Tíminn - 15.03.1995, Blaðsíða 7
Mi&vikudagur 15. mars 1995
ti&BÍiW
7
Víbtœk rannsókn á spatti:
Bebib eftir
svörum frá
hesteigendum
Nú er ab fara af stab vib
Bændaskólann á Hólum vi&a-
mikil rannsókn á spatti í
hrossum. Þaö er Sigríöur
Björnsdóttir dýralæknir sem
hefur yfirumsjón meö þessum
rannsóknum.
Spattiö, sem kemur fram sem
veikleiki í hækilliö og veldur
helti, viröist vera vaxandi
vandamál í íslenska hrossa-
stofninum. Ekki liggur ljóst fyr-
ir hver orsakavaldurinn er. Því
er það mjög gagnlegt að hefja
rannsókn á þessum sjúkleika og
reyna að átta sig m.a. á því
hvort þarna sé um arfgengan
veikleika aö ræða. Einnig er ætl-
unin aö samræma spattgrein-
ingar á íslandi samskonar at-
hugunum erlendis. Röntgen-
tækni er aöallega beitt við rann-
sóknirnar um leiö og leitað er
EIÐFAXI
Internati-
onal kom-
inn út
Fyrsti árgangur tímaritsins
EIÐFAXA International er
kominn út. Blaöib hefst á
minningaroröum um Erling
A. Jónsson ritstjóra, sem
lésts í síbasta mánuöi langt
um aldur fram.
í blaðinu er fjöldi greina,
m.a. langt viötal viö Þórð Þor-
geirsson þar sem hann tjáir sig
um Svart frá Unalæk og Rauö-
hettu frá Kirkjubæ. Viðtal er
viö þá Sauðárkróksfeöga Svein
og Guömund, hrossin í Kjarn-
holtum og margt fleira. Eiö-
faxi International hefur náð
góðri útbreiðslu víða um
heim og salan er vaxandi.
Blaðið er orðið helsti auglýs-
ingamiðill fyrir íslendinga,
sem koma vilja hrossum sín-
um á framfæri erlendis. ■
svara við ýmsum þáttum varð-
andi hrossið.
Valin eru hross undan eftir-
töldum ættfeðrum, sem allir
eiga yfir 50 skráð afkvæmi á
aldrinum 6-11 vetra:
Gáski 920 frá Hofsstöðum
Þáttur 722 frá Kirkjubæ
Hervar 963 frá Sauðárkróki
Hrafn 802 frá Holtsmúla
Feykir 962 frá Hafsteinsstöðum
Leistur 960 frá Álftagerði
Ófeigur 882 frá Flugumýri
Dreyri 834 frá Álfsnesi
Náttfari 776 frá Ytra-Dalsgerði
Ófeigur 818 frá Hvanneyri
og síöan hafa bæst viö:
Eldur 950 frá Stóra-Hofi
Hlynur 910 frá Hvanneyri
Kjarval 1025 frá Sauðárkróki
Máni 949 frá Ketilsstöðum og
Þokki 1028 frá Garði.
