Tíminn - 09.06.1995, Page 6

Tíminn - 09.06.1995, Page 6
6 l r F-östudagur 9. júní-1-99S Sjávarútvegsrábuneytiö: Seibaskilja vi 5 allar rækjuveiðar Sjávarútvegsrá&uneytib hefur gef- ið út reglugerb um úthafsrækju- svæði og notkun seiðaskilju við rækjuveibar, sem tekur gildi 1. júní n.k. Tilgangurinn meb seiða- skilju er m.a. að vernda tveggja ára þorskárganginn, sem mælst hefur um eða yfir meðallagi mörg undanfarin ár. Samkvæmt reglugerð ráöuneytis- ins er skuttogurum á rækju, sem eru 40 metrar og lengri, skylt að nota seiðaskilju við veiðarnar frá og með 15. júní n.k. En frá og með 15. júlí n.k. er öllum skipum við úthafs- rækjuveiðar skylt að nota seiða- skilju. Fyrir Vestur- og Suðvestur- landi er hinsvegar veittur frestur til 1. janúar 1996 til þess aö taka í notkun seiðaskilju. Á síðasta ári voru nokkur svæði þar sem rækjuveiðar voru bannaðar án seiöaskilju; Þrjú slík svæði eru á Norðurlandi til verndar ungkarfa, og sl. vor var seiðaskilja áskilin við rækjuveiðar á tveimur svæðum fyrir Vesturlandi til verndar ungfiski, að- allega þorski og ýsu. í byrjun næsta árs veröa því rækjuveiðar aðeins heimilar án seiöaskilju á innfjarðarrækjusvæð- um eins og t.d. í Arnarfirði, Isafjarð- ardjúpi, Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfandaflóa og Axarfirði. Sam- kvæmt reglugerðinni teljast úthafs- rækjuveiðar þær veiðar sem stund- aðar eru utan viðmiðunarlínu. Heimilt er þó að stunda úthafs- rækjuveiðar á tveimur svæðum inn- an viðmiðunarlínu, á Héraðsflóa og á utanverðum Húnaflóa. Þá eru út- hafsrækjuveiðar bannaðar á ákveðnum svæðum fyrir Suður- landi og við Eldey, auk þess sem reglugerðin setur skorður við veið- um ákveöinna skipastærða á svæð- um fyrir Vesturlandi og Noröur- landi. ■ Skilabob kríunnar: Ráöstefna um skotveiöar ínútíma samfélagi. Ólafur Karvel Pálmason, formaöur Skotveiöifélags íslands: SkotveiÓar alltaf á milli tannanna á fólki Skotveiöifélag íslands heldur rábstefnu á morgun, laugar- daginn 10. júní, á Grand Hot- el (ábur Holiday Inn), um skotveiöar almennt í nútíma samfélagi. Á mebal erinda, sem flutt verba, eru Sjálfsmytid skotveiði- manna — náttúniunnendur eða blóðþyrstir byssubófar? Samband bœnda við skotveiðimenn, Sið- frceði skotveiðimanna, auk þess sem stjórmálaflokkarnir veröa inntir eftir stefnu sinni gagn- vart þessum hópi manna sem stöðugt fer stækkandi. Ólafur Karvel Pálmason, for- maður Skotveiðifélagsins, segir ab alls séu um 20.000 skot- veiðimenn á landinu og mark- mib stefnunnar sé að stofna til markvissra skoðanaskipta um þessi mál. „Skotveiöar eru allt- af dálítib á milli tannanna á fólki af einhverjum ástæbum," segir Ólafur. Fulltrúar stjórnmálaflokk- anna eru boðaðir til ab gera grein fyrir stefnu sinni gagn- vart skotveiðimönnum. Olafur segist vilja heyra stefnu þeirra hvab varöar t.d. greibari að- gang aö veiðilendum og veiðar á fleiri fuglategundum. „Við viljum fá að vita hvort þeir vilji hefta athafnafrelsi skotveiöi- manna enn frekar en nú er orð- ib, eba hvort þeir vilja ganga í