Tíminn - 13.07.1995, Blaðsíða 6
6
yftfröinT
Fimmtudagur 13. júlí 1995
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
HAFNARFIRÐI
Leikhúsib Hermóbur og Há5-
vör í gamla BÚH-húsib:
Draumurinn
ab byggja upp
atvinnuleikhús
— segir Þórhallur Gunnarsson
einn af aöstandendum leik-
hússins
Hafnarfjaröarleikhúsiö Her-
móöur og Háövör hefur fengiö
ínni í gamla BÚH-húsinu viö
höfnina og þar er nú unniö aö
endurbótum og innréttingum
fyrir fyrstu sýninguna í haust.
Alls standa tólf leikhúslista-
menn aö þessu leikhúsi en einn
þeirra, Þórhallur Gunnarsson,
segir aö draumurinn sé aö
byggja upp atvinnuleikhús í
Hafnarfiröi.
Upphaflega var ætlun leik-
hússins aö fá inni á Reykjavíkur-
vegi 45 en af því gat ekki oröiö.
Lausnin var svo BÚH-húsiö sem
er í eigu Sjólastöövarinnar en
Þórhallur segir aö Jón Guð-
mundsson hjá Sjólastöðinni hafi
verið þeim mjög hjálplegur meö
þetta ailt saman. Auk þess hefur
menningarmálanefnd bæjarins
beitt áhrifum sínum til að koma
leikhúsinu undir þak.
Þegar Fjarðarpósturinn heim-
sótti BÚH-húsið nýlega var
vinnan þar í fullum gangi en
unglingar úr Vinnuskólanum
hafa veriö fengnir til aðstoðar.
Sviö verður sett upp í aðal-
vinnslusal BÚH en búningsað-
staöa og fleira í hliðarherbergj-
um.
í máli Þórhalls kemur fram að
tólfmanna hópurinn sem mynd-
ar leikhúsið sé ellefu leikarar og
einn rithöfundur. Leikararnir
eru allir úr Hafnarfiröi og meöal
þeirra nokkrir af þekktustu leik-
urum landsins eins og Sigurður
Sigurjónsson, Magnús Ólafsson,
Jóhanna Jónas, Steinn Ármann
Magnússon. Rithöfundurinn er
Árni Ibsen og verður fyrsta verk-
efni leikfélagsins verk eftir hann
sem frumflutt veröur þann 15.
september. Aörir í hópnum, auk
Þórhalls, eru þau Björk Jakobs-
dóttir, Erling Jóhannesson,
Gunnar Helgason, Hilmar Jóns-
son, Sóley Elíasdóttir og Vigdís
Gunnarsdóttir.
I ágúst er ætlunin aö setja upp
leikrit fyrir börn hjá leikhúsinu
auk þess að bjóöa upp á kennslu
í leiklist fyrir unglinga.
Hafnarfjaröarleikhúsiö Her-
móður og Háövör var stofnað
voriö 1994 af fyrrgreindum hóp.
Fyrsta verkefni þess var dagskrá
sem flutt var á afmæli lýöveldis-
ins í Bæjarbíó og hlaut góðar
viötökur.
Þórhallur Gunnarsson.
Fiskvinnsluskólinn deild í
Fiensborg:
Gæti vel orbiö
bábum abilum
til framdráttar
Ákveðiö hefur verið aö gera
Fiskvinnsluskólann í Hafnar-
firði aö sjálfstæðri deild í Flens-
borgarskólanum. Um tilrauna-
verkefni er að ræða sem Flens-
borg mun sjá um en þegar hef-
ur veriö auglýst eftir nýjum for-
stööumanni fyrir deildina.
Kristján Bersi Ólafsson skóla-
meistari Flenborgar segir að
hann eigi von á aö þetta gæti
orðið báðum aöilum til fram-
dráttar, þeim nemendum sem
vilja stunda þetta nám og þeim
sem vilja hafa meiri fjölbreytni
í námsvaii í bænum.
Fiskvinnsluskólinn hefur ver-
iö í lamasessi og starfaöi lítiö
sem ekkert á síöasta ári. Hópur
var myndaður til að endur-
skipuleggja skólann og skilaöi
hann inn tillögum til mennta-
málaráöherra um að setja nám-
ið af stað aftur með þessum
hætti.
Kristján Bersi segir aö enn
eigi eftir að ganga frá ýmsum
framkvæmdaratriðum varöandi
námiö en þaö mun eftir sem
áöur verða í húsnæði Fisk-
vinnsluskólans á Hvaleyrarholt-
inu. „Það er ekkert því til fyrir-
stööu af okkar hálfu aö þetta
geti gengið upp en ákveðin
áherslubreyting veröur á nám-
inu með nýrri námsskrá," segir
Kristján.