Bréf hefur þegar verið sent til
allra félaga í Fáki, en ákveðið var
að byrja í Reykjavík þar sem
mjög mörg hross eru þar á húsi
á þessum tíma. Síðan verður
Ieitaö til fleiri staöa. Reykvíking-
ar hafa verið heldur dræmir aö
svara og eru þeir beðnir að taka
nú rögg á sig og koma svarinu í
póst. Þeir, sem ekki hafa fengið
svona bréf en eiga hross undan
þessum hestum og vilja gjarnan
leggja þessu máli lið, geta haft
beint samband við Hóla eða
sent upplýsingar, þó þær séu
ekki á réttu eyðublaöi. Það, sem
þarf að koma fram, er heiti
hestsins og aldur og hver sé faö-
ir hans, nafn eiganda, kennitala
og heimilisfang. Þeir, sem búnir
voru að senda svör áður en ætt-
feðrunum var fjölgað, en eiga
hesta undan þeim sem bættust
við, geta sent þær upplýsingar
beint til Bændaskólans á Hól-
um, c/o Sigríður Björnsdóttir,
551 Sauðárkróki.
Auka þarf
rannsóknir
Það er mikil framför sem felst
í því að framkvæma vísindaleg-
ar rannsóknir á íslenska hrossa-
stofninum. Hesturinn er þegar
orbinn mikil útflutningsvara og
Ný aðferð vib
tamningar
Vi& Bændaskólann á Hvann-
eyri er nú veri& a& kynna
nýja a&fer& vi& frumtamn-
ingu hrossa. Þaö er Ingimar
Sveinsson, kennari í hrossa-
rækt og tamningum, sem
stendur fyrir námskei&um í
þessari a&fer&. Hann hefur
gefiö henni nafniö Af frjáls-
um vilja.
Þessi aðferð, að fá hestinn til
samstarfs af frjálsum og fúsum
vilja, á upptök sín í Bandaríkj-
unum. Höfundur hennar er
Kaliforníubúinn Monty Ro-
berts. Aðferöin byggir á því að
skapa réttar aðstæöur og um-
hverfi til að hrossiö geti lært.
Það gildir hið sama um hesta
og menn, það er ekki hægt ab
þvinga þekkingu inn í hausinn
á þeim með valdi, heldur verð-
ur að leita þekkingarinnar af
fúsum og frjálsum vilja. Maður-
inn getur ekki neytt aflsmunar,
því hann er dæmdur til að tapa
í þeim leik. Því verður að nota
höfubið, en ekki kraftana.
Mikil aðsókn er að þessum
námskeiðum á Hvanneyri og
fleiri sótt um en hægt hefur
verið að sinna. ■
Fjölnir úr Kópavogi. Knapi Haflibi Halldórsson.
Hæst dæmdi klárhestur lands-
ins seldur til Austurríkis
Þaö er stöðugur útflutningur
kynbótahrossa frá íslandi.
í haust var stóöhesturinn
Bokki frá Akureyri seldur til
Austurríkis. Bokki var meö
hæstu einkunn stóöhesta sem þá
höföu verið seldir úr landi, aöal-
einkunn 8.28. Bokki er undan
Snældu-Blesa frá Árgeröi og Von
frá Akureyri. Kaupandinn var dr.
Ludwig, læknir í Austurríki. En
nú hefur hann bætt um betur.
Hann hefur nýlega keypt hryss-
una Hrafndísi frá Reykjavík, en
hún var önnur hæst dæmda
hryssan á landsmótinu í fyrra
meö 8.42 í aöaleinkunn og 8,81
fyrir hæfileika. Hrafndís er und-
an Hrafni frá Holtsmúla og
Mánadís frá Reykjavík. Hrafndís
er fylfull við Svarti frá Unalæk.
Kynbótamat hennar er 131 stig.
Þá hefur dr. Ludwig keypt
stóðhestinn Fjölni frá Kópavogi,
en hann var hæst dæmdi klár-
hesturinn í röðum stóöhesta á
landsmótinu meö 8,33 í aöalein-
kunn og hefur því tekið sæti
Bokka hvaö varöar hæstu ein-
kunn stóðhests sem fluttur hefur
verið út. Fjölnir er undan Atla
frá Syðra-Skörðugili, sem seldur
var til Svíþjóðar, og Freyju frá
Uxahrygg. Átli er undan Hrafni
frá Holtsmúla.
Ekki hefur veriö gefiö upp
hvað borgaö hefur verið fyrir
þessi hross, en þaö skiptir millj-
ónum. ■
HEJTA-
MOT
KARI
ARNORS-
SON
máli skiptir að hann haldi því
oröspori aö vera vel heilbrigður.
Ýmsar getgátur eru um ástæður
fyrir tíöu spatti á hrossum sem
gerir þau ónothæf. Ákveðin ó-
vissa og jafnvel ósætti hefur ver-
ið varðandi greiningu á spatt-
inu, en þeirri óvissu þarf að
eyba.