ríkari mæli til samstarfs vib okkur." Norðurpóllinn i. Öxullinn, sem jarðkúlan snýst um, er ímynduð lína um miöju hennar. Endarnir ná yfirborði á tveimur stöðum, efst og neðst á jörðinni. Þar eru Norðurpóllinn og Suðurpóllinn; hinir landfræðilegu pólar. Þarna enda allir lengdarbaugar jarðar og breiddarbaugar jarðar eru síminnkandi hringir útfrá miöbaug, þeim mun nær sem dregur pólunum. Á pólunum er breiddin skilgreind sem 90,00" noröur eða suður. II. Svonefndir segulpólar eru allt annars eölis. Segulsvið jaröar er birt sem safn kraftlína, er stefna lóðrétt niður ofarlega og neöarlega á jarðkúlunni. Á miðbaug stefna þessar kraftlínur samsíða yfirborö- inu. Staðirnir þar sem segulkraftlínurnar stefna beint niöur, eru umræddir segul- pólar. Annar er norðvestur af Norðurpóln- um, séð frá íslandi, hinn inni á Suöur- skautslandinu, alllangt frá Suðurpólnum. Segulpólarnir flökta og hreyfast líka jafnt og þétt úr stab og stundum „snýst" segul- sviöið alveg og pólarnir skipta um sess, án þess að landfræðilegu pólarnir hreyfist um leið. III. í ferð okkar Ragnars Th. Sigurbssonar komumst við bæði á hinn norðlæga segul- pól og á Noröurpólinn, í mars og apríl sl. Noröursegulpóllinn er um það bil UM- Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur Greinarhöfundur feröbúinn á Norbupólinn. sunnan viö Eilif Ringnes eyju í Kanada, langt norður af Hudson-flóa. Þar var hafís, en þess ber þó að gæta ab erfitt er aö hitta á pólinn með nokkurri ná- kvæmni. Hann sígur nú um það bil í norðnorbvestur, auk þess sem hann hnitar aflanga hringi meö um 100 km Iengsta þvermáli. Var hér enda um tákn- ræna heimsókn að ræba. Norðurpóllinn er líka á hafís, en ekki á eyjasundi heldur úti á reginhafi, um 900 km frá næstu strönd. Við fórum þangaö flugleiöis frá nyrstu ströndum Ellesmere-eyju. Mikið var um þunnan ís og vakir á pólsvæðinu, en á lendingar- stað var á að giska 2-3 metra þykkur haf- ís, umgirtur nokkurra metra háum hrönnum þar sem slétt hafísþökin höfðu nuddast saman. Undir ísnum er 2500- 3000 metra djúpur sjór (Fram- djúpið), rétt austan vib mikinn neðan- sjávarhrygg sem heitir Lomonosov- hryggur. IV. Pólhafið er meira en 2000 km breitt og hafísinn er á hægri hringhreyfingu. Hann þéttist og þykknar á veturna, en gisnar og þynnist á sumrin. Af pólnum sést hvergi til lands og ekkert landslag er þarna uppfrá; aðeins hvít og bláleit breiða svo langt sem augab eygir. Að- Ljósmynd: Ragnar Th. Sigurbsson. stæður eru aörar á Suðurpólnum. Hann er um 1300 km frá strönd, en ekki á hafi úti heldur inni á stóru og jökulþöktu meginlandi (Antarktíku). Þar er 2000- 3000 metra þykkur jökulís, líkt og á miðju Grænlandi. V. Hitastigið á Noröurpólnum var mun hærra (-20°) en inni á landi í Kanada (- 30° til -40°). Skýringin er vafalítiö fólgin í nálægö hafsins, sem er „hlýtt" miðab við landið eöa um -1° til -4°. En hvað sem öllu hitastigi og allri flatneskju líð- ur, er sérkennilega fagurt á þessum af- skekkta stað. ■

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.