SAUÐARKROKI
Kántríhátíb á
Skagaströnd
Skagstrendingar ætla að halda
kántríhátíð um verlunarmanna-
helgina og verður þar ýmislegt
til skemmtunar. Sem kunnugt
er gekkst Hallbjörn Hjartarson
Hólmfríöur Þóröardóttir og Valbjörg Fjólmundsdóttir fyrir utan handverks-
smiöjuna Vallery á Hofsósi.
fyrir kántríhátíð á Ströndinni í
tvígang fyrir rúmum áratug.
Vart er hægt aö segja aö nú sé
verið að endurvekja þær hátíöir
þar sem ætlað er að verslunar-
mannahátíðin á Skagaströnd
veröi meö öðru sniði. Að sögn
Guömundar Ólafssonar, upp-
hafsmanns hátíðarinnar, verður
stílað upp á þægilega fjöl-
skylduhátíö.
Hátíðin stendur frá föstudegi
til sunnudags og dansleikir
veröa öll kvöldin, bæöi í félags-
heimilinu og Kántríbæ. Magnús
Kjartansson verður meö kántr-
íhljómsveit sína í félagsheimil-
inu og Kúrekarnir leika í Kántr-
íbæ. Tónleikar með þessum
hljómsveitum verða aö degin-
um en einnig veröur ýmislegt
annað að gerast. Kántríútvarpiö
verður að sjálfsögðu á fullu. Far-
ið verður í ratleik og gönguferð
um Höfðann þar sem sögð
verður saga staðarins. Á sunnu-
dag verður helgistund, undir
berum himni ef veður leyfir,
annars í nýju kirkjunni.
Um þess helgi fer einnig fram
Norðurlandsmót í golfi á Skaga-
strönd og að sjálfsögðu geta
gestir þar fengið leigða hesta og
ýmisleg önnur dægradvöl
stendur til boða.
Aðspurður sagði Guðmundur
Ólafsson aö aðstaða væri góð á
Skagaströnd til að taka móti
fjölda fólks, en hins vegar gerðu
forráðamenn hátíðarinnar sér
enga grein fyrir því hversu
vænta mætti margra gesta. „Það
er alitaf töluverö umferð í
Kántríbæ og við búumst við að
þeir sem hafa áhuga á kántr-
ímúsík láti sig ekki vanta á staö-
inn."
Vallery á Hofsósi
Um helgina var opnuð á Hof-
sósi handverkssmiðjan Vallery.
Þetta sérkennilega nafn er að
sjálfsögðu tengt orðinu gallerí,
en fyrstu stafirnir tilheyra eig-
anda handverksmiðjunnar, Val-
björgu Fjólmundsdóttur. Munir
unnir úr náttúrulegum efnum
setja svip sinn á handverks-
smiðjuna, en Valbjörg sækir
mikið efniviðinn í fjöruna, auk
þess sem hún vinnur úr lopa,
leir, sútuðu skinni og bagga-
böndum svo eitthvað sé nefnt.
Aðspurð sagðist hún hafa feng-
ist við handiðnað ýmiss konar
frá því hún man eftir sér.
Þegar blaðamaður Feykis var
á ferð á Hofsósi fyrir helgina
stóð greinilega mikiö til við hús
eitt á Suðurbraut. Þar var Hólm-
fríður Þórðardóttir, sem málað
hefur utan á nokkur hús í
Skagafirði, að merkja húsið
Vallery-nafninu, ásamt að mála
á það blómaskreytingu. Hólm-
fríður var að enda viö verkiö og
haföi greinilega verið rösk, því
hún byrjaði ekki fyrr en þarna
um morguninn.
Þeir eru margir fallegir mun-
irnir í handverkssmiöjunni hjá
Valbjörgu. Eins og áður segir
sækir hún efniviðinn gjarnan
útí náttúruna. Þama má sjá ým-
is tilbrigði af þurrkuðum þara,
aðra muni formaöa úr leðri,
tösku heklaða úr baggabönd-
um, vesti saumuð úr lambs-
skinni og muni unna úr lopa og
leir, svo eitthvað sé nefnt.
„Ég hef gert mikiö af því að
búa til gjafavörur, svo sem jóla-
gjafir og aðrar tækifærisgjafir.
