsson, Miðlun og OLÍS. Umræöa um ferðamál var áber- andi á liðnu ári. Umfangsmiklum markaösátökum var hrint í fram- kvæmd, bæbi innanlands með átakinu „ísland, sækjum það heim" og einnig erlendis með auglýsingaátaki á helstu markaðs- svæðum þar sem fjármagn kom til jafns frá hinu opinbera og Flugleiðum. En abrir samverkandi þættir en fyrrnefnd markaðsátök hafa einn- ig haft mikil áhrif á vaxandi ár- angur greinarinnar. Aukið kynn- ingarstarf erlendis, meðal annars framkvæmt af íslenskum upplýs- inga- og söluskrifstofum, sem bæði eru reknar af Ferðamálaráði og einstökum fyrirtækjum, hefur laðað að vaxandi fjölda erlendra ferðamanna. Meb meiri umræðu innanlands hafa kröfur innlendra ferðamanna aukist. Þetta samstarf hefur hrundið af stað vöruþróun innan feröaþjónustunnar, sem ekld sér fyrir endann á. íslenska ferbaþjónustan skilar næst mestum gjaldeyristekjum til landsins á eftir sjávarútvegi. Erfitt er ab henda reibur á fjölgun inn- lendra ferðamanna, en sam- kvæmt könnun, sem Hagvangur gerði síöastliöið haust, fóru um 65 þúsund íslendingar í ferbalag um ísland síbastliðið sumar, sem stób í ellefu daga eða meira. Sam- anburðartölur frá fyrri ámm IMARK liggja ekki fyrir. Til að nefna tölur um fjölgun komu erlendra ferða- manna, þá komu árið 1980 um 65 þúsund erlendir ferðamenn, en yfir 180 þúsund á síbasta ári. Annaö, sem athyglisvert er að nefna, er að árið 1994 komu um 90 þúsund erlendir feröamenn til íslands utan hinna þriggja hefb- bundnu sumarleyfismánaba, eða sami fjöldi ogkom allt áriö 1983. Meöal þeirra aðila, sem koma að ferbaþjónust'unni, em flugfé- lög og aörir flutningaaðilar, veit- inga- og gistihús, Feröaþjónusta bænda, feröamálasamtök borgar- innar, sveitarfélaga og lands- hluta, feröafélög, leiösögumenn, Ráðstefnuskrifstofa íslands auk opinberra aðila, sem komu veg- lega að þessum málum á síbasta ári. Ferðamálaráð íslands er sú stofnun sem tengir þessa aðila saman, bæði hina opinbem og Magnús Oddsson ferbamálastjóri tekur vib verblaununum úr hendi Árna Þ. Arnasonar. einkaaðila. Það varð niðurstaða stjómar ÍMARK ab verðlaunin í ár skyldu ganga til íslensku ferðaþjónust- unnar. Þaö eru margir samverk- andi þættir sem hafa haft áhrif á uppgang ferðaþjónustunnar og því erfitt að taka einn aðila af f jöl- mörgum út úr til aö verðlauna. Hingað til hafa einstök fyrirtæki fengið þessi verðlaun, en í þessu tilfelli varð niðurstaðan sú ab þar sem samstarfsþátturinn skipti svo miklu máli í árangri greinarinnar, væri eblilegt að íslensk ferðaþjón- usta sem helld fengi verðlaunin. Magnús Oddsson ferðamála- stjóri veitti verðlaununum við- töku fyrir hönd ekki einungis Ferðamálaráðs, heldur íslensku ferðaþjónustugreinarinnar sem heildar. Viðskiptaráðherra hverju sinni hefur afhent verölaunin hingað til, en ab þessu sinni var hann fjarverandi vegna veikinda og fulltrúi hans við afhendinguna var Árni Þ. Árnason, skrifstofu- stjóri í Iönaðar- og viðskiptaráðu- neytinu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.