Tíminn - 09.06.1995, Qupperneq 12
* >
12
FÖstudagur 9. júní 1995
Carburirm í Slakka er skemmtilegur ab sjá, eins og hér sést, og burstahúsib setur skemmtilegan svip á heildar-
myndina.
Lauparás í Biskupstungum:
Ahugaveröur
garður í Slakka
Eyþór Loftsson verbur innsti koppur í búri í dýragarbinum Slakka nú í
sumar.
Óhætt er af> fullyröa aö garöur
þeirra Helga Sveinbjörnssonar
og Bjargar Ólafsdóttir í garö-
yrkjustööinni Slakka í Laugar-
ási sé næsta ævintýralegur.
Garöinn hafa þau hannaö af
mikilli smekkvísi og fyrir
skömmu var þar opnaður vísir
aö dýragarði sem trekkir marga
aö. „Þessi garður var raunar
aldrei neitt hannaður svo heitið
gæti. Það var hér komið með 20
tonna skurðgröfu og byrjað að
móta hér skjólgarð í kring og
síðan var farið af stað og þetta
hannað svona nokkuð eftir aug-
^ VALMET
VISSIR ÞÚ
að VALMET dráttarvélin er mest selda dráttarvélin á Norður-
löndum?
að VALMET dráttarvélin er framleidd á Norðurlöndum fyrir
norrænar aðstæður?
að VALMET dráttarvéla-verksmiðjurnar eru fyrstu framleið-
endur dráttarvéla, sem hlotið hafa staðfestingu gæðastaðalsins
ISO 9001?
Kröfuharðir neytendur, sem dæmi kjarnorkuver eða bandaríski
herinn, fara eftir gæðastaðli ISO 9001 við vöruinnkaup sín.
Síðastliðin tvö ár hefir breski herinn keypt VALMET dráttar-
vélar. VALMET dráttarvélin hentar sérlega vel íslenskum að-
stæðum. Frábær vöruvöndun og háþróaður ræsibúnaður
tryggir notkun við allar aðstæður. Frá framleiðanda VALMET
getur þú fengið vélina tæknilega sniðna að þínum eigin þörf-
um. Og þú getur valið þér einhvern af hinum fimm litum, sem á
boðstólum eru.
Leitaðu upplýsinga—það borgar sig.
Verðið kemurþér vissulega á óvart.
VALMET íverkin og
erfiði heyrir sögunni til.
Síðumúla 23, Reykjavík.
Þjónusta um allt land.
Sími 588-7090.
Varahlutasími 581-4330.
í!v' BúlfJÖFUR
anu," sagði Helgi Sveinbjörns-
son, þegar blaðamaður ræddi
við hann sl. mánudag. Plöntur í
garðinum eru raunar ekki svo
ýkja margar, heldur hafa verið
byggðir vítt og breitt um hann
lítil kofahús, þar sem hin marg-
víslegustu húsdýr eiga sama-
stað. Getur fólk gengið um
garðinn og skoðað þau, en í
dýragaröinum Slakka getur að
líta meðal annars geitur,
grislinga, lömb, kanínur og sitt-
hvað fleira. Þau hjón segjast
vera með margar aðrar hug-
myndir í þessum dúr, sem koma
eigi í framkvæmd í náinni fram-
tíö.
Við hlið garðsins stendur svo
lítiö tveggja bursta hús; sem
byggt var síðasta sumar. Þar er
kaffitería og jafnframt list-
munasala, en þau Helgi og
Björg hafa talsvert fengist við
sölu og gerð listmuna í gegnum
árin. Hæst ber þar gerð kerta-
stjaka úr Hekluhrauni. í litla
hraunmola, sem síöar em lakk-
aðir, er boruö hola fyrir spritt-
kerti og þannig njóta þau sín
afar vel. Aðalstarf þeirra hjóna
er þó garöyrkjubúskapur, en
þau fást aðallega við ræktun
tómata og agúrkna. SBS, Selfossi
Áncegb meb bókina. Sigríbur Hjartardóttir meb bókina Carburinn sem
Carbyrkjufélag íslands gefur út. Liósm. Gunnar Svemsson.
Caröyrkjufélag íslands gefur út bókina Garöurinn:
„Þetta er biblía
garðeigenda"
GÆÐAMOLD
í GAROINN F
Grjóthreinsuð
mold, blönduð
áburði, skeljakalki
og sandi. Þú sækir
eða við sendum.
Afgreiðsla á gömlu
sorphaugunum í
Gufunesi.
. GÆÐAMOLD
MOLDARBLANDAN - GÆÐAMOLD HF.
Pöntunarsími 567-4988
„Já, það má kannski orða
það sem svo að þessi bók sé
hugmyndabanki eða biblía
alla garðeigenda. í bókinni
er að finna fjölmargar upp-
lýsingar um hönnun garða
og ræktun þeirra."
Þetta sagði Sigríður Hjartar-
dóttir formaður Garðyrkjufé-
lags íslands í samtali við Tím-
ann, en félagið gaf fyrir
skömmu út bókina Garðurinn.
Bókin var sett saman af þeim
Auði Sveinsdóttur og Fríðu
Björk Eðvaldsdóttur landslags-
arkitektum, en allflestar
myndirnar í bókinni eru tekn-
ar af Önnu Fjólu Gísladóttur.
Faðir hennar, Gísli B. Björns-
son, hannaði svo bókina góðu.
Bókin Garðurinn er alls 208
blaðsíður. Henni fylgja 340 lit-
myndir og 80 teikningar. Sjást
í þessari bók teikningar eftir
flesta íslensku landslagsarki-
tektana, en þeir eru fjöl-
margir. ■