Tíminn - 22.06.1995, Síða 5

Tíminn - 22.06.1995, Síða 5
Fimmtudagur 22. júní 1995 5 í Vestur-Skaftafellssýslu, aust- an Mýrdalssands, eru mörg athyglisverö veiöisvæöi, sem fyrst og fremst bjóöa upp á veiöi á sjóbirtingi, þó aö lax- inn komi þar einnig viö sögu og veiöist þar, eins og í Tungufljóti og Geirlandsá. Til eru frásagnir um ævintýra- lega veiöi á sjóbirtingi frá þeim tíma þegar ádráttarveiöi var stunduð reglubundiö í Skaftárósi og víðar. Þetta voru víöfræg veiðivötn vegna sjóbirtingsveiöinnar, sem tal- in var meö því besta sem þekktist hér á landi, ekki síst fyrir þá sök hversu vænn fisk- urinn var. Og enn eru þetta ein þekktustu sjóbirtings- svæöin, þó aö núna sæki stangaveiðimenn úr þéttbýl- inu til veiða á þessar slóöir. Mörg veiöisvæöi Á fyrrgreindu svæði eru því öflug vatnakerfi, eins og Hval- síki og Melós, Skaftá, Grenlæk- ur, Eldvatn í Meöallandi og Kúðafljót. Þessi vatnsföll eru samnefnari fyrir margar ár, eins og Laxá, Brúará og Brunná, Geirlandsá, Stjórn, Breiðbala- kvísl, Vatnamótin og Fossálar og Tungufljót. En Tungufljót fellur í Kúðafljót, eins og vatns- fallið heitir eftir að kvísl úr Skaftá, Eldvatn, hefur sameinast Tungufljóti. Tungufljót er dragá, 33 km að lengd, með 182 ferkílómetra vatnasvið og á upptök í Svarta- hnúksfjöllum. Það er fiskgengt nokkuð upp fyrir Bjarnarfoss, eða um 10 km. Veiðistaðir eru 30-40 talsins í Fljótinu. Þar veið- ist lax, sjóbirtingur og bleikja. Stangaveiði hefur verið stunduð þar um langt skeið, en félagslegt samstarf hófst þar með stofnun Veiðifélagsins 1974. Tungufljót í Skaftártungu, horft nibur ána frá Búrhyl. Bjarnarfoss í Tungufljóti. komu laxins lengdist veiðitíminn á svæðinu, vegna þess að laxinn fékkst fyrr á tímanum en sjóbirt- ingurinn. Eftirsótt svæöi Tungufljót er leigt Stangaveiði- félagi Reykjavíkur, sem hefur komið þar upp þægilegu húsi við Fljótið fyrir veiöimenn, þar sem er svefnrými fyrir 8 manns, auk svefnlofts. Náttúrufegurð er mikil í Skaftártungu, eins og kunnugt er, og notalegt að dvelja þarna. Friðsælla er á þessum slóðum eft- ir að nýja brúin kom á Kúðafljót, en áður var þarna oft mikil um- ferð bifreiða að sumarlagi. Ljóst er hér, eins og annars staðar, að bættur aðbúnaður veiðimanna Ljósmyndir: Einar Hannesson örvar aðsókn að veiðisvæðum og gerir dvölina þar tvímælalaust ánægjulegri en ella hefði orðið. Athyglisvert er að veiðileyfi eru nú þegar uppseld í Tungufljóti, samkvæmt Veiðifréttum SVFR, í júní, júlí og september og októ- ber. Veitt er með fjórum stöng- um, mest samtímis, í Tungu- fljóti. ■ Laxarækt Á sínum tíma var stunduð laxa- rækt í Tungufljóti af Veiðifélag- inu um svæðið í samvinnu við stangaveiðimenn í Vík í Mýrdal, sem leigðu svæðið. Þessi viðleitni skilaði skemmtilegum árangri, hvað veiði snerti. Næstu árin veiddust árlega nokkrir tugir laxa og 1979 fengust þar 74 laxar, auk sjóbirtings og bleikju. Meö til- Sjá má vatnamótin þar sem Tungufljót og Eldvatn sameinast. Tungufljót VEIÐIMÁL EINAR HANNESSON Avísað á ríkissjóð Um daginn varð ég nokkurs vísari um fjáraustur í heilbrigðiskerfinu sem ég tel ástæöulaust að liggi í þagnargildi. Kunningi minn, sem býr í Reykjavík, sagöi mér frá reynslu sinni þegar hann þurfti ab leita sér lækninga við fótarmeini, sem hann sagbi meb brosi á vör að vissulega heföi verið vel heppnuð lækning, en líka hvort tveggja í senn, fegrunaraðgerð og viðgerb á bilun í ganglimi. Honum var hins vegar ekki hlát- ur í huga þegar hann upplýsti mig um samanburð sinn á kostnaöi við sambærilega lækningu sem sjúk- lingur utan af landi hafði fengið á sömu sjúkrastofnun hér í höfuö- borginni. Kunningi minn hafði þurft aö greiða nokkurt fé fyrir aðgerðina, sem framkvæmd var innan veggja sjúkrahússins, þótt hann hefbi ekki verið lagður þar inn til dvalar. Sjúklingurinn utan af landi hafði hins vegar verið lagður inn á sjúkrahúsiö í fáar nætur og þá kostaði dvölin eða aðgerðin ekk- ert! Nema auðvitaö það sem ríkið greiddi og er umtalsvert. Þegar kunningi minn fór að spyrjast fyrir hverju þessi mismun- andi meðferð þeirra tveggja sætti, fékk hann þau svör að sjúklingar utan af landi væru oft lagðir inn vegna þess að þaö sparaöi þeim út- lát við gistingu, því þaö væri víst alveg nóg óhagræði að þurfa að ferðast langa leið meö ærnum til- Frá mínum bæjar- dyrum LEÓ E. LÖVE kostnaði, svo ekki bættist við óheyrilegur dvalarkostnaður. Auövitaö er það fallega gert gagnvart blessuðum sjúklingnum að spara honum tilkostnað, en hvaöan fær læknir umboð til aö opna ríkiskassann fyrir sjúkling sinn? Það þarf að fást svar við þessari spurningu. Ég minni á að fylgst mun vera með hvernig læknar ávísa lyfjum til þess ab stemma stigu viö notkun vímuefna, en hvar er eftirlit með því hvernig læknar ávísa verðmætum eins og í dæminu hér að ofan? Þaö er eðlilegt að sjúklingum ut- an af landi sé rétt hjálparhönd þegar þeir geta ekki notið læknis- þjónustu heima í héraði, því auð- vitað viljum við að allir séu sem líkast settir. En þab er einmitt þab sem við viljum og ekkert annað. Viö viljum ekki að einn sjúk- lingur fái svo dýra þjónustu, greidda af ríkissjóði, að jafngildi dvöl á dýrustu hótelsvítu, þegar annar þarf að greiða sjálfur, þótt minna sé. Með það í huga, hefði til dæmis ekki verið hægt að láta ódýra feröamannagistingu duga? Jú, ef slíkt væri til í „kerfinu". Það getur vel verið að læknar sem ákveða innlagnir standi ráð- þrota gagnvart svona vandamál- um og kunni ekki aðrar leiðir til að leysa þau. En þá er líka eitthvaö að sem varðar samskipti og boðleiöir. Eöa nennir enginn að breyta? Telja menn kannski að eftirlit og niðurskurður sé ekki þeirra óvin- sælda viröi sem af kunna að hljót- ast? Ef svo reynist, þarf að skipta um stjórnendur.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.