Tíminn - 09.06.1995, Blaðsíða 4
4
Föstudagur 9. júní 1995
&MÚMÍ
STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7
Útgáfufélag: Tímamót hf.
Ritstjóri: ]ón Kristjánsson
Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík
Sími: 5631600
Símbréf: 16270
Pósthólf 5210, 125 Reykjavík
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans
Mynda-, plötugerö/prentun: ísafoldarprentsmibja hf.
Mánaðaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verb ílausasölu 150 kr. m/vsk.
Misskiliö
ævintýraland
Þaö er aö veröa ofspiluö og slitin plata aö helsti vaxtar-
broddur í atvinnulífinu sé þjónusta viö feröamenn.
Þetta er sjálfsagt rétt, en fara veröur meö gát þegar ver-
iö er aö útlista aukningu í greininni eftir heimatilbún-
um forsendum og hvort afraksturinn er aö aukast eöa
minnka.
Stundum eru hlaönar óraunhæfar skýjaborgir, þegar
veriö er aö spá gestafjölda á íslandi í sambandi viö til-
tekna atburöi. Mörgum er í fersku minni fjölmiölarugl-
iö um þann mannsöfnuö, sem koma átti hingaö til
lands vegna toppfundar leiötoga þáverandi risavelda.
Þá átti aö panta upp öll gistiherbergi frá Borgarnesi suö-
ur og austur um frá og meö Hellu. Lýst var yfir áhyggj-
um um aö ekki væri hægt aö selja öllum skaranum mat
yfir fundardagana.
í rauninni stóö aldrei til aö hingaö kæmu nema 200-
300 manns, sem er færra en á mörgum ráöstefnum.
Svipaö rugl var uppi fyrir handboltakeppnina í síöasta
mánuöi. En þegar upp var staöiö, voru gistinætur er-
lendra feröamanna færri en í meöalári.
Tíminn birti fróölegt viðtal viö hótelstjórann í
Reynihlíö s.l. miövikudag. Hahn segir hryssingslegt
veöurfar í Mývatnssveit ekki hafa neikvæð áhrif á er-
lenda feröamenn, en þéim finnst beinlínis krydda
ferðalagið aö fá rysjótta tíö.
„Þaö þýöir ekki aö skoöa svona veðurfar sem íslend-
ingur, heldur fremur hvaða upplifun ferðamaðurinn
fær út úr þessu. Maöur hittir hér bændur skælandi til
sveita út af veöurfarinu, en næsti maður er kannski tú-
risti, brosandi út aö eyrum yfir því hve þetta er flott."
Feröamannaiönaöurinn kynnir ísland gjarnan sem
skógi vaxiö sólskinsland. Þaö er sú ímynd sem menn
halda aö dragi feröafólk til landsins. Hótelstjórinn í
Reynihlíð hefur aöra reynslu. Síöan getur hver maður
virt erlenda feröamenn fyrir sér og sannfærst um að
þeir eru yfirleitt miklu betur búnir til aö mæta íslenskri
veöráttu en heimamenn. Þeir búast ekki viö sumri og
sól á íslandi og eru ekki hingað komnir meö sama hug-
arfari og þegar nábleikir íslendingar sækja úr hretviör-
um til sólarlanda.
Margt er vel gert til aö örva og mæta auknum ferða-
mannastraumi, sem er orðinn lífleg atvinnugrein og
drjúg tekjulind. En spurning er hvort aö í sumu sé ekki
ofgert. Miklu er til kostað aö gera aögengi aö nær öllum
svæöum landsins sem auðveldast. En dregur þaö ekki
einatt úr ánægju og áhuga ferðamanna á aö fara um lítt
snortna náttúru?
Dæmi um þetta eru vegalagnir meöfram ám og að
veiöivötnum. Hvaö liggur svona mikið á aö komast á
veiðistaðina? Aö fara gangandi eöa á hestum meöfram
ám eða til heiöavatna er óborganlegt ævintýri, sem ör-
fá lönd geta boðið upp á.
En slíka möguleika er alls staðar verið aö eyðileggja af
vega- og bílasjúkum kynslóöum, sem hafa minna en
engan skilning á hvílíkt draumaland ísland er af því að
þaö er öðruvísi.
Pétur Snæbjörnsson, hótelstjóri í Reynihlíö, kynnist
erlendum feröalöngum flestum betur og hann hefur
greinilega öölast skilning á því aö í þeirra augum er ís-
land forvitnilegt heim að sækja vegna sérstööu sinnar.
Þeir láta ekki vonda tíö á sig fá. Þeir vilja kynnast land-
inu eins og þaö er, en ekki aðeins sólskinsblíöu kynn-
ingarbæklinga.
Ef móttaka ferðamanna á að veröa sú viðamikla at-
vinnugrein, sem margir eru aö spá, hljóta ferðamála-
frömuöir að reyna aö komast aö því eftir hverju útlend-
ingar eru aö slægjast hér, en ekki fara aö búa til meira
og minna heimatilbúnar þarfir fyrir þá.
