Tíminn - 13.07.1995, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 13. júlí 1995
§Mnt»
3
Hlutur bjórsins í heildarsölu hreins alkóhóls vaxiö úr 32% í 42% á
tveim árum:
Bjórsala vaxið nærri
50% á tveim árum
ÁTVR seldi ríflega 3,7 milljónir
lítra af bjór á fyrri helmingi
ársins. Þab var rúmlega 15%
meira heldur en á fyrra misseri
síbasta árs og alls 47% aukning
frá fyrri helmingi ársins 1993.
Heildarsala áfengis hefur á
sama tíma aukist um tæplega
11%.
Mælt í lítrum hreins alkóhóls
hefur sá hluti heildarneyslunnar
sem bjórinn inniheldur aukist úr
rúmlega 32% í rúmlega 42% á
síðastu tveim árum. Haldi þessi
þróun áfram virðist stefna í það
á næsta ári eða því þarnæsta að
bjórinn innihaldi yfir helming
alls selds alkóhóls hjá ÁTVR. Sala
á vodka, sem löngum var helsta
alkóhólslind landsmanna, hefur
sl. tvö ár minnkað um 13% og
samtals um rúmlega þriðjung frá
komu bjórsins. Og sala á gamla
góða brennivíninu hefur hrein-
lega hrunið.
Það eru sölutölur ÁTVR fyrir
tímabiliö janúar-júní sem hér er
vitnað til. í krónum talið hafði
fyrirtækið fengið 3.660 milljónir
króna í kassann fyrir áfengissölu
á fyrri helmingi ársins, eða sem
svarar um 55.000 kr. (mánaðar-
launum verkakonu) að meðaltali
á hverja fjögurra manna fjöl-
skyldu í landinu. Raunverulega
hefur fólk þó borgað miklu
meira, því fjórðungur af áfengis-
sölu ÁTVR er til veitingahúsa.
Leggi þau t.d. jafnaðarlega um
200% á sína sölu mundi heildar-
upphæðin hækka í nærri 5.500
milljónir og heimilisskammtur-
inn hækka í um 82.000 kr. (mán-
aöarlaun verkamanns) á fyrra
helmingi þessa árs.
Sú gífurlega aukning sem orð-
ið hefur á bjórsölu síðustu tvö
árin kom í kjölfar stöðugs sam-
dráttar sem orðið hafði ár hvert
frá fyrsta bjórárinu, 1989. Rúm-
lega 3,2 milljónir lítra af bjór
seldust það ár, árið 1993 hafði
salan fallið niður í rúmlega 2,5
milljónir lítra. Síðustu.tvö árin
hefur hún svo aftur vaxið í rúm-
lega 3,7 milljón lítra, sem áður
segir. ■
Svavar Þorsteinsson, útgeröarstjóri Snœfellings í Ólafsvík, um aögeröir Norömanna:
Hrein og klár svívirba
„Satt ab segja þá finnst
manni þetta hrein og klár
svíviröa, í stuttu máli sagt,"
segir Svavar Þorsteinsson,
útgerðarstjóri Snæfellings
sem gerir út togarann Má,
aöspurbur um afstööu hans
til þessara aðgerba Norö-
manna.
„Þeir tala um aö við höfum
ætlað að taka kost og olíu. Það
er náttúrlega eins og hver
önnur fjarstæða, því við erum
með næga olíu um borð og
nægan kost. Þab var aldrei
pantab neitt af því. Það eina,
sem var beðib um í þjónustu
þar, var ab skera úr skrúfunni
og það er þab eina sem við
óskum eftir frá Norðmönn-
um," segir Svavar og bætti því
við að heimamenn í Honn-
ingsvág hefðu brugðist mjög
vel við og gert allt klárt til ab
taka á móti togaranum, þar til
skipun um annað hefði komið
frá norska hernum.
„Okkar fyrstu viðbrögð vom
þau að hafa samband við
sendiherrann í Noregi. Hann
fór í málið á fullu og hafði
samband við ráðuneytið hér
heima, sem hefur síðan verið
að vinna í þessu máli og reyna
að fá Norðmenn til að skipta
um skoðun og beita þá þrýst-
ingi til þess. Enn sem komið er
hefur það ekki virkað," sagði
Svavar, er Tíminn ræddi við
hann seinnipartinn í gær.
Svavar telur þessa skipun
um að Már fengi ekki aðstoö
komna beint frá norska hern-
um, en skapar þetta hættu fyr-
ir skipið?
„Það er voðalega erfitt að
segja til um það hvenær þab er
hætta og hvenær ekki. Þetta
hefur ákveðna hættu í för meb
sér varðandi skemmdir á vél-
búnaði eða skrúfubúnaði og
líka ef skipið hreppir óvebur á
leibinni heim þá getur skapast
hætta."
