Tíminn - 30.03.1995, Qupperneq 2
2
Fimmtudagur 30. mars 1995
Tíminn spyr.
• • Hvað segja stjórnmálamenn um kennaraverkfallið?
Valgeröur Sverrisdóttir þingkona Framsóknarflokksins:
Þetta eru litlar
kjarabætur
„Mér virðist kennarar fá litlar
kjarabætur. Stéttin var hins-
vegar í ákaflega erfiðri stöðu.
Almennt eru kennarar afar
óánægðir með þessa samn-
inga en hafa jafnframt þurft
að búa við mikinn utanað-
komandi þrýsting til dæmis
frá foreldrum. Óánægja kenn-
ara meö kjör sín heldur áfram
þó þetta veröi samþykkt,"
sagði Valgeröur Sverrisdóttir,
þingmaður Framsóknar-
flokksins á Norðuriandi
eystra.
„Með því að kenna á laugar-
dögum og í dymbilviku — og
einnig með því að skipuleggja
skólastarfið afar vel — held ég
að hægt sé að bjarga þessu. En
allt er þetta slæmt. Allt eru þetta
þó lausnir fyrir horn — og þó:
maður veit aldrei hvernig at-
kvæðagreiðslan um þessa samn-
Kristín Ástgeirsdóttir þingkona Kvennalista:
„Áfangi að kennslu-
skyldan minnki"
„Það er erfitt að leggja ein-
hlítt mat á þessa samninga
við kennara því svo eru þeir
misjafnir milli einstakra
hópa stéttarinnar. Þaö er þó
ljóst að þetta dugar skammt.
Eg tel þó að áfangi til betri
vegar sé að lækka kennslu-
skylduna sem hefur verib
mun hærri hér en í nágranna-
löndunum," sagði Kristín
Astgeirsdóttir þingkona
Kvennalista.
Að mati Kristínar er spursmál
hverju sé verið að fórna með
lengingu skólaársins, t.d. hvað
vaTðar endurmenntun kenn-
ara. Hún segir jafnframt auð-
sætt að metnaður hafi ekki ver-
ið ríkjandi af hálfu ríkisstjórar-
innar í þessu máli. Mennta-
málaráðherra tali um helsjúkt
skólakerfi: „... og ef svo er þarf
að taka verulega á kjörum
kennara," segir Kristín.
„Það er ljóst að nemendur
þurfa að leggja verulega á sig í
þeirri lokatörn sem nú er eftir,
sérstaklega þeir sem nú eru að
ljúka stúdentsprófi. Þó nem-
inga fer því kennarar eru ekki
sáttir við þessa samninga."
endur séu í þröngri stöðu nú
mega próf þeirra ekki verða
verri fyrir vikið," sagði Kristín
Ástgeirsdóttir.
Póstur og sími stofnar nýtt svib:
Skref til einkavæöingar
Frá og meb mánaöamótum
tekur til starfa innán Pósts og
síma nýtt aðalsvið um fjar-
skiptarekstur sem verður í
beinni samskeppni við einka-
aöila á markaðnum. Um er að
ræba rekstur farsíma og bob-
kerfanna, gagnaflutninga og
söludeildir.
„Þetta er skref til einkavæð-
ingar á starfsemi Pósts og síma.
Slíkt er í takt við tímann og ég
tel að starfsöryggi starfsmanna
stofnunarinnar sé síst ógnað
með þessu," sagði Halldór Blön-
dal samgönguráðherra þegar
sem þessar breytingar voru
kynntar.
Undir þetta nýja rekstrarsvið
heyrir rekstur beggja farsíma-
kerfanna, þ.e. GSM og NMT,
boökerfið, sala notendabúnaðar
og gagnaflutningar, auk verk-
stæða sem þessu tilheyra. Mark-
aðsmál og fjölþjóðleg samskipti
falla einnig undir þetta „svo og
ýmis virðisaukandi þjónusta,"
segir í tilkynningu frá Pósti og
síma.