Eg hef mikinn áhuga á að kom-
ast í kynni við annaö hand-
verksfóik í Skagafirði til að fá
meiri fjölbreytni í vöruúrvalið",
segir Valbjörg. Handverkssmiðj-
an er opin frá kl. 14- 18 flesta
daga.
Bréf til rit-
stjóra Tímans
Kœri Jón!
Oft les ég mér til ánægju
hófstillta og skynsamlega pistla
þína í blaðinu. Það gerði ég
líka í dag, þótt ég verði að
senda þér ofurlitla athuga-
semd. Þú gerir að umtalsefni
orð dagskrárgerðarmanns á Rás
2 um suðaustanáttina og mælt-
ist til þess að hann og aðrir láti
vera að fjargviðrast út í veðrið,
m.a. vegna þess að það hafi
áhrif á fólk sem heima situr, en
mundi annars sleikja sólina þar
sem veöur er gott annars staðar
á landinu.
Ég held að þú ofætlir þarna
áhrif okkar, sem vinnum í út-
varpi, og gerir um leið óþarf-
lega lítið úr dómgreind jreirra
sem hlusta á útvarpið. Ég get
ekki með nokkru móti skilið að
athugasemd dagskrárgerðar-
manns um suddann og slag-
viðrið hér á suðvesturhorninu
geti komið í veg fyrir að fólk
leiti uppi gott veður, t.d. á
Austurlandi, enda vísast aö
sami dagskrárgerðarmaður dá-
sami þá dýrö í næstu setningu.
Og á hinn bóginn breyta orð
okkar engu um elsku margra á
stormi og stórrigningu, sem
ekki þarf að lasta.
Við, sem sitjum hér í höfuð-
stöðvum Ríkisútvarpsins og
spjöllum viö hlustendur af
mismikilli alvöru, getum ekki
leynt því og viljum ekki leyna
því að við erum hér, þar sem
flestar lægðir taka land og mis-
mikillar ánægju gætir yfir veðr-
inu. Á hinn bóginn reynum
við að vega upp á móti þessum
landfræðilegu staðreyndum
með öflugu sambandi við alla
SiguröurG. Tómasson.
landsmenn, starfsemi svæðis-
útvarpa í þrem landshornum,
duglegum fréttariturum og síö-
ast en ekki síst umfangsmikilli
lifandi dagskrárgerð utan af
landi, með hjálp nýjasta tækni-
búnaðar.
Þetta er nú að verða ansi
löng ræða um lítið efni. Ég
heyri oft gremjukeim í tali
manna, sem finnst veðurlýs-
ingar dagskrárgerðarmanna
héðan úr Efstaleiti bera vott
um þröngan sjóndeildarhring
okkar útvarpsmanna. Ég held
að svo sé alls ekki. Þetta er bara
partur af persónulegu og alþýð-
legu útvarpi, sem hvaö sem
öðru líður er eign okkar allra.
Og það er opið öllum sjónar-
miðum.
Haföu annars kæra þökk fyr-
ir drengilegan stuðning við
Ríkisútvarpið.
Bestu kveðjur!
Reykjavík, 11. júlí,
Sigurður G. Tómasson,
dagskrárstjóri Rásar 2
Hér afhendir Ulrich Falkner frú Vigdísi Finnbogadóttur minjagripi um
heimsókn Harmonikufélagsins til Bessastaöa. Þar þáöu félagar veitingar
og fróöleik um sögu Bessastaöa eftir aö forsetinn haföi hlýtt á leik þeirra.
T.h. er hljómsveitarstjóri Stórsveitarinnar, Karl jónatansson.
Lífleg starfsemi
Harmonikufélags
Reykjavíkur
Félagar í Harmonikufélagi
Reykjavíkur, en þeir eru um 95
talsins, hafa fengið mörg tæki-
færi undanfarið til að þenja
nikkur sínar. í maí síðastliðn-
um hélt félagið sína árlegu Há-
tíð harmonikunnar í Danshúsi
Glæsibæjar fyrir troðfullu húsi.
í júní lék stórsveit félagsins fyr-
ir Vigdísi Finnbogadóttur for-
seta. Við það tækifæri tók einn-
ig Léttsveitin nokkur lög, en
hana skipa Jóna Einarsdóttir og
Matthías Kormáksson (13 ára).
Að venju spiluðu félagar við
hátíöarhöldin á þjóðhátíðar-
daginn. Framundan er sumar-
hlé, en á hausti komanda verð-
ur þráðurinn tekinn upp að
nýju og hefst þá undirbúningur
fyrir vetrarstarfið.