Rannsóknir á íslenska hestin-
um hafa verið mjög takmarkað-
ar á flestum sviðum, en þær fáu
sem gerðar hafa verið hafa vakið
athygli og miðlað þekkingu sem
ekki var til staðar. Má þar
minna á rannsóknir Ingimars
Sveinssonar á Hvanneyri á
þroska hrossa frá fæðingu til
fulloröinsaldurs. Hér er vissu-
lega þarft verk á ferðinni, sem á-
stæða er til fyrir Vísindasjóð og
Framleiðnisjóð að styrkja. Við
eigum orðið marga velmennt-
aða menn, karla og konur sem
annast geta þetta verk og þeirra
þekkingu og færni ber að nota.
En þá er líka nauösynlegt fyrir
okkur hestaeigendur að bregð-
ast vel við erindum þeirra og
gefa færi á því að leggja til hross
í tilteknar rannsóknir, sé þess
kostur.
Það hefur margt breyst í um-
hverfi hestsins á síðustu áratug-
um, ekki síst uppeldisabstæð-
urnar og tamningin. Við höfum
smám saman verið að breyta
hestinum. Áöur fyrr var við það
miðað að hesturinn gæti nýst
bæði sem dráttarhestur, fjall-
hestur og sæmilegur reiöhestur,
en nú hefur reibhesturinn —
gæðingurinn — orðið aðals-
merki ræktunarinnar og þá þarf
aö gæta þess ab ýmsir eiginleik-
ar sem vinnuhesturinn hafði,
svo sem góðir fætur, tapist ekki.
Rannsóknir vegna markabar-
ins eru líka þarfar. Við þurfum
að geta hækkað til muna verðiö
á íslenska hestinum og verðum
þá að vera með ógallaða vöru.
Allir þeir, sem fengið hafa bréf
frá Bændaskólanum á Hólum
varðandi spattrannsóknirnar,
eru því eindregiö hvattir til ab
svara sem fyrst, svo athugun á
hestunum geti hafist. Hér er um
mjög brýnt verkefni ab ræða og
því verður að hefjast handa
strax. ■
Hrossarækt-
arsambönd
III
Hrossaræktarsamband Austur-Húnvetninga nær,
eins og nafnið bendir til, yfir Austur-Húnavatns-
sýslu. Deildirnar eru að mestu bundnar við
hreppaskiptin, en þær eru fyrir Bólstaðarhlí&ar-
hrepp, Blönduós, Svínavatnshrepp, Torfusta&a-
hrepp, Sveinsstaöahrepp og Áshrepp.
Hrossaræktarsambandið er meðeigandi í 6
hestum og auk þeirra eru hestar teknir á leigu á
hverju sumri.
Hestarnir, sem sambandið á hlut í, eru: Stígandi
frá Sauðárkróki, en hann ver&ur alfarið hjá Skag-
firöingum þetta árið, Þyrill frá Aöalbóli sem verð-
ur í húsnotkun, Eldur frá Stóra-Hofi veröur fyrra
gangmál, Kolgrímur frá Kjarnholtum verður í hús-
notkun og fyrra gangmál, Geysir frá Gerðum
veröur fyrra gangmál, Oddur frá Selfossi veröur
KYNBOTAHORNIÐ
fyrra gangmál og Víkingur frá Vo&múlastööum,
sem sambandið á 20% í, verður ekki hjá sam-
bandinu þetta árið.
Tveir hestar verða leigðir, þeir Galdur frá Sauö-
árkróki, sem verður seinna gangmál, og Hjörvar
frá Arnarstöðum sem veröur fyrra gangmál.
Verðið er mismunandi, en eldri hestar sam-
bandsins — Eldur, Geysir og Kolgrímur — eru ó-
dýrari en þeir sem nýlega hafa verið keyptir og
verið er að borga niður. Ef hryssa, sem verið hefur
hjá hesti á vegum sambandsins, reynist geld eftir
að hafa verið sónarskoöuð, þá er folatollur endur-
greiddur að hálfu.
Eins og sést á upptalningunni hér aö framan, þá
er hestakostur Hrossaræktarsambands Austur-
Húnvetninga or&inn mikill og góður. Mikill áhugi
er fyrir því að bæta ræktunina og styrkja þá gömlu
rei&hestastofna, sem verið hafa um langan aldur í
Húnaþingi.
Formaður Hrossaræktarsambands Austur-Hún-
vetninga er |ón Gíslason á Hofi íVatnsdal.
Ath! Munið að halda aðeins úrvals hryssunum.