Tíminn - 22.07.1995, Qupperneq 9
9M«m
Laugardagur 22.'júlí 1995
l r
15
Gallerí, sýningar-
salur, æfingastöb
Athafnakonan Þórey Eyþórsdóttir:
og sumarkaffihús
Úr Callerí AllraHanda.
Þórey Eyþórsdóttir
stofna&i Gallerí Allra-
Handa á Akureyri áriö
1987 og segir ab upphaf þess
megi rekja til stofnun fé-
lagsins Nytjalistar, sem hún
hafbi forgöngu um ásamt
fleiri konum um mibjan ní-
unda áratuginn. Félagib var
sett á stofn í þeim tilgangi
ab ná til einstaklinga sem
störfubu ab nytjalist, en Þór-
ey er mebal annars mennt-
abur vefnabarkennari. Eftir
ab hafa tekib þátt í störfum
félagsins um hríb ákvab
hún ab setja á stofn sölu-
gallerí, þar sem bobib er
upp á vandaba listmuni, og
var þá einkum meb nytjalist
í huga auk annarra list-
muna. Galleríib var fyrstu
árin til húsa í Brekkugötu 5,
Minning um framtíðina
Brynhildur Þorgeirsdóttir
myndhöggvari var ab leggja
lokahönd á verk sitt í Ketilhús-
inu í Grófargili á Akureyri, þegar
tíbindamann Tímans bar ab
garbi, en hún er einn þeirra
myndlistarmanna sem tóku þátt
í opnu verkstæbi myndhöggvara
í tengslum vib Listasumar '95 á
Akureyri. Brynhildur vinnur í
gler og stein og var verki henn-
ar, sem nefnist minning, komib
fyrir á grasflöt fyrir framan
Minjasafnib á Akureyri.
Af hverju valdiröu heitið Minn-
ing? Hvers er verið að minnast?
„Ég er nýlega komin heim frá
París þar sem ég dvaldi í Kjarvals-
stofu um tíma," sagði Brynhildur,
þegar viö vorum sest inn á Café
Karólínu handan Grófargilsins.
„Eitt af því sem ég skoðaði þar
voru kirkjugaröar, en ég hef raun-
ar lengi stúderaö þá þar sem ég hef
fariö um. Kirkjugaröar eru mjög
myndrænir og þar ber að líta
margvíslega höggmyndalist. Þótt
ég kalli þetta verk mitt Minningu,
er ég ekki ab höfða til þess liðna
eða einhvers sem hulið er í kirkju-
görðunum. Form verksins á ef til
vill eitthvað.skylt við þaö sem sjá
má í grafreitum, en ég tileinka
þetta verk minningu um framtíð-
ina — þess-sem ókomiö er og við
eigum eftir aö lifa og reyna."
Brynhildur stundaði ..nám, viö
Myndlistar- og handíðaskólann og
framhaldsnám í Bandaríkjunum,
þar sem hún lauk BS-prófi í högg-
myndalist. Hún starfaði um tíma
vestanhafs, en kom heim til ís-
lands árib 1990. Hún hefur haldib
nokkrar einkasýningar hér á landi
eftir heimkomuna, auk þess að
taka þátt í fjölda samsýninga hér
heima og erlendis. Brynhildur hef-
ur vakið verðskuldaöa athygli sem
myndhöggvari og kveðst ein-
göngu fást við höggmyndalistina.
Gler og sandur sé uppistaöa í
mörgum verka hennar og hún
noti þau efni nær eingöngu til að
segir Brynhildur Þor-
geirsdóttir myndhöggv-
ari um verk sitt, sem
unnib var á opnu verk-
stceöi myndhöggvara í
Ketilhúsinu í Grófargili í
byrjun júlí
forma hugsanir sínar og gefa þeim
líf höggmyndarinnar.
Þegar Brynhildur var innt eftir
af hverju myndhöggvarar hefðu
ákveðið að vinna í opnu verkstæði
á Akureyri og koma verkum sínum
síban fyrir víösvegar um bæinn,
sagði hún að hugmyndin að því
hafi fyrst kviknað fyrir tveimur ár-
um. Kristinn E. Hrafnsson mynd-
höggvari hafi fyrstur sett hana
fram og hafi þá gert ráð fyrir aö
verkin yröu sýnd víösvegar um
Eyjafjaröarsvæðiö. Síðan hafi hug-
myndin þróast með þessum hætti.
Þegar komiö hafi í ljós að um að-
stöðu í Ketilhúsinu gæti oröið ab
ræða, hafi listamönnunum litist
mjög vel á hana. Hinsvegar hafi
ekki veriö ljóst fyrr en á vordögum
hvort húsib yrbi tilbúiö í tæka tíð
og undirbúningur að þessu starfi
því veriö meö styttra móti. Strax
og ákvöröun um húsið hafi legib
fyrir, hafi aliur undftbúriingúr far-
iö á fulla ferö og á bilinu 15 og 20
manns muni taka þátt í verkefn-
inu. Brynhildur sagði að lista-
mennimir ynnu með misniun-'
ándimóti og með margvíslegefni.