Jói Hafnarfjaröarskelfir
Nú eru þeir farnir ab kalla Jó-
hann G. Bergþórsson, bæjarfull-
trúa í Hafnarfirbi, „Jóa Hafnar-
fjarbarskelfi". Ástæban er sú, ab
hann er enn einu sinni búinn
ab hrista svo rækilega upp í
stjórnmálalífinu ab allt leikur á
reibiskjálfi. Jóhann er búinn ab
sækja um bæjarverkfræðings-
stöbuna, sem hann var búinn
ab lofa ab sækja ekki um! Bæjar-
stjórnarmeirihlutanum í Hafn-
arfirbi var sem kunnugt er
bjargab í vor meb tilþrifum,
þegar Jóhann G. sneri aftur eftir
ab sjálfur formaður Sjálfstæbis-
flokksins var búinn ab dæma
hann í frekar skamma útlegb úr
bæjarstjórninni. Jói Hafnar-
fjarbarskelfir hafbi snúib aftur
meb hvelli og krafbist þess m.a.
ab fjárhagsáætlun yrði tekin
upp og ab þeir Maggi svarti bæj-
arstjóri og Maggi í hvalnum
bæjarrábsformabur sætu og
stæbu þar sem hann vildi.
Haldlítil dúsa
Málin voru róub nibur, og lib-
ur í sáttalausninni var ab Jó-
hann gerbi ekki kröfu um að fá
bæjarverkfræbingsstarfib. Flest-
ir virtust sammála um ab Jói
Hafnarfjarbarskelfir hefbi feng-
ib einhverja dúsu, þó enginn
hafi getab sagt nákvæmlega í
hverju hún fólst. í þab minnsta
endingargób eba reynst hald-
minni en menn héldu, því nú er
Jóhann búinn ab sækja um bæj-
arverkfræbingsstarfib. Hann er
meira ab segja búinn ab tryggja
sér víbtækan stubning til starf-
GARRI
ans, m.a. hjá krötunum sem nú
sitja á hlibarlínunni og brosa
svo breitt að annab eins hefur
ekki þekkst hjá hafnfirskum
krötum um árabil. Þar á bæ hafa
menn eins og kunnugt er held-
ur reynt ab hafa hægt um sig
eftir ab upp komst um skulda-
stöbu bæjarins og Guðmundur
Árni skreib heim illa særbur eft-
ir pólitíska eldskírn í landsmál-
unum.
Hefndin sæta
Tími hefnda er runninn upp í
Hafnarfirbi og er ljóst ab her-
fræbi kratanna byggist á því að
bíba þar til Jói Hafnarfjarbar-
skelfir er búinn ab gera meiri-
hluta Allaballa og Sjálfstæbis-
flokks lífib svo óbærilegt, ab
þeir hvor um sig koma skríð-
andi til bæjarfulltrúa Alþýbu-
flokksins og grátbibja þá um
samstarf, sem hafi þab mikinn
meirihluta ab baki ab Jói Hafn-
arfjarbarskelfir komist ekki í
lykilabstöbu.
Spurningin núna er einvörb-
ungu sú, hvort meirihlutasam-
starfið brestur ábur en rábib
verður í bæjarverkfræbingsstöb-
una eba eftir ab þab verbur gert.
Eflaust munu kratar stybja
Hafnarfjarbarskelfinn í starfib,
ef þeir verba í andstöbu.
Splundrist samstarfib ábur en
rábib verbur í stöbuna, minnka
hins vegar möguleikar Jóa, því
eflaust munu verðandi sam-
starfsabilar kratanna, hvort sem
þab verba sjálfstæbismenn eba
Allaballar, semja um þab fyrir-
fram ab Hafnarfjarbarskelfirinn
verbi frystur úti. Garri
Viröing Alþingis —
og lítiö eitt um bók
Ábur en sest var vib ab semja
þennan pistil, var stigib á stokk
og heitstrengt ab fjalla ekki um
rósbleika framtíbardrauma
Svavars Gestssonar, sem hann
opinberar í BÓK sem sætir mikl-
um tíbindum . í fjölmiblum.
Garrinn hér fyrir ofan komst ab
því í gær ab Svavar væri ab
reyna ab troba sér í buxurnar
hans Dengs í Kína. Sá er valda-
mesti mabur Kínaveldis, en
gegnir engri stöbu né embætti.
Eina nafnbótin sem hann ber,
er forseti Kínverska bridgesam-
bandsins. Garra grunar ab Svay-,
ar ætli sér svipaba stöbu í afíæ’
ballaríinu, hvernig sem valda-
strebib í flokknum annars fer á
haustmánubum.