Vilhjálmur Egilsson, þingmabur Sjálfstœbisflokks:
/
„E g öfunda ekki
krakkana"
„Ég öfunda nú ekki krakkana
af því ab byrja aftur nú eftir
verkfall. En vonandi verður
eitthvaö hægt að klóra í bakk-
ann," sagbi Vilhjálmur Egiis-
son, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins á Norðurlandi
vestra.
„Ég hef nú ekki lesið sjálfan
samninginn, en mikilvægast
þykir mér þó að sátt hafi náðst í
málinu og tekist hafi að leysa
þetta erfiða verkfall. Eftirköstin
verða svo að koma í ljós, til
dæmis hvort sátt náist um þetta
meðal annara hópa."
Vilhjálmur Egilsson sagði að
kjarabæturnar til kennara væru
í raun meiri en ríkissjóður réði
við. Hann kvaðst þó vona að
samningarnir við kennara
myndu ekki raska heildarmynd
kjaramálanna eða kollvarpa
stöðugleikanum. ■
Svavar Cestsson fyrrverandi menntamálarábherra:
Verkfalliö heföi
getaö veriö styttra
„Ég held að kennaradeilan
hafi veriö komin á það stig ab
almennur grundvöllur hafi
verið fyrir því að leggja þessa
sáttatillögu fram. Það væri al-
varlegur hlutur ef ríkissátta-
semjari hefbi verið að hlýba
forsætisráðherra. Slíkt myndi
veikja embættið," sagði Svav-
ar Gestsson, þingmaður Al-
þýbubandalags og fyrrverandi
menntamálarábherra.
Svavar Gestsson telur að þeg-
ar kennarasamtökin settu fram
sitt gagntilboð hefði ríkisstjórn-
in átt að setja á laggirnar sátta-
nefnd til að vinna að lausn
málsins. Þá hefði verið kominn
flötur til samkomulags og því
hefði verkfallið geta orðið
styttra en raun varð á. „En þessi
ríkisstjórn er aö fara frá og þeirr-
ar næstu er að móta framtíðar-
stefnu í menntamálum í land-
inu sem sátt er um," sagði Svav-
ar.
„Kennarastéttin er mikilvæg,
þótt það skiljist ekki öllum,"
sagði Svavar Gestsson. Hann
kvaðst jafnframt þeirrar skoð-
unar að hægt væri að ljúka
skólastarfi með góðum hætti,
en hlúa þyrfti sérstaklega að
hagsmunum barna sem eiga við
námserfiðleika að etja og hjálpa
þeim að ljúka skólastarfi vetrar-
ins.
Magnús Jón Árnason bœjarstjóri í Hafnarfírbi um fyrir-
vara Jóhanns Bergþórssonar vegna endurkomu hans í
bœjarstjórn:
/
„Eg veit ekki hvers
Jóhann óskar"
„Fjárhagsáætlun Hafnarfjarð-
arbæjar fyrir þetta ár hefur ver-
ib samþykkt og er í fullu gildi.
Það hefur jafnframt alltaf legiö
ljóst fyrir, af hálfu núverandi
meirihluta, að áætlunin verður
endurskoöuö á haustdögum í
ljósi reynslunnar."
Þetta sagöi Magnús Jón Áma-
son, bæjarstjóri í Hafnarfiröi, í
samtali viö Tímann í gær. Sem
kunnugt er hefur Jóhann Berg-
þórssón nú aftur tekiö sæti sitt í
bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar,
eftir að hafa vikið sæti um skeið
að ósk forsætisráöherra. Vib end-
urkomu sína í bæjarstjóm kvabst
Jóhann gera vissa fyrirvara við
stjómsýslu bæjarins, til dæmis
vib f járhagsáætlun.
„Ég veit ekki hvers Jóhnann
Bergþórsson óskar, né hverjar
kröfur hans og fyrirvarar em. Við
í Alþýðubandalaginu emm í
meirihlutasamstarfi við Sjálf-
stæðisflokk og ekki veit ég til
annars en það samstarf sé I fínu
lagi. En fjárhagsáætlunin verður
skobuð, eins og ég segi, í haust
og þá vegin og metin í ljósi
reynslu og abstæðna," sagbi
Magnús Jón Árnason. ■