Sum verkin veröi gerö til þess að
standa, þótt gert sé ráð fyrir að þau
verði fiutt burt að sýningu á Akur-
eyri lokinni, en í öðrum tilvikum
verði aðeins um tímabundin
myndverk aö ræða — myndverk
sem aöeins veröi ætlað að standa
meðan á sýningu stendur. Að
minnsta kosti eitt verkanna verbi
þó væntanlega kyrrt þar sem því
verður komiö fyrir, því þaö byggist
aö hluta upp á gróðursettu tré.
Brynhildur Þorgeirsdóttir leggur
síbustu hönd á hluta verks síns
Minning, á flötinni fyrir framan
Minjasafnit) í innbœnum á Akur-
eyri. Tímamynd Þl
en í byrjun desember áriö
1991 flutti hún starfsemi
þess í Grófargilib á Akureyri
og má því segja ab hún sé
brautryöjandi á þeim slób-
um sem nú eru tileinkabar
lista- og menningarlífi í
bænum.
„Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á listum, einkum vefn-
abi og nytjalist, en málverkib
hefur einnig vakið áhuga hjá
mér. Mér fannst nauðsynlegt
að hér á Akureyri vær' staður
þar sem í boði væru vandaðir
munir og verk eftir íslenska
listamenn og með því að opna
gallerí væri unnt ab kynna
þessa starfsemi betur, því mik-
il gróska hefur verið í nytjalist-
inni á undanförnum árum og
margir góðir listamenn komib
fram á sjónarsvibið. Meb opn-
un gallerísins hefur einnig gef-
ist tækifæri til ab bjóba bæjar-
búum upp á myndlistarsýn-
ingar ýmissa listamanna og
kynna listafólk sem er starf-
andi í öbrum landshlutum en
hér á Akureyri. Ég tel það
naubsynlegt alveg á sama hátt
og mikilvægt er fyrir okkar
listamenn ab sýna og kynna
verk sín annarstabar og þá
ekki síst á höfuðborgarsvæb-
inu."
En Þórey starfar víbar en í
Grófargilinu á Akureyri. Fyrir
rúmu ári opnabi hún sumar-
kaffihús í gömlu húsi á Hjalt-
eyri þar sem hún leggur
áherslu á heimilislegt um-
hverfi, heimabakað meblæti
meb kaffinu og listsýningar.
En af hverju hugkvæmdist
henni ab opna kaffihús í
gömlu síldarþorpi við Eyja-
fjörb?
„Upphaf þess var ab vib
hjónin höfðum fest kaup á
þessu húsi á Hjalteyri ásamt
systkinum mínum og fjöl-
skyldum þeirra. Þegar við fór-
um ab vinna ab lagfæringum á
húsinu, komumst vib ab því
ab margt fólk, sem leib átti i m
Eyjafjörbinn, ók nibur á evr-
ina til þess ab skoba sig um.
Engin þjónustustarfsemi af
þessu tagi var fyrir og þá
kviknabi hugmyndin ab þess-
um rekstri. Vib opnubum í
byrjun júní í fyrrasumar og
vibtökurnar voru betri en við
höfbum þorab ab vona. Þab
varb til þess ab vib ákvábum
ab halda þessu áfram í suraar."
Um síðustu áramót festu
Þórey og eiginmabur hennar,
Kristján Baldursson, kaup á
húsnæbi á gömlu Sambands-
verksmiðjulóðinni vib Dals-
braut 1 á Akureyri. Ab undan-
förnu hefur líf þar verib ab
aukast meb tilkomu nýrra at-
vinnufyrirtækja og annarrar
starfsemi. í húsnæbi þeirra
hjóna er góbur sýningarsalur,
sem ábur var kaffistofa ullrr-
og skinnaverksmibjanna á
Gleráreyrum, og hann hafa
þau nýtt til sýningarhalds ab
undanförnu.
„Þab eru nokkrir listamenn
þegar búnir ab sýna í salnum á
Gleráreyrum, og þab ánægju-
lega er ab fjöldi fólks hefur
lagt leið sína á þessar sýningar.
Vib fórum út í þetta meb hált-
um huga, vegna þess ab stab-
urinn lá ef til vill ekki nægi-
lega vel vib umferb og um-
gangi. Reynslan hefur sýnt
annab, og vera má ab vib eig-
um eftir ab auka bæbi sýning-
arhald þar og einnig er spurn-
ing um hvort staburinn geti
hentab til einhverskonar
verslunarstarfsemi."
Þórey hefur þegar reynt fyrir
sér meb fjölbreyttari starfsemi
á Gleráreyrum en sýningar-
hald, því í janúar á síðasta
vetri opnaði hún æfingastöb í
hluta húsnæbisins þar sem
fólki er bobib upp á létta leik-
fimi í þar til gerbum æfinga-
bekkjum.
FERÐA-
UENN
Viðbjóðum
ykkur
velkomna til
Hvammstanga
í verslun okkar fáið þið flestar þær vörur sem
ykkur kann að vanhaga um á ferðalaginu.
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga
Hvammstanga