En af því ab BÓKIN hans
Svavars er ekki hér til umfjöll-
unar, verbur enginn dómur
lagbur á innihald hennar, en
snúib sér ab öbru efni, sem eru
fagnabarlæti kratanna í Alþýbu-
blabinu yfir framtíbarsýn læri-
sveins Einars Olgeirssonar og
Magnúsar Kjartanssonar.
Kratarnir bjóba hinn nýja
hugmyndafræbing markabs-
hyggju meb vinstri slagsíbu vel-
kominn í sinn hóp.
Samruni hugsjóna
Þeir, sem kjósa ab eiga sam-
leib meb hugsjónum Stefáns Jó-
hanns, Gubmundar í., Gylfa Þ.
og Jóns Baldvins, eru ekki á
flæðiskeri staddir í tilverunni.
Hugmyndir þessara mætu
manna um samfélagsþróun og
samvinnu ríkja á milli eiga sér
vaxandi hljómgrunn mebal
fyrrum komma og alls kyns al-
þjóba- og þjóbernissinna um
lönd og álfur. Er engin furba ab
þeir, sem eru ab fálma sig út úr
myrkvibum kommúnismans,
fái hugljómun þegar þeir ná ab
kynnast þeim framtíðarmark-
mibum, sem nefndir kratar og
hefðu það
þótt stórtiðindi
að fyrrum rit-
stjóri Þjóð-
viljans og II
formaður K
Alþýðu-
bandalags-
ins sækti
umbótatillög-
ur sínar til .
knpitalist- \
anna í Amer- ^
íku. Hætt er við
að Einar og Brynj-
ólfur hefðu látið
sogja sér það
ii>nj!u f\nr -ernna sir.ó jvo •cn i Svavar -rm cn finan
margir fleiri þeirra nótar helg-
ubu líf sitt og starfskrafta.
Von er ab kratar verbi upp-
vebrabir, þegar trú þeirra á jafn-
abarmennskuna er staðfest í riti
þar sem safnab er saman helstu
trúarjátningum kratismans og
tekið undir hugmyndafróbleik
innlendra sem erlendra Alþýbu-
flokksmanna, sem þeir hafa op-
inberab og barist fyrir gegnum
tíbina.
Á víbavangi
Enn skal áréttab að í þessum
pistli er ekki fjallab um BÓKINA
hans Svavars, enda stób þab
aldrei til. En þótt hún sé ásækin,
verbur að standast allar freist-
ingar abrar en þær ab velta fyrir
sér, hvernig kratar taka hinum
nýja samherja sínum, sem þeir
fagna innilega ab vonum.
Skal hér abeins vitnab í tvo
ebalkrata, sem geta ekki orba
bundist yfir hinum nýja bróbur
í hugsjóninni:
„Engu ab síbur býb ég Svavar
Gestsson velkominn yfir í Al-
þýbuflokkinn — jafnabar-
mannaflokk íslands."
„Welcome to the club, félagi
Swavar."
Hugljúft!!!
Batnandi þingheimi
er...
En af því ab þessi pistill fjallar
alls ekki um BOKINÁ hans Svav-
ars, þótt abeins sé imprab á hug
hinna kratanna til hennar, er
rétt ab snúa sér ab abalefninu.
Nýkjörinn þingforseti hét því
í byrjun þings ab koma nokkr-
um skikk á umræður og hátterni
þingmanna. Langlokur úr
pontu þjóna litlum tilgangi öbr-
um en ab skemmta þeim, sem
hafa gaman af ab heyra sjálfa sig
tala.
Forseti bab þingmenn ab
vanda mál sitt og halda sér vib
umræbuefni hverju sinni. Ekki
var vanþörf á þessum áminn-
ingum, því eins og fram kom í
grein, sem einn nýlibanna á
þingi skrifaði í Tímann s.l. laug-
ardag, getur hann ekki alltaf
náb samhenginu milli ræbu
þingmanna og þess málefnis
sem á ab vera til umfjöllunar.
Þetta þætti léleg frammistaða á
málfundi í fyrri bekkjum grunn-
skóla.
í fyrradag áminnti forseti
þingmenn alvarlega um ab gæta
kurteisi í tali og virba hefbir Al-
þingis í ávörpum og samskipt-
um hver við annan.
Þetta lofar góðu um ab Al-
þingi megi öblast fyrri virbingu
í hugum kjósenda. Þab eru ekki
kjaftaskar úti í bæ sem hafa rúib
þingib virðingunni, heldur er
orsökin innanmein, sem eng-
inn getur læknab nema þing-
menn sjálfir.
Forseti ætlar greinilega ekki
ab láta sitja við orbin tóm, og
megi honum og þingheimi vel
farnast. Svo framarlega sem
menn geta setið á strák sínum
og konur á stelpum, svo alls
jafnræbis sé gætt í orbavali.
Og sé vikib aftur ab BÓKINNI,
þá ... stopp, stopp.
OÓ