Tíminn - 30.03.1995, Page 9
Fimmtudagur 30. mars 1995
Ný „iönaöarheybindivél" kemur á markaöinn
hér nœsta sumar:
Tímamót í
meðförum og
flutningi heys?
Nýjasta bindivélin, sem vænt-
anleg er á markab hér á landi
á komandi sumri, gæti mark-
ab tímamót í mebförum og
flutningi heys. Ástæban er sú
ab vélin þjappar baggana
mun meira, þannig ab heyib
tekur minna pláss og jafn-
framt eru baggarnir ferkant-
abri, þannig ab þeir staflast
betur.
í stuttu máli má segja að hér
sé um ab ræða stækkaða útgáfu
af gömlu bindivélunum. Þjöpp-
unin er engu að síður talsvert
meiri en í venjulegum rúllu-
bindivélum, eöa um 180 kíló á
fersentímetra í stað 90 kílóa á
fersentímetra, eins og algengt er
meö rúllubindivélar. Þessar vél-
ar hafa verið framleiddar og
seldar á meginlandi Evrópu um
nokkurt skeið, en ekki verið
fluttar hingað til lands fyrr en
nú. í þessari samantekt er tekið
mið af upplýsingum frá Green-
land-verksmiðjunum, sem
framleiða vél af þessu tagi er
nefnist 120-80 Industry Square
Baler.
Stærð bagganna er stillanleg.
Breidd þeirra er föst, 120 sentí-
metrar. Hæðin er stillanleg frá
65-80 sentímetrar og lengdin
getur verið frá 60 sentímetrum
upp í 3 metra. Minnsti heybagg-
inn vegur um 200 kg, en sam-
kvæmt upplýsingum frá verk-
smiðjunum vegur hver rúm-
metri um 250 kíló.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ingvari Helgasyni hf., sem hefur
umboö fyrir Greenland og einn-
ig Claas sem framleiðir einnig
vélar af þessari tegund, er einn-
ig hægt að nota pökkunarvélar
fyrir rúllubagga fyrir þessar vél-
ar með nokkrum breytingum.
Þá eru jafnframt framleiddar
sérstakar plastpökkunarvélar
fyrir stóru ferköntuðu baggana.
Aflþörf er, samkvæmt upplýs-
ingum frá umboðinu, 80-90
hestöfl. Helstu kostir vélanna
eru mikil þjöppun á heyi og
mikil afköst. Þegar hafa ein-
hverjar bindivélar af þessari teg-
und verið pantaðar.
Reynslan á eftir að leiða í ljós
hversu vel þær henta, en menn
hafa velt því fyrir sér hvort þessi
tækni geti opnað möguleika á
heyútflutningi með lægri flutn-
ingskostnaði. Jafnframt hafa
bændur, sem búa fjarri höfuð-
borgarsvæðinu, séð fyrir sér
með þessu möguleika á að
lækka flutningskostnað og vera
samkeppnishæfari í heysölu til
hestamanna á Suðvesturhorn-
inu. Talsverb fjárfesting mun
vera enn sem komið er í þessum
nýju vélum og þess vegna rétt
að miöa alla hagkvæmnireikn-
inga við það hversu vel er hægt
að nýta þær. ■
Galdurinn felst í því hversu gríbarlega þessar vélarþjappa heyinu saman.
SAFIR
STOP
ÞURFTIRÐU
AÐ LÁTA
STAÐAR NUMIÐ
ÍBÍLA-
HUGLEIÐINGUM
VEGNA
VERÐSINS?
1 MfolM
.bLm.UJ/.n.\
Frá 588.000,- kr.
148.000,-kr. út og
14.799,- kr.
í 36 mánuði.
Frá 677.000,- kr.
169.250,- kr. út og
17.281,- kr.
í 36 mánuði.
SAMARA
677.
Frá 624.000,- kr.
156.000,-kr. út og
15.720,- kr.
í 36 mánuði.
SPORT
624
$ S 4 5' 4'
LFUU / n
[).i/j J tv u /j _ c
mm iu.j nin
Frá 949.000,- kr.
237.250,- kr. út og
24.101,- kr.
í 36 mánuði.
949
Tökum notaða bíla sem greiðslu upp í nýja og bjóðum
ýmsa aðra greiðslumöguleika.
Tekið hefur verið tillit til vaxta í útreikningi á
mánaðargreiðslum.
lÍEíMíln'
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 568 12 00 • BEINN SÍMI: 553 12 36
ÖRKIN 3114-2-23