Fram kom í máli Svavars að
hann telur verulegar líkur á að
skemmdirnar á skrúfu og vél
gætu numið tugmilljónum
króna sem væri stór biti fyrir
útgerðina.
„En aðalatriðið er náttúrlega
sú hætta sem mannskapnum
eða skipinu mundi stafa af
þessu," segir Svavar.
TÞ, Borgamesi
Miklar vibgerbir
standa þessa dagana yfir á aöal-
byggingu Háskóla íslands. Er af
þessum sökum engin regluleg
starfsemi í byggingunni. En í góöa
veörinu í gœr tylltu menn sér þó á
hœsta punktinn á byggingunni og
létu sumarsólina verma sig.
Tímamynd: Pjetur.
íslenska unglingalandsliöiö í
körfu gerir þaö gott:
Sigraði franska
landsliðið
íslenska unglingalandsliðið í
körfuknattleik sigraöi það
franska á Olympíuleikum æsk-
unnar sem haldnir eru þessa dag-
ana á Bath eyju við England.
Leikar enduöu með 66 stigum
gegn 65.
í leikhléi voru Frakkar yfir með 37
stigum gegn einu, en Daníel Árna-
son gerði sigurkörfu íslands á síð-
ustu sekúndu leiksins. Stigahæstur í
íslenska liðinu var Páll Vilbergsson
með 15 stig. ■
Magnús Stefánsson, alþingismaöur á Vesturlandi:
Við skulum ekki útiloka ab-
gerðir gegn Norðmönnum
„Eftir þeim fréttum, sem ég
hef heyrt, þá finnst mér þetta
mjög alvarlegt mál. Ég sé ekki
ab vib getum sætt okkur vib
þessar aðgerbir Norðmanna,
en ég vil taka það fram að ég
þekki ekki málið alveg niður í
kjölinn," segir Magnús Stef-
ánsson alþingismaður sem bú-
settur er í Grundarfirði, en
hann er gamall Ólafsvíkingur
og er mál togarans Más því
skylt.
„En fljótt á litið finnst mér
þetta mjög alvarlegt mál og mér
finnst Norðmenn komnir á
annað stig í samskiptum okkar,
meðal annars útaf þessum fisk-
veiðimálum, heldur en hefur
verið. Mér finnst full ástæba til
að við skoðum þetta mjög
gaumgæfilega. Við skulum ekk-
ert útiloka þaö að við þurfum ab
fara ab grípa til einhverra að-
gerða gegn Norðmönnum, en
aubvitað forðumst við það í
lengstu lög. Menn eiga að geta
leyst sín mál við samningaborð.
En þessar abgerðir falla ekki að
þeim sjónarmibum," segir
Magnús.
Magnús lýsti áhyggjum sín-
um af áhöfn togarans, þar sem
þetta yrði henni mjög erfitt ef
togarinn t.d. hreppti slæmt veð-
ur. Möguleikinn á því að hættu-
ástand skapaðist væri einnig
fyrir hendi. Hann sagði að það
gæti vel farið svo að hann leit-
abi til utanríkisráðherra vegna
málsins.
TÞ, Borgamesi
SPRON og SVR
Vegna fréttar í Tímanum sl.
laugardag um skýrslu Borgar-
endurskobanda þar sem hún
fjallar um vafasaman ávinning
þess ab fela SPRON vörslu og
talningu fargjaldapeninga SVR
í stab þess kerfis sem SVR hafði
ábur, hefur komib fram mis-
skilnigur, einkum út af fyrir-
sögninni: „Vafasamt ab fela
SPRON að telja krónur fyrir
SVR."
í þessu átti ekki að felast ásök-
un frá blaðinu ab SPRON væri
að stinga undan' peningum.
Hins vegar er rétt að birta hér á
eftir orðrétt það sem borgar-
endurskoðandi segir um þetta
mál til ab ekkert fari milli mála
um hvað hann segir í sinni
skýrslu:
„Einkum tengjast vandamálin
í tekjuskráningunni staðgreidd-
um fargjöldum og eru þau
helstu þessi: engin uppruna-
skráning fargjalda í vögnunum,
ferli peninga frá losun bauka til
talningar er opið fyrir aðgengi
fólks, varsla verbmæta á mis-
munandi stigum er tæplega
nógu örugg. Þegar rekstur SVR
hf. hófst var geröur samningur
vib SPRON um talningu fjárins
og vörslu. Gerð var vettvangsat-
hugun á myntstöð og talningar-
stöðunni hjá SPRON, og varð
niðurstaba skoðunar sú ab taln-
ing staðgreiðslufjár hjá SPRON
bæti ekki mjög mikið öryggi við
skil allrar staögreiðslu, og í taln-
ingu og vörslu, frá því sem áður
var. Kanna þarf rekstrarlega
hagkvæmni þessa breytta fyrir-
komulags."
(Endurskobunarskýrsla 1994, bls.61- 62)